Morgunblaðið - 20.02.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.02.1994, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1994 Minning Ingibjörg Bryn- hildur Pálsdóttir Fædd 13. júlí 1928 Dáin 11. febrúar 1994 Sem bliknar fagurt blóm á engi svo bliknar allt sem jarðneskt er, ei standa duftsins dagar lengi þótt dýran ^ársjóð geymi í sér. Það eitt er kemur ofan að um eilífð skín og blómgast það. (V. Briem) Síðla föstudaginn 11. febrúar barst mér sú harmafregn að Imma mágkona mín væri látin. Mig setti hljóða og minningar liðinna ára leita á hugann. Það var sérstök tilfinning þegar ég kom fyrst á heimili for- eldra hennar, þeirra Pálínu Bergs- dóttur og Páls Þorgrímssonar. Svo vel var mér tekið að mér fannst ég strax verða ein af þeim,. en á þessu heimili ríkti mikil gleði og birta. Jafnvel í skammdeginu og á erfið- um stundum var það eitthvað sem lýsti upp drungann. Þetta var hluti af veganesti þeirra systkina, enda var sama hvenær kvatt var dyra hjá þeim Immu og Jóni (hann lést 1981), alltaf mætti manni sami hlý- hugurinn og hjálpsemin. Það var heldur ekki ósjaldan sem á það reyndi. - Ekki var húsnæðið stórt í sniðum á Vatnsstígnum og ekki alltaf að þær gerðu boð á undan sér ferðim- ar suður, en alltaf var nægjanlegt rými hvort sem um lengri eða skemmri tíma var að ræða. Nú þegar ég lít til baka verður mér þakklætið efst í huga fyrir að hafa fengið að kynnast henni og njóta velvildar þeirra hjóna. Elsku Jón Brynjar, Páll og Esther, missir ykk- ar er mikill en minningin geymist í hjörtum ykkar. Guð blessi ykkur og styrki á þessum sorgarstundum. Innilegustu samúðarkveðjur flyt ég frá okkur öllum í fjölskyldunni. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þín mágkona, Sigurlaug. Fótmál dauðans fljótt er stigið fram að myrkum grafarreit, mitt er hold til moldar hnigið máske fyrr en af ég veit. Heilsa, máttur, fegurð, fjör flýgur burt sem elding snör. Hvað er lífið? Logi veikur, lítil bóla, hverfull reykur. Margur einn í aldurs blóma undi sæll við glaðan hag, brátt þá frepin heyrðist hljóma: Heill í gær, en nár í dag. - Ó, hve getur undraskjótt yfír skyggt hin dimma nótt! Fyrir dyrum dauðans voða daglega þér ber að skoða. (Bjöm Halldórsson frá Laufási) Imma frænka er dáin. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu í Hæðar- garði 28, hinn 11. febrúar sl. Hún var fædd á Sauðárkróki 13. júlí 1928 og var elsta barn afa og ömmu, þeirra Páls Þorgrímssonar og Pálínu Bergs. Þau eru bæði lát- in. Eftirlifandi systkini Immu eru: Sigmundur, Jóhanna og Bragi. Bróðir þeirra Sigtryggur, faðir und- irritaðrar, lést árið 1964, rúmlega þrítugur að aldri. Imma var gift Jóni Magnússyni, útvarpsvirkjameistara, en hann varð bráðkvaddur 1981. Þau áttu tvo syni, Pál, en kona hans er Esth- er Ragnarsdóttir, og Jón Brynjar, sem bjó með móður sinni. Þung er sorg þeirra nú, er þeir öðru sinni verða fyrir ástvinamissi með svo snöggum hætti. Guð blessi þau í sorginni og veiti þeim styrk. Lengst af bjuggu Imma og Jón á Vatnsstíg 10. Þaðan á ég margar góðar minningar og þar var mitt annað heimili þau níu ár sem ég bjó í Reykjavík. Ætíð var ég velkomin á heimili þeirra og þar var mér allt- af vel tekið. Margt var rætt yfir kaffibolla á Vatnsstígnum. Þar var hlegið og þar var grátið, grínast og málin rædd af alvöru. En nú er komið 'að kveðjustund. Ég vil þakka alla þá hlýju og vin- semd sem þú sýndir mér. Þú varst mér í senn frænka og góð vinkona. Ó, allt það gott, sem gafst mér þú, þín geymi máttug höndin nú. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Ég bið guð að sefa sorgir son- anna og annarra ástvina. Minning þín lifir. Inga. „Lífíð er fljótt, líkt er það eldingu sem geysar um nótt.“ Þessar ljóðlín- ur komu upp í hugann, þegar ég frétti um andlát Ingibjargar Bryn- hildar Pálsdóttur eða Immu Páls, eins og við kölluðum hana alltaf. Hún var fædd á Sauðárkróki 13. júlí 1928, og voru foreldrar hennar Pálína Bergsdóttir og Páll Þor- grímsson á Suðurgötu 9 þar í bæ. Þar ólst Imma upp ásamt fjórum systkinum við gleði og leik og ástríki fjölskyldunnar. Imma fór snemma að heiman. Hún lauk prófi úr Unglingaskólanum á Sauðár- króki og hélt svo í Laugarvatnsskól- ann. Eftir að hafa lokið prófi þar fór hún til Reykjavíkur og stundaði þar ýmis störf. Á gamlársdag 1960 giftist hún Jóni Magnússyni. Þau settu saman bú'sitt á Vatnsstíg 10, en árið 1981 missir hún mann sinn. Þau eignuð- ust tvo syni, Pál og Jón Brynjar. Páll giftist Esther Ragnarsdóttur og stofnaði sitt eigið heimili, en Imma og Jón Brynjar fluttu að Hæðargarði 28 hér í borg og þar bjó Imma til æviloka. Jón Brynjar bjó alltaf með mömmu sinni og var henni stoð og bar hana á höndum sér eins og best verður gert. Imma vann alltaf utan heimilis, og nú síð- ast í mörg ár í Þvottahúsinu Grýtu. Þegar Kvennadeild Skagfirð- ingafélagsins í Reykjavík var stofn- uð árið 1963, gekk Imma snemma til liðs við hana. Hún var ávallt boðin og búin til að vera þar í nefnd- um og gera allt sem hún gat til þess að efla þann félagsskap. Það var alltaf ánægjulegt að leita til Immu sem sagði yfirleitt já við öllu, sem hún var beðin um að vinna í þágu deildarinnar, enda unni hún Skagafirðinum sinum alla tíð og naut þess í ríkum mæli að skreppa norður. Við allar í Kvennadeildinni kveðj- um Immu okkar með miklum sökn- uði um leið og við þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast henni og vinna með henni í öll þessi ár að hugðarefnum okkar fyrir héraðið okkar fagra. Ég bið góðan guð að blessa hana í nýrri vegferð. Guðrún Þorvaldsdóttir. Föstudaginn 11. febrúar leitaði mamma okkur systkinin uppi til að segja okkur að Imma frænka væri dáin. Viðbrögðin voru eins hjá okk- ur öllum: Af hveiju núna? Hún var búin að vera svo hress, auk þess á besta aldri. Kallið gerir ekki alltaf boð á undan sér. Ingibjörg, eða Imma eins og við kölluðum hana, fæddist á Sauðár- króki 13. júlí 1928, dóttir Páls Þor- grímssonar og Pálínu Bergsdóttur. Var hún elst fimm systkina. Þijú þeirra lifa systur sína, Sigmundur, býr á Sauðárkróki, Jóhanna og Bragi sem búa í Keflavík. Sigtrygg- ur lést úr veikindum 1964. Imma eignaðist tvo syni, Pál Þorgríms 1956 og Jón Brynjar 1960. Hún giftist Jóni Magnússyni smið og útvarpsvirkja en hann andaðist 1981. Leiðir þeirra liggja því saman á ný eftir tæp 13 ár. Við eigum Immu frænku mikið að þakka, það var henni að þakka að foreldrar okkar rugluðu saman reitum. Hún var ráðskona hjá móð- urafa okkar, Þórarni Ólafssyni í Keflavík, árin 1956-59. Bróðir hennar, Bragi, kom suður til systur sinnar og gerði hosur sínar grænar fyrir heimasætunni. Sem betur fer tókst það. Það er ein minning sem skýtur alltaf upp kollinum þegar minnst er á Immu, en það er jólasveinninn. Hjá henni bjó jólasveinn úr Esjunni sem var gjafmildur á sælgæti úr pokanum sínum. Litlir auðtrúa krakkar féllu fyrir þessum jóla- sveini sem sat uppi á skáp og hristi höfuðið. Páll, Jón Brynjar og aðrir sem eiga um sárt að binda, við sendum ykkur samúðarkveðjur. Við vitum að Imma frænka er á góðum stað í góðum félagsskap. Höldum minn- ingu um góða konu hátt á lofti. Krakkarnir Langholti 7. r , ÚTFARARSÁLMAR ' T ÞAKKARKORT T Gott verð, stuttur afgreiðslutími PERSÓNULEG PRENTPJÓNUSTA LETURprent l Sfðumúla 22 - Sími 30 6 30 ) t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, HELGA BJÖRNSDÓTTIR, Brekastíg 24b, áður til heimilis t Klöpp, Vestmannaeyjum, lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja þann 17. febrúar 1994. Georg Þ. Kristjánsson, Kristrún Harpa Rútsdóttir, Björn Kristjánsson, Margrét Sigrún Skúladóttir, Guðfinna S. Kristjánsdóttir, Hafsteinn Stefánsson, Margrét G. Kristjánsdóttir, Reynír S. Jóhannesson, Drífa Kristjánsdóttir, Björn Þorgrímsson, Mjöll Kristjánsdóttir, Sigurjón Birgisson, Óðinn Kristjánsson, Hulda Sæland Árnadóttir, Þór Kristjánsson, og barnabörn. t JÓN BJÖRNSSON rithöfundur, sem lést 15. febrúar verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, föstu- daginn 25. febrúar kl. 13.30. Fyrir hönd barnabarna og systkina hins látna, Björn Jónsson, Elsa Árnadóttir. t Ástkær móðir, tengdamóðir, systir, mágkona og frænka, INGIBJÖRG BRYNHILDUR PÁLSDÓTTIR, Hæðargarði 28, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 21. febrúar kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Jón Brynjar Jónsson, Páll Þorgríms Jónsson, Esther Maria Ragnarsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa- langamma, MARTA JÓNSDÓTTIR frá Nýborg, Akurgerði 5, Akranesi, sem lést 13. febrúar sl., verður jarðsungin frá Akraneskirkju, mánudaginn 21. febrúar kl. 14.00. Magnús Guðmundsson, Ester Jónsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Sigurður Geirsson, Dóra Guðmundsdóttir, Karl H. Karlsson, Steinunn Guðmundsdóttir, Guðmundur Guðbjörnsson, Aðalbjörg Guðmundsdóttir, Ásgeir Kr. Ásgeirsson, Sigurður Guðmundsson, Nanna Sigfúsdóttir, Pálmi Guðmundsson, Hanna Benediktsdóttir, Elm Sveinsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Jarðarför systur minnar, SIGÞRÚÐAR JÓNSDÓTTUR, Unnarbraut 24, Seltjarnarnesi, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, miðvikudaginn 23. febrúar kl. 13.30. Hörður Jónsson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ODDUR HALLDÓR JÓNSSON, Tunguheiði 4, Kópavogi, fyrrverandi bóndi, Kolsholti, Árnessýslu, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 22. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Gigtarfélag íslands. Svanhildur Sigurðardóttir, Sigurður Oddsson, Elfn Andrésdóttir, Gyða Oddsdóttir, Jóhann Guðmundsson, Bryndís Oddsdóttir og fjölskyldur. t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, móðursystir, systir, amma og lang- amma, AGNES MATTHÍASDÓTTIR frá Grímsey, Álfheimum 26, Reykjavík, verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn 22. febrúar kl. 13.30. Matthías Ásgeirsson, Kristín Ásgeirsdóttir Johansen, Hrafnhildur Ásgeirsdóttir, Guðbjörg Ásgeirsdóttir, Sólveig Asgeirsdóttir, Ásgeir Kr. Asgeirsson, Guðný Hreiðarsdóttir, Rannveig Matthíasdóttir, Sólveig Sigurðardóttir, Rolf Johansen, Hlöðver Örn Vilhjálmsson, Eyjólfur Jónsson, Pétur Sigurgeirsson, Aðalbjörg Guðmundsdóttir, Matthías Hreiðarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ARNDÍSAR JÓNSDÓTTUR, Espigerði 4. Helga Karlsdóttir, Þórhallur Ingason, Aðalheiður Karlsdóttir, Kristinn B. Ragnarsson, Jóhanna Berta og Karl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.