Morgunblaðið - 07.07.1994, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Gallerí
Blátt áfram
HRAFNHILDUR Gunnlaugsdóttir
myndlistarkennari, Katrín Didriks-
en gullsmiður og Margrét Árna-
dóttir leirmunahönnuður hafa opn-
að gallerí og verkstæði á Skóla-
vörðustíg 17b, sem kallast Blátt
áfram. Leggja þær stöllur áherslu
á sérhannaða íslenska gjafavöru
eins og handmálað silki, ofna
skartgripi og leirmuni. Á boðstól-
um í galleríi Blátt áfram eru t.d.
slæður, myndir, bindi, púðar, vesti,
töskur, armbönd, hrosshársnælur,
oxaðir eyrnalokkar, skálar, kerta-
stjakar og vasar. Auk þess verður
Kristín Þóra Guðbjartsdóttir hönn-
uður með pappírsverk í galleríinu
í sumar, en þar er opið alla virka
daga frá kl. 12-18 og á laugardög-
um kl. 11-14.
Mercedes Benz 209-D árg. ’87, turbo,
sjálfsk., ek. aðeins 62 þ. km. Sjúkrabíll.
Getur selst með búnaði eða sem hús-
Chrysler Voyager árg. ’89,8 sæta,
ek. 56 þ. km. Verð kr. 1.450 þús.
BMW 3201 árg. '89, hvítur, sjálfsk.,
4ra dyra, ek. 259 þ. km., vél uppt.
Mjög gott verð kr. 620 þús.
VW Polo árg. ’90, ek. 55 þ. km.
Verð kr. 380 þús m/vsk.
Skoda 120-L árg. '88, ek. 30 þ. km.
Range Rover árg. ’85, ek. 53 þ. km.
/erð kr. 800 þús. Einkabíll - sem
Subaru Legacy 1800 ST 4 x 4 blár,
ek. 70 þ. km. Verö kr. 1.250 þús.
Subaru, árg. ’88, '87 og ’86.
Verð kr. 700 þús., 500 þús. og 450 þús.
Feroza EI-2 árg. '91,4x4, ek. 50 þ. km.
Verö kr. 1.150þús.
Sk. óskast á bfl til leiguaksturs.
Honda Prelude EX árg. ’87, rauður,
ek. 116 þ. km. Verð kr. 750 þús.
Feroza árg. '89, blár+grár, ek. 80 þ.
km. Verð kr. 890 þús.
Nissan Sunny SR1.6 árg. '93, hvítur,
ek. 30 þ. km. Verð 1,1 millj.
Húsbflar stórir og smáir, dýrir og ódýrir.
Vantar sölubfla á stærsta bflasölu-
svæði borgarinnar. Notið sumarið til
bflaskipta við Miklatorg fyrir neðan
Perluna, símar 17171 og 15014.
Loftkenndur himneskur
blær Karólínu
KARÓLÍNA Lárusdóttir, myndlist-
arkona, fær mjög jákvæða umfjöll-
un í nýjasta hefti breska tímaritsins
Modern Painters. í tímaritinu er
fjallað um farandsýningu á verkum
Karólínu sem hefst 30. júní og lýk-
ur 16. júlí. Gagnrýnandinn Joseph
Williams skoðaði sýninguna í CCA
Galleries í Cambridge. Verk eftir
Karólínu eru einnig á sýningu
Brandler Galleries í Essex „Smart
Art.“
Að sögn Williams veita myndir
Karólínu þreyttum hug hvíld.
Áhorfandinn svífur skyndilega um
loftið, og yfirgefur ekki eingöngu
stórborgina heldur þann heim sem
hann þekkir. Sakleysi endurglæðir
sýn hans. Þungdaraflið missir vald
sitt í einkennilegri sveitasælu Karó-
línu. William segir að ef myndirnar
væru ekki svona kyrrlátar þá væru
þær óhugnanlegar.
Ekki íslendingar
í umfjölluninni er vitnað í orð
Karólínu þess efnis að fólkið á
myndunum sé ekki íslendingar
heldur hennar fólk. Hún segir að í
verkum sínum sé farið yfir í annan
heim. Hann er raunverulegur en
einnig af öðrum heimi. Áhorfandinn
hugsi er þetta þarna eða ekki? Sá
ég engil eða er þetta eingöngu birt-
an? William nefnir að sýn Karólínu
byggi á íslensku landslagi og nor-
rænum þjóðsögum. Villt landslagið
og fólkið sé mótað af æskuminning-
um hennar frá íslandi. Fólkið sem
PÍ ANÓTÍMINN eftir Karólínu Lárusdóttur.
hún umgekkst á æskuárunum
breytist í kviksjá hennar og birtist
í sterkum frumlitum. William segir
að minningar Karólínu séu skirar
og ljfandi og barnalegur tónn þeirra
gefi olíumálverkum hennar loft-
kenndan, himneskan blæ.
Williams nefnir að stríðnisleg
margræðni myndanna sé gerð af
ráðnum hug. Bátar sigli um loftið,
kokkar verði tónlistarmenn og ský
öldufaldar. Persónur myndanna séu
samt aldrei undrandi út af þessum
einkennilegu atburðum, allt sé eðli-
legt, og Karólína vefi töframyndir
sínar af leikni. í þeim megi sjá
þögult landslag drauma. Heimur
hennar sé án hljóða og í honum
skilgreini litir alla hluti.
Williams fjallar að lokum um
vatnslita- og ætimyndir Karólínu,
sem hann er mjög hrifin af, og
minnist á sívaxandi áhuga hennar
á óhlutstæðu myndmáli. Hann hef-
ur eftir henni að slíkar myndir séu
,jafnvægisæfingar“.
íslenskar bókmenntaperlur
fyrir ferðamenn
Nýjar bækur
■ Fallvölt gæfa eftir Ken Follet
er bók júlímánaðar hjá bóka-
klúbbnum Nýjar metsölubækur.
í kynningu frá Vöku-Helgafelli
segir: „Ken Follet er fæddur í
Cardiff í Wales. Hann stundaði
heimspekinám við Lundúnahá-
skóla og gerðist blaðamaður að
loknu prófi. Meðfram blaða-
mennsku skrifaði hann sína fyrstu
skáldsögu sem vakti takmarkaða
athygli. Með annarri bók sinni,
Nálarauga, sýndi Follet hins vegar
og sannaði hvað í honum bjó og
eftir það seljast bækur hans í millj-
óna upplögum um allan heim. Má
þar nefna Lykilinn að Rebekku,
Nótt yfir hafi og fleiri.“
■ Ljóðabókin Hugarfóstur eftir
Eirík Hrafn Thorarensen er
komin út. Bókin er gefin út af
höfundi í samvinnu við Braga
Halldórsson í 100 tölusettum ein-
tökum.
Hin helgu vé
verðlaunuð
MYND Hrafns Gunnlaugssonar,
Hin helgu vé, var margverðlaunuð
á tíundu alþjóðlegu kvikmyndahá-
tíðinni í Tróju á Costa Azul í
Portúgal. Myndin hlaut Gullnu
hnísuna sem besta kvikmynd há-
tíðarinnar og silfurhnísuna fyrir
besta leik í karl- og kvenhlutverk-
um. Steinþór Matthíasson og
Tinna Gunnlaugsdóttir hlutu því
þau verðlaun. Hin helgu vé hlaut
líka sérstök verðlaun samtaka
katólskra kvikmyndagagnrýn-
enda.
LEIKHÓPURINN Sögusmiðjan,
The Fiction Factory, hefur boðið
upp á leikdagskrá á ensku fyrir
erlenda ferðamenn og aðra gesti
sem heimsækja landið síðan i
byijun júní. Dagskráin ber heitið
Tales from our Country. Henni
er ætlað að bæta úr þeirri þörf
sem er á skemmtunum fyrir er-
lenda gesti og jafnframt að sýna
þeim íslenskan bókmenntaarf á
lifandi hátt.
Sýningin er stutt ferðalag þar
sem áfangastaðir eru íslenskar
bókmenntaperlur frá ýmsum
tímum. Meðal annars eru brot
úr Sjálfstæðu fólki, Njálu,
Gerplu, Bakkabræðrum, Sálinni
hans Jóns míns og sögur af álf-
um, huldufólki og tröllum. Einn-
ig er sungið, ljóð flutt og leikið
á hljóðfæri. Dagskráin tekur eina
klukkustund í flutningi. Hún er
fiutt á ensku en jafnframt rennur
þýskur texti með á sjónvarpsskj-
ánum.
Leikhópurinn er eingöngu
skipaður atvinnuleikurum. Það
eru Steinunn Ólína Þorsteins-
dóttir, Felix Bergsson, Magnús
Ragnarsson og Þórdís Arnljóts-
dóttir sem leika en um tónlist sér
Guðni Franzson klarínettuleik-
ari. Sigurður A. Magnússon að-
stoðaði við handritaskrif og Jón
St. Kristjánsson leikstýrði.
Sýningar á Tales from our
Countrye ru á Scandic hotel Loft-
leiðum á hverju sunnudagskvöldi
klukkan 20.00. Einnig er hægt
að panta sýninguna og er þá
möguleiki að leika styttri útgáfu.
--------------------------- t
Gallerí á >
Hjalteyri
GREIÐASALA og gallerí hefur
verið opnuð á Hjalteyri. Staðurinn
verður opnaður með kynningu á
listverkum eftir Sólveigu Eggerts-
dóttur. Þá verða sýningar á verk- 9
um eftir Önnu Torfadóttur, Sig- |
rúnu Eldjárn, Guðbjörgu Ringsted |
og Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur.
Greiðasalan og galleríið eru til
húsa í gömlu timburhúsi sem er
þekkt sem Richards húsið eða
Nýja hótelið Hjalteyri. Það var
byggt af Thor Jensen árið 1912.
Greiðasalan og galleríið verður
opið daglega yfír sumarmánuðina
frá 15-23. k
Sænskur kór >
í Selfosskirkju
GRYCKSBO kirkjukórinn úr
Dölunum í Svíþjóð heldur tónleika
í Selfosskirkju í kvöld kl. 20.30. Á
efniskránni er m.a. þjóðleg sænsk
tónlist og mun kórinn koma fram
í sænskum þjóðbúningum.
í Grycksbo kirkjukórnum eru
30 söngfélagar og stjórnandi er ^
Margareta Andreasson. Gestgjaf- 9
ar eru kórar Villingaholts- og
Hraungerðiskirkna í Flóa.
Annað kvöld heldur kórinn síð-
an tónleika í Langholtskirkju kl.
20.
fi
I
t
I
t
Stefán frá 1
Möðrudal sýnir
STEFÁN V. Jónsson Stórval held-
ur sýningu í Austurborg, Vopna-
fírði, dagana 8-10 júlí n.k. og mun
þetta vera í fyrsta sinn sem hann
sýnir á Austurlandi.
í fréttatilkynningu segir:
„Listamaðurinn er bæði tilfinn-
ingaríkur og röskur og liggur mik- |
ið eftir hann af myndum. Á sýn- ■
ingu þessari gefur að líta breitt
úrval frá ýmsum tímabilum á ferli
hans. Viðfangsefna leitar Stefán
helst í fjöllunum, vötnunum, hæð-
unum og hólunum sem voru í hans
nánasta umhverfi. Einnig dregur
hann upp myndir af þeim dýrum
sem hafa verið honum hugleiknust |
á liðnum árum og ber þar mest á
hestum og sauðfé."
íslandskvöld í
Norræna húsínu
SIGURGEIR Steingrímsson, sér-
fræðingur hjá Stofnun Árna
Magnússonar, segir frá íslensku
handritinum og sýnir litskyggnur
í Norræna húsinu fimmtudaginn
7. júlí klukkan 20.00. Eftir fyrir- >
lesturinn og kaffihlé verður sýnd •
kvikmynd frá íslandi. Opið er í
kaffistofu og bókasafni til klukkan
22.00 á fimmtudagskvöldum í
sumar.
Kynning á íslensku samfélagi
fer fram í fundarsal Norræna hús-
ins á sunnudögum í sumar klukkan
17.30. Þessi kynning er ætluð i
ferðamönnum frá Norðurlöndun-
um og sér dr. Sigrún Stefánsdótt-
ir fréttamaður um kynningarnar |
og sýnir fréttamyndir til skýringar
efninu. Aðgangur er ókeypis.