Morgunblaðið - 26.06.1994, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
Á þessari stundu koma ýmsar
minningar upp í hugann og allar
eru þær góðar. Langafi Eyjólfur
var einstakur maður. Kærleikur
hans, hlýja og hógværð eni mér
efst í huga þegar ég hugsa til
hans. Hann hafði mikið að gefa
og margir fengu að njóta. Þegar
langafi hafði heilsu til þá dvaldi
hann oft heima á Arnbjargarlæk
á sumrin. Það var dýrmætur og
skemmtilegur tími fyrir mig og
systkini mín á Arnbjargarlæk að
fá að njóta samverustunda með
honum. Langafi Eyjólfur hafði frá
svo mörgu að segja og hafði mikla
frásagnarhæfileika. Hann var
glettinn og hafði mjög gaman af
því að segja vel kryddaðar sögur
eins og honum var einum lagið,
og við höfðum gaman af að hlusta
á þær. Skemmtilegast fannst mér
að hlusta á sögumar hans frá líf-
inu í Breiðaijarðareyjum, þar sem
hann ólst upp. Langafi hafði gam-
an af því að spila, og spilaði oft
rússa við góðan vin sinn Eggert
sem nú er látinn. Þeir voru oft
orðnir svo æstir í spilamennskunni
að þeir stöppuðu fótunum í gólfið
hver í kapp við annan. Hvert spil
var síðan vandlega rætt. Þessu var
gaman að fylgjast með, því báðir
MINNINGAR
voru tapsárir. Einnig var ánægju-
legt fyrir mig og systkini mín að
taka í spil við langafa. Eyjólfur
langafi minn var sóldýrkandi og
var ávallt vitað hvar hann var nið-
urkominn þegar sólin skein; hann
sat úti og lét sólina skína á fallega
andlitið sitt.
Mér er það mjög minnisstætt
hvað langafi hjálpaði mér mikið
þegar föðurafi minn Aðalsteinn dó.
Ég var uppi í herbergi ömmu og
afa, sat með mynd af afa Aðal-
steini í fanginu og grét. Þá kom
langafi Eyjólfur til mín, tók utan
um mig og sagði mér frá veikind-
um og langri baráttu konu sinnar
sálugu, Ingibjargar langömmu
minnar, og gerði mér ljóst að það
var betra að afi Aðalsteinn fékk
að fara strax. Ég gleymi þessu
samtali aldrei.
Ein dýrmætasta gjöf sem mér
hefur verið gefin er giftingarhring-
ur langömmu Ingibjargar sem
langafí Eyjólfur gaf mér. Hann
sagði að hringurinn myndi vernda
mig. Því trúi ég og geng alltaf
með hann þegar ég tel mig þurfa
á því að halda. Þessa gjöf fæ ég
aldrei fullþakkað.
Fátækleg orð og örfá minning-
arbrot megna ekki að lýsa kynnum
mínum af langafa Eyjólfi sem
reyndist mér alltaf vel. Undir það
síðasta var hann orðinn saddur líf-
daga, sáttur við Guð og menn og
vildi fara að komast yfír móðuna
miklu til langömmu Ingibjargar,
sem dó fyrir rúmum 23 árum.
Forsjónin tók í taumana og færði
langafa hvíldina þegar hann þráði
það heitast.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama,
en orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Fyrir hönd fjölskyldu minnar og
alls heimilisfólks á Arnbjargarlæk
flyt ég alúðarþakkir fyrir öll árin
sem skilja eftir svo dýrmætar
minningar.
Elsku langafi Eyjólfur. Ég kveð
þig með virðingu, ást, þakklæti og
söknuði. Ég þakka þér fyrir allt
sem þú kenndir, sýndir og sagðir
mér. Þó að þú sért horfinn sjónum
mínum lifa minningamar svo lengi
sem ég lifi.
Hvíl í friði.
Þín Ingibjörg Davíðsdóttir.
hÓLl
FASTEIGNASALA
® 10090
SKIPHOLTI 50B, 2. hæðt.v.
Franz Jezorski, lögg. fast.sali.
Opið hús í dag kl. 14-17
Fornaströnd -
Sérlega fallegt og skemmtil. 140
fm einb. á einni hæð ásamt bílsk.
Skiptist m.a. í 4 herb. og góðar
stofur. Stór eignarlóð með mat-
jurtagarði fyrir garðyrkjumann-
inn. Verð 14.950 þús. Þið eruð
boðin sérstaklega velkomin að
skoða í dag milli ki. 14 og 17.
Þetta er góð eign á sanngjörnu
verðl.
Gullengi 11
Verð á fullbúnum íbúðum
2ja herb. 70 fm - kr. 6.970,000,-
3ja herb. 82 fm - kr. 7.850,000,-
4ra herb. 94 fm - kr. 8.200,000,-
Þú kaupir 4ra herb. íb. og borgar svona:
Verðdæmi:
Húsbréf með5%vöxtum kr. 5.33ÖT000,-
Við undirritun kr. 600.000,-
Byggingaraðili lánartil 4ra ára kr. 1.000,000,-
Eftirstöðvar samkv. samkomul. kr. 1.270,000,-
kr. 8.200,000,-
Ath.: Möguleiki er að fá íbúðirnar afhentar tilbúnar undir tréverk.
Þetta fullbúna og tburðarmikla 6-íbúða hús hefur að geyma vel skipulagðar og afar
skemmtilegar 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir, sem verða afh. fljótl. fullb. með öllum innr.
en án gólfefna. Nú er bara að vera fljót að velja sér íbúð áður en það verður of seint.
Taktu fjölskylduna með í sunnudagsbfltúr og skoðaðu glæsil. fullb. sýningaríbúð í
dag milli kl. 14 og 17. Sölumenn frá Hóli verða á staðnum með allar upplýsingar á
reiðum höndum.
Opið í dag kl. 14-17
Hlíðarhjalli - Kóp.
Vorum að fá í sölu sérl. glæsil. 160 fm
sérb. á tveimur hæðum. Vandaöar innr.
Tvennar suðursv. Ótakmarkað útsýni.
Góður bílskúr. Verð aðeins 13,9 millj.
Þetta er eign sem þú bókstaflega
verður að skoða.
Hverfisgata 73 - ódýr.
Lítil og snyrtil. 50 fm íb. á 1. hæð. Park-
et. Hús talsv. endurn. Ahv. 1,0 milli.
Verð 3,9 millj. Mögul. á góðum kjörum.
Þessi er tilvalin fyrir miðbæjarfólkið
og þá, sem vilja nota þjónustu fyrir
aldraða við Skúlagötu.
Jöklafold. Glæsil. 2ja herb. 60 fm
íb. á 2. hæö í notal. fjölb. Góðar svalir
m. útsýni. Vistvænt umhverfi. Áhv.
byggsj. 4,2 millj. Verð 6,3 millj. Laus
strax. Spáðu Pða.
SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1994 27
(íb. merkt 4-E). Ljós teppi á gólfum. Suðursvalir. Stæði í bílskýli.
* Laus strax. íb. er til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 16 -18.
Fasteignamarkaðurinn hf.,
Oðinsgötu 4, símar 11540 og 21700.
Sundaborg - Heild I 1594
Höfum til söiu eða leigu 300 fm nýstandsett skrifstofu-
og lagerhúsn. á tveimur hæðum. Stórar innkdyr. Góð
aðkoma. Laust strax. Allar upplýsingar veitir:
Skeifan - fasteignamiðlun,
Suðurlandsbraut 46, sími 685556.
♦
EIGNAMIÐLUNIN %
Sími 88 • 90 • 90 - Fax 88 • 90 • 95 - Síðumúla 21
Hlíðartún 10 - opið
hús sunnud. kl. 13-17
Einl. vandað um 170 fm einb. ásamt 39 fm bílskúr og
gróðurhúsi. Lóðin er um 2.400 fm og með miklum trjá-
gróðri, grasflöt, matjurtagarði og mögul. á ræktun.
5 svefnherbergi og stórar stofur. Fallegt útsýni.
Einstök eign sem gefur mikla möguleika. 3669.
SÍMI 88-90-90 SÍÐUMÚLA 21
Starf'inenn: Sierrir Kri'tin—<»n. •úln-tjóri. lúpg. fa'teigna>ali. I»ór«lfiir llalli|nr>«nn. Inll.. li'gp.
fa-teigna'ali. I»nrleifnr St. túiðniiiiul—mi. B.Sr.. •iilnin.. (>110111111111111- >ignrjón-*nn liipfr.. -kjalaperð.
(•iiiSmiiiiilnr Skúli llartiijr—nn. liigfr.. -iiliiin.. Strfán llrafn Sti*fán»«nn. Ingfr.. -nlnin.. Kjartan I»nrnlf-«nn.
Ijn-iiiyinltiii. Jnliannn \ aliliinar-ilnttir. angh -ingar. gjalilkrri. Ingn llanne-ilnttir. -nnaxar-la np ritari.
ÁRMÚLA 21
Sími 685009
Suðurhlíðar - glæsihús
Eitt glæsilegasta og vandaðasta einbhúsið á Rvíkursvæðinu.
Frábær staðsetning. Tvöf. bílskúr. Sólskáli. Eignaskipti
mögul. Nánari uppl. hjá sölumönnum. 4915.
Hveragerði - raðhús
110 fm endaraðh. á einni hæð ásamt innb. bílskúr. 3 svefnh.
Parket á stofu, holi og eldhúsi. Suðurlóð. Verðhugmynd 7,5
millj. 4752.
Barrholt - Mosfellsbæ
Vandað steinhús á einni hæð um 144 fm. Bílskúr 33 fm. Vand-
aðar innréttingar. Fallegur garður. Æskileg skipti á minni eign
1 Mosfellsbæ. Verð 12,9 millj. 4582.
Laufbrekka - Kópavogi
Gott 175 fm einbhús. Óskað er eftir skiptum á 3ja-4ra herb. íb.
í Austurbæ, Kóp., eða bein sala. Verð 12,3 millj. 4534.
Garðaflöt - Garðabæ
Einbýlishús á einni hæð ásamt rúmg. bílskúr, stærð húss 168
fm og bílskúr 33 fm. Eign í mjög góðu ástandi. Verðhugmynd
15,5 millj. 4604.
Traðarland - Fossvogi
151 fm einbhús á einni hæð ásamt innb. bílskúr. Frábær
staðs. neðst í Fossvogsdalnum rétt við Víkingsheimilið. Garð-
skáli og fallegur suðurgarður. Laust strax. 4875.
Akurgerði - parhús
216 fm parh., tvær hæðir og séríb. í kj. Stór bílskúr. Arinn í
stofu. Stórar suðursv. Skjólgóð lóð. Ath. skipti möguleg á íb.
á 1. hæð sem gæti hentað fötluðum. Verð 15,7 millj. 3740.
Fjöldi annarra eigna á söluskrá.
Margar þeirra fást í skiptum.
Sýningargluggi í Ármúla 21.
Nánari uppl. hjá sölumönnum.