Morgunblaðið - 09.02.1994, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRUAR 1994
11
Gunnsteinn Ólafsson
Sigurður Bjarki Gunnarsson
Sinfóníuhljómsveit íslands
Tónleikar í Háskólabíói
fvrir framhaldsskóla
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands heldur tónleika í Háskólabíói
fyrir framhaldsskóla í Reykjavík og Garðabæ, í dag, miðviku-
dag, og á morgun, fimmtudag. Hljómsveitarstjóri er Gunn-
steinn Olafsson en einleikari er Sigurður Bjarki Gunnarsson.
A efnisskrá eru verk eftir Beethoven, Haydn, Thommesen og
Berlioz.
Gunnsteinn Ólafsson hóf sitt
tónlistarnám í Tónlistarskólanum
í Reykjavík. Síðan lá leiðin til
Ungveijalands, Þýskalands og ít-
alíu. Hann stjórnaði kór Mennta-
skólans í Kópavogi um fjögurra
ára skeið. Gunnsteinn var aðstoð-
arhljómsveitarstjóri við uppsetn-
ingu íslensku óperunnar á Luciu
di Lammemoor. Hann hefur áður
stjórnað SÍ nú síðast á jólatónleik-
um hljómsveitarinnar í desember
sl. Eftir rúman mánuð mun Gunn-
steinn taka þátt í keppni ungra
norrænna hljómsveitarstjóra í
Björgvin og eru þessir tónleikar
gott veganesti fyrir hann, þar sem
efnisskrá tónleikanna er valin með
hliðsjón af þeirri keppni.
Einleikarinn Sigurður Bjarki
Gunnarsson stundar nám í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík undir
handleiðslu Gunnars Kvarans, auk
þess að vera nemandi í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð en þaðan
mun hann væntanlega ljúka stúd-
entsprófi nú í vor.
Edda Jónsdóttir hlýtur
norræn vatnslitaverðlaun
Morgunblaðið/S.D.
Frá afhendingu verðlauna Norræna vatnslitafélagsins. Prá vinstri
er Lennart Köpsén, formaður dómnefndar, Edda Jónsdóttir lista-
kona, Lars Sandström frá ColArt og Bertil Hansson, formaður
Norræna vatnslitafélagsins.
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðs-
dóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
EDDA Jónsdóttir listakona
fékk um helgina afhent verð-
laun Norræna vatnslitafélags-
ins. Þetta er í fyrsta skipti
sem félagið gengst fyrir veit-
ingu verðlaunanna, sem eru
gefin af Winsor & Newton
litafyrirtækinu. Verðlaunin,
sem nema tæplega hundrað
þúsund íslenskum krónum,
voru afhent á aðalfundi fé-
lagsins í Málmey.
Norræna vatnslitafélagið var
stofnað 1989 af listamönnum og
áhugafólki um vatnslitaverk.
Meðlimir eru um tólf hundruð. A
sl. ári stóð félagið að fyrstu nor-
rænu vatnslitasýningunni, sem
var sýnd á Norðurlöndunum
fimm, þar á meðal í Norræna
húsinu. Af íslendinga hálfu tóku
þátt í sýningunni Karólína Lárus-
dóttir, Eiríkur Smith, Hafsteinn
Austmann og Guðmunda Andrés-
dóttir, auk Eddu. Eitt af því sem
félagið hefur áhuga á að beita
sér fyrir er stofnun norræns
vatnslitasafns. Til verðlaunaveit-
ingarinnar er stofnað til að draga
athyglina að vatnslitum og þeim
sem stunda vatnslitamálun. Það
er litafyrirtækið Winsor & New-
ton, sem leggur til verðlaunaféð
og það var afhent Eddu af Lars
Sandström frá ColArt, umboðs-
aðila fyrirtækisins í Svíþjóð.
í dómnefnd sátu Birgit Broms,
Lenke' Rothman og Lennart
Köpsén, sem var formaður nefnd-
arinnar. Við afhendingu verð-
launanna sagði hann að nefnd-
inni hefði ekki veist erfitt að velja
verðlaunahafann og hefðu öll
þijú verið sammála um að veita
Eddu verðlaunin. Hún væði bæði
afkastamikill og áhugaverður
listamaður. í rökstuðningi dóm-
nefndar segir að með kröftugum,
en um leið viðkvæmnislegum
vatnslitamyndum sínum sýni hún
hvernig hægt sé að þróa vatns-
litamálun. Stórar myndir hennar
gætu verið bæði þéttar og dökk-
ar, en bera um leið í sér sérstakt
og tindrandi ljós. Þær gætu verið
bæði formsterkar og ákafar og
bæru merki um næma þekkingu
á efninu. Samsetning hennar á
andstæðum yrði að heilum og
spennandi vatnslitamyndum.
Vatnslitamálarar hafa oft til-
hneigingu til að vera fremur aka-
demískir í vinnu sinni, læra klass-
ískar reglur vatnslitamálunar og
fylgja þeim flestir. Þeir halda sig
iðulega við landslag og áþreifan-
lega hluti, sem þeir mála sam-
kvæmt klassískum reglum fags-
ins. Edda hefur hins vegar farið
sínar eigin leiðir í vatnslitamálun,
bæði hvað form og efnismeð-
höndlun varðar. Hún hefur haldið
sig við óhlutbundin form, sem
hún laðar fram á pappírnum á
sínum eigin forsendum, óbundin
af klassískum reglum greinarinn-
ar. Með því að velja hana hefur
dómnefndin sýnt að Norræna
vat.nslitafélagið metur listamenn
sem fara ókannaðar leiðir í list
sinni.
Eftir verðlaunaveitinguna
sýndi Guðný Magnúsdóttir, lista-
kona og eigandi gallerísins Úm-
bru, litskyggnur af myndum
Eddu og sagði frá þeim. Mynda-
sýningin gaf hugmynd um hve
vítt svið Edda hefur spannað í
myndlist sinni, þar sem hún hefur
átt við ljósmyndun, margar að-
ferðir af hvers kyns grafík og
þrykki, auk þess sem hún hefur
málað með olíu og akrýl, að
ógleymdum vatnslitunum.
Kammersveit Reykjavíkur
Tónlist
Ragnar Björnsson
Sveitin hélt tónleika í Listasafni
íslands sl. sunnudag. Með tónleik-
unum minntist Kammersveitin 20
ára ferils síns, og í tilefni af því
var efnisskrá tónleikanna sett verk-
um sem tileinkuð hafa verið sveit-
inni og flutt af henni á þessu tutt-
ugu ára tímabili. Fyrsta verkið var
reyndar skrifað fyrir tilurð Kamm-
ersveitarinnar, en það var „Krist-
allar" eftir Pál P. Pálsson, sem
hann samdi 1970 og frumflutt var
sama ár á fyrstu Listahátíð í
Reykjavík, síðar, árið 1976, flutt
af Kammersveitinni, og þá á Nor-
rænum músíkdögum. Páll kunni
þá þegar (1970) að skrifa fyrir
hljóðfæri Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar og því eru verk hans ætíð áheyri-
leg. Hann fer engar kollhnísur í
nútímabrögðum og leiðigjarn verð-
ur Páll ekki. Jón Ásgeirsson átti
næsta verk á efnisskránni, „Okt-
ett“, saminn 1977. Oktettinn er
fyrir tréblásara og var sérlega fal-
lega blásinn. Verkið er vel skrifað,
Ijóðrænt og fallega hljómandi og
trúr var Jón sínum persónulega
stíl, en- persónulegur stíll hefur jú
verið styrkur tónskálda allra tíma.
Atli Heimir er „Nestor“ svokallaðra
nútímatónskálda íslenskra. „I call
it“ var samið í tilefni þjóðhátíðar-
ársins 1974. Hér leikur Atli listir
sinar í ólikustu myndum og tiltækj-
um og enginn stendur Atla á sporði
þegar hugmyndaflugið leikur laus-
um hala, en lausum hala leikur það
reyndar ekki hér, honum tekst að
beisla hugmyndimar í framsögn
og afleiðingar, hann veldur löngu
breiðu línunum, spennu og afslöpp-
un og hann heldur áheyrandanum
stöðugt forvitnum — hvað gerist
næst? Langt mál mætti hafa um
þetta verk Atla, þetta er verk góðs
meistara, öðru nafni meistaraverk.
Sönghlutverkið er einn aðal-þráður
verksins, við texta á ensku eftir
Þórð Ben, gamlan SÚM-ara. Signý
Sæmundsdóttir fékk hlutverk
söngvarans í verkinu og gat ég
ekki betur heyrt en að væri lífs
hennar óskahlutverk. Fyrir utan
að sýna nýja hlið á sinni ágætu
söngrödd og tónnæmi, sem vitað
var um fyrir, varð hún hér að sýna
ýmsar aðrar hliðar á meðferð radd-
arinnar sem og engum öðrum en
góðum listamanni er ætlandi. Signý
leysti þetta allt glæsilega og eftir-
minnilega af hendi. Eftir hlé kom
„Tema senza variazioni" eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson, sem hann
samdi 1981 fyrir Kammei-sveit
Reykjavikur og frumflutti það
sama ár. Verkið er skrifað fyrir
þijú hljóðfæri, klarínett, selló og
píanó. Svolítið líkt Þorkatli að kalla
verkið Stef án tilbrigða, þar sem
einskonar tilbrigði hlaðast upp um
stefið, allt til loka. Byijaði með
tónauppröðun á píanóið, sem fyrst
minnt á Debussy, spinnur sig upp
í töluverða spennu, leysist upp án
þess að heimurinn hrynji, verkið
var einnig mjög vel flutt. „Brot“,
eftir Karólínu Eiríksdóttur er skrif-
að 1979 og segir Karólína sjálf í
efnisskrá að verkið sé skrifað á
þeiin tímamótum þegar hún kemur
frá námi og þarf að standa á eigin
fótum. Brot ber þess einnig merki
að svo hafi verið, góðar hugmyndir
sem ennþá standa ekki fyllilega á
eigin fótum. Síðasta verk kvöldsins
var nýtt, skrifað sl. haust. Verkið
er skrifað fyrir 13 einleikara og
heitir „Á Kýpros“, höfundurinn er
Leifur Þórarinsson. Undirritaður
hafði beðið foivitnum huga eftir
þessu verki Leifs, en hér var of
mörguni hugmyndum hlaðið upp
til þess að ein hlustun nægði. Fal-
leg augnablik greip maður hér og
þar, en lenti svo í kaos þar sem
erfitt var að fótá sig. Atli Heimir
stjórnaði eigin verki, Guðmundur
Óli Gunnai'sson stjórnaði verkum
Páls P., Karólínu og Leifs Þórarins-
sonar af öiyggi. Sannarlega er
ástæða til að óska Kammersveit-
inni til hamingju með 20 árin og
lónleikana á sunnudagskvöldið sem
sýndu að tónsmíðar ólíkra stíla
geta vel staðið hlið við hlið.
911 91 97fl LÁRUS VALDIMARSSON framkvæmdastiori .
L I lUU’LlO/U KRISTIMgSIGURJONSSON.HRL.LOGGILTURFASTEIGNASAU
Ný eign á söluskrá:
Glæsileg - sérþvhús - góður bílskúr
Óvenju rúmgóð 4ra herb. íbúð 118,7 fm nettó á 4. hæð i suðurenda
viö Breiövang, Hf. Ágæt sameign. Frábært útsýni. Gott verð.
Bankastræti - úrvalsstaður
Stór rishæð 142,8 fm auk þess er mikið rými undir súð. Margskonar
breytinga- og nýtingarmöguleikar. Mikið útsýni. Tilboð óskast.
Verslunarhæð í sama húsi um 110 fm. Kjallari fylgir og viðbygging á
baklóð. Bdastæði. Nánari uppl. aöeins á skrifst.
Frábært tækifæri - lítilsháttar útborgun
Rúmgóð og sólrík 3ja herb. íb. á 3. hæð í reisulegu steinhúsi i gamla
austurbænum. Parket á gólfum. Eldhús .og bað þarf áð endurnýja.
Laus strax. Mjög gott verð. Teikn. og nánari uppl. á skrifst.
•” ALMENNA
Fjöldi góðra eigna ™
í makaskíptum.
Opið á laugardaginn. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
FASTEIGNASAIAN
Hvassaberg
í einkasölu þetta glæsilega og vandaða einbýlishús um
220 fm á tveimur hæðum auk tvöfalds bílskúrs um 43
fm. Efri hæðin er um 160 fm en neðri hæð um 60 fm.
Mögulegt er að hafa séríbúð á neðri hæð. Áhvílandi
byggingasjóðsián um 2,7 miilj.
Fasteignasala
Árna Grétars Finnssonar hrf.,
Stefári Bj. Gunnlaugsson hdl.,
Linnetsstig 3, 2. hæð, Hafnarfirði
simi 51500.