Morgunblaðið - 20.02.1994, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 20.02.1994, Qupperneq 34
34 • MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1994 RADA UGL YSINGAR Matvörukaupmenn Óska eftir samstarfi við matvöruverslun eða birgðaverslun. Um er að ræða verslun á nýjum markaði þar sem hægt er að ná mik- illi veltu með mjög litlum tilkostnaði. Óskað er eftir aðila sem hefur lágt vöruverð og þokkalega rúmgott húsnæði. Áhugasamir sendi nafn og síma til augldeild- ar Mbl. fyrir 27. febrúar merkt: „S - 13091 Dægurlagakeppni Undirbúningsnefnd Sumarsæluviku Skag- firðinga gengst fyrir dægurlagakeppni í tengslum við fjölskylduhátíð sumarið 1994. Lögum skal skilað á nótum (hljómsettum með laglínu) og sungnum eða spiluðum inn á hljóðsnældu. Textinn skal fjalla um Skaga- fjörð. Skilið snældunum undir dulnefni, en látið fullt nafn og símanúmer fylgja með í merktu, lokuðu umslagi. Hilmar Sverrisson, tónlistarmaður á Sauðár- króki, mun veita aðstoð við útsetningar og upptökur til endanlegs flutnings, ef óskað er, en hann rekur hljóðver á Sauðárkróki. Upplýsingar í síma 95-35090. Dómnefnd mun velja 10 lög sem keppa síðan til verðlauna úrslitakvöldið 14. apríl. Lögin verða flutt af hljómsveit sem stofnsett verður sérstaklega af þessu tilefni. Lögunum skal skila eigi síðar en 20. mars til dómnefndar, Stjórnsýsluhúsinu, Skagfirð- ingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki. Vegleg verðlaun verða í boði, auk þess sem lagið verður notað sem kynningarlag fyrir hátíðina og gert við það myndband. Undirbúningsnefnd. Samkeppni um merki Félag tölvunarfræðinga efnir til samkeppni um hönnun merkis fyrir félagið. Merkið, sem umfram allt á að vera stílhreint og einfalt, á fyrst og fremst að nota á bréfs- efni og almennt sem tákn félagsins. Æskilegt er að nafn félagsins komi fram, annað hvort tengt merkinu eða sem hluti af því. Skila skal teikningu af merkinu ásamt útfærslu þess á bréfsefni, í umslagi merktu dulnefni en nafn höfundar fylgi með í lokuðu umslagi. Sé merkið í fleiri en einum lit skal einnig sýna útfærslu þess í mismunandi tónum eins lits. í aðalverðlaun er vönduð Macintosh far- tölva frá Apple-umboðinu en einnig verða veitt auka verðlaun frá Bóksölu stúdenta. Samkeppnin er öllum opin og er skilafrestur til 1. apríl 1994. Hugmyndum skal skila til Félags tölvunar- fræðinga, pósthólf 8573, 128 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Kjartan Guðmunds- son, formaður Félags tölvunarfræðinga, í síma 608000. Félagið áskilur sér rétt til að nýta, að höfðu samræðj við höfunda, hluta hugmyndar eða hafna þeim öllum. Apple A; VKS ÍSLANDSBANKI ORACLE' Töiuumiðslöðin hi bók/fclk/tader\tfc Veðskuldabréf Hef áhuga á að kaupa veðskuldabréf með allt að 5-15 ára lánstíma. Virkni hf., Lágmúla 7, sími 812800. Skákkeppni stofnana og fyrirtækja 1994 hefst í A-riðli mánudaginn 21. febrúar kl. 20.00 og í B-riðli miðvikudaginn 23. febrú- ar kl. 20.00. Skráning stendur yfir. Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12, símar 681690 og 813540. Frá menntamálaráðuneytinu Styrkir til námsefnisgerðar á framhaldsskólastigi Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir um- sóknum um styrki til námsefnisgerðar í bók- legum og verklegum greinum á framhalds- skólastigi. Umsóknir skulu berast menntamálaráðu- neytinu, námsefnisnefnd, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 11. mars nk. á þar til gerðum eyðublöðum, sem hægt er að fá í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 18. febrúar 1994. Frá menntamálaráðuneytinu 4x51 Styrkurtil háskólanáms íFinnlandi Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingum til háskólanáms og rannsókna- starfa í Finnlandi námsárið 1994-95. Styrkurinn er veittur til níu mánaða dvalar og styrkfjárhæðin er 3.000 finnsk mörk á mánuði. Umsóknir um styrkinn, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar til menntamálaráðuneytisins, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 25. mars nk. á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást Menntamálaráðuneytið, 18. febrúar 1994. The Scandinavia-iapan Sasakawa Foundation Auglýsing um styrki íslandsdeild Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation mun á árinu 1994 veita nokkra styrki til að styrkja tengsl íslands og Japans á sviði vísinda, viðskipta og menningar. Styrki þessa má bæði veita stofnunum og einstaklingum vegna verkefna í Japan eða samstarfs við japanska aðila. Ekki verða veittir venjulegir námsstyrkir, en bæði ferðastyrkir og styrkir vegna skamm- tímadvalar í Japan koma til greina, auk verk- efnastyrkja tengdum Japan. í umsókn, sem verður að vera á ensku, sænsku, norsku eða dönsku, skal gefa stutta en greinargóða lýsingu á fyrirhuguðu verk- efni ásamt fjárhagsáætlun og nöfnum um- sagnaraðila eða meðmælenda. Umsóknir skal senda fyrir 1. apríl nk. til Vísindaráðs, Bárugötu 3, 101 Reykjavík. KÓPAVOGSBÆR Tilkynning um forval Hamraborg - bílageymslur Kópavogskaupstaður býður hér með þeim fyrirtækjum sem áhuga hafa á, að taka þátt í forvali verktaka vegna viðgerða á bíla- geymslum í Hamraborg í Kópavogi. Um er að ræða steypuviðgerðir, ásteypu og járna- lögn í gólf ásamt lagningu regnvatnslagna. Áætluð verklok eru 15. júlí 1994. Forval nefnist: Hamraborg - viðgerð á bflageymslum. Forvalsgögn eru eftirfarandi: Tilkynning þessi um forval Forvalslýsing. Útfylltum forvalsgögnum vegna þessa for vals skal skila í lokuðu umslagi merktu nafni forvals til tæknideildar Kópavogskaupstaðar í síðasta lagi kl. 15.00 þriðjudaginn 1. mars 1994. Kópavogi, 18. febrúar 1994, tæknideild Kópavogskaupstaðar. Aðalfundur MND-félags íslands verður haldinn laugar- daginn 26. febrúar í safnaðarheimili Lang- holtskirkju og hefst kl. 14.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, stjórnar- kjör og önnur mál. Stjórnin. VBarnaheiIl Stofnfundur Reykjavíkur- deildar Barnaheilla Þriðjudaginn 22. febrúar kl. 20.30 verður haldinn stofnfundur Reykjavíkurdeildar Barnaheilla í samkomusal Réttarholtsskóla. Dagskrá: 1. Arthur Morthens formaður flytur erindi um starf samtakanna. 2. Lagt fram frumvarp að lögum. 3. Kosning stjórnar. 4. Val fulltrúa á landsþing Barnaheilia. Allir félagar Barnaheilla í Reykjavík hvattir til að mæta. Aðalfundur Gæðastjórnunarfélags íslands verður hald- inn fimmtudaginn 24. febrúar nk. í Ársal Hótel Sögu og hefst kl. 15.00. Dagskrá: Kl. 15.00 - 16.15: Erindi og umræður um gæðastjórnun á íslandi 1. Skýrsla stórnar og stefnumótun. Davíð Lúðvíksson formaður Gæðastjórnunarfé- lags íslands. 2. Skýrslur formanna faghópa. 3. Viðurkenning til félagsmanna. 4. Frá handafli til hugvits, Gæðastjórnun og framtíðarsýn. Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri Þróunarsviðs Eim- skips. 5. Fyrirspurnir og umræður. Kl. 16.15 -17.00: Venjuleg aðalfundarstörf. 0. Kjör fundarstjóra og ritara. 1. Lýst eftir málum. 2. Reikningar félagsins 1994. 3. Breytingar á lögum félagsins. 4. Ákvörðun félagsgjalda 1994. 5. Kjör stjórnar og endurskoðenda. 6. Önnur mál. TÆKIFÆRI 0KKAR TÍMA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.