Morgunblaðið - 26.06.1994, Page 1
72S1ÐURB/C
142. TBL. 82.ÁRG.
SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Gamli bærinn í Þórshöfn í Færeyjum
Morgunblaðið/Amór Ragnarsson
GAMLI bærinn í Þórshöfn í Færeyjum
breytist lítið í áranna rás. Myndin var
tekin í vikunni skammt frá höfninni. Um
miðja öldina bjuggu hjón með 7 börn í
hvíta húsinu en síðan þá hefir verið byggt
við það. Nú gerist það æ algengara að
unga fólkið kaupi gömlu húsin og komi
þeim í sitt upprunalega horf og ef grannt
er skoðað má sjá að nú er kominn gervi-
hnattadiskur á umrætt hús. Milli húsa
má sjá mjallhvíta kisulóruna fylgjast
grannt með hinum ókunna gesti.
SAMTÖK breskra
dýralækna hafa
lagt til að kattar-
eigendur veiji
skjólstæðinga sína
fyrir þeim hættum
sem af sólarljósinu
stafa með því að
bera sólarolíu eða
krem á eyru
þeirra og snoppu.
Með þessu er talið
að koma megi í veg fyrir að kettirnir
fái húðkrabba. Mælt er með kremum
með öflugri sólskinsvörn. Dýralækn-
arnir segja að sólbrenni eyru katta með
hvít eyru geti þeir auðveldlega fengið
húðkrabba og sé þá eina ráðið að skera
eyrun af. Kettir með dökkan felld eru
sagðir þola betur útfjólubláa sólar-
geisla. Skaðlegir geislar sólarinnar
eiga mun greiðari aðgang að skinni
katta með ljósan felld.
Hvalveiðar
við Noreg
ganga illa
NORSKUM hvalveiðimönnum í Norður-
Noregi hefur gengið illa á hrefnuveið-
um. Eftir viku veiði hefur aðeins ein
hrefna náðst. Sjómenn kenna slæmu
veðri um dræma veiði. Norsku hval-
veiðimennirnir hafa einungis veitt 20
hrefnur það sem af er árinu, þar af
eru 19 hluti af vísindaveiðum Norð-
manna. Hrefnukvótinn er 189 dýr, þar
af 112 vegna vísindaveiðanna. Sjómenn
gera sér vonir um að með hagstæðari
vindátt lagist veiðin.
Lifði af fall en
kötturinn dó
TVEGGJA ára drengur slapp lítt
meiddur eftir að hafa fallið af svölum
á þriðju hæð heimUis síns í New York.
Drengurinn, Matthew Mikels, var að
teygja sig eftir kettinum sínum þegar
hann féll niður af svölunum. Kötturinn
lifði hins vegar fallið ekki af. „Það er
hreint ótrúlegt að hann skuli vera á
lífi,“ sagði talsmaður lögreglunnar. „Ef
ekki væri vegna kattarins hefði hann
hlotið alvarleg meiðsl, en kötturinn olli
hins vegar fallinu.“
Kettir þurfa
vörn við sól
STRIÐ
JÓHÖNNU
Korfu. Reuter.
ANDREAS Papandreou forsætisráðherra
Grikklands, sem stjómaði leiðtogafundi Evr-
ópusambandsins sem lauk á eynni Korfu í
gær, sagðist álíta að leiðtogar 11 ESB-ríkja
af 12 myndu áfram vinna að kjöri Jean-Lucs
Dehaene forsætisráðherra Belgíu í starf for-
seta framkvæmdastjórnar ESB. Bretar komu
í gær í veg fyrir kjör hans með því að beita
neitunarvaldi sínu.
Jacques Delors fráfarandi forseti fram-
kvæmdastjómar ESB tók undir með Pap-
andreou að deilan snerist um grundvallar
viðhorf um framtíð Evrópusamstarfsins.
Dehaene er lýst sem áköfum sambands-
sinna sem hlynntur er frekari samruna ESB-
ríkjanna og aukinni samþjöppun valds í höf-
uðstöðvum sambandsins í Brussel, en hvort
tveggja er eitur í beinum Breta. Frakkar og
Jean-Luc Dehaene, Silvio Berlusconi,
Jacques Delors og John Major við
myndatöku að loknum leiðtogafundi
ESB á Korfu í gær.
Þjóðveijar bundust í vor leynilegum samtök-
um um stuðning við hann og mæltist það
illa fyrir meðal ráðamanna annarra ríkja. Á
endanum féllust þeir þó á að styðja Dehaene
eftir að framboð Ruud Lubbers forsætisráð-
herra Hollands og Sir Leons Brittans höfðu
verið dregin til baka í gærmorgun. Major
neitaði áfram að styðja Dehaene og var
ákveðið að slíta fundi þegar ekki náðist full
samstaða. Verður reynt að leiða málið til
lykta á nýjum leiðtogafundi 15. júlí í Þýska-
landi, en Þjóðveijar taka við forystu í ESB
1. júlí næstkomandi.
I Bretlandi lofuðu efasemdarmenn Majors
í íhaldsflokknum framgöngu hans á Korfu.
Talið er að með staðfestu sinni gegn Deh-
aene geti hann knúið fram málamiðlun um
annan mann.
VIÐSKIWl/ArVINNUlJF
ÁSUNNUDEGI
Hariui
húsbtindi
18
ANDA
PABBI
Carl Barks í heim-
sókn á Islandi
Bretar koma í veg
fyrir kjör Dehaene