Morgunblaðið - 20.02.1994, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/IIMIMLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1994
EFNI
Meint brot
skipstjóra
rannsökuð
GEORG Lárusson, sýslumaður í
Vestmannaeyjum, segir að hafin
sé opinber rannsókn á meintum
brotum skipstjóra togaranna Guð-
mundu Torfadóttur og Vest-
mannaeyjar á lögum um lögskrán-
ingu þar sem þeir hafi í engu sinnt
tilmælum um að afskrá áhafnir
skipanna sem Iiggja við bryggju í
Eyjum og frysta loðnu. Georg seg-
ir að embættið hafi hafist handa
við aðgerðimar af eigin fmm-
kvæði en eftir að ábendingar hafi
borist frá fólki sem ekki hefði
þótt sanngjarat að ákveðinn hópur
þeirra sem ynnu við loðnufryst-
ingu nytu betri kjara en land-
verkafólk og nyti t.a.m. sjómanna-
afsláttar.
Georg Lárusson sagði að hlutverk
embættisins væri að halda uppi lög-
um og reglu og sjá um að lög séu
haldin, þar á meðal lög um lögskrán-
ingu sjómanna. Aðgerðimar styddust
við þá túlkun á lögunum að afskrá
skuli áhöfn þegar skip sé notað með
þeim hætti sem gert sé í þessu til-
viki. Sú túlkun sé staðfest af sam-
gönguráðuneyti.
Georg Lárusson sagði að með lög-
um um lögskráningu væri fyrst og
fremst verið að tryggja hagsmuni
sjómanna á hafí úti og kvaðst hann
fremur hafa átt von á stuðningi sjó-
manna við það að lögunum yrði fram-
fylgt. Hann sagðist ekki hafa fengið
önnur viðbrögð en frá einstökum sjó-
mönnum sem tjáð hefðu sig andvíga
aðgerðunum.
Kjartan Jóhannsson aðalsamningamaður íslands hjá GATT
Hús við Hverfisgötu brann
HVERFISGATA 23 skemmdist mikið af eldi i fyrrinótt. Fólk var
flutt úr húsinu en til stendUr að rífa það vegna framkvæmda við
lýðveldisgarð á mótum Hverfisgötu og Smiðjustígs. Eldsupptök em
óljós og til rannsóknar.
Slökkviliðinu barst tilkynning
um eldinn þegar klukkuna vantaði
um það bil stundarfjórðung í fjögur
og hafði þá eldur kraumað lengi.
Að sögn slökkviliðs voru strax
sendir inn nokkrir reykkafarar til
þess að ganga úr skugga um að
enginn væri í húsinu, sem er 60
fermetrar að grunnfleti á einni hæð
með risi.
Slökkvistarf tók um það bil
klukkustund en mikill eldur og
reykur var í húsinu og hafði aug-
ljóslega að sögn slökkviliðs kraum-
að lengi og er talið að lítið hafí
vantað á að reyksprenging yrði
áður en slökkvilið kom á staðinn.
Eldsupptök eru óljós og hefur
RLR tekið við rannsókn málsins.
Morgunblaðið/Júlíus
Vemdartollum og verðjöfn-
unargjöldum ruglað saman
KJARTAN Jóhannsson sendiherra og aðalsamningamaður íslands
þjá GATT segir að grundvallarmunur sé á kostnaðarjöfnunar-
gjöldum, sem miði að þvi að jafna verðmun á hráefni til iðnaðar,
og vemdartollum, sem teknir verði upp með gildistöku GATT-
samninganna og koma eigi í stað magntakmarkana við innflutn-
ing. Hér á landi virðast menn hins vegar nota hugtakið verðjöfnun-
argjöld yfir þetta hvort tvegga.
Kjartan Jóhannsson var kallaður
hingað til lands til viðræðna við ráð-
herra vegna þeirra breytinga sem
landbúnaðamefnd Alþingis vill gera
á búvörufrumvarpi landbúnaðarráð-
herra og ágreiningur hefur verið um
milli stjómarflokkanna síðustu daga.
Fór Kjartan yfir breytingamar með
Frakkar taka heilbrigðisskoðun gilda sem stendur
Bílar með fisk toll-
afgreiddir í Bologne
BÍLARNIR tveir sem komu með fisk til Bologne frá Antwerpen á föstu-
dagskvöld fengu tollafgreiðslu í gærmorgun að sögn Birgis S. Jóhanns-
sonar, framkvæmdastjóra íslenska fiskvinnslufyrirtækisins Nord Mame
í Jonzac Frakklandi. Birgir sagði í samtali við Morgunblaðið að von
væri á 20 bílum til viðbótar á mánudag og þriðjudag og sem stæði
tækju tollyfirvöld heilbrigðisskoðun í Evrópulandi þar sem fiskurinn
kemur inn góða og gilda en aldrei væri að vita hvenær það breyttist.
Birgir sagði jafnframt að tollaf-
greiðslan væri aðeins opin til hádeg-
is á laugardögum en von væri á fleiri
bílum síðar um daginn og yrði reynt
að losa þá. „Búist er við um 20 bílum
á mánudag og þriðjudag, til dæmis
frá Antwerpen, Rotterdam og Dan-
mörku en um er að ræða físk sem
safnast hefur upp á undanfómum
vikum.“
Enn í erfiðri stöðu
Birgir sagði að sem stæði virtist
sem tollyfírvöld sums staðar tækju
heilbrigðisskoðun þess Evrópulands
þar sem fískurinn kemur inn gilda
en aldrei væri að vita hvenær það
breyttist. „Við erum ennþá í sömu
erfíðu stöðunni. Ég get nefnt sem
dæmi að við spurðumst óformlega
fyrir hjá frönskum heilbrigðisyfir-
völdum út af einum trukki sem við
ætluðum að senda niður eftir og þá
kom í Ijós að gerðar hefðu verið at-
hugasemdir við tvö atriði ef formleg
skoðun hefði farið fram. Hann verður
sendur til Bordeaux og það er hugs-
anlegt að við munum iáta reyna á
meðferð franskra heilbrigðisyfír-
valda þar. Það yrði þá nokkurs kon-
ar prófmál en við höfum ekki tekið
ákvörðun um þetta. Þessir bílar hafa
komist í gegn án þess að ítrustu
reglum sé fylgt en ef frönsk heil-
brigðisyfírvöld stöðva einhvem
þeirra á leiðinni til skoðunar erum
við í vondum málum," sagði Birgir
að lokum.
tilliti til GATT-samninga og annarra
milliríkjasamninga sem Island er
aðili að.
Kjartan sagðist við Morgunblaðið
vilja leggja áherslu á að ekki sé
blandað saman hlutum sem séu af
sitt hvoru taginu.
„Annars vegar er það sem hægt
er að kalla kostnaðarjöfnunargjöld,
en gengur oftast undir nafninu verð-
jöfnunargjöld,“ sagði Kjartan. „Það
snýr að því að jafna samkeppnisstöðu
manna í iðnaði sem notar landbúnað-
arafurðir eða hráefni í framleiðslu.
Á fríverslunarsvæði skiptir máli að
í einu landi sé slíkum iðnaði ekki
gert erfiðara um vik við framleiðsl-
una en samskonar iðnaði í öðru landi.
Hér á íslandi, eins og í sumum öðrum
löndum, sem tilheyra Evrópska efna-
hagssvæðinu, er mönnum bannað að
kaupa landbúnaðarafurðir án þess
að greiða fyrir þær hærra verð en
gildir í einhveijum öðrum löndum á
svæðinu. Þá telja menn að það verði
að veija þennan framleiðanda fyrir
samkeppni erlendis frá með því að
leggja gjald á innflutning samskonar
framleiðsluvöru sem jafni þennan
kostnaðarmun í framleiðslunni. Þetta
ætti því að heita kostnaðaijöfnunar-
gjald en hefur verið nefnt verðjöfnun-
argjald," sagði Kjartan.
Hann sagði tilganginn vera þann
að tryggja að framleiðendur í mis-
munandi Iöndum væru jafnstæðir
þegar tekin væru upp fijáls viðskipti
með þessar vörur. Á sama hátt væri
einnig möguleiki á að greiða útflutn-
ingsbætur, sem næmi þessum mun
á tilkostnaði í framleiðslu, ef menn
vildu flytja út vörur til einhvers ann-
ars Iands á þessu svæði þar sem
hráefnið væri ódýrara.
Verndartollar
Kjartan sagði síðan að með GATT-
samningunum væri fyrst og fremst
verið að bijóta niður magntakmark-
anir og innflutningsbönn. „Þar hafa
menn notað ákveðna reikniaðferð,
að tollígilda magntakmarkanimar,
til að ákveða hvemig hægt sé að
losna úr þessum innflutningsfjötrum.
Með öðmm orðum reyna menn að
fínna út hvað vemdartollar þurfa að
vera háir til að bændur, sem fram-
leiða hreinar landbúnaðarafurðir,
standi nokkurn veginn jafnt að vígi
í verðsamkeppni og ef þeir byggju
við magntakmarkanir á innflutningi.
Þetta er því verðmunurinn á landbún-
aðarafurðinni, annars vegar heima-
fyrir og hins vegar í útlöndum," sagði
Kjartan.
Kjartan sagði að fylgt væri mjög
ströngum reiknireglum við útreikn-
ing kostnaðaijöfnunargjalda en hvað
varðaði vemdartollana væri um að
ræða heimildir til að leggja á tolla
að ákveðnu hámarki en stjórnvöldum
væri síðan í sjálfsvald sett hvað toll-
amir væm háir innan þess marks.
Aðilar að GATT-samningnum skuld-
byndu sig síðan til að draga úr tollun-
um, eins og þeir væm ákveðnir í
upphafí, um 35% að jafnaði á sex
ára tímabili.
Peningar
ie (júnnál ^fjölskyldunnar
SEXTÁN síðna blaðauki um
fjármál fjölskyldunnar fylgir
Morgunblaðinu í dag.
Lífríki hafsvæða í upp-
sveiflu
►Vísindamenn leiða rök að
tengslum milli Barentshafs og ís-
landsmiða./10
Sigur í sjónmáii í
Sarajevo
► Serbar hafa látið undan hótun-
um NATO um loftárásir./12
Trúrgyðju sinni
►Rússneski skákmeistarinn Bron-
stein sjötugur í viðtali um skáklis-
tina./14
Að stýra stórveldi
►Óskar Magnússon ræðir um það
hvemig hann varð forstjóri Hag-
kaups, stöðu fyrirtækisins og inn-
flutning landbúnaðarvöra./16
B
► l-28
Mótar heimstískuna
►Elsa V. Haraldsdóttir er ein af
þremur sem mótar árlegar tískul-
ínur á alþjóðavettvangi fyrir sam-
tök hárgreiðslumeistaranna Int-
ercoiffure./l
Örugg leið til að deyja
►Unglingagengin í Los Ange-
les./6
Verða allir að vera
eins?
►Ungir áhorfendur leikritsins
Gauragangs segja skoðun sína./8
Uppljóstrun Chric-
htons
►Höfundur Júragarðsins gerir nú
upp sakimar við kvenrembuna./9
Lífið er leikrit
►Lífíð byijar um fertugt, segir
Guðfinna Jóhannsdóttir, sem fann
þá ástina og hóf nýtt líf í nýju
landi./14
D BÍLAR
► 1-4
Nýjungar f skugga
samdráttar í Evrópu
►Alþjóðlega vömbílasýningin í
Amsterdam er haldin annað hvert
ár. Sýningin núna var sú stærsta
til þessa./2
Reynsluakstur
►Renault 19 er sprækur í þétt-
býli jafnvel þótt vélin sé 1400
rúmsentimetrar og 80 hestöfl./4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 10b
Leiðari 20 Fólk i fréttum 16b
Helgispjall 20 Myndasögur 21b
Reykjavíkurbréf 20 Brids 21 b
Kvikmyndahús 18 Stjömuspá 21b
Minningar 23 Skák 21b
íþróttir 35 Bíó/dans 19b
Útvarp/sjónvarp 36 Bréf til blaðsins 24b
Mannlífsstr. 12b Velvakandi 24b
Kvikmyndir llb Samsafnið 26b
INNLENDAR FRÉTTIR;
2/6/BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1/4