Morgunblaðið - 19.12.1993, Page 36
36 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993
Hafsteinn Jóhannsson kafari og siglingakappi er maður sem lifir lífinu
eins og hann vill og lætur engan segja sér fyrir verkum, stendur fastur á
sínu og óttast hvorki ofsa úthafsins né átök við yfirvöld. Hann var
fyrirferðarmikill villingur í bernsku en lærði síðar köfun og gat sér síðar
frægðarorð sem helsti bjargvættur fiskiskipa á íslandsmiðum og var
ætíð skjótur á vettvang á Eldingunni.
Hafsteinn hefur siglt víða um úfin höf á nýrri Eldingu og vann fyrir
nokkru það fáheyrða afrek að sigla einn umhverfis hnöttinn á
heimasmíðaðri skútu án þess að hafa nokkurs staðar viðkomu á
leiðinni. í nærri fimm mánuði sá hann hvergi til lands og hafði
ekki samskipti við nokkra lifandi veru, nema sævardýr og fugla
himinsins.
Hafsteinn á Eldingunni er fjörmikil og ógleymanleg lýsing af sterkum
og sérstæðum einstaklingi sem mætir hverri mannraun af djörfung og
siglir ótrauður sinn sjó - einn á báti umhverfis hnöttinn.
IÐUNN
m gae
Hafsteinn á Eldingunni
-Einn á báti umhverfis hnöttinn
: • «* 'j’ 4»
Eldhylur
Eldhylur er fyrsta ljóðabók þjóðskáldsins
Hannesar Péturssonar í áratug, bók sem geymir
myndauðug og margræð Ijóð þar sem ógnin býr
undir; þetta er skáldskapur sprottinn úr reynslu
og skynjun skálds sem tengt er náttúru, sögu og
umhverfi nánum böndum; máttug ljóð þar sem
hvert orð vegur þungt; bók sem verður
ljóðunnendum hugstæð.
IÐUNN