Morgunblaðið - 19.12.1993, Side 26

Morgunblaðið - 19.12.1993, Side 26
26 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 Hermóð Lannung man tímana tvenna. Lenín ðsamt konu slnni, Krupskaya, í Gorkl 1922 þar sem hann hvíldlst eftlr heilablóðfall. eftir Pól Pálsson HERMÓÐ Lannung er fimm árum eldri en tuttugasta öldin. Og það mun ekki vera of stórt upp í sig tekið að fullyrða að fáir - jafnvel enginn núlifandi hafi verið eins nátengdur stór- viðburðum þessarar grimmu aldar og hann - það væri þá helst fomleifafræðispíran og ævintýrahetjan Henry Jones í leiknu og stUfærðu mannkyns- söguþáttunum „Æskuár Indi- ana Jones“, sem Sjónvarpið hefur sýnt við miklar vinsældir. Hermóð er lögfræðingur að mennt. Hann var fulltrúi í danska sendiráðinu í Petrógrað í rússnesku byltingunni árið 1917 og vann þá jafnframt mikið fyrir Rauða kross- inn; árið 1921 var hann aðalhvata- maður og skipuleggjari fjölþjóðlegr- ar ráðstefnu róttækra og fijáls- lyndra æskulýðssamtaka í Kaup- mannahöfn, sem hafði að markmiði að koma á vinsamlegum tengslum milli þeirrá þjóða sem bárust á bana- spjót í fyrri heimsstyijöldinni; árin 1922-’24 starfaði hann við og stjóm- aði lengst af hjálparstarfi norska landkönnuðarins Friðþjófs Nansens í hungursneyðinni sem þá ríkti í Sovétríkjunum; hann var einn af fulltrúum Dana á fyrsta allsherj- arþingi Sameinuðu þjóðanna í Lond- on árið 1946 og var í nefndinni sem samdi Mannréttindasáttmála SÞ. Hann tók einnig þátt í stofnun Evr- ópuráðsins árið 1947 og vann að mannréttindalöggjöf þess. Hann sat bæði þing SÞ og Evrópuráðsins í hátt á þriðja áratug, gegndi þar oft formennsku í hinum ýmsu nefndum, auk þess að vera þingmaður Rót- tæka vinstriflokksins í Danmörku, en í þann flokk gekk hann á unga aldri og helgaði líf sitt. Hann hefur verið einn skeleggasti baráttumað- urinn fyrir friði í heiminum og for- maður ýmissa heimssamtaka þar að lútandi. Honum hefur verið veitt heiðursdoktorsnafnbót við háskól- ann í Moskvu, og er sömuleiðis heið- ursfélagi í mörgum félögum, dönsk- um og alþjóðlegum. Og svona mætti lengi áfram þylja... Hermóð býr í gömlu Qölbýlishúsi á Amager, íbúðin ber Rússlandsást eigandans vitni, veggimir þaktir íkonum og myndum eftir rússneska málara, hillur og skápar fullir af rússneskum silfurmunum, á komm- óðu trónir gullinn samóvar sem hélt eitt sinn teinu heitu fyrir rithöfund- inn Leó Tolstoj. Lágvaxinn öldungurinn tekur á móti mér sitjandi þvert á skrifborðið í annarri stofunni, fætumir uppi á stól, vafðir í teppi. A skrifborðinu staflar af skjölum og síminn, sem hringir oft á meðan við spjöllum. Hermóð hefur greinilega í mörgu að snúast og ég spyr hvað sé efst á baugi hjá honum. „Það sem ég er mest upptekinn af þessa dagana er að vinna að því að komið verði upp öflugum öryggis- kerfum, annars vegar svæðisbundn- um og hins vegar fyrir alla jörðina," segir hann og sýnir mér greinargerð um þetta efni sem hann hefur nýlok- ið við að semja fyrir utanríkismála- nefnd Róttæka vinstriflokksins. „Þetta starf er þegar komið talsvert áleiðis með RÖSE (Ráðstefnan um öryggi og samvinnu í Evrópu), en því miður ekki nógu langt til þess að við ráðum við alvarlegar krísur, samanber það sem er að gerast í fyrrum Júgðslavíu. Það þarf sem sagt að styrkja samstarfið langtum betur, og síðan, ef ekki er hægt að ráða við vandamálin svæðisbundið, verður heimskerfið að fara í gang, það er að segja Sameinuðu þjóðim- ar, sem eru heldur ekki nógu öflug- ar á þessu sviði, eins og sama dæmi sannar. Að öðru leyti líður dagurinn við lestur dagblaða, maður verður jú að fylgjast með því sem er að gerast - og ýmislegt stúss í hinum hversdags- legri málum. Ég hef stofnað nokkra sjóði sem veita styrki til friðarmála og starfsemi safna og það er tals- vert starf í kringum þá. Krönborg- arkastali stendur líka hjarta mínu nærri; ég hef setið í stjórn hans frá upphafí fimmta áratugarins, lengur en nokkur annar, og þrátt fyrir að ég sé ekki embættismaður hafa þeir viljað hafa mig þar áfram, því ég þekki svo vel til allra mála sem tengj- ast honum. Meðal annars er eitt af mínum stóru baráttumálum að við endurheimtum borðhimin Friðriks II. Það var hann sem reisti Krónborg og lét vefa þetta teppi sérstaklega fyrir kastalann, en Svíar stálu því í stríðinu árið 1658. Þetta er svona svipað mál fyrir okkur og handritin voru fyrir íslendinga á sínum tíma, og ég talaði til dæmis oft um þetta við Olof heitinn Palme, þótt það bæri ekki árangur. En heim skal það fyrr en síðar!“ Útför leníns Það yrði alltof langt mál að fara hér í saumana á hinum viðburðaríku árum í Rússlandi fyrir og eftir bylt- inguna 1917. Sjálfur hefur Hermóð skrifað um öll þau ævintýri í bókinni „Min russiske ungdom" (Gyldendal, 1978). En með því eftirminnilegasta var útför Leníns .. . „Já, Lenín, hann dó í lok janúar árið 1924. Hann var mjög athyglis- verður maður, og ég hef oft hugsað um hve þáttur hans í sögunni er sérstakur. Hann kom til Rússlands í apríl 1917, en í júní varð hann að flýja og fela sig í kofa við landa- mæri Finnlands. Og kom ekki aftur fyrr en 1 október, skömmu fyrir okt- óberbyltinguna sem átti sér reyndar stað dagana sjöunda og áttunda nóvember eins og við vitum. Hann fékk fyrsta hjartaáfallið árið 1922, og svo komu þau eitt af öðru, þ.ann- ig að þau ár sem hann var virkur í Sovét voru í rauninni aðeins fimm. En það var auðvitað gífurlegt hveiju hann kom í verk á þessum fimm árum, bæði góðu og vondu. Hann vann Iíka allan sólarhringinn. Og svo kom í ljós eftir andlátið að heilinn í honum var svo kalkaður og hafði rýrnað svo mikið að menn höfðu Rætt við Hermóó Lannung, fyrrum þing- mann Rót- tæka vinstri flokksins í Danmörku varla séð annað eins! En Lenín dó sem sagt ’24 og undir það síðasta hafði hann búið úti í sveit, á Gorkí-setrinu. Svo var lík hans flutt til Moskvu, og ég var með þegar tekið var á móti honum á lestarstöð í útjaðri borgarinnar. Það voru ekki margir viðstaddir. Ég var þar í tvennskonar erindum ef svö má segja: Annars vegar sem frekar háttsettur erlendur diplómat, hins vegar sem blaðamaður enska blaðsins Daily News, því vinkona mín sem var fréttaritari þess blaðs hafði skroppið í frí til Englands og beðið mig um að leysa sig af, enda bjóst hún ekki við að neitt fréttnæmt gerðist á meðan hún yrði í burtu. En kistan var borin frá lestarstöð- inni inn í borgina og það voru Stalín og hinir strákarnir í flokksstjórninni sem báru hana á öxlum sér að rúss- neskum sið. Ég gekk fast á hæla þeim.'og það var hræðilega kalt og við gengum eftir snævi þöktum göt- um til húss verkalýðshreyfingarinn- ar. Stalín átti síðan eftir að launa öllum nema einum af þeim sem báru með honum kistuna með því að senda þá yfir í annan og betri heim; það voru Kamenev, Bukharin og þeir strákar. Núnú, við komum sem sagt í hús verkalýðshreyfingarinnar og þá gerðist dálítið sem mér þótti mjög athyglisvert. Nú átti að koma honum fyrir á hvfldarbörum svo fólk gæti komið og vottað honum virðingu sína. Það skipti sér enginn af mér, svo ég fékk að fylgja konu Leníns og systur inn í súlnasalinn þar sem hann átti að hvfla og var því á besta stað til að fylgjast með þessu öllu. Lenín var komið fyrir á börunum og hendur hans lagðar í kross, sem var mjög skiljanlegt, enda góður og gamall siður þegar látnu fólki er hagrætt. En ég hugsaði með mér að þetta væri athyglisvert og gengi aldrei því það væri svo andkommún- ískt. Það verður fróðlegt að sjá ljós- myndimar í blöðunum á morgun, hugsaði ég. Og auðvitað var hann ekki með krosslagðar hendur á þeim. Ég minntist síðan oft á þetta í sam- tölum við kommúníska vini mína, en var alltaf svarað á þann veg að ég hlyti að muna þetta eitthvað skakkt. En fyrir ekki svo mörgum árum var ég sem formaður Dansk- rússnesku menningarsamtakanna staddur á Lenínsafninu í Moskvu og forstöðumaðurinn spurði mig hvort það væri eitthvað sem ég hefði sér- stakan áliuga á í sambandi við ævi Leníns. Ég spurði fyrst um eitthvað saklaust, en bað síðan um að fá að sjá þær allra fyrstu Ijósmyndir sem teknar hefðu verið af Lenín eftir andlát hans. Forstöðumaðurinn dró þær fram - og á þeim er hann með krosslagðar hendur. En ég var líka við jarðarförina. Frostið var svo mikið, að það þurfti að sprengja fyrir grafhýsinu, sem reist var til bráðabirgða. Þessi jarð- arför er ein af áhrifamestu upplif- unum lífs míns. Það var líka ekki verið að jarða mann, heldur sjálfan þjóðardýrlinginn." 500 ára friður - Hvernig hefur verið fyrir þig að fylgjast með þróun Sovétríkjanna frá upphafi til enda? „Það hefur vissulega verið mjög athyglisvert, og ég vildi segja það þannig, að ég vissi alltaf að Sovétrík- in myndu líða undir lok, en ég hefði aldrei trúað því að það gerðist svona hratt. Ég hélt að það tæki lengri tíma og myndi gerast á skýrari hátt; það hefur verið svo mikil ringulreið á öllu. Ég hef sjálfur aldrei verið kommúnisti, en var árum saman formaður Dansk-rússneska menn- ingarfélagsins - kannski einmitt vegna þess. Það hafa alltaf allir vit- að að ég er fijálslyndur í stjórnmál- um; meðlimur í Róttæka vinstri- flokknum og heiðursfélagi í alheims- samtökum fijálslyndra eins og Stein- grímur ykkar Hermannsson. Og þegar ég tók að mér formennskuna var það ekki vegna þess að ég væri hallur undir þjóðskipulagið, heldur af því ég er svo hrifínn af landi og þjóð, ef svo má segja. Rússar eru athyglisverð þjóð með mikla sögu að baki, stórkostlegar bókmenntir, öfluga málaralist, sérstaklega í íkon- um og annars konar helgimyndum, hafa átt mörg góð tónskáld og svo framvegis. Ég er einmitt um þessar mundir að vinna að undirbúningi hátíðahalda nú í ár í tilefni af því að þá hefur haldist órofínn friður með Dönum og Rússum í 500 ár - sem er mjög sérstakt í alþjóðlegu samhengi. Nánustu grannar okkar hafa annaðhvort hertekið okkur eins og Þjóðveijar eða rænt kirkjur og hallir og skipum eins og Svíar - en það hafa Rússar aldrei gert.“ Hermóð kom í fyrsta sinn til ís- lands árið 1930 og hann hefur alla tíð haft mikil samskipti við íslend- inga og átt marga íslenska vini. „Já, ég var með í för þegar marg- ir Danir og Skandínavar sigldu með skipinu Helge Olav til íslands til að taka þátt í hátíðahöldunum í tengsl- um við þúsund ára afmæli Alþingis

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.