Morgunblaðið - 19.12.1993, Side 23

Morgunblaðið - 19.12.1993, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 B 23 Dansvænt léttmeti Hljómplötur Árni Matthíasson Pís of keik hefur vakið verð- skuldaða athygli undanfarin misseri, enda hefur hljómsveitin verið iðin við að senda frá sér lipurlega samda og flutta dans- tónlist. Þau lög sem hljómsveitin hefur sent frá sér hefðu farið nærri með að fylla á þriðju breið- skífu ef allt er talið, en þó var það ekki fyrr en nú fyrir jólin að liðsmenn Pís of keik, Máni Svavarsson, tónlistarheili sveit- arinnar, Júlíus Kemp og Ingi- björg Stefánsdóttir, gáfu sér tíma til að hljóðrita breiðskífu. Sú heitir Do it og kom út fyrir skemmstu. Danstónlist að hætti Pís of keik hefur notið hylli undanfarið, þó svo virðist sem harðari dans- tónlist og hraðari hafi vinninginn sem stendur. Eins og heyra má á Do it er danstónlist Pís of keik að mestu léttmeti, en þó ekki alltaf léttvæg, og á milli eru sprettir sem koma blóðinu á hreyfingu. Platan er reyndar ekki eins sterk og margur átti von á í ljósi þeirra laga sem sveitin hefur þegar sent frá sér, líklega ekki nóg fjölbreytni í boði. Veikleiki Pís of keik er líklega söngur Ingibjargar Stefánsdótt- ir, eða réttara sagt að rödd henn- ar, sem er sykruð og mjúk, á alls ekki við þegar sýður á keip- um. Gott dæmi um það er upp- hafslag plötunnar, sem er ósköp meinlaus lagleysa, en þegar fer að hitna í kolunum þegar fjórð- ungur af laginu er eftir og kallar á harðari rödd og kraftmeiri fell- ur það um sjálf sig. Öðru lagi plötunnar farnast öllu betur, er ágætlega kraftmikið, sem skrif- ast að nokkru á trommuleik Ing- ólfs Sigurðssonar. Quere me er það lag sem helst hefur heyrst í útvarpi, en þar leikur Ellýs Vil- hjálms stórthlutverk. Lagið sjálft er ágætt evrópopp, með léttum danstakti, en nærvera Ellýar lyftir því upp úr formúlunni, í það minnsta á meðan rödd henn- ar heyrist. Eitt eftirtektarverð- asta lag plötunnar er Fling at the Gambling Table, sem minnir óneitanlega á samstarf þeirra Enos og Bymes (My Life in the Bush of Ghosts) en skemmtilegt hefði verið að fá að vita hver á prédikunina sem ber lagið uppi. Annað eftirtektarvert lag og gef- ur fyrirheit er lagið Cosmo Girl, þó ef til vill full sundurleitt, en skemmtilegur saxófónleikur og síðar kassagítarleikur gera mikið fyrir það. Reyndar eru sprettir í laginu Big Beat, þó það nái aldr- ei flugi. Plata Pís of keik er greinilega ætluð fyrir erlenda útgáfu, í það minnsta er umslag allt meira og minna á ensku og ekki nema gott eitt um það að segja. Það er aftur á móti nöturlegt að sjá „bestu pakkir“ til fjölskyldu og vina; slíkt á bara heima á bil- legri bílskúrsframleiðslu. Brids Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Reybjavíkur Ragnar Magnússon og Páll Valdimarsson sigruðu í Butler-tví- menningnum, sem lauk sl. miðviku- dagskvöld. Röð efstu para varð annars þessi: Ragnar Magnússon - Páll Valdimarsson 286 HrólfurHjaltason-SigurðurSverrisson 274 SigfúsÖmÁrnason-FriðjónÞórhallsson 240 Guðm. Páll Amarson - Þorlákur Jónsson 209 Bjöm Eysteinsson - Aðalsteinn Jörgensen 200 Hjalti Elíasson - Páll Hjaltason 194 Guðlaugur R. Jóhannsson - Örn Amþórsson 187 Guðm. Sv. Hermannsson - Helgi Jóhannsson 151 Sævar Þorbjömsson - Lilja Einarsdóttir 120 Það hlýtur að teljast til tíðinda að staða átta efstu paranna breytt- ist ekki innbyrðis frá fimmta kvöld- inu og segja má því að úrslit hafi legið fyrir tíu umferðum áður en mótinu lauk. Hæsta skor sjötta kvöldið fengu: HrólfurHjaltason-SigurðurSverrisson 79 HalldórMagnússon-CecilHaraldsson 74 RaparMapússon-PállValdimarsson 55 Guðlaugur R. Jóhannsson - Öm Amþórsson 51 ísak Öm Sigurðsson - Haukur Ingason 49 Nú verður hlé á spilamennsku vegna jólahalds og Reykjavíkur- móts í sveitakeppni til miðvikudags- ins 26. janúar. Stjórn BR óskar spilurum gleðilegra jóla og þakkar um leið góð samskipti á árinu sem nú er að líða. MIKIÐ ÚRVAIv /\F BORÐSTOFUHÚSGÖGNUM Á FRÁBÆRU VERÐI Opið í dag, sunnudag frá kl. 13-17. húsgögn ÁRMÚLA 44 - SÍMI 32035 Á geisladisknum Kom heim syngja hinir frábæru söngvarar, Björgvin Halldórsson Sigrún Hjálmtýsdóttir, Egill Ólafsson og Gu Gtinnarsdóttir 12 einstök trúarlög af alkunnri snilld. Öllum ágóða af sölu disksins verður varið til þess brýna verkefnis að koma á fót áfangaheimili fyrir stúlkur, en Krossgötur hafa rekið slíkt heimili fyrir unga menn s.l. 7 ár. Kom heim, góð tónlist, gott málefni og knýjandi þörf! Dreifíng: JAPISð KROSS GÖTUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.