Morgunblaðið - 26.06.1994, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1994 31
BRÉF TIL BLAÐSINS
Barn verður óöruggt ef það fær ekki hæfilegan aga, segir í
greininni.
Agi - þjálfun sem
leiðir af sér skipulag
„Hænsna-
fóður
ogljóða-
gerð“
Frá Árna Helgasyni:
MIG LANGAR með nokkrum orð-
um að þakka Guðmundi Guðmunds-
syni fyrir grein hans um hænsnafóð-
ur og ljóðagerð í Mbl. fyrir nokkru
og væru betur fleiri sem vektu at-
hygli á slíku og það er virkiiega
umhugsunarefni ef reisn okkar ætti
að miða við slík dæmi sem hann
nefnir og má þá segja eins og forðum
að öllu megi nafn gefa.
Ef bara er hægt að raða saman
einhveijum orðum og alls ekki í sam-
hengi, hafa þetta nógu vitlaust svo
enginn geti skiiið og kalla þetta síð-
an ljóð, þá finnst mér mannlegri
dómgreind nóg boðið. Þetta vekur
upp annað álíka ljóð sem ég sá í
fyrra einhvers staðar, vonandi ekki
í Lesbók Mbl., þótt þar kenni ýmissa
grasa, en hvað um það, þá var þetta
einhvern veginn si svona.
Þegar ég vakna og fer á fætur
fer ég í nærbuxumar
því ég get ekki verið
nærbuxnalaus
Hugsa sér hvað þetta er há-
fleygt. Og svona rekst maður á
ótal dæmi. Guðmundur hefir verið
einna duglegastur við að elta þenn-
an þvætting og vekja athygii á
honum, en það er eins og þjóðin sé
að verða sér þess meðvitandi að
vita ekki hvað skáldskapur er. Og
þegar ég vakti athygli á einu svona
ljóði við félaga minn svaraði hann
bara: Þetta er svo sem ekkert verra
en annað ... og sletti í góm ... og
kannski smita þessi viðbrögð út frá
ÁRNIHELGASON,
Stykkishólmi.
Gagnasafn
Morgunblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
Frá Tatiönu K. Dimitrovu:
AGI ER orð sem hefur margar
merkingar. Orðið agi samkvæmt
orðabók þýðir: þjálfun sem leiðir
af sér skipulag, hlýðni og sjálfs-
stjórn. Héðan í frá mun ég notast
við þessa skilgreiningu orðsins. En
mjög oft er þessi skilgreining mis-
skilin og mistúlkuð.
Þegar minnst er á aga dettur
fólki oftast í hug eitthvað nei-
kvætt, eitthvað sem fólk myndi
nota eingöngu í undantekningartil-
vikum. Þetta er ekki rétti skilning-
urinn að minu áliti.
Aga ætti ekki að rugla saman
við boð og bönn. Að brýna raustina
við barnið eða þjarma að því með
ofbeldi til þess að kenna því hlýðni
er rangt. Að þvinga barnið til hlýðni
með líkamlegri refsingu er ekki agi
heldur misbeiting valds.
Einfaldasta leiðin til að útskýra
aga er að skýra einfaldar reglur.
Að sýna barninu einfaldar reglur
sem tengjast daglegu lífi þess er
mjög mikilvægt. Til dæmis ætti að
segja barninu að það eigi að fara
í rúmið klukkan 8, vegna þess að
ung börn þarfnast nægrar hvíldar
til að vera vel undir næsta dag
búin. Þetta þurfa foreldra að út-
skýra fyrir bömunum sínum.
Best er að hafa reglurnar sem
fæstar og einfaldastar, svo börnin
geti farið eftir þeim. Það er einnig
nauðsynlegt að reglunum sé fylgt
eftir bæði af börnum og foreldrum.
Agi er upp að vissu marki gagn-
kvæmur skilningur og gagnkvæmt
samkomulag. Barnið verður að vera
sannfært um vald foreldrisins, sem
vill því allt það besta. Hins vegar
ættu foreldrarnir ekki að láta
stjórnast af duttlungum barnanna.
Foreldrarnir eru vitrari en börnin
og þess vegna ættu þeir að stjórna
og ráðleggja börnunum en ekki
öfugt. Það er misskilningur að
halda að með því að setja barninu
engar reglur og kröfur sé barnið
fijálsara. Þvert á móti verður barn-
ið óöruggt. Öryggi er nauðsynlegt
hveiju barni. Barnið mun sennilega
mótmæla settum reglum, en sam-
tímis mun barnið finna sig verndað
og elskað. Agi er ekki eitthvað sem
setur barninu skorður (ekki frekar
en við, fullorðna fólkið, þurfum að
framfylgja reglum samfélagsins).
Foreldrar sem framfylgja ekki aga
eru ekki nútímalegir og fijálsir í
hugsun, en frekar kærulausir ef
eitthvað er. Börn sem hafa lært aga
á uppvaxtarárum sínum eru miklu
sjálfsöruggari þegar þau fullorðn-
ast. Þau kunna að setja sér mark-
mið og vita hvers þau mega krefj-
ast af öðrum.
TATIANA K. DIMITROVA,
leikskólakennari
og bókmenntafræðingur.
AUSTURSTRÆTI
Til sölu skemmtileg verslun
með gamla muni, antik og minjagripi.
Upplýsingar í síma 28222 og 17296
Bestu þakkir til barna, tengdabarna og barna-
barna, kunningja og vina fyrir ógleymanlegan
dag og sýndan vinarhug meÖ gjöfum, blómum,
skeytum og heimsóknum á 70 ára afmœli
mínu, 21. júní sl., og fyrir eldri muni á Sjó-
minja- og smiðjumunasafn mitt.
GuÖ og gœfan fylgi ykkur öllum.
Jósafat Hinrikson,
Fornastekk 10, Reykjavík.
RONNING
fitrjgmMíjMli
- kjarni málsins!
TEOVNB
FRYSTIR
innbyggður
að ofan
að ofan
að neðan
STÆRB (I)
265
212
285
290
HÆÐ(cm)
BREIDD (cm)
60
60
60
60
DYPT(cm)
VERD (stgr.)
39.900
46.900
49.900
72.900
US-1300
US -2290
US-2360
UC-2430
Fjöldi ánœgðra viðskiptavina er okkar besta viðurkenning
' nn.ttll.-XK
UI.JÓMI'l.UTNlNGSTÆKl ÞVOTTAVtLAR UPPÞVÖTrÁVÉLÁR
BORGARTUNI 24
SÍMI 68 58 68
mmmmmmmmmmmmmmimmmmmmmmi^mmammmmm^m
Innifaliö í veröl: flug, gisting, akstur til og frá flugvelli eriendis, sýnlkennsla í matargerö
ásamt 2 hádegisveröum, flugvallaskattar og íslensk fararstjórn.
22 dagar í Thailandi!
Sól, sjór og sæla á frábæru sumartilboði!
Lúxuslandiö er Thailand og draumaferðin er frá 9. - 30. ágúst.
Flogið til Bangkok og gist í 3 nætur á fyrsta flokks hóteli.
Ævintýralegar skoðunarferðir eru í boði, m.a. á fljótandi markað og í konungshöllina.
Á fimmta degi er ekið niður á Pattaya ströndina og dvaliö í 16 nætur á hótelinu
Royal Cliff Bay Resort, sem er margverðlaunað glæsihótel.
Fararstjóri er matargerðarmaðurinn og lífskúnstnerinn Rúnar Marvinsson og mun hann '
m.a. stjórna tveggja daga sýnikennslu í thailenskri matargerðarlist.
í boði eru margs konar námskeið s.s. í blómaskreytingum, útskurði á ávöxtum og
grænmeti og golfi. Á hótelsvæöinu eru úrvals strendur, sundlaugar, dýrindis veitingastaðir
og góðar verslanir.
Alls staðar eruð þið umkringd gestrisnu fólki sem nýtur þess aö þjóna ykkur.
Verð á mann í tvíbýli er kr. 114.540.
Thailand er landid og tækifæriö er núna!
£í/£ IfÆG Samviiuiuleráir-Laiidsýii
Mm/m mAusturstræti 12, sími 691010