Morgunblaðið - 20.02.1994, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. FEBRUAR 1994
I
Fréttastjóri á DV í fjögnr ár
Óskar kynntist erfiðisvinnu í
múrverki og til sjós á yngri árum
en gerðist síðan blaðamaður á Vísi
á námsárum sínum í lagadeildinni.
Á þeim tíma var Þorsteinn Pálsson
ritstjóri blaðsins. „Ég var þar aðal-
lega við stjórnmálaskrif með skól-
anum,“ segir hann. „Áður en ég
lauk námi höfðu Vísir og Dagblaðið
sameinast og þegar ég átti eftir
síðasta árið í lagadeildinni var mér
boðið að gerast fréttastjóri á DV.
Ég þáði það og lauk nokkrum val-
fögum og lokaritgerðinni samhliða
vinnunni. Þar var ég í fjögur ár en
gerði þá eins árs hlé og stundaði
framhaldsnám í Washington í al-
þjóðaviðskiptarétti. Fljótlega eftir
að ég kom heim byijaði ég lög-
mennsku."
En hvernig skyldi rekstur Hag-
kaups hafa komið honum fyrir sjón-
ir frá því hann hóf þar störf?
„Umgjörðin hefur ekki komið
mér mjög á óvart. Ég þekkti auðvit-
að til fyrirtækisins sem viðskipta-
vinur frá fornu fari. Síðan hef ég
verið lögmaður Hagkaups í nokkur
ár og hafði það í veganesti. Það sem
hefur komið mér mest á óvart er
að við erum að fást við er saman-
safn af ótrúlega mörgum smáatrið-
um. Umfangið var meira en ég bjóst
við en því er hins vegar ágætlega
skipað í sínar einingar og vel skil-
greint hveijir bera ábyrgð á þeim.
Hins vegar lenti ég í „djúpu laug-
inni“ þegar ég byijaði. Forveri minn
var hættur fyrir nokkrum mánuðum
og sá sem hafði verið staðgengill
hans hætti einnig. Ég hef ekki ráð-
ið í það starf heldur má segja að
ég hafi sinnt tveimur störfum þenn-
an tíma. Síðan lenti ég í jólaverslun-
inni þannig þetta var mjög fjörleg
byijun.“
„Hafði ekki hug á að hætta í
lögmennsku"
— Ráðning þín til Hagkaups kom
töluvert mikið á óvart. Þú varst
einn af eftirsóttari fyrirtækjalög-
fræðingum landsins en hefur ekki
bakgrunn úr daglegri stjórnun á
svona stóru fyrirtæki. Hver var
aðdragandinn að ráðningu þinni til
fyrirtækisins?
„Það kom mér á óvart eins og
öðrum að mér skyldi hafa verið
boðið starfið. Ég hafði ekki hug á
því að hætta í lögmennsku og hafði
nóg að gera við að fást við ýmis
skemmtileg verkefni. Hins vegar
verður að grípa gæsina þegar hún
gefst og ekki hægt að fresta því
um ótiltekin ár. Ég hafði minn tíma
til að velta þessu fyrir mér en þetta
„sló mig vel“ mjög fljótt því ég
þekkti þá menn vel sem vinna hér.
Mér hefur fundist vera skemmtileg-
ur „kúltúr" í iyrirtækinu og hér eru
meira eða minna frekar ungir
stjórnendur. Þá er alltaf mikið um
að vera og hvergi nein lognmolla.
Þetta réði því að ég ákvað að tak-
ast á við verkefnið. v—
Ég hef ekki skoðun á því hvaða
bakgrunnur henti í þetta starf en
held að þetta snúist fyrst og fremst
um að geta stjórnað og vera kaup-
maður í sér. Nú er ég ekki að segja
að það hafi komið í ljós hjá mér.“
— Hver er staða Hagkaups á
markaðnum? Hefur fyrirtækið t.d.
verið að auka sinn hlut á matvöru-
markaðnum?
„Hagkaup hefur aukið sína hlut-
deild dálítið eftir að stór- matvöru-
verslun fór af markaðnum á síðasta
ári. Hins vegar gleymist stundum
að samkeppnin er mjög fjölbreytt.
Til dæmis er Nóatúns-keðjan geysi-
lega mikið fyrirtæki sem rekur 7
verslanir. Síðan eru margar klukku-
búðir og stórverslunin Fjarðarkaup
svo dæmi séu tekin. Viðskiptavinir
Hagkaups gera margar verðkann-
anir á dag með buddunni sinni.
Þeir eru fljótir að fara annað ef
þeir telja verðið of hátt, sérstaklega
núna þegar fólk horfir í hvern eyri.
Stundum er sagt að Hagkaup sé
of stórt á markaðnum en ég held
að stærðin eigi ekki að vera neitt
áhyggjuefni. Hún hefur hins vegar
leitt til þess að við höfum getað náð
hagstæðum innkaupum bæði innan-
lands og ekki síst að utan. Þetta
höfum við gert í samstarfi við Bón-
us en við rekum saman innkaupa-
Morgunblaðið/Sverrir
AÐSTYRA
STORVELDI
eftir Kristin Briem
ÞAÐ kom mörgum í við-
skiptalífinu nokkuð á
óvart þegar Óskar Magn-
ússon lögmaður var ráð-
inn forstjóri Hagkaups síðastliðið
haust. Maðurinn hafði hvorki
reynslu af rekstri matvöruverslunar
né heldur hafði hann áðúr stýrt
daglegum rekstri hjá stórfyrirtæki.
En eigendur Hagkaups þekktu vel
til Óskars því hann hafði um árabil
verið lögmaður fyrirtækisins og nú
síðast fór hann með „skinkumálið"
svokallaða. Óskar er raunar flestum
hnútum kunnugur í atvinnulífinu.
Hann var lögmaður Áramótahóps-
ins sem keypti hlut í Stöð 2 og lög-
maður Stöðvar 2. Þá var hann lög-
maður Olís um margra ára skeið
og lagði félaginu lið fyrir fáum
árum þegar það háði harða baráttu
fyrir tilveru sinni. Síðar varð Óskar
stjórnarformaður félagsins og var
boðið starf forstjóra eftir lát Óla
Kr. Sigurðssonar árið 1992 en hug-
VlÐSKIPn A3VINNULIF
Á SUNNUDEGI
► Óskar Magnússon lauk lögfræðiprófi frá Háskóla ís-
lands árið 1983 og stundaði framhaldsnám við George
Washington University á árunum 1985-1986 þaðan sem
hann lauk meistaragráðu í alþjóðaviðskiptarétti. Hann rak
eigin innflutningsverslun í Reykjavík 1975-1983, var blaða-
maður á Dagblaðinu Vísi með hléum 1978-1980. Þá var
hann dagskrárgerðarmaður á RÚV-Hljóðvarpi 1980-1981,
fréttastjóri DV 1982-1987 og rak eigin lögmannsstofu í
Reykjavík frá því í febrúar 1987. Óskar tók við starfi for-
stjóra Hagkaups 1. nóvember sl.
ur hans stóð þá ekki til þess starfs
án þess að hann skýri það nánar.
„Ég sagði stundum í gríni að Olís
væri ekki nógu stórt fyrirtæki fyrir
mig en Hagkaup er helmingi
stærra. Ætli sú skýring verði ekki
að duga,“ segir hann.
Það er ekki íburðinum fyrir að
fara á skrifstofu forstjóra Hag-
kaups sem er fyrir ofan skódeildina
í höfuðstöðvunum í Skeifunni.
Skrifstofa Óskars sem snýr að bíla-
stæðunum er fremur lítil eins og
aðrar skrifstofur á þessari hæð og
er hvorki hlaðin dýrum málverkum
eða leðurhúsgögnum eins og víða
má sjá í mörgum miklu minni fyrir-
tækjum á íslandi. Ekkert bendir til
að þaðan sé stærsta einkafyrirtæki
íslands með 11,5 milljarða ársveltu
stjórnað ef undan er skilin örtröðin
á bílastæðinu fyrir utan og straum-
ur viðskiptavina á leið inn og út
úr búðinni. Þetta látleysi hefur
raunar einkennt stjórnendur Hag-
kaups alla tíð enda er það í anda
stofnandans, Pálma Jónssonar heit-
ins, sem hafði ekki eigin skrifstofu
hjá fyrirtækinu heldur var stöðugt
að fylgjast með rekstrinum. Undir
stjóm Oskars eru yfir 1.000 starfs-
menn í sjö verslunum í Reykjavík
og tveimur á landsbyggðinni.
í
c
i
t
i
i
í
t
«