Morgunblaðið - 19.12.1993, Page 25

Morgunblaðið - 19.12.1993, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 B 25 „Þetta réð eiginlega úrslitum um lífshlaup mitt. Það má eiginlega segja að kynni mín af öllu þessu fólki — ekki síst frænku minni Björgu Runólfsdóttur — hafi grunnmúrað lífsskoðun mína meira en nokkuð annað.“ Lifðu eins og bjarndýr í hýði Ómar segir það hafa verið sína gæfu að kynnast þessu fólki, því þannig hafi hann kynnst þúsund ára tímabili í íslandssögunni sem mörgum sé horfið. „í einum kaflan- um segir frá ungum presti, Birgi Snæbjörnssyni, sem kom í sveitina. Hann heyrði af konunum tveimur sem lifðu eins og bjamdýr í hýði. Þetta voru Ásdís Jónsdóttir frá Rugludal og dóttir hennar Ingunn en einnig bjó þar stundum systir Ásdísar. Enginn vissi í raun á hveiju þær lifðu. Presturinn hafði frétt að Ásdís semdi sálma. Þar sem bærinn var á kafi í snjó varð að moka niður að honum. Þegar því var lokið bönkuðu þeir upp á og Olli frændi minn segir: „Nú verðum við bara að bíða heillengi, því þær liggja í dvala þarna inni.“ Loksins er opnað og mjög mjó, sinaber og föl hönd réttir fram ílát, sem frændi minn hellti í. Presturinn, blautur á bak við eyrun, kallar: „Get ég fengið að tala við Ásdísi Jónsdóttur." Þá var hvæst á móti: „Nei, þú getur það ekki, hún er búin að vera rænu- laus í margar vikur. Og ég hef ekkert við þig að tala.“ Síðan var hurðinni skellt aftur. Birgir var ekki tilbúinn að sætta sig við þetta, hafði samband við hreppsnefndina og lækninn en fékk þau svör að það þýddi ekkert að ætla sér að taka völdin. Þeim hefði einungis einu sinni tekist að kom- ast inn í bæinn. Eftir IV2 tíma dvöl sögðu þeir: „Við vorum svona lengi vegna þess að konan svaraði okkur í ljóðum. Við vorum kveðnir í kútinn og komum orðlausir út.“ Hún hvæsti á eftir þeim: „Þið skul- uð muna það að það var kona sem barði ykkur og það mun aldrei neinum verða hleypt inn í þennan bæ. Fyrr munum við skera okkur á háls.“ Nályktin var óþolandi Svo líður frarri á vorið og það fer að hlýna. Ingunn átti erindi að Holtastöðum og spurði hreppstjór- inn hana um líðan Ásdísar. „Ég veit nú ekkert hvernig hún hefur það, því hún hefur verið dáin lengi. Úr því þú ert að minnast á þetta þá væri ágætt að fá einhveija hjálp. Við viljum jafnvel fara að losna við hana því fýlan er orðin óþolandi í bænum.“ Menn voru sendir þangað og aðkoman var slík að menn áttu ekki orð,“ sagði Ómar og bætti við að sagan af því og greftruninni hefði verið önnur eins uppákoma. „Það kom í ljós að Manga var af sama toga og gamla konan í torfbænum. Hún var fluggáfuð. Hún fór með ljóð fyrir mig, benti mér á ijallið og sýndi mér hve sköpunarverkið var fallegt. Hún talaði um frelsið og lagði áherslu á að ég horfði hátt en léti ekki loka mig inni í einhveijum dal. — Þetta var alveg ógleymanlegt,“ segir Ómar og bætir við að hann geti varla minnst á Möngu án þess að klökkna. „Draumur Möngu var að eignast heimili, eiginmann og barn. Hún felldi hug til ríks bónda- sonar en þeim var fyrirmunað að eigast vegna stéttamunarins. Síðar felldi hún hug til vinnumanns á bænum og varð barnshafandi. Hún ætlaði sér að eiga barnið með því að vinna eins og skepna, gekk fram af sér og missti það í fæðingu fyr- ir bragðið. Það var ekki fyrr en á efri árum sem Manga fékk góða húsbændur, en þá var það of seint, því þá hafði hún misst barnið og báða elskhugana." FEGURÐARSAMKEPPNI F egxirðardrottning fékk íbúð í sárabætur Norska stúlkan Rita Omvik sem tók þátt í keppninni Ungfrú heimur í Sun City í Suður-Afríku fyrir skömmu fór ekki með sigur af hólmi heldur Lisa Hanna frá Jama- ica. Rita kom hins vegar ekki tómhent heim til Noregs, því faðir hennar sem býr á Spáni gaf henni íbúð í bænum Torrevieja í sárabætur. Grace Jones var ein dóm- nefndaraðilanna og sagði hún að Lisa Hanna hefði fengið flest atkvæði hennar, enda væru þær báðar frá Jamaica. Hún bætti við að hún hefði kosið að sjá Ritu meðal þeirra efstu. Hins vegar hughreysti hún hana með því að árið framundan hjá Lisu Hönnu væri ákaflega erfitt og hún ætti Rita Grace Jones var í dómnefnd keppninnar Ungfrú heimur. Hún sagðist gjarnan hafa vilj- að sjá Ritu hina norsku í úrslita- sætunum en á innfelldu mynd- inni sést Rita Omvik með föður sínum, Torgeir Omvik. Nastassja Kinski og Quincy Jones hafa tekið saman á ný. SPURNING ALEIKUR Sjö og níu ára systkin unnu bíl Systkinin Þórey 9 ára og Árni 7 ára duttu heldur betur í lukkupottinn fyrir stuttu þegar dregið var í Risaeðluleik Pepsi. Þau hlutu aðalvinninginn, sem var Renault Twingo-bifreið. „Þau voru að vísu að vonast eftir risaeðlupla- kati, en urðu að vonum ánægð með bílinn,“ sagði móðir þeirra Guðrún Baldursdóttir. Fjölskyldan býr á Höfn í Horna- firði og spjallaði Morgunblaðið stuttulega við Þóreyju. „Ég trúði því varla að við værum búin að vinna bíl. Okkur langaði að eign- ast risaeðluplakat og tókum þess vegna þátt í keppninni. Við áttum að safna tíu töppum og svara þremur spurningum," sagði Þórey. „Ég_ er í skólanum á morgnana en Árni er eftir hádegi. Það var hringt í okkur þegar hann var að fara í skólann og við látin vita. Krakkarnir spyija svolítið mikið hvort við höfum verið að vinna bíl og svoleiðis. Við eigum líka annan bíl, Mitsubishi Lancer, svo að nú eigum við tvo bíla.“ STJÖRNUR Sundur og saman Yið sögðum frá því fyrr á þessu ári að slitnað hefði upp úr sambandi tónlistarmannsins Quincy Jones, sem er sextugur, og hinni 33 ára gömlu leikkonu Nastössju Kinski, ekkert löngu eftir að dóttir þeirra Kenya fæddist. Nú hafa skötuhjúin tekið saman aftur og Quincy losað sig við dömuna sem hann hafði tekið saman við í milli- tíðinni. Quincy og Nastassja hafa sést tvívegis saman með stuttu millibili, 30. nóvember á forsýningu kvikmyndarinnar „Sunset Boule- vard“ og 6. desember á góðgerðar- samkomu. Árni 7 ára og Þórey 9 ára hlutu Renault Twingo-bifreið í Risaeðlu- leik Pepsi. HANZ KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.