Morgunblaðið - 09.02.1994, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.02.1994, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1994 Erfitt fyrir aldrað fólk að komast leiðar sinnar gangandi Margir innilokaðir vegna hálku á gangstéttunum ELLILÍFEYRISÞEGAR í Reykjavík eiga ekki sjö dagana sæla að vetrarlagi þegar gönguleiðir eru annað tveggja á kafi í snjó eða undir svellbunkum samkvæmt upplýsingum frá starfsmönnum heima- hjálpar félagsmálástofnunar. Þjónustu fyrir aldraða er skipt eftir hverfum og að sögn starfsmanna í þremur þjónustustöðvum eru margir nánast innilokaðir á heimilum sínum þegar svo stendur á. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Svellbunkar á gönguleiðum gera mönnum erfitt um vik. Guðbjartui' Sigfússon yfirverk- fræðingur á skrifstofu gatnamála- stjóra segir að ómögulegt sé að bera sand á allar gangstéttar í einu en reynt sé að koma til móts við al- menning í þessum efnum eins og hægt sé með tilliti til kostnaðar og mannafla. Greint var frá því í Morgunblaðinu fyrir skömmu að komið yrði upp mælistöðvum í borginni sem ætlað yrði að skoða samhengið milli hálku- myndunar og hita- og rakastigs í andrúmsloftinu. Verið er að koma þeim upp um þessar mundir og er vonast til að með slíkum mæiingum megi bregðast betur við hálku og ófærð en ella. Guðbjartur segir að VEÐUR þótt þetta gangi eftir sé ólíklegt að hægt verði að koma í veg fyrir slæma færð á gangstéttum að vetr- arlagi enda anni starfsmenn borgar- innar ekki að fara yfir allar gang- stéttir sem hugsanlega þyrfti að bera sand á. Hann segir að sem stendur séu 6-8 dráttarvélar notað- ar við sanddreifingu og ef vel ætti að vera þyrftu þær að vera milli 20 og 30. Komast ekki í banka I Reykjavík eru búsettir sam- kvæmt skrá Hagstofu 11.835 ellilíf- eyrisþegar. Um 2.400 eru innan umdæmis þjónustumiðstöðvar fyrir aldraða í Hvassaleiti og þar fengust þær upplýsingar að þegar færð væri jafn vond fyrir fótgangandi og nú er væru margir innilokaðir á heimil- um sínum. Fólk ætti bágt með að komast út í búð og annarra erinda og sagði Arndís Magnúsdóttir að margir tækju leigubíl til að komast ferða sinna sem að sjálfsögðu fæli í sér aukin útgjöld. í þjónustumið- stöðinni við Vesturgötu sem annar svæði þar sem tæplega 2.000 manns eru búsett fengust þær upplýsingar að margir væru of skelkaðir til að fara út þótt einhvetjir létu sig hafa það. Loks var haft samband við þjón- ustumiðstöð í Bólstaðarhlíð og þar kom fram að slys á fólki hefðu auk- ist. Margir væru ragir við að stíga fæti út fyrir hússins dyr og frestuðu jafnvel að fara í banka og sækja líf- eyrinn eða sinna viðlíka erindum. Fólk bæði um meiri þjónustu en ein- hveijir neyddust til þess að fara út og reyndu starfsmenn að bera sand á nærliggjandi gangstéttir til að gera þeim auðveldar fyrir. Guðbjartur Sigfússon. yfirverk- fræðingur segir að alltaf sé verið að vinna í þessum málum og reyna að gera betur. Ljóst sé að auknum umsvifum fylgi aukinn kostnaður en reynt sé að blása burt snjó af gang- stéttum eins og hægt sé. Hann bæt- ir því einnig við að erfitt Sé að stemma stigu við siæmri færð þegar ofankoma sé stöðug og fneð mesta móti, sama sé til hvaða aðgerða sé gripið þær endist aðeins skamma stund. VEÐURHORFUR I DAG, 9. FEBRUAR YFIRLIT: Um 250 km suður af Vestmannaeyjum er 980 mb lægð sem þoka- staustur og sfðan suðaustur. Við Nýfundnaland er vaxandi lægð sem hreyf- ist norður i átt að Hvarfi. STORMVIÐVÖRUN: Gert er ráð fyrir stormi ó Suðausturdjúpi. Suðurdjúpi og Suðvesturdjupi. SPÁ: Sunnan- og suðvestanátt, kaldi og stinningskaldi og skúrir eða slyddu- él suðvestanlands og vestan, en annars hægari suð- og suðvestanátt og úrkomulaust. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Nokkuð hvöss suðaustanátt og rigning sunnan- lands og vestan. Norðanlands verður fremur hæg austlæg átt og skýjað. Hlýjast verður þriggja til fimm stiga hiti sunnanlands og vestan en kaldast við frostmark norðaustan til. HORFUR Á FÖSTUDAG: Nokkuö hvöss austlæg átt. Skýjað en úrkomulítið vestan tíl en annars skúrir eða rigning víðast hvar. Hiti verður á bilinu 1 -4 stig. HORFUR Á LAUGARDAG: Austan- og norðaustan strekkingur. Snjókoma austanlands, él norðan til en annars skýjað með köflum. Hiti verður nálægt frostmarki. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsfmi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600. o tík & m Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað V $ V Skúrir Slydduél Él r r r * r * r r * r r r r r * / Rigning Slydda * * * * * * * * Snjókoma Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig V Súld = Þoka stig.. FÆRÐ A VEGUM: <ki. i 7.30 í gæo Flestir vegir á landinu eru nú færir. Þó er ófært um Mývatns- og Möðrudals- öræfi og Vopnafjarðarheiði en ráðgert er að moka þessar leiðir á morgun. Víða er mikil hálka, einkum á fjallvegum. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. Lögmemi kaupi starfs- ábyrgðartryggingu SAMKVÆMT frumvarpi til breytinga á lögum um málflytjendur sem dómsmálaráðherra kynnti ríkisstjórn í gær verður lögmönnum sem starfa á eigin vegum skylt að kaupa starfsábyrgðartryggingu vegna fjárhagstjóns sem viðskiptamenn þeirra geta orðið fyrir vegna starfa lögmannsins. Jafnframt er lögmönnum sam- kvæmt frumvarpinu gert skylt að aðgreina peninga viðskiptamanna frá eigin fjármunum og varðveita þá á sérstökum bankareikningum, sem ekki verði dregnir undir skipti verði lögmaður gjaldþrota. Frumvarpið gerir ráð fyrir að ráðherra geti aftur- kallað málflutningsleyfi lögmanna sem uppfylla ekki þessi skilyrði. Jafnframt gerir frumvarpið ráð fyrir að lögmaður sem verður gjald- þrota geti ekki endurheimt málfiutn- ingsréttindi sín fyrr en tveimur árum eftir skiptalok. í framhaldi af gjaldþrotum Frumvarpið er samið af nefnd undir forsæti Gunnlaugs Claessens ríkislögmanns. Nefndin var skipuð að frumkvæði Lögmannafélagsins, m.a. í framhaldi af því að vegna gjaldþrota nokkurra lögmanna und- anfarin ár hafa viðskiptamenn þeirra orðið fyrir tjóni. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins er í frum- varpinu afnumið dómsvald stjórnar Lögmannafélagsins f málum sem varða lögmenn. Samkvæmt gildandi lögum sæta úrskurðir stjórnarinnar um ákveðin málefni kæru til Hæsta- réttar og eru því ígildi dómsúrskurða. Danskeppni fyrir börn og unglinga 190 Islendingar fara til Blackpool UM 190 Islendingar halda til Blackpool í Englandi í byrjun apríl til þess að taka þátt í stærstu alþjóðlegu danskeppni sinnar tegundar í heimi fyrir börn og unglinga. Hópurinn samanstendur af dönsurum og fylgdarliði og segir Níels Einarsson, eigandi Nýja dansskólans, að þetta sé stærsti hópurinn sem sendur hefur verið héðan í keppn- ina. í hópnum eru um 90 keppendur á aldrinum 8 til 15 ára. Sjö dansskólar á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi hafa tekið sig saman ög leigt eina þotu Flugleiða til að fljúga utan. Níels segir að alls komi um Einnig munu íslendingamir 3.000 manns til Blackpool til að taka þátt í landakeppni í taka þátt í og fylgjast með keppninni sem sé eins konar óopinber heimsmeistarakeppni barna og unglinga. Dansskólarnir sem standa að ferðinni eru Nýi dansskólinn, Dans- skólar Heiðars Ástvaldssonar, Jóns Péturs og Köru, Auðar Haralds og Hermanns Ragnars, Danskólinn Dagný Björk og Dansskóli Jóhönnu á Akranesi. , í Blackpool verður keppt í tveimur aldurshópum, 11 ára og yngri og 12-15 ára. Níeis segir að þetta sé útsláttarkeppni þar til kemur að 6 para úrslitum en þá er pörunum raðað í sæti af sjö dómurum og stigin síðan tal- in saman. Blackpool og eru þá fjögur pör í hveiju liði, tvö sem dansa suð- ur-ameríska dansa og tvö seni dansa „standard" dansa. Læra af heimsmeisturum Keppendurnir sem eru á leið til Blackpool á vegum Nýja dansskól- ans sem og aðrir í skólanum njóta þessa dagana góðs af tilsögn heimsmeistaranna í suður-amer- ískum og „standard" dönsum. Hjónin Martin og Alison Lamb, en þau báru sigur úr býtum á heims- meistarakeppninni í Flórída í nóv- ember, eru nú stödd á íslandi og dvelja þau hér á landi til 17. febr- úar. / DAG kl. 12.00 3° 4° Heimlld: Veðuratofa íslands (Byggt á veðurepá ki. 16.30 í gær) Bergen 0 snjókoma Helslnki +11 lénskýjað Kaupmannahöfn 0 kornsnjór Narssarssuaq +S snjókoma Nuuk +S snjóél Osló +6 snjókoma Stokkhólmur +2 léttskýjað Þórshöfn 5 skúr Algarve 14 hefðskfrt Amsterdam 8 hélfskýjað Ba-celona 13 léttskýjaö Beriín 2 skýjað Chicago +8 snjókoma Feneyjar 11 súld Frankfurt 4 alskýjað Glasgow 6 skýjað Hamborg 4 suld London 8 léttskýjað Los Angeles 12 skúr Lúxemborg 4 rigning Madrid 8 léttskýjað Malaga 13 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað Montreal +26 skýjað New York +8 alskýjað Orlando 15 þokumóða Parls 8 léttskýjað Madelra 16 skýjað Róm 14 skýjað Vín 7 skýjað Washington 0 alskýjað Winnipeg +26 snjókoma VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 1 skýjað Reykjavík_____3 úrkoma í grennd ► f > i > I f Í í i í -

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.