Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994
7
Breytingar verða á DV og Tímanum
Fréttir ómerkt-
ar vegna dóms
„ÚTGEFENDUR gáfu okkur þau svör í gær að þeir bæru ekki fjár-
hagslega ábyrgð á skrifum okkar, ef fréttir væru merktar upphafs-
stöfum blaðamanna. Blaðamenn DV hafa því ákveðið að hætta að
merkja fréttirnar," sagði Ingibjörg Bára Sveinsdóttir, trúnaðarmaður
blaðamanna á DV, í samtali við Morgunblaðið.
Fyrir skömmu féll dómur í hér-
aðsdómi, þar sem fyrrum blaða-
manni DV var gert að greiða manni
bætur vegna ummæla í fyrirsögn
og frétt blaðsins, sem var merkt
upphafsstöfum hans. Ritstjórar og
útgefendur blaðsins voru hins vegar
sýknaðir. í framhaldi af þessu ósk-
uðu blaðamenn DV svara frá stjórn-
endum blaðsins, um hvort þeir litu
svo á að þeir bæru fjárhagslega
ábyrgð á skrifum blaðamanna.
Svörin voru á þá leið að svo væri
ekki. „Blaðamenn DV funduðu í
morgun [fímmtudag] og ákváðu að
taka undir þau tilmæli Blaðamanna-
félags íslands að merkja ekki frétt-
ir með upphafsstöfum. í slíkum til-
fellum leikur ekki vafi á hvar
ábyrgðin liggur,“ sagði Ingibjörg
Bára.
Merkingar hverfa á Tímanum
Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
trúnaðarmaður blaðamanna á Tím-
anum, sagði að hann ætti von á að
blaðamenn þar myndu hætta að
merkja fréttir sínar, enda sömu eig-
endur að blaðinu og DV, þó annað
félag væri um reksturinn. „Við höf-
um ekki rætt þetta við stjómendur
fyrirtækisins, en ég geri fastlega
ráð fyrir að upphafsstafir okkar sjá-
ist ekki undir fréttum," sagði hann.
Unnið að hreinsun um borð í Venusi
Skipverjar leita eftir
plássi á öðrum skipum
„ÞAÐ er enn verið að vinna að því að hreinsa til í Venusi eftir brun-
ann og því ekki hægt að segja til um hversu langan tíma tekur að
koma honum í samt lag. Það er þó ljóst að við getum ekki veitt áhöfn-
inni, 26 manns, atvinnu á meðan á viðgerð stendur. Skipverjar hafa
frá viku til þriggja vikna uppsagnarfrest og sumir þeirra eru þegar
búnir að fá pláss á öðrum skipum,“ sagði Krislján Loftsson, útgerðar-
maður, í samtali við Morgunblaðið.
Miklar skemmdir urðu á togaran-
um þegar eldur kom upp í honum í
Hafnarfjarðarhöfn aðfaranótt sunnu-
dags. „Við þurfum ekki eingöngu að
fást við skemmdir vegna branans
sjálfs, því reykskemmdir urðu einnig
miklar. Reykurinn af öllum þeim efn-
um, sem þama brannu, er ekki eins
auðveldur viðfangs og venjulegur við-
areldur og hann sest í einangmn og
í ryðvöm innan á skrokknum. Það
hefur þurft að sandblása skip sem
hafa lent í bruna, til að losna við
reykjarlyktina, svo lagfæring gæti
orðið umfangsmikil og tekið langan
tíma. Það er ekki hægt að bjóða
mönnum upp á að vera í skipinu eins
og reykjarlyktin er núna.“
Áhöfnin missir vinnuna
Kristján sagði að 26 manna áhöfn
hefði verið á Venusi og þyrftu skip-
veijar nú að leita annarra starfa.
„Hásetar hafa einnar viku uppsagn-
arfrest, en skipstjóri, stýrimaður og
vélstjóri þriggja vikna. Eg veit til
þess að einhvetjir skipvetja hafa
þegar fengið pláss á öðrum skipum."
Formannsskipti í dag
í Framsóknarflokki
FORMANNSSKIPTI verða í Framsóknarflokknum í dag á miðstjorn-
arfundi flokksins. Halldór Ásgrímsson alþingismaður tekur þá við
formennsku af Steingrími Hermannssyni sem hefur verið skipaður
seðlabankastjóri.
Árlegur miðstjórnarfundur Fram-
sóknarflokksins hefst í dag klukkan
17 í Borgartúni 6. Yfiriitsræða
Steingríms Hermannssonar hefst
klukkan 17.10 og í lok hennar mun
hann afsala sér formennsku í hend-
ur Halldóri. Sæti varaformanns
verður ekki fyllt að sinni þar sem
ekki er kosið til þess embættis nema
á flokksþingi, en næsta flokksþing
verður haldið í nóvember.
Fundut'inn stendur fram á sunnu-
dag en síðari daginn verða fundar-
störf í Sambandshúsinu á Kirkju-
sandi. 200 manns eiga að jafnaði
seturétt á miðstjórarfundi Fram-
sóknarflokksins en til þessa fundar
hefur að auki verið boðið efstu
mönnum á framboðslistum flokksins
til sveitarstjórnarkosnine:anna í vor.
Vilt þú fylgjast
með því nýjasta
sem er að gerast í
hestamennskunni?
Gerist
áskrifendur!
Sími 91-685316
SUMARHLBOÐ
í ÞORPINl
VÖGGÚR Krumpupils - tilboð kr. 1.500 Ódýrar leðurtöskur frákr. 900-2.000 Barnakjólar kr. 2.000 FELL Silkibindi og slæÖur á kr. 990 NÝHÖFN 5UAAARJAKKAR BARNAKR. 1.490 BOLIR KR.500 DÖMUSAMFELLUR FRÁKR. 13901.990
GEIRSBÍ9 Sportskór, 20 gerðir frá kr. 495 Barnasandalar, 10 gerðir frá kr. 850 Gúmmístígvél, stærð ir 22-46, kr. 995 Nælonsokkabuxur, 5 í pk., kr. 300 Kvenleðurskór kr. 990 BRYDEVERZLUN íþróttaskór, 3 gerðir kr. 2.990 Flís jakkapeysur, margir litir kr. 2.790 B O R G 32ja plastskúffu verkfærarekki Tilbob kr. 849
M Ö R K Full búð af ódýrum skóm NÓRAMAGAZIN Sumarbolir í úrvali 10% afsl. Sportvesti í jarðlitum 10% afsl. Leggings (þykkari gerðin) svart-, drapp- og kremlitir, Tilboð kr. 2.490 Flóra-Antik Full búð af innfluttum antik-húsgögnum á besta verðinu
EDINBORG Vandaðar herrabuxur, aðeins kr. 1.800 Ódýrustu teppamotturnar Barnaíþróttaskór, aðeins kr. 990 VÍSIR Vandaðar peysur frákr.1.990 Skartgripir í úrvali á frábæru verði BRISTOL Notaður innfluttur tískufatnaður á frábæru verði
THOMSENSMAGAZIW Full búð af nýjum sumarvörum Addidas leðurfótboltaskór, stærðir 30-36, kr. 890 Addidas leðurgolfskór, stærðir 31/2-81/2, kr. 1.990 Addidas gallar, stærðir 150-192, kr. 2.990 Nikeskór frá kr. 1.990 - 4.990 FJALAKÖTTURH Körtubolta-jogginggallar, tilboð kr. 1.880 Barnaregngallasett, tilboð kr. 2.490 Gallabuxur á fullorðna, góð snið kr. 1.990 Uppháir strigaskór á fullorðna, í litum kr. 990 Langermabolir m/rennilás, tilboð kr. 590
Opið mánudaga - föstudaga kl. nn 12-18.30, laugardaga kl. 10-16. An
ÞORPIi)
Borgarkringlunni
Komið tii að vera!