Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 2

Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 Málamiðlun menningarstrauma Doktor Hjalti Hugason. Bókin, eða ritverkið vegna 1000 ára afmælis kristnitökunnar, er í vinnslu og segir ritstjórinn Hjalti að það sé von þeirra sem að verk- inu standa að það geti komið út „nokkru áður“ en hátíðahöld hefjast, helst árið 1998 eða svo. Hann segir að endanlegt form liggi ekki fyrir, en hann sjái verkið fyrir sér sem fjögur bindi og þau komi út hvert af öðru og langur tími líði ekki milli binda. Undir- búningsstarfið hófst upp úr áramótum 1990 til 1991, en þá hafði ákvörðun um útgáfuna hafði verið tekin og ritnefnd skipuð. I henni sitja auk ritstjórans Sigurjón Einarsson pró- fastur á Kirkjubæjarklaustri, Jónas Gíslason vígslubiskup .í Skálholti og Helgi Skúli Kjartansson dósent og sagnfræðingur. Auk Hjalta rita meginkafla þau Gunnar F. Guð- mundsson, Loftur Guttormsson, Hanna María Pétursdóttir og Sigurður Ámi Þórðar- son, auk þess sem einstakir aðilar verða fengnir til að taka að sér sérefni innan vissra tímabila. Til dæmis hafa þær Ásdís Egils- dóttir og Guðbjörg Kristinsdóttir verið ráðn- ar til að skrifa um bókmenntir og listir á miðöldum. „Við teygjum okkur eins langt aftur í söguna og hægt er og þó að við sem ritum megintextana séum að reifa sérstök tímabil, liggja alls ekki fyrir ártöl eða dag- setningar um það hvenær þessu tímabilinu eða hinu lýkur. Eiginlega viljum við láta verkið sjálft leiða það í Ijós. Þannig má segja að hér fari í raun fram endurskoðun á hefðbundinni tímabilaskiptingu, enda er á ferðinni býsna sundurleitþróun, tiltölulega lítið mótað kristnihald í upphafí, kaþólsk miðaldakirkja, lútersk ríkiskirkja og svo fjölþættur átrúnaður nútímans,“ segir Hjalti. En hvert er eðli verksins? „Þetta er ekki hrein kirkjusaga, heldur fremur skoðun á gagnkvæmri mótun. Konungurinn er látinn og erkiengillinn Mi- kjáll vegur og metur hvort sálin sleppi til himna. Árarnir t.v. eru greinilega ekkert á því og leggja þétt á vogarskálamar og félag- ar þeirra ýta einnig undir skál kóngsins. Þ.e.a.s. hver áhrif kristni hefur haft á þjóð- ina í gegnum aldimar og svo öfugt, hver áhrif þjóðin hefur haft á þróun kristninnar. Við fínnum vonandi eitthvað ferskt í þess- ari skoðun okkar.“ Lengri aðdragandi - Er eitthvað sem hægt er að nefna í því sambandi? „Það er vafasamt að vera að segja mikið um það á þessu stigi málsins, en þó er eitt sem ég vil nefna, eina forsendu sem ég hef verið að vinna minn hluta textans út frá. Þannig er, að ég tel að kristnitakan hafí orðið með öðram hætti en almennt hefur verið talið. Oft hefur verið talið að kristnita- kan hafí verið hraðfara, en ég tel að hún hafi átt sér langan aðdraganda og fjölþætt þróun hafí komið við sögu. Ég tel að sú þróun hafí byijað strax um landnám og hún byggist á því að íslendingar vora alls ekki einangraðir. Þvert á móti vora þeir í miklum og góðum tengslum við umheiminn og ég tel að kristnin hafi verið til staðar strax í upphafí byggðar hér á landi, t.d. meðal lág- stéttarfólks og kvenna. Hjá fólki sem var óháðara valdastofnunum en höfðingjamir sem þurftu að hugsa meira um völd og áhrif í samfélaginu. En þróunin kom einnig ofan frá ef þann- ig mætti að orði komast, karlmennimir sem meira máttu sín í þjóðfélaginu kynntust nefnilega kristninni sem menningarfyr- irbæri í vexti erlendis. Menn urðu til dæm- is vitni að jólahaldi Noregskonunga og urðu mjög hrifnir. Það má því segja að kristni hafi borist upp eftir samfélaginu frá lág- stéttunum og niður eftir samfélaginu frá höfðingjunum. Þessi þróun náði hámarki við kristnitökuna, hvort heldur hún var árið 999 eða 1000. Eftir það var trúin síðan að þróast og segja má að hún sé að því enn, að minnsta kosti má rekja ýmsa merka atburði í íslandssögunni til þeirra breytinga sem kristnitakan hafði í för með sér. Eg leyfí mér að vinna út frá þessum forsend- um,“ segir Hjalti og brosir að næstu spurn- ingu, hvort slíkt verði ekki gagnrýnt, teygt og togað. „Það má búast við því, en mér sýnist þetta vera borðleggjandi." Bókmenntaþjóðin Hjalti er beðinn um að nefna dæmi um ofanskráð. Hann heldur áfram: „Þó að at- burðurinn sé kallaður kristnitakan þá er þetta miklum mun meira en einvörðungu trúarbragðaskipti. Þama staldrar heil þjóð við og spyr sig áleitinna spuminga. Til dæmis, eigum við að halda saman einu alls- heijar samfélagi með einum lögum og einu þingi? Eða eigum við að láta það viðgang- ast að þjóðin klofni í tvennt, annars vegar með fomu norrænu gildismati og hins veg- ar með kristilegri siðfræði? Myndi slíkt ekki leiða til ófriðar? Og hvað um utanríkispóli- tíkina og þá hættu að einangrast ef siða- skiptunum væri hafnað? Og hvað um þjóð- legar hefðir? Ég sé kristnitökuna þannig fyrir mér að hún er á margan hátt alveg hliðstæð við umræðuna í dag. Hvemig hög- um við búsetu okkar á tímum EB, EES og eftir lok kalda stríðsins svo eitthvað sé nefnt. Svo er annað. Fjölþættur atburður á borð við trúarbragðaskipti hlýtur að hafa víðtæk áhrif. Til dæmis þróunin í að verða bók- Þannig er, að ég tel að kristnitakan haf i orðið með öðrum hætti heldur en almennt hefur verið talið. Það stóð raunar ekki lengi, innbyrðiserjur fóru vax- andi og náðu hámarki á Sturlungaöld, en færa má rök fyrir því að kristnitak- an hafi á sinn hátt hleypt af stað þeirri óáran. Engu að síður voru jólin nokkur hornreka í fyrstu, landsmenn lögðu meira upp úr Mikjálsmessuhaldi. menntaþjóð. Sú þróun tengist kristnitökunni með áberandi hætti. Munnleg menning breytist í ritmenningu. Þá breytast sam- skiptahættir og gildismat. Eftir kristnitök- una tók við nokkurs konar friðaröld, alþingi var nánast vopnlaust um tíma! Það stóð raunar ekki lengi, innbyrðiseijur fóra vax- andi og náðu hámarki á Sturlungaöld, en færa má rök fyrir því að kristnitakan hafi á sinn hátt hleypt af stað þeirri óáran.“ - Hvernig tengist það? „Jú, það myndast nýjar samfélagsstofn- anir, t.d. biskupsstólar sem verða gífurlega sterkir. í kjölfarið fer eignasamruni vax- andi og það ásamt valda- og samfélagsupp- stokkun leiðir af sér vaxandi spennu í þjóð- félaginu. Svona má æði lengi halda áfram,“ segir Hjalti. Mikjáll - En hver er saga jólanna í þessum hrær- ingum? „Jólahald mótaðist innan rómverska heimsveldisins og snerist í fyrstu ekki um fæðingu frelsarans. Þá var dagurinn 6. jan- úar helgur og minnti á skírnina, heimsókn vitringanna og kraftaverkið í Kana, er Jes- ús breytti vatni í vín. Er trúin breiddist út rakst hún alls staðar á siði og venjur ann- arra trúarbragða og það verður að segjast eins og er, að kirkjan var á þessum tíma afar opin fyrir slíku. Hún aðlagaðist vel og gat nýtt sér ýmislegt sem á vegi hennar varð. Að þessu leyti sýna kannski jólin með vissum hætti hvernig tveir menningar- straumar mætast. Jólin falla nefnilega smám saman að rómönskum ljós- og sólar- hátíðum. Endurkoma ljóssins eftir dimmu vetrarmánaða. Norðar í álfunni voru menn á líkum nótum og vanir að halda blót um þetta leyti. Þetta gat því ekki verið betra, því sjálfur hafði Kristur sagt að hann væri ljós heimsins. Þetta var því borðleggjandi málamiðlun fyrir tvo menningarstrauma þar sem áherslan á fæðingardag Krists varð smám saman aðalatriði jólahalds kristninn- ar.“ Og Hjalti heldur áfram. „Að tveir straum- ar mætist og renni saman er eðli trúar- bragðaskipta. Hvað okkur varðar eru straumarnir ólíkir, en mynda samt sam- fellu. Jólasveinninn til dæmis, Sánkti Kláus, er í rauninni heilagur Nikulás sem breytist smám saman í þann rauðklædda jólasvein sem við þekkjum í dag. Hann er ráðandi, en samt eram við með innlenda og þjóðlega jólasveina sem voru í gerólíkum hlutverkum. Við eram einnig með fyrirbæri eins og jóla- köttinn sem auk þjóðlegu jólasveinanna minnir á myrka hlið hátíðahaldsins sem kristnin rennur hér saman við. Jólahald var allt í mjög föstum skorðum er íslendingar tóku kristni. Engu að síður vora jólin nokkur hornreka í fyrstu, lands- menn lögðu meira upp úr Mikjálsmessu- haldi. Mikjáll var erkiengill sem gegndi mikilvægu og fjölþættu hlutverki í trúarlífí manna. Mikjáll var vemdari mannanna og tákn hins góða í ævarandi baráttu gegn hinu illa í heiminum. Hann setti sálir framl- iðinna á vogarskálarnar í bókstaflegum skilningi. Til era af honum myndir með skálamar. Ef góðu verkin bára hin verri ofurliði að mati Mikjáls, fengu sálimar vist í himnaríki og Mikjáll fylgdi þeim þangað persónulega. Um þetta snerist öll mannleg tilvera og því ekki að undra þótt Mikjáls- messuhald hafí borið annað ofurliði í fyrstu. Messa Mikjáls var auk þess 29. september, sem sagt mjög nærri jólahaldinu. Hitt er svo annað mál, að þetta var aðeins í fyrstu, fæðingardagur frelsarans náði brátt yfír- höndinni og heldur henni enn,“ segir Hjalti. Sérstaðan Hjalta hefur orðið tíðrætt um samruna menningarstrauma og samfelluna sem við köllum kristni og jól. Síðustu orðin í þessum hugrenningum eru: „Svona nálgun hjálpar okkur. Hún vekur athygli á sérstöðum og undirstrikar hverjar þær era. Og gefur svör við spurningum. Spurningum um hvað sé sérstakt við að vera íslendingur.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.