Morgunblaðið - 19.12.1993, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 19.12.1993, Qupperneq 22
22 B MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 Koma þœr enn fyrrf Heimsendingar • r Fyrirbæríð jólamyndir er næstum jafn gamalt al- mennum kvikmyndasýningum á íslandi. Strax árið 1930 voru Gamla Bíó og Nýja Bíó farin að auglýsa jólamyndir sérstaklega og allar götur síðan hafa bíóin leitast við að bjóða uppá eitthvað umfram hin- ar hversdagslegu sýningar um jólin. Þær voru mis- jafnlega gamlar jólamyndirnar þegar þær komu i bíóin hér áður fyrr, alit upp í nokkurra ára. Það var ekki fyrr en áríð 1983 sem allar jólamyndirnar voru sýndar hér sama árið og þær voru gerðar. Eftir það eru jólamyndiraar nær undatekningarlaust nýjar. Hin síðustu ár hefur þróunin í kvikmynda- sýningum orðið mjög ör. Það borgar sig ekki að bíða með sýningar á stórmynd- mBBMMMMBHMi um fram til jóla heldur eni þær sýnd- ar um leið og tæki- færi gefst eftir Arnold sem . er Sndriðason yfírleitt frá nokkr- um vikum uppí fáeina mán- uði frá frumsýningu er- iendis (les Bandaríkjun- um). Nýjar myndir eru það sem mestu máli skiptir. En það þýðir ekki að minni áhersla sé lögð á að hafa eitthvað bitastætt um jólin — Aladdín með íslensku tali er t.d. sönnun þess. Jólamyndamálin eru enn í þróun og í framtíðinni má búast við að jólamynd- imar í Bandaríkjunum verði líka jólamyndirnar hér.heima og út um allan heim raunar. Hefur orðið vart þessarar þróunar upp á síðkastið. Sumar jóla-' myndimar vestra em líka jólamyndimar í Reykjavík. Svo þetta sé sett á auðskil- ið viðskiptamál fyrir pítsu- glaða íslendinga: Ef Holly- wood gerði pítsur væru þeir í því þessa dagana að bæta heimsendingarþjón- ustuna þótt langt sé í land að þeir gefí þær fríar. í grein í nýlegu hefti Variety, tímariti banda- ríska skemmtanaiðnaðins, er sagt frá því að jólin séu að verða eins um allan heim hvað biómál snertir. Miðasala á bandarískar bíómyndir utan Bandaríkj- anna hefur slegið öll met í ár og verður meiri en hún var metárið í fyrra. Heims- markaðurinn skiptir bandaríska kvikmynda- framleiðendur sífellt meira máli og þeir reyna að svara kreflandi eftirspurn eftir flúnkunýjum myndum. Nýjasta mynd Olivers Sto- nes, „Heaven and Earth“, verður framsýnd á jóladag í Japan á sama tíma og hún verður frumsýnd í Bandaríkjunum. í Ástralíu verða myndimar Veröld Waynes 2, Systragervi 2, „Beethoven 2nd“ og „Mrs. Doubtfíre" framsýndar að- eins nokkram dögum eftir framsýningu vestra. Dreif- ingaraðilar líta sérstaklega til Japans og Ástralíu því þar er langt jólafrí og í Ástralíu er desember að- sóknarmesti mánuður árs- ins. Á undan Japan; Add- amsfjölskyldugildin, Fyrir- tækið. Kvikmyndahúsin hér heima standa sig vel að þvi er virðist miðað við önnur lönd. Milljónaþjóð eins og Spánn sýnir Pyrirtækið með Tom Cruise i þessum mánuði (útdauð hér heima) og þeir í Japan fara bráð- lega að skemmta sér á „Cliffhanger" og Svefnlaus í Seattle. Við eram einnig á undan Japan með Add- amsfíölskyldugildin svo dæmi sé tekið (framsýnd þar ájóladag) og Regnbog- inn verður fjórum dögum á eftir Tókíó með „The Man Without a Face“. 19.000á Píanóið Alls hafa nú um 19.000 manns séð Píanóið eftir Jane Champion að sögn Ing- vars Þórðarssonar rekstrar- stjóra Regnbogans. Um 13.000 manns hafa séð Þríhyminginn, tæp 10.000 Áreitni og um 5.000 „Red Rock West“. Miklar breytingar hafa staðið yfir á kvikmyndahús- inu að undan- fömu en áætlað er að frum- sýna jóla- mynd- ina,„„The Man Wit- hout a Face“ með Mel Gib- son þann 22. desem- ber. Fljót- lega á nýju ári verða eftirtaldar myndir framsýndar í Regnboganum: Kryddlegin hjörtu frá Mex- íkó, sem gerð er eftir sam- nefndri skáldsögu er komið hefur út á íslandi, spennu- myndin Malice eftir Harold Becker, Kalifornía, sem Sig- uijón Sighvatsson framleiðir, „Needful Things", sem gerð er eftir sögu Stephens Kings, og loks tvær listrænar mynd- ir, önnur frá Frakklandi en hin frá Hong Kong, „Germ- inal“ með Gérard Depardieu undir leikstjóm Claude Berrie og Bless, hjákona mín eftir kínverska leikstjórann Chen Kaige, sem deildi Gullpál- manum á Cannes með Jane Champion fyrir bestu mynd- ina. Hjákonan kvödd; úr mynd Chen Kaige sem hreppti Gullpál- mann á Cannes ásamt Píanóinu. UÁrið 1993 ætlar að verða ár Steven Spielbergs. Ekki er nóg með að hann hafi gert eina aðsóknarmestu mynd allra tíma, Júragarð- inn, og tryggt sig þannig í sessi sem dýrmætasti leik- stjóri Bandaríkjanna heldur virðist hann líka ætla að slá í gegn hjá gagnrýnendum með nýjustu mynd sinni, helf- ararsögunni Lista Schindl- ers. Háskólabíó mun sýna þá mynd og er áætlaður sýning- artími í byijun mars. Einnig hefur Háskólabíó sýningar- réttinn á nýjustu mynd ít- alska leikstjórans Bernardo Bertolucci, Litla Buddha, með Keanu Reeves í aðal- hlutverki. Er áætlað að sýna hana í febrúar. UForvitnilegt leikaralið kemur saman í nýrri mynd sem ástralski leikstjórinn Russell Mulchay leikstýrir og er í undirbúningi. Hún heitir „The Shadow" og með aðalhlutverkin fara Alec Baldwin, John Lone, Pene- lope Ann Miller, Peter Bo- yle, Tim Curry og sir Ian McKelIen. UBreski leikarinn sem fór með hlutverk kvenmanns- ins/karlmannsins í „The Crying Game“ og hlaut út- nefningu til óskarsverðlauna fyrir heitir Jaye Davidson eins og margir muna. Hann er nú farinn að leika í Holly- wood og heitir fyrsta myndin hans þar „Stargate" og er með Kurt Russell og James Spader í aðalhlutverkum. Framleiðandi er hasarmaður- inn Marío Kassar en leik- stjórinn heitir Ronald Emm- erich. af og íslenskt tal; úr dönsku fjölskyldumyndinni Krummunum. íslenskt tal á Krummunum Frakkar era hrifnir Jóhönnu af Örk skal engan undra en nú standa yfír tökur í Frakk- landi á enn einni Jóhönnu- myndinni og er franska leikkonan Sandrine Bonna- ire sú fjórtánda sem fer með hlutverk hetjunnar. Leikstjóri myndarinnar, sem heitir „Jeanne la Puc- elle“, er hinn 65 ára gamli Jacques Rivette og hófust nýlega tökur á henni í Lorraine stutt frá þeim stað sem sveitastúlkan gerðist stríðsherra árið 1429 „til að flæma Englendinga burt úr konungsríkinu". Rivette er einn af ný- bylgjuleikstjóranum í Frakklandi ásamt mönnum eins og Truffaut, Godard, Chabrol og Rohmer. Hann ritstýrði kvikmyndatímarit- inu fræga Cahiers du Ci- néma. Hann er þekktur í heimalandi sínu fyrir myndir eins og „L’amoru fou“ (1967) og „La bande des quatre“ (1988) og hann hefur aldrei látið lengd mynda sinna flækjast fyrir sér. Síðasta mynd hans, „La belle noiseuse“ frá ár- inu 1991, var næstum fjór- ir tímar að lengd. Ein af jólamyndum Há- skólabíós er danska fjölskyldumyndin Krumm- arnir sem frumsýnd var í gær en hún er fyrsta leikna bíómyndin sem fær ís- lenska talsetningu síðan Ronja ræningjadóttir var sýnd í Nýja Bíói árið 1986. Þýðandi myndarinnar er Ágúst Guðmundsson og Þorbjöm Á. Erlingsson sá um leikstjórn og fram- kvæmdastjórn talsetn- ingarinnar. Þeir sem ljá persónum myndarinnar raddir sínar eru: Jóhann Ari Lárusson, Sólveig Arn- ardóttir, Edda Heiðrún Backman, Jóhann Sigurð- arson, Sigurður Skúlason, Ari Matthíasson, Gísli Hall- dórsson, Róbert Arnfinns- son, Jón Börkur Jónsson og Rós Þorbjarnardóttir. Krummarnir er byggð á bamabókum danska rithöf- undarins Thöger Birkeland en leikstjóri myndarinnar er Sven Methling. Atburðir myndarinnar eru séðir með augum hins 11 ára gamla Mads sem er sonurinn í dæmigerðri danskri fjöl- skyldu þar sem vandamálið er m.a. það að foreldrarnir hafa ekki tíma fyrir börn sín. Jóhanna 14da Enn eln Jóhanna; Bonnaire brosir breitt við tökur á „Jeanne la Pucelle“. IBIO Jólamyndirnar eru nú flestar komnar í hús og kennir margra grasa. Nýjustu myndirnar í ár eru ævintýramyndin Skytturnar 3 (ekki Skyttumar III) og end- urbætt Addamsfjöl- skylda en stutt er síðan þær vora framsýndar í Bandaríkjunum. Megnið af myndunum er fyrir fjölskylduna og unglinga en tveimur er stefnt sérstaklega á full- orðna fólkið. Önnur er Öld sakleysisins í Stjörnubíói, mögnuð mynd Martins Scorsese um samfélagsgerð há- aðalsins í New York á Viktoríutímabilinu en hin er önnur Shakespe- aremynd Kenneths Bra- nags, Ys og þys út af engu. Hún er auðvitað mun léttari á bárunni en meistarstykki Bra- naghs, Hinrik V, en hef- ur ekki fengið síðri dóma. Sú jólamynd sem þó á kannski eftir að vekja mesta athygli í ár verður frumsýnd í Sambíóunum á annan í jólum. Það er Disney-teiknimynd og heitir Aladdín. Hún er fyrsta Disney-teikni- myndin með íslensku tali og ef eitthvað er að marka bandaríska viku- ritið „Time“ er hér um að ræða teiknaða hlið- stæðu myndarinnar „Raiders of the Lost Ark“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.