Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993
SCHINDLER-
SKRÁIN
Steven Spielberg
fær líklega
Óskarsverðlaun
fyrir kvikmynd um
helför gyðinga
Enginn kvikmyndagerðarmaður hefur gert eins margar
metsölumyndir og Steven Spielberg og hingað til hafa myndir
hans yfirleitt verið af léttara taginu og kunnastar fyrir
tæknibrellur. I sumar sló hann í gegn með
risaeð!umyndinni„Jurassic Park“, sem nú þegar hefur aflað
Universal-fyrirtækinu 900 milljóna dollara tekna eða nærri 65
milljarða króna, en síðan hefur Spielberg snúið sér að alvarlegri
viðfangsefnum og síðasta kvikmynd hans, Schindler-skráin,
fjallar um einhverja hryllilegustu glæpi þessarar aldar -
ofsóknir nazista gegn gyðingum.
Liam Nee-
son sem
Oskar
Schindler (til
hægri) og
Ben bókari
hans. Á inn-
felldu mynd-
inni er Oskar
Schindler.
Eitt af óhugnalegum atriðum úr kvikmyndinni.
Kvikmyndin var frumsýnd á mið-
vikudaginn í 15 borgum i
Bandaríkjunum og verður tekin til
sýninga í öðrum löndum 10. febr-
úar. Hún er svart/hvít og rúmlega
þriggja tíma löng, fáir kunnir leikar-
ar koma fram í henni og mynd um
jafnhræðilegt efni er ekki líkleg til
mikilla vinsælda. Hins vegar er ekki
talið fráleitt að ætla að Spielberg
hljóti Óskarsverðlaun fyrir kvik-
myndina og þá mun gamall draum-
ur hans rætast, því að hann hefur
lengi keppt að því að fá verðlaunin.
Schindler-skráin er sönn saga um
þýzkan stríðsgróðabraskara, sem
bjargaði rúmlega 1.300 pólskum
gyðingum úr fangabúðunum í Ausc-
hwitz. Kvikmyndunin fór fram í
skugga dauðabúða nazista í Pól-
landi og Spielberg hefur unnið að
undirbúningi myndarinnar í tæplega
10 ár. Með gerð hennar telur hann
sig sýna að hann _sé orðinn þroskað-
ur listamaður. „Ég þurfti 10 ár til
þess að verða nógu þroskaður til
þess að geta sagt að nú væri ég
tilbúinn að gera Schindier-skrána,“
segir Spielberg, sem er 46 ára gam-
all.
Sjálfur er hann af gyðingaættum
og efni myndarinnar stendur honum
nærri. Hann missti um 12_ættingja
í helförinni í Póllandi og Úkraínu.
Spielberg notar engin tæknibrögð
í Schindler-skránni eins og í flestum
öðrum kvikmyndum sínum og sam-
starfsmenn hans segja skýringuna
þá að síðasta mynd hans „komi frá
hjartanu". írski leikarinn Liam Nee-
son leikur Oskar Schindler, þýskan,
kaþólskan, vínhneigðan, kvensaman
iðnrekanda og nazista, sem flytst
til Kraká eftir innrás nazista og
verður bjargvættur verkamanna
sinna, en brezki leikarinn Ben
Kingsley fer með hlutverk bókara
Schindlers af gyðingaættum.
Schindler-skráin er persónuleg-
asta og metnaðarfyllsta verk Spiel-
bergs, sem hefur leikstýrt ijórum
af tíu mestu metsölukvikmyndum
allra tíma, en varð að beita öllum
áhrifum sínum í Holiywood til þess
að fá nýjustu mynd sína gerða.
Framleiðsla myndarinnar kostaði 30
milljónir dollara og aðstandendur
hennar vona að nafn Spielbergs
tryggi góða aðsókn að mynd um
helför gyðinga, sem hingað til hefur
ekki verið efni í sölumyndir. Auglýs-
ingakostnaði verður haldið í lág-
marki.
Allt frá því tökur myndarinnar
hófust lagði Spielberg mikla áherzlu
á að hvert einasta atriði í henni
væri rétt. Hann sagði leikendunum
að þeir tækju ekki þátt í gerð venju-
legrar kvikmyndar heldur sagn-
fræðiverks. Kvikmyndatakan fór að
miklu leyti fram í miðaldaborginni
Kraká, þar sem 65.000 gyðingar
bjuggu þegar nazistar náðu henni á
sitt vald, en aðeins nokkur hundruð
nú.
Spielberg sýnir mörg hrottafeng-
in atriði í kvikmyndinni, þar á með-
al útrýmingu gyðingahverfisins og
skyndiaftökur í Plaszow-vinnubúð-
unum. En um leið gætti hann þess
að stilla ofbeldisatriðum í hóf til
þess að koma ekki róti á hugi venju-
legra áhorfenda, jafnvel þótt hann
yrði þar með að hnika til sögulegum
staðreyndum. Tæknilegur ráðu-
nautur frá fv. Júgóslavíu, Branko
Lustig, sem lifði af vist í fangabúð-
um, kveðst stundum hafa skammað
Spielberg fyrir að sum atriði væru
ekki nógu raunsæ. „Ég sagði honum
að meira hefði verið um barsmíðar
og hann sagði: Já, en þær mega
ekki sjást of mikið. Aðeins í bak-
grunninum." Lustig bætirvið:
„Hann vildi ekki sýna öli ódæðin."
Kvikmyndunin tók þijá mánuði
og margir komust oft í geðshrær-
ingu, grétu jafnvel. „Um var að
ræða sviðsetningu á dauða í tröll-
auknum mæli - sex. milljóna
manna,“ sagði Kingsley. „Við stóð-
um við hliðina á draugum."
Spielberg lét Neeson leika mann,
sem margir telja dýrling, en er síður
en svo flekklaus. „Schindler vildi
auðvitað græða eins mikið og hann
gat. En innst inni var hann mann-
vinur,“ sagði Neeson. Þegar „end-
anleg lausn gyðingamálsins" stóð
sem hæst mútaði Schindler yfir-
manni fangabúða til þess að fá að
flytja 1.300 gyðinga til verksmiðju
sinnar í Tékkóslóvakíu, þar sem
hann faldi þá uns stríðinu lauk.
Schindler dó í fátækt 1974 og kvik-
myndin er byggð á verðlaunabók
eftir Thomas Keneally frá 1982. -
Margir í Hollywood telja að
Schindler-skráin kunni að verða til
þess að gagnrýnendur hrósi Spiel-
berg fýrir að taka alvarlegt efni til
umfjöljunar auk þess sem hann
hljóti Oskarsverðlaunin í fyrsta sinn.
Fyrir viku valdi félag kvikmynda-
gagnrýnenda í Los Angeles Schindl-
er-skrána“ bestu kvikmyndina, en
Jane Campion var valin besti leik-
stjóri fyrir Píanóið. Poldek Pfeffer-
berg, einn svokallaðra „Schindler-
gyðinga, kveðst gera ráð fýrir að
myndin muni „ýta talsvert við fólki“.
„Ég var ekki að leita að efni um
gyðinga,“ sagði Spielberg þegar
hann var að því spurður hvers vegna
hann hefði ákveðið að gera kvik-
mynd um Schindler-listann. „Bókin
höfðaði til mín vegna þess að höf-
undur hennar takmarkaði sig við
staðreyndir og var óháður. Bókin
var hlutlaust yfirlit um Helförina
og höfðaði ekki til tilfinninga."
Ég heiti Snœfinnur snjókarl og ég er
BANKI