Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 24

Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 HJAIPARSÍS Iman hjálpar Sómölum Sýningarstúlkan Iman, sem er gift David Bowie, hefur á und- anfömum árum lagt sitt af mörkum til að hjálpa samlöndum sínum, Sómölum, í erfíðleikum þeirra. Fyr- ir utan að vekja athygli á málstaðn- um í sjónvarpsþáttum lætur hún hiuta af tekjum sínum ganga til hjálparstarfs í Sómalíu. Má til sanns vegar færa að hún búi hún yfír hjartahlýju. UTGAFA Gæfa mín var að kynnast þessu undarlega fólki Eftir Hildi Friðriksdóttur Landsmenn hafa gjaman á til I finningunnni að sjónvarps- maðurinn Omar Ragnarsson sé sífellt á ferð og flugi. Þetta á eflaust alltaf við en ekki síst núna þegar hann er að gefa út bók sína Manga með svarta vanga og geisladiskinn Ómar finnur Gátta- þef. Ómar hafði mælt sér mót við blaðamann upp úr kl. 8 að morgni, en með símhringingu kl. 10 til- kynnti hann að því miður hefði verið svo mikið að gera að hann hefði ekki komist. Væri ég á staðn- um innan tíðar? Þá ætlaði hann að skjótast áður en hann þyrfti að fara út á land kl. 11. Daginn áður hafði hann verið á Hvammstanga, Snæfellsnesi og í Borgarfírði, en nú lá leiðin norður á Akureyri og til baka samdægurs. „Ég þurfti líka að skjóta Pálma Gunnarssyni söngvara norður í land aðfaranótt þriðjudagsins, því augljóst var að ekki yrði fært næsta dag. Ég ók því tæplega 2.000 km á einum sólarhring," sagði Ómar og viður- kenndi að hann væri orðinn dálítið lúinn. „En það gerir ekkert til, ég hvíli mig bara um jólin — þessa tvo daga sem er frí,“ sagði hann og hló við. Ómar hefur verið þekktur fyrir að fjalla í sjónvarpsþáttum um fólk sem sker sig úr að einhveiju leyti. Hann var ekki nema níu ára þegar hann hitti Möngu, sem er aðalper- sóna bókarinnar, og því lá beinast við að spyija hvort „öðruvísi“ fólk hefði alltaf vakið athygli hans. „Minningin þegar ég sá Möngu fyrst situr fast í huga mér. Ég kom úr framandi umhverfi borgarinnar og hafði aldrei séð neitt þesu líkt. Þessi svarta og skítuga kona, göm- ul, tannlaus og ljót, orkaði mjög sterkt á mig. Þema bókarinnar er þar af leiðandi hversu manni hætt- ir til að dæma fólk við fyrstu sýn. Áður en kynnum okkar lauk fímm sumrum síðar fannst mér hún vera einhver besta og fallegasta kona sem ég hafði kynnst,“ svaraði hann. „Ég var skrýtinn drengur og Manga fann einhvem samhljóm með þessu bami,“ hélt hann áfram. „Ég sat iðulega inni í bænum þeg- ar aðrir fóra í útreiðartúra og þá voram við oft ein. Hún sagði mér frá bernsku sinni, en sögurnar fóra meira og minna framhjá mér. Sum- ar sögumar sagði hún mér aftur og aftur þannig að þær fóra að festast í minninu. Síðustu sumrin sem ég var í Hvammi áttum við nokkur eintöl sem vora mér dýr- mæt því ég man þau næstum orð- rétt.“ Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Ómar Ragnarsson ásamt dótturdóttur sinni Lilju Sóleyju Hauksdótt- ur sem syngur með honum á plötunni Ómar finnur Gáttaþef. Með þeim á myndinni er dóttir Ómars Lára. Brúsinn gegndi hlutverki — Af hveiju var hún alltaf með steinolíubrúsann? „Það var vegna þess að eina sjálfstæðið sem hún varð aðnjót- andi á æviskeiði sínu var að elda ofan í sig sjálf. Hún átti lítinn prí- mus og steinolían var eldsneytið á hann,“ svarar hann og heldur áfram: „Þessi kona var alveg ótrú- leg. Þegar ég fór að gera þættina um Gísla á Uppsölum var mér allt- af í huga að ég hafði sjálfur upplif- að ennþá magnaðri persónur en nokkurn tímann hann. Og þijár á sama bænum! Frænka mín var óskaplegur öðl- ingur og mátti ekkert aumt sjá. Því vora allir „hreppsidjótarnir" komnir á þennan bæ. Manga bjó á bænum en hinar þijár í hálf- hrandum torfbæ. Þær vora orðnar mennskar moldvörpur. Gamla kon- an fékk eina mörk af mjólk á dag, annað fengu þær ekki. Smám sam- an.urðu þær hálftrylltar af söfn- unarástríðu og bærinn var orðinn fullur af skrani. Þær áttu dýrindis föt, peninga sem þær geymdu en gengu í áburðarpokum sem þær hnupluðu og saumuðu saman.“ — Dróstu sjálfur einhvem lær- dóm af þessu strax í þá vera að dæma ekki fólk við fýrstu sýn? KVIKMYNDIR Þóttíst vera lömuð Christina Ricci sem leikur Wednesday í kvikmyndunum um Addams-fjölskylduna segist hafa haft þann draum þegar hún var sex ára að verða fyrst kvenna til að leika fótbolta í heimabæ sín- um. Hún kveðst í raun aldrei hafa hugsað út í það að verða leikari, þrátt fyrir að vera álitin hafa góða leikhæfileika þegar hún var yngri. „Ef ég nennti ekki gera eitthvað eins og til dæmis að þvo upp, þá lét ég mig detta á gólfíð og þótt- ist vera lömuð," sagði hún í nýlegu samtali við blaðamann tímaritsins US. Fyrsta hlutverkið sem hún fékk var að leika dóttur Cher í kvik- myndinni „Mermaids“. Þær náðu svo vel saman að Cher sendir Christinu ennþá afmælisgjafir og stundum sefur Christina heima hjá Cher. Christina sem er 13 ára segir að það þýði ekkert að verða upp með sér yfir kvikmyndaleiknum. — Þegar ég kem heim eftir að tökum lýkur segja bræður mínir við mig: Hvað þykist þú eiginlega vera? og það kennir mér að taka þetta ekki of alvarlega. Svo bætir hún við: „í hvert skipti sem ég fæ kvik- myndahlutverk opnum við kampa- vínsflösku." Og þegar hún sér svipinn á blaðamanninum heldur hún áfram: „Það er að segja ég fæ ekkert af því!“ Christina Ricci sem er 13 ára lætur frægðina ekki stíga sér til höfuðs, a.m.k. ekki ennþá.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.