Morgunblaðið - 20.02.1994, Side 22

Morgunblaðið - 20.02.1994, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUIM SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1994 TÓNLIST FYRIRALLA Jónas Ingimundarson eftirJónas Ingimundarson Undir samheitinu „Tóniist fyrir alla“ hafa verið haldnir nokkrir tónleikar á Selfossi, Akranesi og í Kópavogi í vetur, sem hafa tekist mjög vel og verður væntanlega fram haldið. Sinfóníuhljómsveit íslands kemur í heimsókn, heldur sjö skólatónleika og þrenna opin- bera tónleika og iýkur þessu átaki í vetur. Hljómsveitin verður á Akranesi miðvikudaginn 23. febr- úar, á Selfossi 24. febrúar. Hún leikur fyrir skólafólk í Kópavogi föstudaginn 25. febrúar, opinberu tónleikamir í Kópavogi verða 26. febrúar í íþróttahúsinu við Digra- nesskóla. Fyrir skólafólkið er flutt sérstök, Qölþætt efnisskrá. Efnis- skrá opinberu tónleikanna er sér- lega glæsileg, forleikur eftir Wagner og fiðlukonsert Tsjajkovskíjs. Þá er þess vænst að allir viðstaddir syngi íslenska söngva með hljómsveitinni í tilefni af afmæli lýðveldisins og dansarar úr Listdansskóla Þjóðleikhússins dansa Bolero eftir Ravel. Einleik- ari verður Sigrún Eðvaldsdóttir. Stjómandi verður Juha Nikkole og kynnir á öllum tónleikunum Sverr- ir Guðjónsson. Stórt ævintýri hefur átt sér stað á Selfossi. Eftir fundahöld með skólastjómm og bæjaryfírvöldum fyrir forgöngu Bryndísar Brynj- ólfsdóttur, Hjartar Þórarinssonar og Þórs Vigfússonar var efnt til tónlistarframtaks, sem vakið hefur athygli. Skólaárið 1992-93 vora haldnir skólatónleikar fyrir alla nemendur í grann- og fjölbrauta- skóla staðarins. Þeir fóra fram við kjöraðstæður á hverjum stað, á skólatíma og var nemendum skól- anna skipt í hópa eftir aldri. í lok kynninganna vora haldnir opinber- ir tónleikar með hefðbundnu sniði. Á fyrstu tónleikunum var ég einn við flygilinn. Mánuði síðar kom Blásarakvintett Reykjavíkur, þá þær stöllur Sigrún Hjálmtýs- dóttir söngkona og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikári. Upp úr áramótum ’92-’93 fluttu þær Sigrún Eðvaldsdóttir fíðluleikari og Selma Guðmundsdóttir píanó- leikari sína efnisskrá. Það er skemmst frá því að segja að þessi tilraun tókst með þeim ágætum að aðstandendur skólanna og bæj- aryfírvöld ákváðu að áfram skyldi haldið. Skólaárið 1993-’94 era þegar búnar fjórar heimsóknir (sjá meðfylgjandi töflu). Tónleikar Sin- fóníuhljómsveitar íslands verða þeir níundu í röðinni sem íbúar Selfossbæjar hafa notið undir sam- heitinu „Tónlist fyrir alla“. Að loknu fyrra skólaárinu komu fyrirspurnir um hvemig að þessu væri staðið. Kópavogsbær og Akranesbær ákváðu að vera með. Á töflunni má sjá hvað þeir fengu til sín í vetur. Margar fyrirspumir hafa borist síðan og bæimir Sel- foss — Akranes — Kópavogur hyggja ,á framhald eins og áður sagði. Á öllum þessum stöðum er öflugt tónlistarstarf. Bæjarfélögin með skólafólkið, bæjarstjómir og áhugasama einstaklinga í broddi fylkingar, hafa lagst á eitt með að gera þetta mögulegt með eftir- tektarverðum hætti. Auk fyrr- nefndra vil ég sérstaklega nefna Þóranni Bjömsdóttur í Kópavogi pg Láras Sighvatsson á Akranesi. í svona starfí er fjölbreytnin, reglu- semin og það að hvert atriði sé vandlega undirbúið bæði af lista- fólkinu og skipuleggjendum mikil- vægast. Það verður fróðlegt að fylgjast með þessari tilraun, hún þarf tíma til að fullkomnast. Það er tiltölulega auðvelt í okkar smáa samfélagi að skipuleggja svona ævintýri, kostir fámennisins era * I svona starfi er fjöl- breytnin, reglusemin og það að hvert atriði sé vandlega undirbúið bæði af listafólkinu og skipuleggjendum mikil- vægast. Á skólatónleikum á Selfossi fyrir rúmlega 20 árum, sem Jónas Ingimundarson, Rut Magnússon og Sam- kór Selfoss stóðu fyrir. 20.-24. SEPTEMBER Söngtónleikar Bergþór Pálsson Anna Guðný Guðmundsdóttir 20.-24. SEPTEMBER Söngtónleikar Kristinn Sigmundsson Jónas Ingimundarson 20.-24. SEPTEMBER Musica Antiqua Sverrir Guðjónsson Camilla Söderberg Snorri Öm Snorrason 18.-22. OKTÓBER Fiðla, selló og píanó Auður Hafsteinsdóttir Bryndís Halla Gylfadóttir Jónas Ingimundarson 18.-22. OKTÓBER Flautur og gítar Guðrún Birgisdóttir Martial Nardeau Pétur Jónasson 18.-22. OKTÓBER Klarinettutónleikar Guðni Franzson Þorsteinn Gauti Sigurðsson 8.-11. NÓVEMBER Blásarakvintett Reykjavíkur Bemhard Wilkinson Daði Kolbeinsson Einar Jóhannesson Joseph Ognibene Hafsteinn Guðmundsson 8.-11. NÓVEMBER Slagverkstónleikar Eggert Pálsson Kjartan Guðnason Pétur Grétarsson Steef van Oosterhaut 8.-11. NÓVEMBER Hljómskálakvintettinn Ásgeir H. Steingrímsson Sveinn Birgisson Þorkell Jóelsson Oddur Bjömsson Bjarni Guðmundsson 24.-28. JANÚAR Flaututónleikar Kolbeinn Bjamason 24.-28. JANÚAR Fiðlutónleikar Sigrún Eðvaldsdóttir Selma Guðmundsdóttir 24.-28. JANÚAR Fiðla og harmonikka Szymon Kuran Reynir Jónasson 21.-26. FEBRÚAR , Sinfóníuhljómsveit Islands 21.-26. FEBRÚAR , Sinfóníuhljómsveit íslands 21.-26. FEBRÚAR , Sinfóníuhljómsveit íslands slíkir. Ýmislegt hefur verið gert af þessu tagi í gegnum árin en ekkert það ég veit jafn reglubund- ið. Það er flóknara mál að gera svona í stóram samfélögum, þar sem bilið milli flytjenda og hlust- enda er breitt og ópersónulegt. Þar er þörfin þó ekki minni og mönnum ljós þýðing þess ama. Nokkra fyr- ir jól fann ég í gömlu dóti efnis- skrá dagsetta 31. október 1964. Sinfóníuhljómsveitin í Pittsburgh kom hér f heimsókn og hélt tón- leika í Háskólabíói. Þeir era mörg- um í fersku minni. Við skoðun á þessum prentaða minjagrip kemur í ljós að allt sem þar birtist tengist tónleikum kvöldsins utan ein smá- grein, sem þessi frábæra hljóm- sveit kýs að birta gestum tónleik- anna. Þar stendur meðal annars undir fyrirsögninni „Tónlist fyrir æskuna“: „Eitt af því, sem telst til helstu afreka þeirra manna, sem hafa á hendi stjóm Pittsburgh-sinfó- níunnar, er hin mikla rækt, sem þeir hafa lagt við að kynna æsku- fólki sígilda tónlist og kenna því að meta hana. Þegar John Edw- ards varð framkvæmdastjóri sinfó- níunnar árið 1955, efndi hann strax til tónleika við hæfi bama og unglinga (9-13 ára), og fyrsta veturinn voru haldnir sex slíkir tónleikar fyrir 17.000 áheyrendur. Á síðasta starfsári (1963) hélt sinfónían hvorki meira né minna en 43 tónleika fyrir böm og ungl- inga og voru áheyrendur alls um 120.000 á aldrinum frá sex til sautján ára. Era tónleikar þessir orðnir fastur liður í fræðslukerfi borgarinnar, og kemur engum til hugar að nokkra sinni verði frá þessu horfíð aftur." Þetta starf stendur enn í blóma. Tónlistarlífíð á íslandi nú, er í senn fjölþætt og ríkt, þó ljóst megi vera að tónlistarsaga okkar sé styttri og fábrotnari en með þeim þjóðum sem eiga langa hefð. Ástæðumar eru fjölmargar og margt mætti nefna. Væri raunar fróðlegt að gera úttekt á því, en ég nefni aðeins tvennt: Mjög far- sælt starf brautryðjendanna og árangursríkt starf tónlistarskól- anna. Hljóðlátt starf þeirra, hvers á sínum stað, hefur svo sannarlega skilað árangri. Rekstur tónlistar- skólanna er einn vottur þess menn- ingarlega metnaðar, sem þjóðin telur sjálfsagðan. Ég er nokkuð viss um að sú byggð sé vart til í landinu, sem ekki reiknar sér það til tekna að þar starfí tónlistar- skóli, öflug lyftistöng til að fegra mannlífíð og fá fleiri strengi til að óma í þjóðarsálinni. Tónlistarskólarnir era um 70-80 talsins með um tíu þúsund nemendur. Við skulum þó ekki gleyma því að þrátt fyrir hve marg- ir era í tónlistarskólunum eru fleiri utan þeirra, og þeir „músíkölsk- ustu“ ekki endilega í tónlistarná- mi. Margvíslegt tónlistarappeldis- starf utan tónlistarskólanna vekur aðdáun, t.d. stórkostlegt starf grann- og framhaldsskólakóranna — margt fleira mætti til taka. — Tónlistarfræðslan í skólunum, kór- starf hverskonar, kirkjutónlistin öll, lúðrasveitimar og m.fl. Þjóðin á nú mikil verðmæti fólg- in í fjölskrúðugum og velmenntuð- um hópi tónlistarmanna af öllum greinum, sem standast samjöfnuð við hvaðeina það er best þekkist hjá öðrum þjóðum. Þjóðin hefur m.a. með rekstri tónlistarskólanna uppgötvað þetta fólk, kallað það til starfa, gefið því tækifæri til náms m.a. í formi námslána, oft hjá bestu kennurum við virtustu skólastofnanir veraldar, væntan- lega í þeirri von að við mættum njóta starfa þeirra að námi loknu. Við eigum frábæra sinfóníuhljóm- sveit og lifandi óperu. Lítum á aðra hlið málsins. Við eigum hvergi tónlistarhús, en um allt land er að fínna glæsihús hverskonar: Félagsheimili stór og smá, skóla, safnahús, kirkjur og safnaðarheimili o.fl. byggingar sem einnig bera vitni um menning- arlegan metnað íslendinga. Þessar byggingar standa öllum ljósar, koma því engum á óvart og era nýttar til tónleikahalds. Hljóðfærakosturinn í landinu er víða með siíkum ágætum að ótrú- legt er. Orgelin hafa verið í umræð- unni en flyglar af bestu gerð era í hverri byggð á stóram svæðum. Þetta þekki ég af eigin raun, hef ,gert dálítið af því að ferðast um landið allar götur síðan 1965 til tónleikahalds. Tónleikahald þetta hefúr oft verið í tengslum við heim- sóknir í skóla. í nútímanum er mjög erfitt að hugsa sér lffíð án tónlistar og þörf- in fyrir fagrar listir hefur aldrei verið biýnni. Tónlistin er óhlut- bundin og uppeldisgildi hennar er ótvírætt. Hún getur verið stærð- fræðilega rökföst, fullyrðir samt ekki neitt, heldur ekki fram skoðunum. Tónlistin endurspeglar, tjáir allt tilfínningasvið mannsins. I henni er að finna spennu og slök- un, plús og mínus — lífið sjálft. Tónlistin getur verið mjög við- kvæm og því alls ekki sama hvern- ig með hana er farið, og hún hefur að geyma sumt af því, sem manns- andinn getur mest af státað. Tónlistin hrein og tær er göfg- andi — mannbætandi. Það syngur enginn maður í vondu skapi, en það er hægt að syngja burt leið- indi eins og allir vita. Höfundur er tónlistnrmaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.