Morgunblaðið - 12.12.1993, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 12.12.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1993 B 19 VEÐRIÐ OG VIÐ eftir Bergljótu Ingólfsdóttur Sú einmuna veðurblíða sem við nutum hér á suðvesturhorninu í sumar sem leið, var sannarlega kærkomin. Inni í lygnum fjörðum, norðanlands og austan, eru menn vanari slíkri sumarblíðu en við hér á berangrinum út við opið haf. Það má því gera því skóna að hér hafi menn þakkað fyrir hvern dag. Náttúran hefur skartað sínu fegursta þó nokkuð hafi skort á vætu. Hvergi á byggðu bóli er að finna svo stórbrotna náttúrufeg- urð sem hér á landi, forréttindi okkar, sem hér erum borin og barnfædd, verða aldrei metin til fulls. Það er oft haft á orði, að í minn- ingum frá æskudögum finnist mönnum að alltaf hafi verið sól- skin. Vel má vera að nokkuð sé til í því. Á fullorðinsárum hvarflaði það að þeirri er þetta ritar, að minning- ar um sólrík sumur bernskunnar væru eigin hugarsmíð. En það var þegar ár eftir ár þurfti að dúða barnahópinn, setja á þau húfu, vettlinga og trefil, áður en farið var í bæinn á sumardaginn fyrsta og 17. júní. Það var því viss léttir að sjá um síðir á prenti töflu yfir veðurfar á fjórða og fimmta áratug, það var ekki um að villast, sumrin höfðu bæði verið sólríkari og hlýrri en síðar varð. Fleira vitnaði auðvitað þar um þegar að var gáð. I sjónvarpinu var t.a.m. sýnd mynd, sem tekin var þegar Bretar stigu hér á land í síðari heimsstyijöldinni í maí árið 1940. Nokkur manníjöldi hafði safnast saman á Lækjartorgi til að fylgjast með framgongu hinna erlendu hermanna. Þar stóð þá í fremstu röð strákur, bekkjar- bróðir úr Miðbæjarskólanum, klæddur stuttbuxum og sport- sokkum. Og þetta var 10. dag maímánaðar! Fjölskyldumyndir í albúmi hafa líka að geyma minningar um sól- ríka sumardaga, þegar eftirmið- dagskaffið á sunnudögum var drukkið úti í garði, sunnan við húsið hennar ömmu við neðan- verða Vesturgötuna. Á myndunum eru alltaf gestir, börn og fullorðn- ir, sem sest hafa út í sólskinið til að njóta gróðurs og veðurblíðu með heimilisfólkinu. Hún var því ekki draumsýn ein sumarblíðan, sem við stelpurnar þóttumst muna eftir, þegar við vorum berleggjaðar í háleistum allt sumarið og greinilegur lita- munur á farinu eftir sokkana að hausti. Lífið og tilveram Já, veðrið, vissulega hefur það áhrif á daglegt líf okkar. Menn verða bæði léttari í lund og spori þegar vel viðrar. Það er líka vel þegið að geta verið léttklæddur og lokað vetrardúðann inni í skáp um tíma. Árstíðaskipti gera tilveruna spennandi, hver árstíð býður upp á óteljandi möguleika til að njóta lífsins með einum eða öðrum hætti. Alltaf kemur það jafn mikið á óvart þegar innfæddir íslendingar segja ástæðuna fyrir sjálfviljugri útlegð frá fóstuijörðinni vera þá, að annars staðar sé betra veður. Það hlýtur að vera tilbreytingar- lítið að vakna upp við samskonar veður dag eftir dag og búast í raun ekki við öðru. Um hvað skyldu menn eiginlega spjalla á förnum vegi þar sem ekki er hægt að halda uppi vitleg- um samræðum um veður og vinda? Hugmyndir manna um veðurfar fara auðvitað eftir búsetu, þar miðar hver við sitt. Því var það að bóndasonur úr skagfirskri sveit, löngu fluttur á mölina, svaraði í einlægni spurningu um veður, þar sem hann hafði dvalið á sólar- strönd: „Blessuð verið þið,“ sagði hann, „það var brakandi þurrkur allan tímann!“ | GIVENCY skartgripir frá S kr. 1.900 CHRISTIAN DIOR skartgripir ^ frákr. 3.100 MCM og YSL töskur og fyigihlutir frá kr, 8.980 Franskir og ítalskir 18k demantshringir frákr. 18.880 Svissnesk gæðaúr frá kr. 4.940 BORGARKRINGLUNNI, SÍMI 677230 ® BÚNAÐARBANKINN -Traustur banki Ný þjónustafyrir nýja kynslóð Stjörnubók ankans og Snœfinnur kur - tilvalin jólagjöf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.