Morgunblaðið - 19.12.1993, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DBSEMBER 1993
B 3
Snoðhausar
... • í >•
- Sprellfjörugir prakkarar
í sumarbyrjun létu krakkarnir í hverfinu snoða sig eins og
körfuboltakappa og svo tóku ævintýrin við ... Þau fundu
stórhættulegt skrímsli í mýrinni, sendu ömmu Pálinu í svaðilför
með fljótabát, lentu í styrjöld við Ámunda leigubílstjóra og tíkina
Lottu ... Já, það gerðist sannarlega ýmislegt sögulegt hjá
snoðhausunum í nýja hverfinu þetta sumar!
Snoðhausar er sprellfjörug og frískleg
prakkarasaga eftir Jón Hjartarson,
myndskreytt af Brian Pilkington. IÐUNN
Er allt að verða vitlaust?
Spennandi o§
raunsæ unglingasaga
Er allt að verða vitlaust? eftir Iðunni Steinsdóttur er fyndin og'
raunsæ saga úr umhverfi sam allir unglingar þekkja. Flóka, Hildu,
Arnari og Olgu stendur þó sannarlega ekki á sama um yfirganginn í
töffaraliðinu í 9. bekk. Einn daginn halda þau þó að nú sé öllum
hremmingum lokið ... en það reynist skammgóður vermir!
„Þetta er spennandi og þroskandi saga.“
(Silja Aðalsteinsdóttir, DV).
ÍÐUNN
£ $'*&*#*&* 969RuðnH $
Tröll eru bestu skinn eftir Andrés Indriðason er bráðfyndin saga
um hann Sigga, sem fór í Stóru blómabúðina að velja jólatré með
mömmu og pabba. Ekki grunaði hann að þar myndi hann
kynnast tröllastráknum Dusa. Fyrr en varir eru þeir félagar
komnir á þ'eysisprett út um borg og bý þvi að Dusi er búinn að
týna mömmu sinni - henni Grýlu - og það er vissara að finna
hana áður en illa fer.
Eldfjörugt nútímaævintýri, rikulega
myndskreytt af Brian Pilkington
ÍÐUNN