Morgunblaðið - 19.12.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.12.1993, Blaðsíða 34
84 B MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 DRAUMALAND PÁLS HANNESSONAR ER GUYANA Þó að það sé varla að finna þann útkjájka á jörðu hér að þar sé ekki íslending að finna, verður að segjast eins og er, að nafnið Guyana fer ekki hátt í þeirri umræðu. Þeir eru raunar margir í hinu upplýsta þjóðfélagi á Is- landi sem hafa enga hugmynd um hvar á hnettinum Guyana er. Það skal upplýst hér, að Guyana er í Suður Ameríku norðan- verðri, á landamæri að Venezu- ela, Brasilíu og Surinam. Og Guyana á að minnsta kosti einn hérlendan aðdáanda, því landið er draumaland Páls Hannessonar fyrrverandi tollfulltrúa. Undirrótin og kveikjan að áhuga mínum á þessu framandi landi var sú, að' í fombókaverslun rakst ég á bókina „British Guyana" eftir Raymond Swith, endurprentun frá Oxford University Press. Upphafleg hugmyndatengsl og geðhrif mín til landsins beindust að þáverandi leið- togi Guyana, Forbes Burnham, Hann var löglærður frá breskum háskóla og lést árið 1985. Hann var tollvörður í Bretlandi á stríðsár- unum, en ég á sama tíma tollvörður heima á íslandi. Þess vegna skrif- aði ég honum bréf árið 1966 og gaf honum atferlisskýrslu um mína persónu, með því fororði að ég hefði áhuga á því að gerast konsúll fyrir land hans á íslandi, síðar meir, sem fyrrverandi kollegi. Það áttum við sameiginlegt. Bumham lét þegar fastafulltrúa sinn í utanríkisráðu- neytinu svara mér á þann veg að það gæti vel komið til greina að útnefna mig sem heiðurskonsúl, það mætti ég bóka þótt síðar yrði. Land- ið var bresk nýlenda þar til árið 1970 að það sleit nýlendusamband- inu og varð yfirlýst samvinnulýð- veldi eins og þeir kölluðu það. Að viðmiðun við íslenskt þjóðfélag em Guyanamenn kannski einskonar framsóknarmenn," segir Páll. Páll heldur áfram og lýsir landi og þjóð: „Þetta hitabeltisland er ægifagurt, magnþmngið og töfr- ky,.._ VENESUE SUÐUR AMERIKA Páll Hannesson andi með heillandi og margbrotnu fólki og miklum víðáttum. Það býr yfír dýrmætari og fjölbreyttari sögu heldur en flestum er kunn. íbúar landsins em innan við milljón og í höfuðborginni Georgetown búa að- eins 200.000 manns. Borgin er víð- fræg fyrir sín breiðu stræti, nátt- úrasögusöfn og fagra og skipulega grasagarða. Þá er Guyana eina land Suður Ameríku þar sem aðaltungu- málið er enska og er landið þó oft nefnt „Land hinna sex þjóða“, sem em Ameríkuindjánar, Englending- ar, Afríkunegrar, Austur-Indverjar, Portúgalar og Kínveijar. Þjóðin semur sig að evrópskum lifnaðar- háttum. Landið er að mestu skógi vaxið nema rétt með ströndinni þar sém þéttbýlið er mest. Auðlindimar em mikið magn af báxíti, gulli og demöntum, einnig rækta lands- menn mikið hrísgijón og sykur.“ Og Páll klykkir út með þessum orðum: „Þetta land hefur semsagt verið mitt draumaland í 20 ár, og þangað verð ég að fara einhvem tíman áður en ég er allur.“ ÚR MYNDASAFNINU... ÓLAFUR K. MAGNÚSSON AJOLUM Þótt jólahald landsmanna taki breytingum eftir tíðarandan- um er þó margt sem verið hefur í föstum skorðum um langt árabil. Ein af þeim hefðbundnu athöfnum sem minna Reykvíkinga á að jólin nálgast er þeg- ar kveikt er á jólatrénu við Austurvöll. Annað óbrigðult tákn jálahátíð- arinnar er koma jóla- sveinanna í bæinn og litlu jól bamanna er fast- ur liður í jólahaldinu. í Reykjavíkur- höfn skrýðast skipin jólaljósum og þannig mætti lengi telja. Jólin eru nú á næsta leiti og af því tilefni birtum við svipmyndir úr bænum, en myndirnar em teknar á mismun- andi tímum. Sú elsta er frá árinu 1952 og sýnir börn halda litlu jólin hátíðleg, en því miður tókst okkur ekki að grafa upp hvar myndin var tekin. Yngsta myndin er hins vegar frá árinu 1985 og sýnir okkur að jólasvein- ar nota hin ýmsu farar- tæki til að komast leiðar sinnar um bæinn, í þessu tilfelli hefur hann fengið far með hjólreiðamanni í miðbænum. Annars skýra myndirnar sig að mestu sjálfar. Jólasveinninn tekur sér far með hjólreiðamanni á ferð sinni um bæinn. i ÉG HEITI . NIKULÁS NIKULÁSSON NIKULÁS biskup í Myru í Litlu-Asíu er fyrirmynd jóla- sveinsins sem gefur gjafir og gleður börnin á jólunum. Er- Iendis er jólasveinninn gjarn- an kallaður Saint Nicklaus, stytt í Santa Claus. Samkvæmt bókinni Nöfn íslendinga þekk- ist nafnið Nikulás hér á landi allt frá 12. öld og fyrsti íslend- ingurinn sem vitað er til að hafi borið það var Nikulás ábóti á Munkaþverá, dáinn 1159. Iþjóðskrá 1989 bar 61 karl Nikulásarnafnið, þar af 20 sem hétu því að síðara nafni. Nokkuð hefur dregið úr vinsæld- um nafnsins, því í manntalinu 1703, þegar þjóðin taldi aðeins tæpan fimmtung þess sem hún er í dag, vom skráðir 122 Niku- lásar. Nafnið er grískt að uppmna og merkir eiginlega „sigurvegari þjóða“. Nikulásarmessa er haldin 6. desember í minningu Niku- lásar biskups og þá birtist jóla- sveinninn góðlegi um allan heim, boðberi gleði, gjafa og góðvildar. Það má því segja að heilagur Nikulás beri nafn með rentu. Einn Nikulás Nikulásson, án millinafns, er í þjóðskránni og er hann á 4. aldursári. Faðir hans, Nikulás Einarsson, er einn Nikulás Nikulásson þriggja systkinasona sem heita í höfuð afa síns, Nikulásar Frið- rikssonar rafveitustjóra. Nikulás Einarsson segir konu sína hafa ráðið því að yngsti sonurinn og fjórða bam þeirra hjóna heitir Nikulás. „Það er al- gengt hjá konum, þegar þeim fínnst nóg komið af bömum, að láta það yngsta heita eftir paþb- anum!“ MEISTARAKOKKARNIR ÓSKAR OGINGVAR Meistarakokkar Morgunblaðsins og Rásar 2, þeir Óskar og Ingvar á Argentínu, em á hátíðar- buxunum að þessu sinni eins og sjá má á eftirfarandi. Þeir bjóða upp á fjórréttað þar sem fordrykkurinn er jólaglögg og síðan rekur hver gersemin aðra. Gjörið þið svo vel: Jólaglögg mat- reiöslumeistarans Fyrir 4 1 flaska rauðvín (750 ml) 'h bolli púrtvín eða koníak 1 stk. appelsína 'h bolli rúsínur 5 stk. negulnaglar 'h bolli púðursykur 1 stk. kanilstöng 'h, heslihnetur Negulnaglar, kanilstöngin, púð- ursykurinn og hneturnar soðið í litlu vatni í 15 mfnútur. Þá er appelsínan skorin í sneiðar og henni bætt út í ásamt rúsínum, rauðvíninu, púrt- víninu eða koníakinu. Hitað uns verður vel volgt, en athugið að vín- ið má ekki sjóða nema fyrir þá sem vilja losna við alkóhólið. Fylltar paprikur 2 stk. meðalstórar paprikur 1 stk. Camembert 1 dós kotasæla 3 msk. sýrður rjómi 3 blöð matarlím Endinn er skorinn úr paprikunum og kjaminn hreinsaður innan úr. Camembert er maukaður í blandara ásamt sýrða ijómanum. Þá er kostasælunni hrært saman við. Matarlímið er bleytt í köldu vatni og brætt yfir hita og hrært saman • við með sleif. Paprikurnar em þá fylltar með blöndunniog látnar standa í kæli í 2-3 tíma. Meðlæti: Borið fram með kexi, ávöxtum og rifsbeijahlaupi. Þessi réttur er upplagður með jólaglögg- inu. Kalkúnapotfréttur Fyrir 4 800 gr kalkúnaafgangar 1 stk. laukur, saxaður 'h dós aprikósur 'h I brún sósa 1 stk. grænt epli 1 stk. mandarína Kalkúnakjötið er rifíð. Laukur og kalkúnn steiktir saman í potti, upp úr litlu smjöri. Þá er sósunni bætt í og látið sjóða í 2-3 mínút- ur. Að lokum er eplið skorið smátt og mandarínan rifin í báta og bætt í ásamt aprikósunum. Borið fram með nýju brauði. Sítrónufrómas Fyrir 4 70 gr flórsykur 3 stk. eggjarauður _____________i egg___________ 'h I rjómi 4 blöð matarlím safi úr 1 —2 sítrónum eftir stærð. Flórsykurinn, eggið og eggja- rauðumar er þeytt saman uns blandan verður létt og ljós. Þá er ijóminn þeyttur og honum bætt í með sleif. Matarlímið er bleytt upp í köldu vatni og brætt í helmingnum af sítrónusafanum, hrært saman við með sleif. Sett í skál og látið stífna. ATH! Betra er að nota minna af sítrónusafanum í lögunina en bæta frekar safa í frómasinn eftir smekk strax eftir að matarlímið er komið út í. H-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.