Morgunblaðið - 09.02.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRUAR 1994
41
Það er
örugglega
ekki kúl
að vera
stöðumæla-
v vörður ^
Katrín
Eitthvað svona flott,
ins og flott manneskja
Einar Orn
Björgvin
Þetta er
annað
orð
yfir
svalur
Coco
Lið Fellaskóla og Breiðholtsskóla glíma við rök með og móti spurningunni „Er Guð til?“.
MORGRON
Þessa dagana stendur yfir MOR-
GRON, eða mælsku- og ræðukeppni
grunnskóla Reykjavíkur og nágrenn-
is. Að þessu sinni taka 11 skólar
þátt í keppninni, en þeir eru Árbæj-
arskóli, Hólabrekkuskóli, Hvassa-
leitisskóli, Laugarlækjarskóli, Rétt-
arholtsskóli, Ölduselsskóli, Tjarnar-
skóli, Seljaskóli, Austurbæjarskóli,
Breiðholtsskóli og Fellaskóli.
Fyrsta keppnin í undanúrslitum
fór fram 1. febrúar. Fellaskóii og
Breiðhoitsskóli kepptu þá með ræðu-
efnið „Er Guð til?“ og lauk þeirri
keppni með naumum sigri Fella-
skóla. Tjarnarskóli sigraði Öldusels-
skóla í kappræðu um hvort leyfa
eigi vændi á Islandi og Austurbæjar-
skóli sigraði Seljaskóla þar sem rökr-
ætt var hvort leyfa eigi nekt á ís-
landi.
Stjórnendur keppninnar eru þau
Guðjón Pétursson, Hafrún Kristjáns-
dóttir og Svanhvít Tryggvadóttir.
Úrslitakeppni MORGRON verður
haldinn 24. mars.
Vildi
helst
vera strákur
Nafn: Karen Áslaug Vignisdóttir.
Heima: Reykjavík.
Aldur: 13 ára.
Skóll: Laugalækjarskóli.
Helstu áhugamál: Föt, strákar, skautar og mér finnst gaman að synda.
Uppáhaldshljómsveit: Mér finnst 2Unlimited góð.
Uppáhaldskvikmynd: Þær eru margar. Til dæmis myndin Banvænt
eðli sem er í Háskólabíó.
Besta bókin: Spor í myrkri eftir Þorgrím Þráinsson.
Hver myndir þú vilja vera ef þú værir ekki þú? Ég myndi helst vilja
vera strákur.
Hvernlg er að vera unglingur í dag? Það er bara allt í lagi. Það er
kannski af og til erfitt með foreldrana, en annars er það fínt. Þó að
mamma og pabbi ráði yfir manni er maður samt nokkuð frjáls og getur
svolítið gert það sem maður vill.
Hverju myndir þú vilja breyta í þjóðfélaginu? Ef ég mætti breyta
einhveiju í heiminum myndi ég vilja breyta stríði, hungursneyð og öllu
því leiðinlega. Ég myndi líka vilja að það væru ekki svona margir sjúkdóm-
ar til. í þjóðfélaginu er það atvinnuleysið, það er leiðinlegt að heyra þetta
alltaf í fréttunum. Svo er það þessi skuldasúpa sem þessi þjóð er í og
ég myndi bara viljá að engin fjölskylda í þjóðfélaginu þyrfti að hafa nein
vandamál.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Fara á skemmtanir í
skólanum og vera með vinkonum mínum.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Læra, hanga heima og
hafa ekkert að gera.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Mig langar að verða
leikkona og læra um leiklist, svo langar mig að ferðast um heiminn, aðal-
lega til Evrópu og Ástralíu. Mig hefur líka alltaf langað að eiga heima
í Ameríku, ég bjó þar í fimm ár og væri til í að læra leiklist þar.
Hvað gengur þú með í vösunum? Lykla, peninga, miðadrasl, buddu**'.
og stundum veski í rassvasanum.
Hvað viltu segja að lokum? Ég bið að heilsa öllum sem ég þekki og
vona bara að allir hafi það gott.
E
LGJ H STEYPA
í vikuritinu
The Surt fund-
um við þessa
mynd af
snákasölu-
manni í Peking
í Kína. Hann
notar þá aðferð
að setja litla
snáka upp í
nefið á sér og
draga þá aftur
út um munninn
í þeirri von að
geta selt þá.
Hann gerir
þetta oft á dag,
en fólk er var-
að við að gera
þetta heima
hjá sér enda
gæti snákurinn
ratað vitlausa
leið og farið lif-
andi niður í
maga, og hver
veit hvað gerist
þá?
Stærsti Legóturn á landinu
í félagsmiðstöðinn Tónabæ var brugðið út af van-. landi, eða 2,5 metra hár. Eins og sjá má á mynd-
anum helgina 21.-22. janúar slðastliðinn þegar efnt inni voru krakkarnir ánægðir með árangurinn.
var til sérstæðs mai-aþons. Maraþonið var tvíþætt, Turninn sem byggður var í maraþoninu verður
annars vegar voru krakkamir í snú-snú og hins til sýnis í Geysishúsinu frá 3. til 17. febrúar, en þar
vegar byggðu þeir úr Legó-kubbum. Gerður var verður haldin sýning á því sem er að gerast t félags-
stærsti Legó-turn sem byggður hefur verið hér á miðstöðvum borgarinnar.