Morgunblaðið - 26.06.1994, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
p mimm mmm .......... HHP ‘111
Æ FASTEIGNAMIÐSTOÐINf Sa
SKIPHOLTI 50B • SÍMI 62 20 30 - FAX 62 22 90
Leifsgata 3 2556
Gullfalleg 3ja herb. um 100 fm íbúð á 3. hæð (efstu) í
þessu góða steinhúsi. Eignin er mikið endurnýjuð, m.a.
eldhús og gólfefni (marmari og parket). Nýlegt þak.
Svalir. Góð staðsetning. Áhv. veðdeild 3,6 millj. Mögu-
leg skipti á dýrari eign, ákv. sala. Opið hús hjá Helgu
og Kristni í dag frá kl. 14.00-17.00.
OPIÐ HÚS
Gjörið svo vel og lítið inn!
Björt og rúmgóð 117 fm íb. á miðhæð ásamt nýlegur
36 fm bílskúr. íbúðin er mikið endurnýjuð m.a. hvítar
steinflísar á holi, baðherb., allt rafm. o.fl. Verð 9,4 millj.
Eignin verður til sýnis milli kl. 14-17 í dag.
1 « 4 N < I I I < > 1 r j. i í »
Suðurlandsbraut 4a sími 680666
r
Kaplahraun 1, Hafnarfirði
Þetta vel hannaða og staðsetta iðnaðarhúsnæði/versl-
unarhúsnæði á besta stað við Kaplahraun í Hafnarfirði
er til sölu.
Eignin skiptist í 365 fm jarðhæð, sem á mjög einfaldan
hátt má skipta í þrjú rými eða nýtast í einu lagi sem
verslun og efri hæð sem er 131 fm. Efri hæðin er mjög
vel frágepgin með flísum á forstofu og stiga og parketi
á gólfi.
Eign þessi er öll í toppstandi. Bakatil eru stórar inn-
keyrsludyr. Hæðir þessar má samtengja t.d. þannig að
jarðhæð sé notuð fyrir iðnað/verslun og efri hæð fyrir
skrifstofu.
Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlegast hafi samband við
neðangreinda aðila.
Tilvalið fyrir heildsölu eða afsláttarverslun.
FASTEIGNA
f^JMARKAÐURINN
Óðinsgötu 4, simar 11540, 21700
&
BYGGÐAVERK HF.
Reykjavíkurvegi 60, 220 Hafnarfirði.
Sími 54644, fax 54959.
MINIVINGAR
EYJÓLFUR
MAGNÚSSON
+ Eyjólfur Magn-
ússon var
fæddur í Svefneyj-
um á Breiðafirði
16. febrúar 1896.
Hann lést í Landa-
kotsspítala 17. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Guðný Jóhanns-
dóttir og Magnús
Jóhannsson, ábú-
endur í Svefneyj-
um á Breiðafirði.
Systkini Eyjólfs
voru Jóhanna, hús-
freyja á Svarfhóli
í Borgarfirði, Bjarnveig, hús-
freyja á Akureyri, Anna, hús-
freyja í Svefneyjum, Þorbjörg,
dó í barnæsku, Þorvarður, tví-
burabróðir Eyjólfs, dó 17 ára.
Fóstursystir Eyjólfs var
Hjálmfríður Eyjólfsdóttir, hús-
freyja í Reykjavík. Eyjólfur
kvæntist 28. júní Ingibjörgu
Hákonardóttur frá Reykhól-
um, f. 1894, d. 1970. Börn
Eyjólfs og Ingibjargar: 1)
Brynhildur, f. 1920, maki Aðal-
steinn Davíðsson, d. 1991.
Börn: Davíð, Guðrún Erla,
Eyjólfur Magnús, Vilhjálmur
Arnar. 2) Þorvarður Trausti,
f. 1921, d. 1971, maki Steinunn
Bjarnadóttir, d. 1987. Börn:
Inger Oddfríður, Bjarni Há-
konar. 3) Arndís, f. 1924, maki
Ragnar Krisljánsson. Barn:
Kristín Margrét. 4) Guðrún
Ingibjörg, f. 1926, maki Gunn-
ar Karl Gunnarsson. Böm:
Ingólfur, Hulda. 5) Guðný Jó-
hanna, f. 1928, d. 1929. 6)
Guðný Anna, f. 1929, maki
Haukur Hannesson. Böm:
Rúnar Gils, Jón Hjálmar,
Hannes. Eyjólfur fór á Bænda-
skólann á Hvanneyri veturinn
1916-17, stundaði bústörf í
Svefneyjum, bóndi í Múla í
Gufudalssveit til margra ára.
Hann starfaði síðan nokkur ár
við Kaupfélagið í Flatey á
Breiðafirði og loks var hann
lyftuvörður í Landsímahúsinu.
Hann bjó hjá Arndísi dóttur
sinni og tengdasyni síðastliðin
tuttugu ár. Útför Eyjólfs fer
fram frá Fossvogskirkju á
morgun.
Tíminn vinnur aldrei á
okkar bestu stundum,
ævilangt þær anga frá
urðar helgilundum.
(Hulda)
ÞESSI orð komu upp
í huga mér er elsku-
legur afi minn hvarf
af lífsins brautu þessa
jarðneska lífs, vel níu-
tíu og átta ára að
aldri. Ég, sem eitt
hans tólf bamabarna,
sit hér umvafin stór-
brotnu vestfirsku
landslagi. Hér eru
hrikaleg fjöll á alla
vegu nema þar sem
sér út á hafið. Þetta
er þessi náttúra sem
afi minn og amma
kenndu mér strax í
æsku að bera virðingu fyrir, ekki
bara landslaginu, heldur öllu því
sem vestfirskt var. Þar sem ég bý
nú í þeim landshluta, sem var þeim
svo dýrmætur, skynja ég að það
er einmitt fyrir þeirra orð að mér
finnst ég tilheyra þessum stað,
Vestfjörðum.
Ég hef ekki ætlað mér með þess-
um fátæklegu orðum að rekja ætt-
ir og lífshlaup afa míns, Eyjólfs
Magnússonar, heldur að þakka
fyrir það hvað ég hef verið lánsöm
að njóta samveru hans og ömmu,
sem lést fyrir 23 árum. Afi hafði
alltaf tíma til að spjalla, spila eða
kenna okkur vísur. Ekki má
gleyma öllum sögunum sem hann
sagði mér úr Eyjunum og annars
staðar frá. Eftir að ég fullorðnað-
ist átti ég mér þann draum að
fara með afa út í Svefneyjar á
bemskuslóðir hans. Það varð þó
aldrei úr, þar sem hann sagðist
vera orðinn of fótafúinn til slíkra
ferðalaga. Aðdáunarvert var
hversu vel afi fylgdist með fólkinu
sínu og afkomendum. Hann naut
þess að sjá afkomendur sína vaxa
úr grasi og eignaðist jafnvel langa-
langaafabarn áður en yfir lauk.
Börn voru hans yndi og hann
kvartaði sáran yfir því að nú til
dags mætti enginn vera að því að
eignast börn. I hvert skipti sem
ég hitti afa hafði hann það fyrir
vana að pota í magann á mér og
spyija: „Ér nokkuð þarna?“ og svo
var hlegið dátt. Allt fram á síðasta
ár skrifaði hann svo hveiju og einu
niðja sinna hlýlegar kveðjur á jól-
um og eru þessi jólakort geymd
vel á mínu heimili.
Það var mér mikils vert að hafa
fengið tækifæri til að hitta afa í
byijun júní, er ég átti leið suður.
Við áttum góða stund saman og
ræddum um lífíð, dauðann og til-
vemna í einlægni. Ég gat því ekki
Fullbúnar íbúðir á frábæru verði
Erum að selja síðustu íbúðirnar í Flétturima 31-33.
Um er að ræða 2ja og 4ra herb. íb. sem afh. eftir örfáa
daga fullb. með öllum gólfefnum, innr. og tækjum.
Sameign er fullfrág. og lóð þökulögð. Sérstök greiðslu-
kjör. Eignaskipti mögul. Hringið og fáið sendan lit-
prentaðan bækling með frekari upplýsingum.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
Oðinsgotu 4. simar 11540. 21700
&
BYGGÐAVERK HF.
Reykjavíkurvegi 60, 220 Hafnaríirði.
Simi 54644. fax 54959.
Opið hús kl. 1 -3 í dag
Hrísmóar 13, Gbæ
Glæsil. 180 fm hæð og ris í litlu nýl. vinsælu fjölb. Innb.
bílsk. Vandaðar innr. Fráb. útsýni. Sólskáli. Parket.
Sérþvherb. Svalir. Hagst. lán. Verð 12,5 millj. Ath.
bjalla merkt Ágústa og Grétar.
Nánari upplýsingar gefur:
Hraunhamar, fasteignasala,
Bæjarhrauni 22, Hafnarfirði, sími 654511.
verið annað en ánægð fyrir afa
hönd, sem svo lengi hafði þráð
hvíldina, er ég frétti að hann hefði
kvatt þennan heim á 50 ára af-
mælisdegi lýðveldisins. Hann hélt
reisn sinni fram til hinsta dags og
hlaut hægt andlát. Reisn hans var
mikil og alls staðar þar sem hann
fór um var tekið eftir honum.
Hann var beinn í baki, hávaxinn
myndarlegur maður, hárið silfur-
grátt og mikið, ávallt brúnn og
útitekinn, sléttur á hörund með
glettnisbros á vör. Hann fór helst
aldrei út nema í jakkafötum og
með bindi, skórnir ávallt gljáburst-
aðir. Engum sem sá afa hug-
kvæmdist að þar færi svo aldraður
maður. Þegar haldið var upp á
níræðisafmæli afa biðu þjónarnir
góða stund eftir að komið væri
með afmælisbarnið, kannski í
hjólastól? Hann var þá löngu kom-
inn og stóð við hlið þeirra. Þeir
trúðu vart því að þetta væri öld-
ungurinn.
Nú er elsku afi horfinn frá okk-
ur og ég vil að lokum segja það
eitt að hafi hann þökk fyrir allt
og allt frá mér og fjölskyldu minni.
Elsku Adda frænka og Ragnar,
ykkar hlut í að gera ævikvöld afa
sem ánægjulegast, verður seint
gleymt. Hann fékk að búa hjá
ykkur öll sín síðustu ár og hlaut
umönnun og umhyggju ómælda.
Hafið einlæga þökk fyrir allt.
Hulda Karlsdóttir.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem)
Á morgun verður borinn til graf-
ar elskulegur langafi minn, Eyjólf-
ur Magnússon, sem lést 17. júní
síðastliðinn.
Mér finnst ég hafa misst svo
mikið og söknuðurinn sem ég ber
í bijósti er sár. Þó að langafi væri
98 ára gamall og andlát hans hafi
ekki komið á óvart, þá finnst mér
samt erfitt að sætta mig við að
hann sé farinn.
Þegar ég hugsa til 15. júní sl.
er ég gekk út af stofunni frá lang-
afa þar sem hann lá, þá held ég
að hann hafi vitað að við myndum
ekki sjást aftur. Hann svaraði mér
nefnilega á annan hátt en vana-
lega, er ég sagði honum að ég
gæti ekki komið á morgun en ég
myndi koma þar næsta dag og
knúsa hann. I þetta sinn sagði
langafi Eyjólfur: „Elsku Ingibjörg
mín, Guð blessi þig,“ en hann var
vanur að segja: „Komdu til mín
sem oftast.“
Birting afmælis-
og minningar-
greina
MORGUNBLAÐIÐ tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins Kringlunni 1,
Reykjavík, og á skrifstofu
blaðsins í Hafnarstræti 85,
Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Ákjósanlegast er að fá grein-
arnar sendar á disklingi.