Morgunblaðið - 09.02.1994, Síða 27

Morgunblaðið - 09.02.1994, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1994 27 Otrúleg afstaða sveitarstjórna Skil- mannahrepps og Innri-Akraneshrepps! eftir Gísla S. Einarsson Undirritaður setti fram tillögu um að fram færi atkæðagreiðsla í Skilmannahreppi, Innri-Akranes- hreppi og Akranesi og gefa á þann hátt íbúum sveitarfélaganna kost á að segja sitt álit á sameiningu. Ástæða fyrir tillögunni er m.a. að undirrituðum er kunnugt um að nokkrir íbúar tveggja fyrr- nefndu sveitarfélaganna telja eðli- legast að þessi sveitarfélög verði sameinuð, þó sérstaklega íbúar í Innri-Akraneshrepp. Líklegt er að hvergi utan höfuð- borgarsvæðisins séu meiri land- fræðileg rök fyrir sameiningu sveitarfélaga á Islandi. Samstarf er um fjölmörg málefni nú þegar milli þessara sveitarfélaga sem byggjast fyrst og fremst á stærð Akraness og þjónustustigi þar sem eC mjög gott. Nær allir íbúar sveitarfélaganna sem vinna önnur störf en beint að landbúnaði vinna á Akranesi eða þá í Járnblendiverksmiðjunni að Grundartanga. Tillaga mín byggist á möguleikum á því að snúa vörn í sókn hvað varðar atvinnutæki- færi á svæðinu en veruleg fækkun atvinnutækifæra hefur orðið á síð- astliðnum áratug. Markmið tillögunnar er að sam- eina sveitarfélögin til að bæta hag íbúanna, fá betri þjónustu og auka bjartsýni í kjölfar þess að svæðið er sérlega vel fallið til að verða reynslusveitarfélag. Hér koma svo svör sveitarfélag- anna eins og þau bárust Umdæma- nefnd Vesturlands: „Á fundi bæjarráðs Akraness sem haldinn var 13. janúar 1994, var m.a. tekið fyrir skeyti Um- dæmanefndar Vesturlands, dags. 11. janúar 1994, þar sem óskað er álits á tillögu um að Akranes- kaupstaður, Innri-Akraneshreppur og Skilmannahreppur kjósi um sameiningu þessara sveitarfélaga. Bæjarráð Akraness er samþykkt þeirri tiilögu að kosið verði um sameiningu Akraneskaupstaðar, Skiimannahrepps og Innri-Akra- neshrepps. Það tilkynnist hér með.“ „Skilmannahreppi 13. janúar 1994. í framhaldi af skeyti umdæma- nefndar S.S.V. frá 11. janúar sl. móttekið 12. janúar, þar sem kynnt er tillaga sem fram kom á fundi umdæmanefndar um sameiningu Akraneskaupstaðar, Innri-Akra- neshrepps og Skilmannahrepps. Hefur umrædd tillaga verið rædd innan hreppsnefndar. í ljósi þeirrar umræðu og skoðunarkönnunar sem fram fór í hreppnum á sl. ári, telur hreppsnefnd tillöguna ekki vænlega til að hljóta meiri- hluta fylgi innan hreppsins ef til atkvæðagreiðslu kæmi.“ „Á fundi hreppsnefndar Innri- Akraneshrepps 13. janúar 1994 var tekið fyrir símskeyti frá Um- dæmanefnd Vesturlands dags. 11. janúar 1994, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar um kosningu um sameiningu Akranes- kaupstaðar, Innri-Akraneshrepps og Skilmannahrepps. Eftirfarandi var samþykkt: Hreppsnefnd er andvíg því að kosning um þessa sameiningu fari fram.“ Hér getur að líta vilja sveitar- stjórnarmanna sveitarfélaganna en á grundvelli svara þeirra hefur Umdæmanefnd Vesturlands unnið. Hreppsnefnd Skilmannahrepps færist undan að gefa skýr svör, en vitnar til könnunar sein gerð var á sl. ári og atkvæðagreiðslu frá 20. nóvember sl. þessi rök eru léttvæg fyrir svari þeirra, því slcoð- anakönnun var gerð án umræðu og kynningar. Þegar kosið var um sameiningu 20. nóvember sl. var um allt aðra tillögu að ræða. Það sem ég les út úr svari hreppsnefndar er að þeir vilja ekki gefa þessari hugmynd færi á að fara í umræðu og kynningu vegna þeirra áhættu sem því fylgir sem er, að þeir gætu misst stólana sína, með meirihlutafylgi með tillögunni. Varðandi svar hreppsnefndar Innri-Akraness er það að segja að þeir vita að margir íbúar hreppsins telja möguleika felast í saméining- unni. Þjónustustig sem er lágt í hreppnum myndi gjörbreytast, í þágu íbúanna án þess að sérstaða þess að búa í dreifbýli skerðist. Hreppsnefnd Innri-Akraness vill ekki vera með í að reyna að ná sátt um sameinað dreifbýli og þéttbýli í þágu íbúanna á svæðinu. Það sem unnt er að benda á sem hefði breyst strax er dagvistunar- mál, heimilishjálp, umhverfis- og heilbrigðismál og síðast en ekki síst samgöngur. Fyrir mér er svar fyrir hönd íbúanna sem er eins og svar hreppsnefndar Innri-Akra- ness valdníðsla. Nokkur lokaorð Það er með ólíkindum hvernig lireppsnefnd hreppanna sunnan Skarðsheiðar hafa unnið gegn því að góð kynning fari fram um þá möguleika sem sameining sveitar- Gísli S. Einarsson „Þröngsýni og sérgæði koma fram í afgreiðslu hreppsnefndanna.“ félaganna gefur. Það samstarf sem er núna á milli sveitarfélaganna sunnan Skarðsheiðar byggist á stærð og getu Akraness og hefur orðið að draga litlu hreppana út í það til hagsbóta fyrir íbúa þeirra í npkkrum tilvikum. Ég lagði þessa tillögu fram í Umdæmanend Vesturlands til þess að gefa færi á að snúa vörn í sókn að dæmi Snæfellinga og Dala- manna sem nú hafa náð fyrirmynd- arsamkomulagi um sameiningu. Ég vildi að íbúar hefðu fengið tækifæri til að svara sjálfir að lok- inni kynningu og mati á hvað sam- eining myndi hafa í för með sér. Þröngsýni og sérgæði koma fram í afgreiðslu hreppsnefndanna í þeirra svörum, þeir vilja ekki möguleika aukinnar atvinnu, þeir vilja ekki bætta þjónustu og aukið sjálfsforræði sveitarfélaga. Þeirri forræðishyggja gagnvart íbúum kemur fram í verkum þeirra. Höfundur er þingnmditr Alþýðuflokks í Vesturlandskjördæmi. HÓTEL LEIFUR EIRÍKSSON1 Skólavörðustíg 45 Réykjavlk sími 620800 Fax 620804 Hagkvæm gisting í hjarta borgarinnar Einst.herb. kr. 2.900 Tveggja m. herb. kr. 3.950 Þriggja m. herb. kr. 4.950 Morgunverður innifalinn Bæjarleiðir Taxi Flugstöð Leifur Eiríksson 1-4 farþ. kr. 3.900 j 5-8 farþ. kr. 4.700 : < EINUNGIS 6 BÍLAR A EINSTÖKU VERÐI EFTI R Windows 3.1 PC grunrmámskeið Word fyrir Windows og Macintosh WordPerfect fyrir Windows Excel fyrir Windows og Macintosh Paradox fyrir Windows Novell námskeið fyrir netstjóra Word og Excel framhaldsnámskeið VEL BUINN gUARTET A AÐEINS Hagstætt verð og afar veglegar kennslubækur fylgja með námskeiðum. Skráning í síma 616699 g \ Í9a/ 297.DDD KR □ RFAIR BILAR A VERÐI BEM EKKI ER HÆGT AÐ LITA FRAMHJA. TOKUM GAMLA BILA UPPI OG LANUM Þ E R AFGANGINN. - Tölvuskoli Reykiavíkur Ba.-.-.7«i ■ Borgartúni 28, sími 91 -616699 l loncla .Quartct cr búinn .sparnovtinni l,5l; 9() hustalla \cl mcb Ix-inni innspvtingu. vökvastvri. samlæsingu a hurðuni. o.ui.tl. VatnaiiörcTuni - Sími 689900

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.