Morgunblaðið - 12.12.1993, Side 33

Morgunblaðið - 12.12.1993, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDl DESEMBER' 199T3 B 33« Mannaferðir í himingeimnum Frá Þór Jakobssyni: Fimmtudaginn 2. desember sl. skutu Bandaríkjamenn á loft geim- ferju með sjö manns innanborðs og var ætlunin að gera við geimsjón- auka sem kenndur var við stjarn- fræðinginn E.P. Hubble og svífur sjónaukinn um jörðina hátt yfir loft- hjúpi. Morgunblaðið birti fallega mynd daginn eftir að brottför geim- feijunnar frá Canaveralhöfða. Ofan við lofthjúpinn, þennan drullupoll til ama stjömuglópum, gefst firna- gott útsýni langt út í geim. Vísindamenn sinna margs kyns verkefnum með hjálp sjónaukans en keppikefli sumra þeirra er að uppgötva sólkerfi. Mönnum er með vissu einungis kunnugt um eitt sól- kerfí. Það eru okkar eigin heim- kynni: sólin og hnettirnir (reiki- stjömur) sem ganga umhverfís sól- ina: Merkúr, Venus, Jörðin, Mars, Júpíter, Satúmus, Úranus, Neptún- us og Plútó. Aldarfjórðunginn sem af er geim- öld hefur könnun á jörðinni fleygt fram, sömuleiðis könnun á tunglinu „okkar“, og öllum fyrrnefndum hnöttum í sólkerfínu og þeirra fjöl- mörgu fylgihnöttum. Ólík gerð hnattanna og margvíslegir lofthjúp- ir þeima hafa verið rannsakaðir með mælingum í geimferðum og fræði- legum útreikningum. Auk alls þessa hafa lífsskilyrði annars staðar í sól- kerfínu en hér á jörðu verið metin og teljast þau harla bágborin. Næstu áratugi verður öflugum sjónaukum skutlað upp fyrir loft- hjúp jarðar. Sumir munu svífa um jörðina, aðrir verða reistir á tungl- inu þar sem ríkir eilíf heiðríkja. Leit að öðmm sólkerfum auk okkar eigin merkilegu heimkynna verður í algleymingi. Stjamfræðingar munu beina sjónaukum sínum að hverri stjörnu (= sól) himingeimsins á fætur annarri og spyija: reikar hnöttur umhverfís þessa stjörnu — eða þessa, þessa. Einn góðan veðurdag, ef til vill á okkar dögum eða dögum næstu kynslóðar, kann svo að fara að menn uppgötva með vissu annað sólkerfi áþekkt okkar — og svo enn annað. Álykta verður þá að milljón- ir sólkerfa séu í Vetrarbraut okkar og öðmm vetrarbrautum. Og enn væri fásinna að svo komnu máli að ætla annað en að víða séu lífsskil- yrði utan þess sólkerfis sem við eig- um heima í. Þann dag sem menn yrðu full- vissir um þetta og litu til himins og segðu: já, alheimurinn er mor- Pennavinir Fertugur lettneskur frímerkja- og seðlasafnari: Serge Fedorchenko, Varnu 15-26, Riga, Latvia LV 1009. Frá Ghana skrifar 24 ára stúlka með áhuga á ferðalögum og körfu- knattleik: Ekuwa Akyira, P.O. Box 1192, Oguaa, Ghana. Fimmtíu og eins árs Þjóðveiji vill eignast íslenska pennavini: Hans-Dieter Fliigge, Lunenburger Strasse 21, D-28205 Bremen, Germany. Nítján ára fínnsk stúlka með áhuga á eróbík, golfi, dansi og bréfaskriftum: Sari Huhtala, Suksitie 16 A 4, 84100 Ylivieska, Finland. Svissneskur frímerkjasafnari vill komast í samband við íslenska safn- ara: Fabio Bianchi, Via alla Torre 20, 6850 Mendrisio, Svizzera. andi af lífi, — sá dagur yrði merk- asti dagur mannkynssögunnar, jafnvel merkari en vígsludagur Ke- opspýramídans fyrir 4500 árum og upphafsdagur geimaldar, spútnik- dagurinn 4. október 1957. Það er skemmtileg tilviljun að vera til ein- mitt nú og vera vitni að slíkum tíð- indum — fyrst maður missti af vígsludegi Keopspýramída. Fylgj- umst með! ÞÓR JAKOBSSON veðurfræðingur, Espigerði 2, Reykjavík. VELVAKANDI Metnaðarfull ballettsýning Þann 1. desember var haldin ballettsýning í Þjóðleikhúsinu fyr- ir troðfullu húsi. Þetta var fjáröfl- unarsýning fyrir Listdansskóla íslands. Þar kenndi margra grasa og voru sýnd mörg stutt atriði. Listdans á íslandi hefur árum saman átt undir högg að sækja. Þó svo að við „eigum“ Helga Tóm- asson og fjöldann af öðrum döns- urum sem starfað hafa og starfa enn við virt leikhús erlendis, hafa ráðamenn þjóðarinnar haft mjög takmarkaðan skilning á því, hve ungir nemendurnir þurfa að byija í listgreininni og hve stutt starf- sævin er. Til þess að hlúa að list- dansinum þarf fjármagn, aðstöðu og síðast en ekki síst hæfileika- ríkt og metnaðarfullt fólk til að kenna og þjálfa. Það ber að þakka það sem vel er gert og vissulega hafa stjórnvöld gert ýmislegt, en ekki nóg. Listdansskóli íslands er ríkisskóli, sem stendur núna uppi nánast íjárvana. Umrædd sýning var einmitt sett á fót til að hressa upp á fjárhaginn. Ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta bréf er ekki sú að agnúast út í fjárveitingavaldið, heldur fyrst og fremst að þakka fyrir frábæra sýningu. Þarna skorti hvorki metnað kennara né nem- enda. Ég er stolt yfír því að eiga barn í skólanum. Mér fínnst gott til þess að vita að nemarnir fái fyrsta flokks kennslu og leiðsögn hjá kennurum, sem eru sannir listamenn og hafa til að bera metnað til að miðla af reynslu sinni og þekkingu. Engu var kast- að fram í hálfkæringi á sýning- unni, að baki hveiju atriði voru miklar æfíngar, þarna var agi og fágun í fyrirrúmi. Dansarar ís- lenska dansflokksins lögðu einnig sitt af mörkum til að gera kvöldið sem glæsilegast. Það gerðu þeir bæði með dansi og með því að semja dansa, in.a. fyrir nemana. Þá má geta þess að Egill Ólafsson og Bergþór Pálsson sungu saman við góðar undirtektir áhorfenda. Bæði þeir og íslenski dansflokk- urinn gáfu sína vinnu. Þeim ber öllum að þakka. Að lokum vil ég setja fram áskorun til menntamálaráðuneyt- isins, að það láti af hendi rakna a.m.k. jafnháa fjárhæð til List- dansskóla íslands og skólinn afl- aði sjálfur í Þjóðleikhúsinu 1. des- ember sl. Við þurfum að hlúa að því sem vel er gert og mikið vær- um við fátækari, ef ballettinn hyrfí af sviðinu. Foreldri. EKKIHÆKKAÍ STRÆTÓ MIG langar að mótmæla fyrirhug- aðri hækkun á strætisvagnagjöld- um, en stefnt er að því að hækka strætisvagnagjhöld úr 100 kr. upp í 120 kr. frá áramótum. Til hvers? Er ekki nógu dýrt í strætó? Með þessu móti eru strætisvagnarnir að fæla frá sér stóran hóp far- þega, sérstaklega þá sem í raun- inni geta ekki komist leiðar sinnar á annan hátt en með strætó, en það eru unglingar 13 ára og eldri. Unglingar á þessum aldri þurfa að nota strætó mikið, t.d. til að geta komist í skóla, tónlist- arskóla, á íþróttaæfingar, í bíó og margt fleira. Peningurinn sem fer í strætóferðir er fljótur að safnast saman. Staðreyndin er sú, að margir unglingar eru hættir að tíma að fara í strætó. Fólk gengur frekar en að fara í strætó, en það vill svo til að á íslandi er því miður ekki alltaf veður til þess, sérstaklega ekki á veturna. Mér finnst að unglingar eigi ekki að þurf a að borga fullorðinsf- argjald alls staðar, sérstaklega ekki í strætó, heldur eigi að fá afslátt eins og aldraðir. Það er nógu oft sem við heyrum frá full- orðnu fólki, að við séum ekki orð- in fullorðin. Guðný Einarsdóttir ORÐSENDING FRÁ GULLKÚNST KONAN sem keypti hálsmen og eymalokka með ametyst í versl- unninni Gullkúnst, Laugavegi 40, fimmtudaginn 9. desember, er beðin að hafa samband við versl- unina sem fyrst. UMRÓFUROG STÖÐUMÆLASEKTIR BORGARI hringdi og var æva- reiður yfír því hvernig vegið væri að bíleigendum í miðborginni. Hann sagðist hafa ætlað sér í Kolaportið sl. sunnudag til að kaupa ódýrar rófur, sem hann og gerði. Hann lagði bíl sínum uppi á Arnarhvoli, gegnt fjármálaráðu- neytinu, og lentu tvö hjól bílsins uppi á gangstétt. Þegar borgarinn kom svo úr rófuleiðangrinum í Kolaportinu hafði hann fengið sekt sem hljóðaði upp á eitt þús- und krónur. Þar sem þetta var á sunnudegi, allar verslanir lokaðar og hann taldi sig ekki vera fyrir neinum, var hann ekki sáttur við gang mála svo hann fór á stúfana og talaði við þá sem sjá um um- ferðarsektir hjá borginni. Hann fékk þau svör að það væri átak í gangi til þess að fá fólk til að leggja bílum sínum í bílastæða- húsin sem væru í grenndinni. Þessum reiða bíleiganda fannst að stöðumælaverðir gætu látið þá bíla í friði sem ekki væru fyrir neinum,.þó svo að lagabókstafur- inn hefði sagt að líklega hefði hann ekki átt að leggja þarna. En honum þótti rófurnar orðnar dýrar, eða um 1.100 krónur kíló- ið, eftir þessa ferð í Kolaportið. Huseign - serbýli oskast til kaups á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Staðgreitt upp að 10,0 millj. Aðeins hús í góðu standi kemur til greina, helst nýbygging. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 16. desember merkt: „Húseign - 13058". Jólasveinar í Kringlunni kl. 14 og 15 O P I Ð í D A G 12-17 Jólasöngvar kórs Langholtskirkju og Kórskóla Langholtskirkju Einsöngvarar: ÓlöfKolbrún Hardardóttir Eiríkur Hreinn Helgason Stjómandi: Jón Stefánsson. Hljódfæraleikarar: Bemhard S. Wilkinson, flauta, Hallfrídur Ólafsdóttir, flauta, Monika Abantroth, harpa, Jón Sigurðsson, bassi, og Gústaf Jóhannesson, orgel. Föstudaginn 17. desember kl. 23.00 (uppselt). Laugardaginn 18. desemberkl. 23.00. Sunnudaginn 19. desember kl. 16.00. Forsala mida í Langholtskirkju og Eymundsson. Miðaverð kr. l.OOO. . zSani er ossfætt JOIASÖNGVAR * KÓRS L4NGHOLT5KIRKJU Fæst í hljóm- plötu- verslunum og Langholtskirkju •m ’ fj ' , > . . f \ fe&fr ?*r A TA Útgefandi: Orgelsjóöur Langholtskirkju. Dreifing: Japis Til styrktar orgeli í Langholtskirkju Þú svalar lestrarþörf dagsins ástóum Moggans!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.