Morgunblaðið - 19.12.1993, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.12.1993, Blaðsíða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 Krtti ónáttúra á kvenfólki að vera með hmf Texti: Jón Stefónsson/Myndir: Einar Falur Ingólfsson Himinninn var kafskýjaður og kuldi í lofti þegar við rennd- um í hlað á Víðifelli, Fnjóskárdal. Fjórir hundar tóku gelt- andi á móti bílnum. Þeim er ekki vel við okkur, hugsaði ég og gekk með Einari upp að öðru íbúðarhúsinu. Einn hundanna gekk fast á eftir okkur en hinir þrír stóðu við bílinn. Tveir þeirra geltu meðan sá þriðji merkti sér annað afturdekkið. Hulda beið okkar í garðinum. Hún bauð okkur að ganga inn og þiggja kaffi. Mér var hrollkalt og því kaffisopanum feginn. Við tölum aðeins um ótíðina og Hulda rifjar upp draum frá nóttinni áður. „Ég var á bændafundi“, segir hún þar sem hún situr undir eldhúsglugganum og strýkur hendi yfir ennið „og fólk sat á bekkjum meðfram veggjum upp á gamla mátann. Það var urgur í því enda verið að ræða um mikinn niðurskurð. Þá kemur Vigdís Finnbogadóttir forseti inn og sest á einn bekkinn. Menn rjúka til og vilja bjóða henni betri sæti, en hún svarar bara: Ég sit þar sem ég sest!“ Er þetta fyrir áframhaldandi ótíð, spyr ég óviss, enda óvanur því að lesa í drauma. Hulda brosir bara, ypp- ir öxlum. „Það kemur í ljós“, segir hún og býður okkur meira kaffi. sínum. Á veturna situr hún síðan og sker út aska, pennastokka, hala- snældur og aðra þjóðlega gripi. „Þetta eru nú bara hjáverk", segir hún hógværðin uppmáluð, fer með okkur fram í stofu og dregur fram nokkra smíðisgripi. „Ég þarf að passa mig vel að sitja ekki of lengi við. Á það til að gleyma mér alveg og fæ þá í axiinar. Verð stundum hreint tréstirð í höndunum. Hér er ekki stórt heimili en þó í mörgu að snúast og því get ég ekki byrjað í útskurðinum fyrr en um jólin. Svo hendi ég öllu frá mér þegar kemur fram í apríl og fer þá í mo!dina.“ Hún tínir fram nokkra hluti og út- skýrir skurðinn og uppruna mynstr- anna. Ertu eitthvað að selja munina, „Það þótti ónáttúra á * kvenfólki að vera alltaf með hníf en ekki þessí venjulegu kvennaáhöld. En ég kom nú frá þannig heimili að það var ekki mikið sett út á þó ég væri ekkert fullkomin." spyr ég. „Það er nú lítið, þetta er mest svona gjafadót handa ættingj- um. Yngsta barnabarnið var nú ekki nema tíu ára þegar hann fór að impra á því að hann þyrfti að fá ask í fermingargjöf. Ég sagði honum að ég yrði nú löngu dauð þegar kæmi að því. Ja, þú getur þá byijað núna, svaraði hann. Og ég skar út ask og er búin að geyma í tvö ár. Ég er með hann hérna uppi á lofti“, segir Hulda og er rokin upp stigann og við í humátt á eftir. Útskurður og handbolti Hulda sótti námskeið í útsögun og grunnum útskurði þegar hún var 15 ára. „Þetta var á hinum alverstu krepputímum", segir hún og horfír annarshugar á askinn sem yngsta barnabarnið fær í fermingargjöf. „Ég varð því að fara heim eftir einn mánuð. En ég hélt nú áfram að dunda mér við þetta. Að vísu hafði ég hvorki aðstæður né réði yfir tækni til að skera almennilega út, kunni ekki að skera djúpt. Ég lærði það ekki fyrr en kvenfélagið hélt nám- skeið fyrir einum þrettán árum. Það þótti ónáttúra á kvenfólki að vera alltaf með hníf en ekki þessi venju- legu kvennaáhöld. En ég kom nú frá þannig heimili að það var ekki mik- ið sett út á þó ég væri ekkert fuil- komin.“ Hulda segist hafa lært vandvirkni hjá föðurbróður sínum, sem var smiður góður. Hann smíðaði til dæmis skíði úr harðviði sem hann mótaði, stakk síðan öðrum endanum í stóran pott og sauð dágóða stund. Þegar viðurinn var orðinn mjúkur, sveigði hann endana og þá voru skíðin tilbúin. En útsögunarnámske- iðið var ekki það eina sem Hulda sótti á unglingsaldri. Eitt sinn kom maður frá Noregi og hélt íþrótta- námskeið í Alþýðuskólanum að Laugum, kenndi þar meðal annars handbolta. Um þijátíu sóttu nám- skeiðið og var Hulda yngsti þátttak- andinn og auk þess eina konan. „Berklarnir tóku hana“ Þú ert þá fyrsta konan sem hefur æft handbolta hér á iandi, segi ég við Huldu. Hún segist nú ekki vilja fullyrða neitt um það. í þessu rek ég augun í mynd af konu sem kem- ur mér kunnuglega fyrir sjónir. Ég kannast nú eitthvað við þessa konu, segi ég. Hulda tekur myndina niður og handleikur hana eins og brot- hættan hlut. „Þetta er skáldkonan Guðfinna Jónsdóttir frá Hömrum. Einhver mesta vinkona sem ég hef átt.“ Hulda þagnar dágóða stund, horfír á myndina og minningarnar gefa andliti hennar dreymandi svip. Eg svipast um í bókahillunni, finn kvæðasafn Guðfinnu og les síðasta erindið úr Mig dreymir enn: Mig dreymir enn og dreymir. Ég draumalöndin á. Ég fór um þau eldi, sem enginn maður sá. Ég fel mig þar í laufi, er lífið gengur hjá. Guðfinna var söngkennari í Al- Handverk Huldu. ■ulda er 84 ára gömul og ber aldurinn ákaflega vel. Fylgist grannt með öllu sem gerist og er stálminnug. Á veturna sér hún um húsverkin íyrir sig, dóttur sína, Álfhildi Jónsdóttur og I tengdason, Árna S. Olafsson. En á sumrin helst hún illa inni og er dag- | langt „í moldinni", eins og hún orð- ar það. Hún er þá í tijáræktinni, plantar, grisjar og snyrtir trén sem eru í kringum og fyrir ofan húsið. Huldu er umhugað um að hafa fal- legt í kringum sig. Fyrir neðan þjóð- veginn eru til dæmis nokkrar litlar tjarnir með grónum bökkum og fal- legum hólmum. Fyrir rúmum fimmt- án árum Jýi Hulda grafa fyrir tjörn- unum og borgaði með ellilaunum Hulda B. Kristjánsdótt- ir, Víðifelli Þingeyjar- sýslu, talar um útskurd, skáldkonu og fortíðina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.