Morgunblaðið - 09.02.1994, Side 20

Morgunblaðið - 09.02.1994, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRUAR 1994 175 falla í árásum UNITA í Angóla Cuito er sögð helvíti líkust Luanda, Lissabon. Reuter. AÐ minnsta kosti 175 manns hafa látið lífið á síðustu fjórum dögum í borginni Cuito í Angóla en hún er undir stöðugum árásum skæruliða UNITA-hreyfingarinnar. Sagði ríkisút- varp landsins að borgin væri helvíti líkust og í gær hefði yfir 5.000 fallbyssuskotum verið skotið á borgina. Auk þeirra sem látið hafa lífið, hafa um 350 manns særst í bardögum síðust daga. UNITA sagðist í gær myndu lýsa einhliða yfir friði í Cuito. Lögbann á söngleik Spítalar í Cuito hafa engan veg- inn við að sinna hinum særðu og hermdu fyrri fregnir að margir hinna særðu væru börn og eldra fólk. Þessar fréttir fengust þó ekki staðfestar hjá óháðum aðilum. Stjórn Angóla bað í gær Sam- einuðu þjóðirnar (SÞ) og ríkis- stjórnir annarra landa um að beita UNTIA-skæruliða þiýstingi og neyða þá til að hætta árásum á Cuito og aðrar borgir og bæi. Að minnsta kosti 20.000 manns létu lífið í níu mánaða umsátri UNITA um borgina á síðasta ári og voru það einir mannskæðustu bardagar í 18 ára borgarastríði landsins. í frétt opinberu útvarps- stöðvarinnar í Cuito sagði að eng- inn árangur hefði náðst í friðarvið- ræðum UNITA og stjórnarinnar í Angóla, sem haldnar eru í Lusaka, Útskorin Coca-Cola skilti á norska vísu Coea-Cola-fyrirtækið og aðrir stórir styrktaraðilar höfðu auðvitað reiknað með að setja upp flennistór- ar auglýsingar eins og hefur tíðk- ast á Olympíuleikunum, til dæmis uppi á hæðum, utan í hæðum, að ógieymdum bænum. En bæjar- stjórnin í Lillehammer hafði aðrar hugmyndir. Einu skiltin í bænum hafa verið lítil skilti og meira hafa styrktaraðilarnir ekki fengið. Coca- Cola-menn höfðu meðal annars augastað á gaflinum á sjúkrahúsi bæjarins, sem er tólf hæðir. Ekki vantaði áhuga læknanna á að fá sjúkrabíl og tól og tæki til spítalans fyrir auglýsinguna, sem fyrirtækið bauðst til að mála yfir strax að leik- unum loknum. En heldur ekki þetta tilboð haggaði við bæjarstjórninni. í stað venjulegra ljósaskilta verður fyrirtæki eins og Coca-Cola nú að láta sér nægja útskorin skilti í norskum stíl eða emaleruð rauð skilti og stærð þeirra fellur að mál- uðum timburhúsunum. Húsin í Lillehammer eru mörg í norskum bjálkakofastíl. Og það er ekki síst aðalgatan, sem heima- menn eru stoltir yfir. Storgatan er göngugata, sem ekki ber nafn með rentu, því hún er lítil og við hana standa nýmáluð bjálkahús. Litir þeirra eru valdir í samvinnu við bæjaryfirvöld, svo þeir séu í sam- ræmi við norska hefð. Og gatan er höfuðborg Zambíu, frá því að sáttasemjari SÞ, Alioune Blondin Beye, fór í jarðarför Felix Houp- houet-Boigny, leiðtoga Fílabeins- strandarinnar. Beye sagðist í síð- ustu viku vera sannfærður um að tekist hefði að leysa úr erfíðustu deiluefnunum í viðræðunum, sem staðið hafa frá því í nóvember. Hafa tekist samningar í grundvall- aratriðum um vopnahlé og stofnun sameiginlegs hers í desember. UNITA á í stríði við MPLA- hreyfinguna, sem verið hefur við völd frá því í 1975. Undirrituðu hinar stríðandi fylkingar friðar- sáttmála árið 1991 en hann var rofinn ári síðar er UNITA neitaði að viðurkenna ósigur sinn fyrir MPLA í kosningum og greip til vopna að nýju. á kafi í snjó eins og bærinn er um þetta leyti, því það fékkst heldur ekki samþykkt að setja hita í gang- stéttirnar til að bræða snjóinn í burtu. Eldra fólk gengur með gam- aldags skíðasleða, eins og einhvetj- ir muna kannski eftir frá því fyrir tuttugu árum. Sleðarnir eru bæði til stuðnings og eins til að flytja vörur á, svo heimamenn þurfa ekki á ruddum gangstéttum að halda. Einnota og æt matarílát og -áhöld Þegar fréttist að leikarnir yrðu haldnir í Lillehammer hófust mikil mótmæli umhverfisverndarmanna. Þau hafa borið þann árangur að aldrei fyrr hafa verið haldnir Ólympíuleikar, sem munu valda jafn litlum umhverfisspjöllum og nú. Styrktaraðilar eins og Kodak hafa verið skyldaðir til að fylgja norskum reglum um mengun, þegar þeir komu upp Ijósmyndavinnslu í bænum fyrir leikana. íþróttafólkið, blaðamenn og starfsmenn leikanna snæða mat sinn af og með einnota áhöldum og ílátum, sem þeir gætu í sjálfu sér borðað sem eftirrétt. Þess er þó ekki krafist af þeim, en áhöld og íiát eru búin til úr sterkju og verða notuð sem svínafóður á eftir. Og tignargestir verða að láta sér nægja að sjá aðeins í meðallagi vel, því meira tillit hefur verið tekið til tijánna við stúku þeirra, en út- sýnis gestanna. Áður en leikarnir hófust urðu verktakar að skrifa London. Daily Telegi’aph. LÖGBANN hefur verið sett á söngleik um fjölmiðlakónginn Robert Maxwell sem ráðgert var að frumsýna í London næstkom- andi föstudag. Ríkissaksóknari Bretlands, Sir Nicholas Lyell, krafðist bannsins þar sem hann taldi sýninguna getað skaðað réttarhöld vegna hruns Maxwell-samsteypunnar. undir samning, þar sem meðal ann- ars var tekið fram að fyrir hvert skaðað tré yrði að greiða sem svar- ar hálfa milljón íslenskra króna í skaðabætur. Sjónvarpsliðin hafa heldur ekki fengið að fella tré til að auðvelda myndatöku. Skipuleggjendur leikanna hafa ekki komist hjá að taka tillit til að norskan er tvískipt mál, svo máltog- streita hefur sett svip á undirbún- inginn. Þrýst var á um að auk ensku og frönsku yrðu bæði nýnorska og bókmál opinber mál leikanna, líkt og spánska og katalónska voru það á Spáni. Leikarnir þar þóttu nefni- lega styrkja mjög stöðu katalónsk- unnar. Það gekk þó ekki eftir, held- ur var bókmálið valið, auk ensku og frönsku. Norsk málnefnd hefur starfað með ólympíunefnd staðarins í nokkur ár, til að gæta þess að enska setti ekki svip á norska efn- ið, heldur væri það f norskum bún- ingi og slettulaust. Norðmönnum gefst gott tækifæri til að njóta. ár- ■ 'i ' • U S * ' . ý % Eftir lát Maxwells komst upp um stórfellda fjármálaóreiðu og svik í rekstri fyrirtækja hans og hafa syn- ir hans Kevin og Ian hafa verið ákærðir fyrir aðild þar að. Fyrrum yfirmaður í fyrirtækjum Maxwells, Evan Steadman, stendur á bak við uppfærslu söngleiksins sem ætlunin var að sýna í 11 vikur í fyrstu atrennu. angursins, því í stað hins venjulega vikulanga vetrarfrís fær skólafólk tveggja vikna vetrarólympíuleika- frí. Norskt, norskara, norskast Ólympíuleikarnir í Lillehammer virðast að mörgu leyti brjóta blað í sögu leikanna, því undanfarin ár hefur verið kvartað sárlega undan því að eftirstöðvar þeirra hafi verið flakandi sár í þeim bæjarfélögum, sem sáu um þá. Það virðist ekki ætla að verða raunin í Noregi og nú er að sjá hvort aðrir geta ekki lært eitthvað af þessum þver- móðskufullu Norðmönnum, sem buðu stórfyrirtækjunum birginn. Öll sú umhugsun, sem farið hefur í að undirbúa leikana á sem norsk- astan hátt og með tilliti til náttúr- unnar gæti vel orðið til þess að þegar upp verður staðið hafi leik- arnir styrkt norska sjálfsvitund og gert þá meðvitaðri um eigin gildi en áður var. , ;ÍSL" ’Éii ». xii k 1w'ili Fjodorov í þingnefnd um seðla- banka UMBÓTASINNINN Borís Fjodorov, fyrrum fjármálaráð- herra Rússlands, var í gær kjör- inn til að sitja í forsæti undir- nefndar dúmunnar (neðri-deild- ar þingsins) um málefni seðla- banka. Var fyrsta verk hans að kreíjast rannsóknar á stefnu bankans. Áður en Fjodorov sagði af sér í síðasta mánuði átti hann í miklum deilum við Viktor Gerasjenko seðlabanka- stjóra. Japanir sleppa við skattinn MORIHIRO Hosokawa, forsæt- isráðherra Japans, baðst í gær afsökunar á því að hafa valdið uppnámi í stjórn sinni með því að beita sér fyrir sjö prósenta virðisaukaskatti. Forsætisráð- herrann féll frá hugmyndinni og samsteypustjórn hans náði samkomulagi um aðgerðir til að blása nýju lífi í efnahaginn. Ákveðið var að lækka tekju- skattinn og fleiri beina skatta og auka útgjöldin til opinberra framkvæmda. Stjórnarflokk- arnir ætla að skipa nefnd sem ákveða á hvernig bæta eigi rík- inu upp tekjumissinn og út- gjöldin. Norðmenn mótmæla lág- marksverði NORÐMENN sögðust í gær ætla að senda Evrópubandalag- inu (EB) formleg mótmæli vegna þeirrar ákvörðunar frönsku stjórnarinnar að setja lágmarksverð á sjö fisktegundir sem fluttar eru inn frá ríkjum utan EB. Norðmenn segja þetta brot á samningnum um Evr- ópska efnahagssvæðið, hér sé um viðskiptahindranir að ræða gagnvart ríkjum utan EB. Yildi mafían Andreotti feigan? FYRRVERANDI félagar í ít- ölsku mafíunni hafa skýrt sak- sóknurum frá því að mafíufor- inginn Toto Riina hafi fyrir- skipað morð á Giulio Andre- otti, fyrrverandi forsætisráð- herra Italíu, eða einhveijum af sonum hans. Þeir sögðu að Ri- ina hefði viljað refsa Andreotti fyrir að standa ekki við loforð um að veija hagsmuni maf- íunnar. Andreotti kvaðst ekki hissa á því að mafían skuli hafa viljað hann feigan. Hann sagði ástæðuna þá að stjórn sín hefði gripið til harðra aðgerða gegn mafíunni. Prímadonna rekin METROPOLITAN-óperuhúsið í New York hefur rift samningi sínum við sópransöngkonuna Kathleen Battle vegna uppsetn- ingarinnar á „Fille du Regi- ment“ eftir Donizetti. Fram- kvæmdastjóri óperuhússins gaf út óvenju opinskáa yfirlýsingu þar sem sem söngkonan var sökuð um „ófagmannlega framkomu" sem hefði gert „listræna samvinnu söngvara- hópsins ómögulega“. Battle þykir sönn prímadonna, bæði skapstór og hégómleg. Styrktaraðilar Ólympíuleikanna fá ekki að setja upp auglýsingar að vild Lillehammer enn norskari og meira gamaldags en áður Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. VOLDUGIR styrktaraðilar Ólympíuleikanna eins og Coca-Cola, IBM og Kodak hafa komist að því að það er ekki allt falt fyrir reiðufé og gylliboð. íbúar Lillehammer hafa staðið á því fastar en fótunum að ásýnd bæjarins yrði ekki útbíuð í auglýsingum, sama hvað í boði væri. Fyrir bragðið er bærinn enn norskari og meira gamaldags nú þegar leikarnir fara í hönd, en áður. Undirbúningurinn hefur skerpt skilning þeirra á hvað væri sérstakt fyrir þá og umhverfis- verndarsinnar hafa haft mikil áhrif á framkvæmdir vegna leikanna. Og norsk málnefnd hefur einnig verið höfð með í ráðum til að standa vörð um tungumálið. Risinn beygir sig STÓRFYRIRTÆKIÐ Coca Cola verður að láta sér nægja rauð emal- eruð skilti á Ólympíuleikunum í Lillehammer.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.