Morgunblaðið - 09.02.1994, Page 43

Morgunblaðið - 09.02.1994, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1994 43 ÚRSLIT Handknattleikur Stjarnan - Haukan 18:17 Ásgarður, 1. deild kvenna í handknattleik, þriðjudaginn 8. febrúar 1993. Gangur leiksins: 4:1, 5:2, 7:5, 8:6, 10:8, 12:11, 17:14, 18:17. Mörk Stjörnunnar: Una Steinsdóttir 4, Guðný Gunnsteinsdóttir 4, Ragnhei(\ur Stephensen 3, Helga Sigmundsdóttir 2, Þur- iður Hjartardóttir 1, Herdís Sigurbergsdóttir 1, Hrund Grétarsdóttir 1, Ásta Sölvadóttir 1, Margrét .Vilhjálmsdóttir 1. Varin skot:_Sóley Halldórsdóttir 14. Utan vallar: 2 mínútur. Mörk Hauka: Kristín Konráðfdóttir 7, Harpa Melsted 5, Ragnheiður Gunnarsdóttir 3, Rúna Lísa Þráinsdóttir 2. Varin skot: Anja Perdomo 14. Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Vigfús Þorsteinsson og Gunn- laugur Hjáimarsson. HStjörnustúlkur átti í erfiðleikum með Haukastúlkur og virtist sem undanúrslitin í bikarnum sætu í þeim. Best í liði Stjömunn- ar var Sóley Halldórsdóttir, markmaður. Hjá Haukum átti Anja Perdomo, markmaður, góðan leik og Kristín Konráðsdóttir var at- kvæðamikil. Nina Getsko lék ekki með Stjörnunni, þar sem hún á við meiðsli að stríða eftir leikinn á laugardaginn. Vikingur - Fram 23:19 Víkin. Gangur leiksins: 6:2, 8:3,10:5,14:7,15:11, 18:13, 19:14, 23:16, 23:19. Mörk Víkings: Inga Lára Þórisdóttir 7/4, Halla M. Helgadóttir 4/1, Hulda Bjarnadótt- ir 3, Heiða Erlingsdóttir 3, Hanna M. Helga- dóttir 2, Matthildur Hannesdóttir 2, Heiðrún Guðmundsdóttir 1, Svava Sigurðardóttir 1. Varin skot: Hjördís Guðmundsdóttir 9. Utan vallar: 12 mínútur. Hulda Bjarnadótt- ir fékk rauða spjaldið. Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir 8, Díana Guðjónsdóttir 4/2, Zelka Tosic 3, Hafdís Guðjónsdóttir 2, Ósk Víðisdóttir 2. Varin skot: Kolbrún Jóhannsdóttir 10 (þar af tvö ti! mótheija). Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Egill og Örn Markússynir. ■Víkingar voru með yfirhöndina allan leik- inn og spurningin var bara hversu stór sig- urinn yrði. Liðsheild Víkings var góð en Guðríður Guðjónsdóttir var allt í öllu hjá Fram og átti stórleik í seinni hálfleik. Þess má geta að Steinunn Tómasdóttir lék ekki með Fram vegna meiðsla, en hún er handar- brotin og leikur ekki með á næstunni. Guðrún R. Kristjánsdóttir. Körfuknattleikur Valur-UMFT 98:103 Hlíðarendi, úrvalsdeildin i körfuknattleik, þriðjudaginn 8. febrúar 1994. Gangur leiksins: 0:2, 11:9, 16:16, 21:18, 32:28, 32:34, 35:34, 37:47, 42:56, 44:56, 53:61, 56:70, 58:77, 63:82, 69:90, 86:92, 93:96, 97:100, 98:101, 98:103. Stig Vals: Franc Booker 42, Ragnar Þór Jónsson 26, Brynjar Karl Sigurðsson 14, Bragi Magnússon 9, Bergur Már Emilsson 5, Björn Sigtryggsson 2. Stig UMFT: Robert Buntic 33, Lárus Páls- son 18, Páll Kolbeinsson 17, Ingvar Orms- son 14, Ómar Sigmarsson 11, Hinrik Gunn- arsson 10. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Kristján Möller voru góðir. Áhorfendur: Um 180. NBA-deildin Leikir aðfararnótt mánudagskvöld: Atlanta — Detroit...............141:97 ■Stacey Augmon gerði 26 stig, Mookie Blaylock 18 og Dominique Wilkins 17 í stór- sigri (44 stiga mun) á Detroit Pistons. Þetta er stærsti sigur Atlanta, en áður hafði liðið unnið mest með 42 stiga mun í deildinni, San Diego Rockets 1967 og Philadelphia 76ers 1989. Allan Houston var atkvæða- mestur i liði Pistons með 22 stig. Indiana — Golden State..........104:99 ■ Reggie Miller gerði níu af 17 stigum sín- um í fjórða leikhluta, en Rik Smits var stiga- hæstur með 28 og tók 13 fráköst. Latrell Sprewell var bestur í liði gestanna, gerði 26 stig. Philadelphia — Charlotte......125:117 ■Clarence Weatherspoon náði fyrstu þre- földu tvennunni á ferlinum. Hann gerði 15 stig, tók 15 fráköst og átti 13 stoðsending- ar. Jeff Hornacek var stigahæstur i liði Philadelphiu með 36 stig og þar af 20 f fyrsta leikhluta. Tim Perry náði persónulegu stigameti er hann skoraði 31 stig. Hjá Charl- otte var Hersey Hawkins stigahæstur með 31 stig og Muggsy Bogues kom næstur með 24 stig. Charlotte lék án Larry Johnson, Alonzo Mourning, Scott Buri-ell, LeRon Ellis og Kenny Gattison, sem allir eru meiddir. Miami - New York................,96:85 ■ Steve Smith var með 25 stig og þeir Rony Seikaly og John Salley gerðu 22 stig hvor. Þetta var fyrsti sigur Miami á New York [ sfðustu 11 leikjum. Patrick Ewing var óveqju daufur og gerði 16 stig. Greg Anthony var stigahæstur f liði New York með 17 stig. Knattspyrna England Aukaleikur í bikarkeppninni: Biackburn - Charlton..............0:1 - Darren Pitcher 15. ■Charlton mætir Stockport eða Bristol City á útivelli f fimmtu umferð (átta liða úrslit- um). Skotland St Johnstone - Motherwell.........2:1 ftalía Bikarkeppnin Fyrri leikur í undanúrslitum Sampdoria - Parma.................2:1 Attilio iÆmbardo (54.), David Platt (56.) - Faustino Asprilla (31.). 15.000. HANDKNATTLEIKUR HSÍ vill fresta bikar- úrslítaleik FHogKA HSI sendi úrslitaliðunum í bikarkeppni karla og kvenna bréf í gær, þar sem sambandið býðst ttl að sjá um leikina og legg- urtil að kvennaleikur ÍBV og Víkings verði 19. febrúar, en karlaleikur FH og KA 5. mars. Samkvæmt mótaskrá, sem kom út í haust, eiga leikirnir að fara fram 20. febrúar, en HSÍ er í skuld við Ríkissjónvarpið og getur gert upp með fyrrnef ndum breytingum enda yrðu leikirnir þá sýndir beint hjá RÚV. Ibréfi HSÍ segir að í reglugerð- um HSÍ segi ekkert um hver skuli annast framkvæmd bikarúr- slitaleikja né heldur hvemig tekju- skigtingu skuli háttað. Því býðst HSÍ til að halda leikina og leggur til að félögin fái allar tekjur af aðgangseyri og auglýsingum við leikvöll, en HSÍ fái tekjur vegna útsendinga og styrktaraðila keppninnar, eins og verjð hefur. Gegn þessu ábyrgist HSÍ útsend- ingar frá leikjunum. Jafnframt segir að RÚV hafi farið fram & fyrrnefnda breytta leiktíma. „Ástæða þess að RÚV fer þessa á leit er sú að í febrúar verða Vetrar-Ólympíuleikar í Lillehammer í Noregi go eru þeir mjög1 fyrirferðamiklir í dagskrá sjónvarps og því útilokað að sýnt verði frá báðum leikjunum 19.-20. feb.“ Ennfremur kemur fram að Laugardalshöll er líklegasti leik- staður og er greint frá því að þegar séu viðræður hafnar um niðurfellingu 6% skatts til ÍBR, en ekki ábyrgst að af því verði. KA á móti Að sögn Björgvins Eyjólfssonar hjá ÍBV er ekkert vandamál með kvennaleikinn. Báðir aðilar séu ánægðir með að fá beina útsend- ingu, en um sé að ræða tvö aðskil- in mál, karlaleik og kvennaleik, og þeim megi ekki blanda saman. Sigurður Sigurðsson, formaður handknattleiksdeildar KA, sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að beiðni HSÍ væri fyrirsláttur. Úr- slitaleikurinn ætti að verá 20. febrúar samkvæmt mótaskrá og KA vildi halda sig við þá helgi, en betra væri áhorfenda vegna að flýta leiknum um einn dag. Um leikstaðinn sagði Sigurður að auðvitað vildu KA-menn leika í Höllinni á Akureyri, ekki síst vegna þess að möguleiki væri á að fá húsið frítt og jafnvel góða greiðslu að auki, sem kæmi báð- um félögum örugglega vel. FH samþykkir frest Jón Auðunn Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH, sagðist ekki vera sammála skýringu HSÍ um framkvæmd og tekjuskiptingu bikanírslitaleikja og vísaði í því sambandi á 5. og 7. grein reglu: gerðar fyrir bikarkeppni HSI. í 5. grein segir m.a.: „Mótanefnd HSl ákveður leikstað í úrslitaleikj- um, en skal hafa fullt samráð við viðkomandi félög." Og í 7. grein segir m.a.: „Ágóða eða tapi af hverjum leik skal skipta jafnt milli leikaðila.“ Hins vegar sagði Jón Auðunn að þó dagsetningin hefði legið fyrir frá því í haust, væri of stutt á milli undanúrslita og úrslita. Því styddi hann frestun, en yrði hald- ið fast við 20. febrúar, setti FH sig ekki á móti því. Hann sagðist, vilja leika í Kapla- krika, því það væri stærri staður en fyrir norðan og meiri markaður fyrir áhorfendur, en sennilega yrði Laugardalshöll þrautarlend- ing. HSÍ boðaði fund með félögun- um í dag og stefnir þá að því að fá endanlega niðurstöðu í málið. KORFUKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ UMFT sigraði í botnslagnum Tindastóll nældi í tvö mikilvæg stig með 98:103 sigri á Val að Hlíðarenda í gærkvöldi. Hvort lið reyndi 71 skot Stefán að körfu, þaraf um Stefánsson helming utan skrifar þriggja skota línu og fóru 26 af þeim í körfuna. Það segir sitt um varnir að eftir tíu mínútur var jafnt og samtals 64 stig á töflunni en UMFT náði tólf stiga forskoti fyrir leikhlé. Gestirnir bættu við á meðan ekk- ■ ert gekk hjá Völsurum, sem þó héldu sér á floti með þriggja stiga körfum. Franc Booker hrökk í gang og þegar mínúta var til leiksloka skildu aðeins þrjú stig liðin að. Þá tóku við vítaskot og UMFT vann. „Við þurftum að vinna og ætluð- um að gera það innan úr teignum," sagði Hinrik Gunnarsson sem ásamt Robert Buntic var sterkur í teigunum. Páll Kolbeinsson, Ingvar Ormsson og Ormar Sigmarsson áttu mjög góðan leik og Lárus Páls- son blómstraði eftir hlé. „Við erum þar sem við eigum skilið að vera. Við ætlum samt að hanga uppi og það eru sjö leikir eftir,“ sagði Ragnar Jónsson sem ásamt Franc, þegar hann komst í ham, var skástur Valsmanna. í kvöld HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla: Garðabær: Stjarnan - KR......20 KA-hús: KA - Haukar.......20.30 Kaplakriki: FH - UMFA........20 Settjarskóli: ÍR - Þór.......20 Hlíðarendi: Valur- Vfkingur..20 Vestm.ey.: ÍBV - Selfoss.....20 1. deild kvenna: Seltjarnames: Grótta - KR....20 Hlíðarendir: Valur-ÍBV.......18 2. deild karla: Strandgata: ÍH - HK..........20 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild: Stykkishólmun Snæfell - KR...20 GOLF Siguijón fékk sjöfugla Náði góðum árangri íTommy Armour- mótaröðinni í Flórída á þriðjudaginn KYLFINGURINN Sigurjón Arnarsson hefur staðið sig vel á Tommy Armour-mótaröðinni — golfmótum atvinnumanna í Orlando á Flórída. Sigurjón lék mjög vel á fyrsta keppnisdegi af þremur á þriðjudag, eða á 69 höggum, þremur höggum undir pari vallar- ins, en erf iðleikastuðullinn er 74. „Ég fékk óskabyrjun — fékk þrjá fugla á þremur fyrstu holunum, þannig að ég var þremur undir. Síðan kom smá bakkippur og ég fékk fjóra skolla, en á lokasprettinum náði ég fjórum fuglum og rétti úr kútnum," sagði Sigurjón þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær, áður en hann hóf að leika annan hringinn. Sigurjón var í einu af efstu tíu sætunum eftir fyrsta keppnis- daginn. „Þetta er mjög sterkt mót með tvö hundruð kylfingum og flestir eru atvinnumenn frá Banda- ríkjunum, Skotlandi og Japan. Kylf- ingar sem hafa verið að keppa á PGA- og Nike-mótaröðunum. Ég keppi að sjálfsögðu sem áhugamað- ur, þannig að ég tek ekki á móti peningaverðlaunum. Það er gaman að sjá hvar maður stendur í saman- burði við atvinnumenn.“ Sigurjón sagðist hafa náð sér vel á strik að undanförnu. „Ég hef verið að leika gott golf og hef aldrei verið eins vel upplagður og nú'. Á þriðjudaginn sló ég vel og púttin voru einnig í góðu lagi, en allt, þarf að vinna saman til að árangurinn verði góður," sagði Sigurjón. - Ertu farinn að hugsa um at- vinnumennskuna? „Maður hefur oft látið sig dreyma, en það kemur í ljós. Það er mjög kostnaðarsamt að söðla yfir úr áhugamennsku í atvinnu- mennsku. Maður þarf góðan fjár- hagslegan stuðning áður en maður tekur það skref. Ég kem heim í sumar og leik sem áhugamaður, en síðan verð ég að sjá til með fram- haldið." Sigurjón tók þátt í öðru móti í sl. yiku, þar sem 159 þátttakendur voru á Mission-Inn golfvellinum í Orlando. Siguijón var einn af fimmtán áhugamönnum og náði bestum árangri þeirra og hafnaði í 38. sæti á 219 höggum. Par vallar- ins var 72 og lék hann á 76, 71 og 72 höggum. Mótið vannst á 204 höggum. Sigurjón Arnarsson hefur leikið vel í Flórida að undanförnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.