Morgunblaðið - 09.02.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.02.1994, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1994 Mokveiði á loðnu 32 þúsund tonn á sól- arhring MOKVEIÐI hefur verið á loðnu síðustu daga og hafði verið til- kynnt um veiði á um 32 þúsund tonnum af loðnu sólarhringinn á undan klukkan níu í gærmorgun, og þar af var búið að landa rúm- iega sjö þúsund tonnum. Liðlega þrjátíu skip voru á loðnuveiðum í fyrrinótt. Frá áramótum hafa veiðst um 74 þúsund tonn af loðnu á vetrarvertíð. Sex bátar lönduðu um 4.600 tonn- um af loðnu í Vestmannaeyjum í gær og um leið hófst vinna við fi-ystingu hjá ísfélagi og Vinnslustöð. Viðar Elíasson, framleiðslustjóri Vinnslu- stöðvarinnar, sagði að þeir hefðu byrjað vinnslu um klukkan 11 í gær- morgun og hefði dagurinn gengið ágætlega en alltaf tæki tíma að ná upp fullum afköstum. Hann sagði að þeir reiknuðu með að geta fryst um 150-160 tonn á sólarhring og ef nægt hráefni bærist yrði unnið á vöktum við frystinguna. Hann sagði að unnið yrði frameftir í nótt og vonaðist til þess að fá loðnu til vinnslu um hádegi á morgun en langt væri af miðunum til Eyja, um 17-18 tímastím. í ísfélaginu byijaði vinnsla eftir hádegi í gær og sagði Jón Svansson framleiðslustjóri að vel hefði gengið og unnið yrði fram eftir nóttu við frystingu. ísfélagið hefur aukið framleiðslugetu um þriðjung frá síð- ustu vertíð. Jón sagði að yfirleitt hefði verið miðað við 15% hrognafyll- ingu til að hægt væri að hefja fryst- ingu en nú væri verið að frysta loðnu með 12-13% hrognafyllingu og væri það gert vegna þess að mikil eftir- spurn væri eftir afurðinni. Fljótandi frystihús Útgerðarfyrirtækið Tangi á Vopnafirði hefur tekið upp á þeirri nýbreytni að binda togara sinn, Bretting, sem er rúmlega 580 tonna skip, við bryggju í Höfn í Homafirði Reykj avíkurskákmótið Hannes vann Shabalov Morgunblaðið/Sigurgeir Komið til hafnar LOÐNUSKIPIÐ Jón Finnsson RE á leið til löndunar í Vestmannaeýj- um, drekkhlaðið af loðnu. þar sem 17 manna áhöfn skipsins sinnir loðnufrystingu. Loðnan er keypt flokkuð frá vinnslu og fryst til sölu á Jápansmarkaði. „Við gerum þetta til að nýta þá möguleika sem fyrir hendi eru,“ segir Friðrik Guðna- son, framkvæmdastjóri Tanga, „á Höfn eru mikil afköst í loðnuflokkun og vinnslan hér á Vopnafirði er ekki sambærileg hvað þetta varðar, svo að þessi leið er miklu hagkvæmari". Nú fást um 25 kr. fyrir kíló af fi-ystri hrognaloðnu á Japansmarkað og er eftirspurn þar mikil. Brettingur sigldi til Hafnar á mánudag og hóf fi-yst- ingu í gær. Einnig hefur Barði NK verið við bryggju á Neskaupstað undanfarna sólarhringa og fryst loðnu um borð og er unnið þar á vöktum við frystingu. Davíð Oddsson um samstarf við Alþbl. + _______ Olafur Ragnar Gríms- son er bráðabirgða- formaður flokksins DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra segir að skilja beri um- mæli sín á Alþingi, um að hann myndi aldrei sitja sem forsætis- ráðherra í skjóli Ólafs Ragnars Grimssonar, formanns Alþýðu- bandalagsins, eins og þau voru sögð. Mælirinn sé einfaldlega fullur gagnvart málatilbúnaði Ólafs Ragnars sem eigi að biðj- ast afsökunar á framgöngu sinni á Alþingi á mánudag. í utandagskrárumræðu á Al- þingi á mánudag um mál Arthúrs Björgvins Bollasonár dagskrár- ráðgjafa útvarpsstjóra sagði Dav- íð Oddsson, að hann myndi aldrei sitja sem forsætisráðherra í skjóli Ólafs Ragnars Grímssonar. Þegar Morgunblaðið spurði Davíð í gær hvort hann væri með þessum orð- um að útiloka þátttöku sína í ríkis- stjórn með Alþýðubandalaginu sagði hann að Ólafur Ragnar væri bráðabirgðaformaður Al- þýðubandalagsins og yrði að hætta á næsta ári. Davíð Oddsson Ólafur Ragnar Grímsson Leikþáttur Davíð sagði að í umræðunni á mánudag hefði Ólafur Ragnar Grímsson búið til leikþátt sem byggðist á bréfi sem einhverjir menn hefðu séð og lapið upp úr orðalag og afbakað það. Ólafur Ragnar hefði síðan lapið þetta upp aftur og afbakað. Það hafi svo átt að sanna að Davíð hefði logið að þjóðinni, eins og hann átti að hafa logið að forseta íslands þeg- ar bráðabirgðalögin á verkfall sjó- manna voru sett í síðasta mánuði. „Málatilbúnaður þessa manns og framganga er með slíkum ólík- indum að mann furðar á að þar fari formaður stjórnmálaflokks. Mælirinn er hreinlega fullur gagn- vart þessum manni,“ sagði Davíð Oddsson. Svarað verði í neyðamúmer 112 á einum stað fyrir landið NEFND sem dómsmálaráðherra skipaði leggur til að komið verði á samræmdu neyðarsímanúmeri, 112, fyrir Iandið allt, til að taka allan sólarhringinn við beiðnum um neyðaraðstoð lögreglu, slökkviliðs, sjúkraflutningamanna, lækna og björgunarsveita í stað þeirra um 150 símanúmera sem nú þarf að hringja í um landið allt eftir slíkri þjónustu. I skýrslu nefndarinnar er gert ráð fyrir einni vaktstöð á höfuðborgarsvæðinu með sólarhringsvöktun fyrir iandið allt en að eftir því sem aðstæður og fjárhagur Ieyfi verði byggðar upp vaktstöðvar í einstökum landshlutum. Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráðherra, segir að næsta skrefið verði að útbúa lagafrumvarp um nýtt neyðarnúmer í samræmi við ábendingar nefndarinnar. HANNES Hlífar Stefánsson vann Shabalov í fjórðu umferð Reykja- víkurskákmótsins sem tefld var í gær og er Hannes nú í 1.-3. sæti á mótinu með 3'A vinning ásamt þeim Zvjaginsev og Atalik. í 4.-15. sæti með_ 3 vinninga hver eru þeir Helgi Ólafsson, So- kolov. de Firmian, Kveinys, Kotron- ias, Budnikov, Ibragimov, Shchekachev, van der Sterren, Wojtkjewitcz, Khenkin og Rashkov- sky. Margeir Pétursson, Jóhann Hjartarson og Jón L. Arnason eru með 2'/2 vinning hver. Sjá skákþátt á bls. 37. Lagt er til að sett verði sérstök lög um neyðarsímsvörun að hætti nágrannalanda og er lagt til þess að númerið 112, sem verður sam- ræmt neyðarnúmer í Evrópu, taki gildi fyrir ísland eigi síðar en 31. desember 1995. Þjónustuútboð Nefndin segir að með sam- ræmdri neyðarsímsvörun þurfi að uppfylla skyldur stjórnvalda til að annast og veita þjónustu til að taka við tilkynningum um bruna, slys, óhöpp, yfirvofandi eignatjón og önnur neyðartilvik. Nefndin telur ekki nauðsyniegt að stofna sérstaka opinbera stofnun eða sérstakt hlutafélag um neyðar- símsvörun en nefndin telur líklegt að einhvers konar þjónustuútboð vegna þessarar starfsemi gæti verið hagkvæmt þar sem kostnaði, sem áætlaður er 50 milljónir króna á ári, mætti ná niður með samrekstri við starfsemi sem er ótengd sjálfri neyðarsímsvöruninni, t.d. ýmsa þjónustusímsvörun. lagður á skráð símanúmer. Dósmálaráðherra kynnti niður- stöður nefndarinnar í ríkisstjórn í gærmorgun og hyggst nú láta útbúa lagafrumvarp sem síðan verður kynnt stjórninni. Þorsteinn segir að það ætti að vera hægt að koma nýja neyðarnúmerinu í gagn- ið fyrir árslok 1995 eins og nefndin leggur til. Hann segir mikilvægt að gera þessar ráðstafanir og telur þær geta bætt stórlega neyðarþjón- ustu í landinu. Nefnd sú sem dómsmálaráðherra skipaði í apríl 1993 til að hafa for- ystu um að koma á samræmdu neyðarnúmeri fyrir landið í sam- starfi við sveitarfélög á hveiju svæði var skipuð Stefáni P. Egg- ertssyni verkfræðingi, sem var for- maður nefndarinnar, Bergþóri Hall- dórssyni, verkfræðingi frá Pósti og síma, Esther Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra SVFÍ, Guðjóni Magnússyni, skrifstofustjóra heil- brigðisráðuneytis, Guðjóni Peters- en, framkvæmdastjóra Almanna- varna, Hallgrími Guðmundssyni, bæjarstjóra í Hveragerði, og Hrólfi Jónssyni, slökkviliðsstjóra í Reykja- vík. Gjald á síma? Varðandi fjármögnun þjón- ustunnar er í skýrslunni annars vegar nefndur sá kostur að ríki og sveitarfélög skipti honum með sér í hlutfalli við umfang verkefna og hins vegar að kostnaðurinn yrði Reykjavíkurhöfn gefur út nýja skýrslu Mengimaróhöppum í höfninnifækkar dag Innilokaöir vegna hálku Vegna mikillar hálku eiga aldraðir erfitt með að komast á milli 4 Nýbygging viö MA Hafist verður handa við 2.400 fer- metra nýbyggingu við Menntaskól- ann & Akureyri í sumar 18 Lillehammer gamaldags Voldugir styrktaraðilar Ólympíu- leikanna fá ekki að setja upp aug- lýsingaskilti og er bærinn meira gamaldags fyrir vikið 20 H^kmhrrklaMamT Úr verinu Leiöari Varnaðarorð háskólarektors 22 Myndasögur ► Meira flutt út af bleikju - Ugg- Litaspil - Brandarar - Jón- vænleg þróun í íslenzkri kaup- arnir í gæslustörfum - Hvað skipaútgerð Togaraskýrslan - kom fyrir kúrekann? - Köttur- Kúfskelin lítt þekkt í Evrópu - jnn Stefán Ásgeir - Mynda- Síldin dýr í flskbúðum þraut - Teikningar Árið 1991 urðu alls 26 mengurn- arslys á hafnarsvæði Reykjavíkur, árið 1992 hafði þeim fækkað í 17 og á síðasta ári urðu fimm slys. Á sama tíma hefur eldsneytistökum í höfninni fjölgað úr 1.499 árið 1992 í 1.548 árið 1993. Forvamarstarf skipafélaganna, olíufélaganna og hafnarinnar felst í því að við olíutökur skipa þarf að tilkynna það hafnarvörðum sem •fylgjast með olíutökunni. Farið er yfir gátlista með leiðbeiningum um hvernig ýmsum atriðum skuli hátt- að áður en dæling hefst. Meðal annars þarf að athuga hvort olíu- geymar rúmi umbeðið magn, þrýst- ing á dælunni og að lekabyttur séu undir slöngutengjum. Um borð ber vélstjórinn ábyrgð á móttöku ol- íunnar en starfsmaður olíufélagsins ábyrgist dælinguna. Mengunarvarnarbúnaði skipt á milli hafna landsins I Ef óhapp verður getur það haft mikinn kostnað í för með sér fyrir mengunarvaldinn ef hreinsa þarf olíu úr sjó eða af bryggjunni. Hinum nýja tnengunarvarnar- búnaði er skipt niður á milli lands- hluta og svæðishafna inna lands- hlutanna. Búnaður fyrir Vestur- og Suðvesturland er í Ólafsvík og Reykjavík. Búnaðurinn verður kynntur starfsmönnum hafnanna síðar í vetur. 1 I MENGUNARÓHÖPPUM í Reykjavíkurhöfn hefur fækkað verulega undanfarin ár. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Reykjavíkur- höfn um mengunaróhöpp á hafnarsvæðum Reykjavíkur síðastliðin þrjú ár. MiIIi áranna 1991 og 1992 fækkaði óhöppum um níu og frá 1992 til 1993 um tólf. I skýrslunni segir að þessi góði árangur sé að þakka auknu samstarfi milli olíufélaga, skipafélaga og Reykjavík- urhafnar við olíutökur og aukinni aðgæslu vélsljóra. Einnig kemur fram að til landsins er kominn öflugur mengunarvarnarbúnaður sem er sameigna allra hafna á landinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.