Morgunblaðið - 07.07.1994, Page 13

Morgunblaðið - 07.07.1994, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1994 13 LANDIÐ Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson AUSTRI varð sigursæll í Hólmaborgarmótinu og fyrirliði 7. flokks A hampaði stoltur bikarnum. ®Xpelair Viftur! Bjóðum úrvals- loftræstiviftur frá breska fyrirtækinu Xpelair sem er í fararbroddi á sínu sviði. Komið og kynnið ykkur úrvalið. SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SI'MI 628300 Gluggaviftur Baðviftur Loftviftur Borðviftur Fótbolta- köppum boðið í siglingu Eskifirði - Áhöfn eins fengsælasta loðnuskips landsins, Hólmaborgar SU frá Eskifirði, gekkst nýlega ásamt útgerð sinni og Lands- banka Islands fyrir knattspyrnu- móti fyrir börn í 7. flokki. Þátt- takendur komu víða að af Austur- landi og léku knattspyrnu á glænýjum grasvelli Eskfirðinga í góðu veðri. Að lokinni keppni buðu styrktaraðilarnir til pylsu- og kó- kveislu en síðan fóru allir þáttak- endur um borð í Hólmaborgina og sigldu út á miðjan Eskifjörð. Var það eitt af síðustu verkefnum Þorsteins Kristjánssonar og hans manna á Hólmaborginni áður en haldið var til loðnuveiða. Þar voru verðlaun afhent sigurvegurum í mótinu. Nýi grasvöllurinn reyndist heimamönnum vel því að lið þeirra, Austri, bar sigur úr být- um, bæði í keppni A- og B-liða. í keppni A-liða varð Þróttur Nes- kaupstað í öðru sæti en Höttur frá Egilsstöðum í þriðja. I flokki B-liða varð Höttur í öðru sæti en Þróttur í þriðja. Heimamenn áttu bestu leik- mennina, Grétar Orn Omars- son og Gísla Má Magnússon. Hér eru þeir ásamt Þorsteini Kristjánsson, skipstjóra. Sljórnherbergi gjöreyðilagð- ist í eldsvoða TÖLUVERT tjón varð í bruna í loðnubræðslunni Vestdalsmjöli á Seyðisfirði þegar allt brann sem brunnið gat í stjómherbergi fyrir lýsisskilvindur og dælur. Bruninn uppgötvaðist ekki fyrr en á þriðju- dagsmorgun þegar starfsmenn mættu til vinnu sinnar. Að sögn Helga Valgeirssonar hjá Vestdalsmjöli eru upptök eldsins ókunn en líklegast er að kviknað hafi í út frá rafmagni. Um nóttina var þokuslæðingur yfir firðinum að sögn Helga og því hafi enginn tekið eftir neinu. Eldurinn náði ekki út fyrir stjórnherbergið. Bjóðum allt ab 20% afslótt af notuóum bílum í eigu Globus fram áb verslunarmannahelgi. Veðrið þessa dagana er betra en elstu menn muna og þjóðarskútan er að rétta úr kútnum. Auk þess býður Bílahöllin allt að 20% afslátt af notuóum Globusbílum fram aó verslunarmannahelgi. Er lífiÖ ekki yndislegt? Tryggðu þér notaóan bíl í eigu Globus meÖ 20% afslætti fyrir verslunarmannahelgi. Veöriö er gott - veróió er enn betra. SÍMI: 674949 ÞAÐ ER OPIÐ HJÁ OKKUR: Mánudaga til föstudaga kl. 9.00 - 18.30 laugardaga kl. 10.30 - 17.00

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.