Morgunblaðið - 20.02.1994, Síða 30
30
M ORGÚNBLAÐÍÐ ATVINNA/RAÐ/SIVIÁ söiSnud AGUR 20. FEBRUAR 1994 '
ATVIN N if A UGL YSINGA R
Lyfjafræðingur
Vegna aukinna umsvifa innan lyfjadeildar
fyrirtækis okkar auglýsum við eftir lyfjafræð-
ingi til starfa.
Umsóknir, merktar „Lyfjafræðingur", sendist
til Austurbakka hf. fyrir 1. mars nk.
Með allar umsóknir verður farið sem trúnað-
armál og öllum umsóknum verður svarað.
Austurbakki hf.,
umboðs- og heildverslun,
Borgartúni 20,
105 Reykjavík.
Góð skapgerð
Virt og gamalgróin fasteignasala í Austur-
borginni óskar eftir að ráða starfsmann til
símavörslu og móttöku vjðskiptavina eins
fljótt og hægt er.
Æskilegt er að væntanlegur starfsmaður hafi
gott viðmót, ákveðna, en jafnframt kurteis-
lega framkomu, einhverja reynslu af tölvu-
notkun og geti unnið undir álagi.
Umsóknir, með helstu persónuupplýsingum
og þeim upplýsingum öðrum, sem máli
skipta, óskast sendar til auglýsingadeildar
Mbl., merktar: „Hress- 10387“, fyrirfimmtu-
daginn 24. febrúar 1994.
Öllum umsóknum verður svarað.
Rafeindavirkjar -
tæknifræðingar
' * Traustfyrirtæki með marga góða starfsmenn
leitar að tveimur snjöllum starfsmönnum til
að sinna viðhaldi og eftirliti með flóknum
tölvu- og fjarskiptabúnaði. Starfsmennirnir
sem leitað er að þurfa að hafa staðgóða
þekkingu og reynslu í viðhaldi á tölvum og
öðrum rafeindabúnaði. Æskileg menntun er
rafmagnstæknifræði, rafeindavirkjun eða
símvirkjun. Góð kunnátta í ensku, jákvætt
hugarfar, öguð vinnubrögð, reglusemi og góð-
ur samstarfsvilji eru forsenda fyrir ráðningu.
Starfsmennirnir þurfa að geta hafið störf
eigi síðar en í maí/júní nk.
Starfið næstu 18 til 24 mánuði verður í Los
Angeles og er flutningur starfsmanns og fjöl-
skyldu greiddur af vinnuveitanda. Við heim-
komu til íslands verður um að ræða vakta-
vinnu sem fram fer á Reykjanesi. Um framtíð-
arstarf er að ræða og forsenda að viðkom-
andi hyggist starfa áfram hjá fyrirtækinu eft-
ir heimflutning til íslands. Góð laun í boði.
Þeir sem áhuga hafa á störfum þessum sendi
nafn og upplýsingar um menntun og starfs-
feril til auglýsingadeildar Mbl. merkt:
„RT - 10253“, fyrir 26. febrúar nk.
Læknaritarar óskast
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði óskar að
ráða læknaritara til afleysinga.
Upplýsingar veitir yfirlæknir í síma 98-30300.
Heilsustofnun NLFÍ.
Laus störf
Prentsmiðja í borginni, óskar að ráða starfs-
fólk í eftirtalin störf, sem fyrst. Aðeins koma
til greina einstaklingar sem reykja ekki.
Tölvuvinnsla
Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu á
Macintosh quatra umhverfi, (setning, um-
brot, myndvinnsla o.þ.h.).
Lagermaður
Leitað er að duglegum og reglusömum ein-
staklingi sem getur gengið í flest störf. Þarf
að hafa eigin bifreið.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu okkar
til 28. febrúar nk.
GijðntTónsson
RADCJÓF &RÁÐNINCARÞJÓNUSTA
TJARNARGÖTU 14. 101 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
Tölvunarfræðingur
Óskum að ráða tölvunarfræðing til starfa
hjá verkfræði- og tölvufyrirtæki í Reykjavík.
Verksvið:
1. Viðhald og gerð hugbúnaðarkerfa.
2. Þjónusta við notendur.
3. Þarfagreining, hönnun og forritun.
4. Tölvuráðgjöf.
Við leitum að tölvunarfræðingi með þekk-
ingu og reynslu af forritun í Windows um-
hverfi. Forritunarmál: C, C++ og Visual-basic.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Traust verkfræðistofa 045“ fyrir 1. mars nk.
Hagvai ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Lögreglumenn
Stöður tveggja lögreglumanna í lögregluliði
Vestmannaeyja eru lausar til umsóknar.
Ráðningartími er frá 17. mars 1994 til
15. september 1994.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófum frá
Lögregluskóla ríkisins. Launakjör eru sam-
kvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknum skal skila til undirritaðs fyrir
28. febrúar nk.
Vestmannaeyjum, 17. febrúar 1994.
Sýsiumaðurinn í Vestmannaeyjum,
Georg Kr. Lárusson.
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
1. AÐSTOÐARLÆKNIR
Starf 1. aðstoðarlæknis á Barnaspítala
Hringsins er laust til umsóknar. Ráðningar-
tímabil er 1. júlí 1994-30. júní 1995. Auk
venjubundinna starfa aðstoðarlæknis er ætl-
ast til virkrar þátttöku í rannsóknastarfsemi
deildarinnar. Tekur þátt í bundnum vöktum
skv. fyrirfram gerðri áætlun. Starfsreynsla á
barnadeild æskileg. 1. aðstoðarlækni eru
falin ábyrgðarmeiri störf, eftirlit með yngri
aðstoðarlæknum, þátttaka í kennslu lækna-
nema og nemenda eða starfsfólks í öðrum
heilbrigðisgreinum. Um getur verið að ræða
námsstöðu í barnalækningum eða starfs-
þjálfun til stuðnings í öðrum sérgreinum.
2. AÐSTOÐARLÆKNIR
Starf 2. aðstoðarlæknis á Barnaspítala
Hringsins er laust til umsóknar. Ráðningar-
tímabil erfrá 1. júlí-31. desember 1994. Um
er að ræða venjubundin störf aðstoðar-
lækna. Þátttaka í bundnum vöktum skv. fyrir-
fram gerðri áætlun.
Umsóknum skal skila á eyðublöðum lækna
og senda forstöðulækni, Víkingi H. Arnórs-
syni, prófessor, sem veitir nánari upplýsingar
í síma 601050. Ljósrit af prófskírteini og
upplýsingum um starfsferil ásamt vottorðum
frá yfirmönnum fylgi. Umsóknarfrestur er til
20. mars 1994.
RIKISSPÍT ALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
Skýrsla umhverfisráðuneytis um ástand fráveitumála sveitarfélaga
Ríkið styrki sveitarfélög
með fjórðungi kostnaðar
ÁSTAND fráveitumála hérlendis er á flestum stöðum ófullnægjandi
og eru framkvæmdir til úrbóta stærsta verkefnið í umhverfismálum
sem íslendingar þurfa að leysa. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
fráveitunefndar umhverfismálaráðuneytisins. í skýrslunni kemur fram
aðfetofnkostnaður fullnægjandi fráveitukerfis sé á bilinu 30-80 þúsund
á hvern Ibúa og telur nefndin að til sllkra framkvæmda þurfi sveitarfé-
lögin fjárstuðning frá ríkinu til stofnframkvæmda og nemi sá styrkur
um fjórðungi af kostnaði.
Framkvæmdir á höfuðborgar-
svæðinu bendir til að kostnaður þar
sé um 40-45 þúsund á hvern íbúa.
Við þetta bæstist svo rekstrarkostn-
aður. Segir nefndin það brýnt verk-
efijá að koma þessum málum í viðun-
andi horf og þannig uppfylla tilskip-
anir Evrópusambandsins um hreins-
un skoips ira pettoyn sem eru niuti
af EES-samningnum sem Island
hefur gerst aðili að.
Skólpi er víðast hvar veitt beint
í sjó eða ferskvatn hér á Iandi án
þess að það sé hreinsað. Einnig eru
skólprör yfirleitt lögð það skammt
út í sjó að þegar fjarar út fellur frá
útrásarrörunum. Nokkur sveitarfé-
lög eru með rotþrær og hjá sveitarfé-
lögum sem ekki eiga þess kost að
leiða skolp í sjó hefur verið krafist
tveggja þrepa hreinsunar skolps og
í samræmi við mengunarreglugerð.
Bent er á að slæmt ástand í frá-
veitumálum geti skaðað ímynd
landsins út á við og haft neikvæð
áhrif á markaðssetningu fram-
leiðsluvara og þjónustu, til dæmis
sé Evrópusambandið mikilvægur
markaður fyrir íslenskar vörur.
í tilskipun Evrópusambandsins er
gert ráð fyrir að stærri þéttbýlis-
kjarnar verði búnir að uppfylla skil-
yrði tilskipunarinnar fyrir árið 2000
en smærri staðir fyrir árið 2005.
Nokkur sveitarfélög
byrjuð á umbótum
Fæst sveitarfélög hér á landi upp-
fylla þá tilskipun en nokkur sveitar-
félög eru bytjuð að laga fráveitu-
kerfi sín að gildandi reglum. Þeirra
á meðal eru Reykjavík, Hafnarfjörð-
ur, Akureyri og Hella.
Markmið tillagna nefndarinnar
um endurbætur er að losun skolps
hafi ekki neikvæð áhrif á umhverfið.
ísland hefur nokkra sérstöðu, ekki
eru gerðar jafn mikllar kröfur um
hreinsun skolps og í Evrópusam-
bandslöndum þar sem oft eru gerðar
kröfur um tveggja þrepa hreinsun.
Skipulagning mikilvæg
Nefndin Ieggur áherslu á að sveit-
arfélög skipuleggi framkvæmdirnar
sem fyrst og hvernig fjármögnun
skuli háttað þannig að það nýttist
sem best. Einnig beri að skoða
hreinsun skolps og ástand sjávar,
ferskvatns eða jarðvegs í samhengi
og koma yrði í veg fyrir offjárfest-
ingu. Þessar framkvæmdir eru dýrar
og ólíklegt talið að sveitarfélög, sér-
staklega þau smærri, hafi bolmagn
til að standa að þeim sjálf. Því telur
nefndin að til þurfi að koma fjár-
stuðningur frá ríkinu til stofnfram-
kvæmda og nemi sá styrkur um
fjórðungi af kostnaði.
Núverandi verkaskipting
haldist
Nefndin vill að sveitarfélögin fylg-
ist sjálf með fráveitukerfi sínu og
ástandi lífríkisins þar sem skólpi er
veitt út í það. Hún telur að verka-
skipting ríkis og sveitarfélaga eigi
að haldast í því horfi sem hún er
nú og á Hollustuvernd ríkisins að
hafa yfirumsjón með því.
Nefndina skipuðu Sigurbjörg Sæ-
mundsdóttir, formaður, Björn Árna-
son, bæjarverkfræðingur, Davíð
Egilsson, deildarstjóri, Ólafur Pét-
ursson, fortöðumaður, Sigurður I.
Skarphéðinsson, gatnamálastjóri og
Helgi Jensson, deildarnáttúrufræð-
ingur.