Morgunblaðið - 20.02.1994, Síða 6

Morgunblaðið - 20.02.1994, Síða 6
I 6 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. FEBRUAR 1994 Starfsmannafélag varnarliðsins sendir frá sér harðorða ályktun Vinnubrögð varn- arliðsins í þjófnað- armáli gagnrýnd STARFSMANNAFÉLAG varnarliðsins hélt fund á fimmtudag með starfsmannastjóra vamarliðsins í kjölfar ályktunar sem félagið sendi frá sér þar sem málsmeðferð vamarliðsins á máli þriggja starfsmanna þess sem gmnaðir vom um að hafa stolið varahlutum var gagnrýnd. A fundinum kom fram að málið yrði leyst á næstu dögum en mennim- ir hafa ekki fengið að mæta til vinnu frá því í janúar. Talsmaður varn- arliðsins vildi ekki tjá sig um málið við Morgunblaðið Starfsmennimir þrír voru hand- teknir í janúar vegna gruns um að þeir hefðu stolið varahlutum frá vamarliðinu. Var málið sent til rann- sóknar til lögreglunnar á Keflavíkur- flugvelli og segir Óskar Þórmunds- son yfirlögregluþjónn að rannsókn þess hafi verið felld niður vegna skorts á sönnunum og viðkomandi aðilum tilkynnt það. Þegar málið kom upp var óskað eftir því að mennimir mættu ekki til vinnu fyrr en búið væri að kom- ast til botns í málinu og hafa þeir ekki fengið að snúa aftur til sinna starfa frá því að þeir vom handtekn- ir. Þórður Karlsson, formaður Félags íslenskra stjómunarstarfsmanna, en einn umræddra manna er í því fé- lagi, segir að þó að rannsókn ís- lenskra yfírvalda sé lokið sé ekki búið að leiða málið til lykta hjá vam- arliðinu, sem sé enn að athuga mál- ið. A meðan væm mennimir frá vinnu, þeim hefði ekki verið sagt upp og þeir héldu launum sínum. Hinir tveir mennimir em í Verkstjórafélagi Reykjavíkur. Hann gagniýnir málsmeðferðina og segir að í þessu máli hefði mátt skoða það betur áður en mennimir vom handteknir og færðir til yfír- heyrslu. Sögur gengu um málið Sverrir Kaaber, formaður Starfs- mannafélags vamarliðsins, segir að stjórn félagsins hafi farið á fund með starfsmannastjóra vamarliðsins á fimmtudag eftir að félagið hafði sent frá sé harðorða ályktun um málið. Þar hafí komið fram að þetta mál myndi verða leyst bráðlega. Á fund- inum hafí einnig verið greitt úr mis- skilningi sem ríkt hafí um málið af hálfu starfsmanna, en Sverrir segir að ýmsar sögur hafí verið famar að ganga um málið sem ekki hefðu ver- ið á rökum reistar. í ályktuninni var málsmeðferð vamarliðsins og sinnuleysi verka- lýðsfélaga gagnrýnt. í henni segir m.a. að í gegnum árin hafí vamarliðið komist upp með brottrekstur starfsfólks án þess að sök þess lægi fyrir. Þau mál sem nú væru í gangi væra dæmigerð fyrir þau vinnubrögð sem viðhöfð væra gagnvart starfs- fólki. Starfsmenn væra handteknir á vinnustað og þeim varpað í fangelsi. Síðan þegar ekki væri ástæða til ákæra, væri þeim meinað að koma til vinnu vegna einhverra annarra tilbúinna ástæðna. Þá segir í ályktuninni að þessi vinnubrögð séu með öllu óþolandi og þess er krafíst að verkalýðshreyfíng- in tryggi skjólstæðingum sínum full mannréttindi. Góa gengin ígarð Morgunblaðið/Sverrir KONUDAGURINN er í dag, fyrsta dag góu, en um miðjan sjötta áratuginn tóku blómaverslanir í Reykjavík upp á að auglýsa konudagsblóm með hvatningu til karlmanna að gleðja konur með blóm- um þann dag. Elísabet Kristinsdóttir, sem sér um afgreiðsluna í blómaversluninni Sólblómi í Kringl- unni, afhendir Magnúsi Pálssyni konudagsblómvönd- inn í ár. Kjúklingabitar lækka um 40% vegna ódýrari aðfanga Kjötlækkun á almennum markaöi hefur að hluta skilað sér til veitingahúsagesta KJÚKLINGASTAÐURINN Kentucky Fried Chicken lækkaði verð á öllurn kjúklingabitum um 40% s.l. föstudag, eða úr 165 kr. niður í 99 kr. Að sögn Ingunnar Helgadóttur framkvæmdastjóra er ástæða verðlækkunarinnar sú að framleiðendur aðfanga komu til móts við óskir fyrirtækisins um lækkun á verði, en farið var fram á það eftir að byijað var að selja kjúklinga á tilboðsverði í verslunum. Hún segir að Kentucky Fried Chicken kaupi mest allra veitingastaða hérlendis af kjúklingum, eða á annað hundrað tonn á ári. Hún seg- ir óráðið hvort tilboðið, sem gildir í fimm daga, verði framlengt en þar sem viðbrögð viðskiptavina hafi verið einstaklega góð komi slík framlenging til greina ef framboð á kjúklingum verði nægilegt. I lauslegri könnun sem Morgunblaðið gerði meðal nokkurra skyndi- bitastaða kom i ljós að lækkanir á kjötafurðum seinustu daga og vikna hafa skilað sér í mismiklum mæli til neytenda. Báru flestir staðirnir því við að verð á aðföngum til þeirra hefði enn ekki lækkað. Ólafur Ólafsson, rekstrarstjóri Grillhúss Guðmundar, segir að stað- urinn selji aðallega nautakjöt, og verð á því hafí ekki lækkað. „Við kaupum eingöngu fullunnið kjöt og lækkunin sem varð í verslunum er aðallega á kjöti í heilum og hálfum skrokkum, en svo virðist að þegar búið er að fullvinna vöruna komi engin lækkun fram. Að minnsta kosti hefur engin lækkun skilað sér til okkar en myndi að sjálfsögðu skila sér til fólksins ef varan lækk- aði jafnvel um þriðjung eins og heyrst hefur,“ segir Ólafur. 140 g hamborgari með osti hjá Grillhúsi Guðmundar ásamt skammti af frönskum kartöflum kostar 565 kr. Margir milliliðir Þóra Þrastardóttir, fram- kvæmdastjóri Jarlsins, kveðst ekki hafa séð neina lækkun á aðföngum staðarins í janúar og febrúar og auk þess hafi þeir kjúklingar sem vora á tímabundnu tilboðsverði í verslun- Sr. Jón M. Guðjóns- son, Akranesi, látinn SR. JÓN M. Guðjónsson, fyrrverandi sóknarprestur og heiðursborg- ari Akraneskaupstaðar, lést á ellideild Sjúkrahússins á Akranesi að kvöldi síðastliðins föstudags. Hann var á áttugasta og níunda aldurs- ári. Sr. Jón fæddist 31. maí 1905 á Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd. Foreldrar hans vora hjónin Guðjón Pétursson útvegsbóndi og Margrét Jónsdóttir. Jón lauk námi í Flens- borgarskóla árið 1924/varð gagn- fræðingur frá Gagnfræðaskóla Ak- ureyrar árið 1926, stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1929 og lauk guðfræðiprófi frá Há- skóla íslands árið 1933. Jón var settur prestur í Garða- prestakalli á Akranesi árið 1933 til 1934, sóknarprestur í Holtspresta- kalli undir Eyjafjöllum á árunum 1934 til 1946 og sóknarprestur á Akranesi frá 1946 til 1975. Jón var stundakennari við Gagn- fræðaskólann á Akranesi frá 1946, prófdómari við Barnaskólann á Akranesi á árunum 1947 til 1974 og við Gagnfræðaskólann frá 1950 til 1975. Eftir það var hann skipað- ur trúnaðarmaður við próf, síðast við Fjölbrautaskólann á Akranesi. Hann var formaður fræðsluráðs Akraness frá 1949. Jón sat í stjóm Skógræktarfélags Rangæinga frá stofnun 1944 til 1946 og í Skógræktarfélagi Akra- ness frá 1947. Hann var meðal stofnenda að Stúdentafélagi Akra- ness, einn stofnenda Rótaryklúbbs Akraness, f stjóm hans um skeið og forseti í eitt ár. Jón beitt sér fyrir stofnun Byggðasafns Akraneskaupstaðar og Borgarfjarðar sunrian Skarðsheiðar árið 1959 og vann síðan að eflingu og vörslu þess. Hann hlaut riddara- Sr. Jón M. Guðjónsson kross Fálkaorðunnar og honum var veitt heiðursmerki Sjómannadagsins auk þess sem hann var heiðursfélagi Slysavarnafélags íslands. Eiginkona Jóns var Jónína Lilja Pálsdóttir. Þau áttu tíu börn og eru níu þeirra á lífí. Hún lést árið 1980. um vegið um 800 g á meðan kjúkl- ingamir sem Jarlinn kaupi niður- brytjaða vegi um 1.100 g. „Til þess að geta fengið nægilega stóra bita sem matur er í, þurfum við að fá stóra fugla, en kjúklingurinn skipt- ist í um níu bita. Við höfum ein- stöku sinnum í neyð þurft að selja kjúklinga af þeirri stærð sem hefur verið á tilboðsverði og þá hefur kúnninn kvartað strax. Þá þurfum við að setja aukabita eða annað með til að bæta kúnnanum það upp sem er mjög óhagstætt fyrir okk- ur,“ segir Þóra. Jarlinn selur hvern kjúklingabita á 188 kr. og kostar 84 g hamborgari með osti og skammti af frönskum kartöflum 470 kr. - Kjartan Örn Kjartansson, fram- kvæmdastjóri hjá Lyst hf. sem rek- ur MacDonald’s, segir að veruleg lækkun hafi orðið á veitingum síðan staðurinn var opnaður en lækkun á kjötverði hafí ekki haft áhrif á verð- lag þeirra. Þó hafi orðið lækkun á kjúklingabitum og kosti skammtur með tveimur bitum nú 349 kr. „Við kaupum af kjötframleiðendum sem kaupa af sláturleyfishöfum o.s.frv. þannig að milliliðir eru margir áður en varan kemur til okkar,“ segir Kjartan. Á MacDonald’s kostar 45 gramma hamborgari með osti, fítu- mældur og frystur með köfnunar- efni, ásamt einum skammti af frönskum kartöflum 266 krónur. Verið að semja Á Svörtu pönnunni/Southem Fried Chicken hefur ekkert lamba- kjöt verið keypt eftir að verð lækk- aði, en nautasteik lækkaði í sein- ustu viku úr 795 kr. niður í 695 kr. og 80 g hamborgari með osti, frönskum kartöflum og gosdrykk kostar nú 395 kr. en kostaði áður 440 kr. án gosdrykks. Hver kjúkl- ingabiti kostar enn 173 kr. Kristinn Gunnarsson hjá Svörtu pönnunni segir að lækkunin hafí verið við- brögð við fregnum um þróunina sem verið hefur hjá verslunum. „Við erum að semja við þá sem afla okkur birgða og vonandi skilar það sér í enn lækkuðu verði sem fyrst," segir Kristinn. Dómsátt um að blaða- menn greiði bætur vegna nauðgnnarmáls GERÐ hefur verið dómsátt um að Ijúka meiðyrðamáli sem höfðað hafði verið gegn Gunnari Smára Egilssyni, fyrrverandi ritstjóra Press- unnar, og Karli Th. Birgissyni, núverandi ritsíjóra en þáverandi blaða- manni blaðsins. Gerðar höfðu verið kröfur upp á um 3 milljóna króna bætur auk krafna um refsingar. í sáttinni felst að ritstjórarnir greiði 100 þúsund krónur sem renni til konu sem stefnandinn hafði verið dæmdur fyrir að brjóta gegn kynferðislega en sá dómur og vanhöld stefnandans á greiðslu miskabóta til konunnar voru meðal þess sem fjallað var um í skrifum blaðsins. Pressan skrifaði nokkrar greinar um manninn eftir að þáttur hans sem tálbeita lögreglunnar i fíkniefnamáli kom á daginn. Var m.a. fjallað um sakarferil mannsins, en hann hafði verið dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot og til greiðslu miskabóta til konu sem hann hafði brotið gegn en ekki greitt þær bæt- ur. Maðurinn stefndi Pressunni og taldi skrif blaðsins fremur herferð gegn sér en hlutlausa umfjöllun. Krafíst var 3 milljón króna bóta og auk þess þyngstu refsingar yfir rit- stjóranum og blaðamanninum í eink- arefsimáli sem höfðað var. Nýlega var svo gerð fyrrnefnd sátt í Héraðsdómi þar sem ritstjórinn fyrrverandi og núverandi skuldbinda sig til að greiða 100 þúsund krónur vegna málsins enda renni féð til kon- unnar, sem átti ógreiddar miskabæt- ur hjá stefnandanum, og hann afsali sér til lögmanns konunnar þeirri að- fararheimild sem í sáttinni felst. * I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.