Morgunblaðið - 12.12.1993, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1993
Frændsystkin Róberts, Pia og Klaus, loksins á íslandi - í fyrrasum-
ar! I áratugi máttu austur-þýsk skyldmenni Róberts ekki heimsækja
hann á meðan Berlínarmúrinn var og hét.
Róbert í hlut-
verki Zorba í
samnefndum
söngleik í
Borgarleikhús-
inu i Liibeck
ásamt Luise
Ullrich sem lék
ástkonu hans,
Búbúlínu. A
sínum yngri
árum var
Ullrich mjög
þekkt og dáð
leikkona i
Vestur-Þýska-
landi.
lega á, sérstaklega ef leið langur tími
á milli þess sem við hittumst. Að
vísu skrifaði Harry ekki sjálfur held-
ur lét konu sína gera það því að
hann mátti helst ekki sem starfsmað-
ur lögreglu eiga samskipti við út-
lönd. Menn í hans stöðu urðu að
þola ýmis höft af þessum toga.
Reyndar vissi ég til þess að hann
skrifaði mömmu nokkrum sinnum
en það hefur líklega verið litið öðrum
augum.
Þó að Harry væri sjálfur ekki alls-
kostar ánægður með stjórnkerfið í
Austur-Þýskalandi varð hann að láta
sér það lynda. í ábyrgðarstöðu hjá
ríkinu gat hann ekki hoppað inn og
út eftir geðþótta því að hann var
kominn með ákveðna þekkingu um
ýrríis mál sem varð að halda leyndri.
Þess vegna gat hann engan veginn
orðið fijáls maður. Honum hefði ver-
ið ýtt út í kuldann ef hann hefði
verið með einhvern uppsteyt - en
það vildi hann ekki gera fjölskyidu
sinni.
Persónunjósnir
Það er ekki fyrr en nú á allra síð-
ustu árum sem farið pr að tala um
eitthvað sem heitir símahleranir eða
persónunjósnir hér á landi. En á
meðan Austur-Þýskaland var og hét
brúkaði lögreglan þar þessa aðferð
alveg fram á síðasta dag, ég tala
nú ekki um á hótejum og öðrum
opinberum stöðum. Ég varð oft var
við ótta fólks hvað þetta snerti og
get sagt þrjár sögur af því.
I fyrstu ferð okkar Stellu til Aust-
ur-Þýskalands, stuttu eftir að Berlín-
armúrinn var reistur 1960, buðu
ættingjar mínir okkur með sér á
frægan veitingastað, Auerbachskell-
er í Leipzig. Sá staður er líklega
kunnastur fyrir það að Goethe, eitt
af höfuðskáldum þýskra bókmennta,
sótti hann mikið á sínum tíma og
samdi þar m.a. leikritið Fást.
Við fengum borð í kaffisalnum á
efri hæðinni en þar voru margir fyr-
ir. Það fyrsta, sem við Stella tókum
eftir og furðuðum okkur á, var það
hversu hljóðlátt var í salnum. Það
hefði átt heyra saumnál detta. And-
rúmsloftið var vægast sagt undar-
legt. Við töluðum þarna í eðlilegri
tónhæð en tókum eftir því að fólkið
okkar svaraði yfirleitt í miklu lægri
tóni, nánast hvíslaði eins og allir
aðrir þarna inni. Ástæðan var sú að
það voru ekki bara hlerunartæki sem
alþýða manna óttaðist í veitingahús-
um heldur treysti það ekki manninum
við næsta borð, hann gat verið njósn-
ari, útsendari frá lögreglunni. Að
hugsa sér! Allt líf þessa fólks mark-
aðist af óttanum við yfirvöld. Okkur
Stellu snerti þetta ekki neitt sérstak-
lega en það gat verið vont fyrir þau
sem voru með okkur að segja eitt-
hvað ógætilega.
Mér er það líka minnisstætt að á
fyrsta stefnumóti okkar Harrys neit-
aði hann að koma inn til Piu, frænku
okkar. Ég vissi ekki þá hvers vegna
en hann sagði mér það síðar undir
ljögur augu heima hjá sér. Þá var
það þessi ótti við Stóra bróður, að
íbúð Piu yæri ef til vill hleruð. Hann
tók enga áhættu og var fullur tor-
tryggni eins og ailir aðrir sem lifa í
lögregluríki. Það var margt í þessum
dúr sem átti eftir að ljúkast betur
upp fyrir mér.
Þriðja og síðasta sagan er frá því
nokkrum dögum áður en múrinn
hrundi. Þá var ég staddur á hóteli í
Leipzig. Mig langaði til að hitta Klaus
frænda minn, hringdi í hann og bauð
honum til mín til. En þegar hann
birtist vildi hann ekki þiggja að koma
inn á herbergið mitt heldur kaus að
við töluðum saman á fyrstu hæð
hótelsins þar sem var kaffistofa og
bar. Þetta var í eftirmiðdaginn. Fátt
fólk var þar inni og barinn lokaður.
Þegar við vorum sestir niður sagði
hann mér að það í öllum hótelum
væri það sem þeir kalla „wanzen"
eða veggjalýs á íslensku, þ.e.a.s.
hljóðnemar um allt til að hlera hvað
fólki færi á milli. Hann vildi ekki
hætta á að samtal okkar yrði hlerað.
Þetta var nú sá óhugnaður sem
Austur-Þjóðveijar urðu að lifa við í
áratugi.
Bókartitill: Róbert - Ævisaga
Iistamanns
Höfundur: Eðvarð Ingólfsson
Útgefandi: Æskan
Útgáfudagur: 4. desember
Verð: 2980 kr.
Borgardætur/Svo sannarlega
Islenskar Andrews-systur
Hljómplötur
Sveinn Guðjónsson
Fortíðardýrkun hefur verið tals-
vert áberandi í íslenskri hljómplötu-
útgáfu að undanförnu og hafa
menn þá ýmist leitað fanga í gam-
alli hippatónlist eða farið allt aftur
til þeirrar tónlistar sem var í tísku
fyrir stríð. Á nýrri plötu sem ber
heitið Svo sannarlega dusta Borg-
ardætur rykið af stríðsáratónlist í
anda Andrews-systra og það
skemmtilega við þessa útgáfu er
hversu vel er að verki staðið á flest-
um sviðum.
Borgardætur eru Andrea Gylfa-
dóttir, Ellen Kristjánsdóttir og
Berglind Björk Jónasdóttir og radd-
ir þeirra falla saman eins og flísar
í rassa hinna bandarísku fyrir-
mynda. Ef eitthvað er þá fara þær
betur með þessi lög en Andrews-
systrum tókst nokkru sinni og er
þá mikið sagt. Eyþór Gunnarsson,
sem annast upptökustjórn og út-
setningar, á hér stóran hlut að
máli, en nafn hans er að verða eins
konar vörumerki á vönduð og
hnitmiðuð vinnubrögð í hljómplötu-
útgáfu. Að vísu fylgir hann ræki-
lega amerísku forskriftinni í út-
setningum, en bætir um betur þar
sem því verður við komið. Eyþór
annast auk þess píanóleik og lemur
konga- og bongótrommur, en aðrir
hljóðfæraleikarar á plötunni eru
Matthías Hemstock á trommur,
Þórður Högnason á bassa, Sigurður
Flosason á sax, klarínett og flautu,
Yeigar Margeirson á trompet og
Össur Geirsson á básúnu.
Lögin á plötunni eru tólf talsins,
melódísk og keimlík, enda líður
tónlistin áfram í þægilegri stemmn-
ingu frá upphafi til enda. Textam-
ir falla yfirleitt vel að laglínunni,
en flestir þeirra eru eftir Einar
Thoroddsen. Þórarinn Eldjárn legg-
ur einnig fram nokkra texta og
síðan eiga Þrándur Thoroddsen,
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir,
Guðmundur Andri Thorsson og
Andrea Gylfadóttir einn texta
hvert.
Ekki treysti ég mér til að gera
upp á milli textanna á þessari
ágætu plötu, eða nefna eitthvert
(f|SJ FÉLAG ÍSLENSKRA STÓRKAUPMANNA ¥ * ~=-
w _________________________________' mrm
~ 1928-1993
UTFLUTNINGSRAÐ FÍS
Gædamál og innra eftirlit
Útflutningsráð Félags íslenskra stórkaupmanna
boðar til fundar í Skálanum, Hótel Sögu, þriðjudag-
inn 14. desember kl. 12.00.
Framsögumenn verða:
Dr. Róbert Hlöðversson, Nýja skoðunarstofan hf.:
Innra eftirlit í fiskvinnslufyrirtækjum -
Gæðakröfur innan EB.
Ágúst Guðmundsson, Bakkavör hf.:
ISO staðlar - Áhrif gæðavottunar
á markaðssetningu afurða.
Þátttökugjald með hádegisverði kr. 2.500.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu félags-
ins í síma 678910.
FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN.
Glœsilegur nýársfagnaður
í Hafnarfirði 1. janúar nk.
Hátidarmatseðill:
Fordrykkur - Fjarðartár.
Lystauki að txstti Hraunholts.
Laxadúett m/villtu salati, furufrcei og piparrótarsósu.
Kampavínssorbet m/feskri sítrónumelisu.
Pönnusteiktur turnbauti m/kryddjurtasósu, gljáðum kartöflutoppum
og fersku gmnmeti.
Þriggja laga ísterta tn/apríkósusósu ogferskum ávöxtum.
Kafjfi og konfekt.
Skemmtidagskrá kvöldsins býður m.a. upp á:
Kabarett, dansatridi sérstakiega samiðjyrir kvöldið.
Söngatriði, ein efnilegsta söngkona landsins kemurfram.
Eldjjörugur kvartett kemitrfram.
Gamanerindi og Hafnarffarðaranndtl.
Húsiðopnað kl. 19.00- borðhaldhefst ki. 20.00.
Á meðan cí borðbaldi stendur verður leikin lifandi tónlist.
Bókanir eru þegar baftutr og verða til 28. des. i Hraunholti
miiliki. 17.00 og 19.00 eðafsítm 654740.
Bókanireinnig í snyrtivöruversluninniAndorru,
Strandgötu 32, sími52615.
* Verð kr. 5-500, - pr. ntann (afsl. fyrir hópa).
s Ath.: Ekkert hátiðardlag verðttr á bar og borðvíni.
Hafnfirðingar, skemmtum okkur í heimabyggð.
Dansað til kl. 03.00. Veislustjórl: Magnús Scbeving
Hraunholt
Dalsbrauni 15, Hafiutrfirdi. simar 650644 og 654740.
£z
lag öðru fremur. Því síður sé ég
ástæðu til að leggja gæðamat á
frammisöðu Borgardætra hverrar
fyrir sig, enda er það heildin og
samstillingin sem hér skiptir öllu
máli og hefur sá þáttur tekist mjög
vel að mínu mati. Þetta er þægileg
plata að hlusta á og ber fagmann-
legum vinnubrögðum gott vitni.
TIL
SÖLU
DAF 1900 árg. '88, ek. 122
þús. km. Nýr7 m pallur.
MAN9 136, árg. '84,
ek. 132 þús. km, 4x4 með
læstum drifum.
DAF45, árg. '92, 4x4,
ek. 136 þús. km.
3 drifa Benz 26-35, árg. '91,
ek. 126 þús. km.
Vel útbúinn bíll.
OK-RH8, árg. '88, ek. 9.2001.
Ford 6610, árg. '89, með snjó-
blásara, ek. 1.200t.
Öll þessi tæki eru í eigu
Glitnis ht. ug fást á
góðu verði og kjörum.
Til sýnis og sölu hjá
Vörubílum og vélum, Dal-
vegi 2, Kóp., sími 641132,
fax641156.
Heimasími 650529.