Morgunblaðið - 07.07.1994, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1994
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
KRIPALUJÓ6A
Líkdmi þinn er besta bókin
um heilsu sem dð þú kemur
til með dð lesd, en kdirntu
aðlesahana?
Byrjendanámtkeið heftt 11. júlí.
I
JÓGASTÖÐIN HEIMSLJÓS, E
Skeifunni 19,2. hæð, s. 889181 (kl. 17—19).
Biddu um Banana Boat
alnáttúrulegu sólkremin
(All natural Chemical Free)
□ Um 40 Banana Boat sólkrem, -olíur og
-gel með sólvörn upp á #50, framleidd
úr Aloe Vera, jojoba, kollageni, lanolíni,
minkaolíu, banönum, kókos, A,B,D og
E-vítamíni.
o Sérhönnuð barnasólkrem, barnasólvarnar-
úði, barnasólvarnarsalvi og barnasól-
varnarstitti. Banana Boat. Verð frá
kr. 494,-.
□ Banana Boat Aioe Vera gelið er hreinna
(99,7%), ódýrara (40-60%) og ifleiri
túpu- og brusastærðum (6) en önnur
Aioe gel.
Biddu um Banana Boat i sólbaðsstofum.snyrti
vöruverslunum , apótekum og öllum heilsu-
búðum utan Revkiavíkur.______________
Heilsuval, Barónsstíg 20, ® 626275
Vantar þig tjald fyrir sýningu,
brúðkaup, veislu, ættarmót o.fl.?
Höfum tjöld allt frá 20 fm og
upp í 180 fm á afar hagstæðu
verði.
Upplýsingar í símum
650900 og 985-34205.
Skátafélagið Hraunbúar,
Hafnarfirði.
5!
Sjábu
hlutina
í víbara
samhcngi!
KA TRIN AXELSDOTTIR
+ Katrín Axelsdóttir var fædd
í Reykjavík 13. apríl 1956.
Hún lést á Landspítalanum 25.
júní síðastliðinn og var útför
hennar gerð frá Bústaðakirkju
1. júlí.
HÚN Kata bjó í nábýli við mig í
sveitinni í átta ár og það var gott
að eiga samleið með henni. Yfir
henni var reisn. Hún var myndarleg
kona, há og grannvaxin, dökk yfirlit-
um og bar sig vel. Hún var smekk-
vís og hafði gaman af að klæða sig
vel og líta vel út. Það gerði hún allt
til enda. m.a.s. eftir að sjúkdómurinn
hafði rænt hana þreki. Hún vissi að
hveiju dró. Hún vissi að hún hafði
aðeins ákveðinn tíma til að lifa og
vera með vinum sínum og fjölskyldu
og þegar hún sofnaði seint að kveldi
laugardagsins 25. júní var hún um-
kringd ástvinum sínum.
Hér í sveitinni bjó hún af myndar-
skap í Sólheimum ásamt Kára Marís-
syni, manni sínum og fjórum börn-
um, Kristínu Björk, Arnari Snæ,
Maríu og Axel. Þau byggðu við íbúð-
arhúsið og innréttuðu að nýju og
bjuggu af stórhug. Umsvifin voru
mikil, menn í vinnu, mat og gistingu
vikum saman, en það hefur í för
með sér mikið aukaerfiði fyrir hús-
móður í sveit. Öllu þessu sinnti Kata
af dugnaði auk vinnu utan heimilis
um tíma, en þá starfaði hún í bank-
anum í Varmahlíð. Henni þótti vænt
um það starf og líkaði vel en saga
hennar var saga. margrar nútíma-
konu; hún gegndi of mörgum hlut-
verkum og þeim of kröfuhörðum.
Annir heima fyrir meinuðu henni að
vinna utan heimilis en það var með
trega sem hún hætti í bankanum.
Kötu var margt til lista lagt og átti
sér drauma um að mennta sig frek-
ar en þeir fengu ekki að rætast.
Henni tókst ekki að samræma heim-
ilisstörfm, bústörfin og uppeldi barn-
anna því að sækja tíma og aga sig
til heimalestrar. Hún hafði alla tíð
mikinn áhuga á íþróttum, sérlega
körfubolta og einhvern tíma heyrði
ég sagt að hún sækti hvern einasta
leik á Króknum. Áhugann og leikn-
ina hafa börnin erft, reyndar frá
foreidrum sínum báðum. Því að þau
hafa spilað körfubolta af eldmóði og
staðið sig vel, bæði hér á Islandi og
heimalandi körfuboltans, Bandaríkj-
unum, þar sem Arnar sonur þeirra
var skiptinemi síðasta ár. Hugur
Kötu stóð til þess að taka meiri þátt
í íþróttum en hún gerði en aftur
komu aðstæður í veg fyrir það.
Hér bjó hún í rúm 15 ár og eignað-
• HSM Pressen GmbH
• Öruggir vandaöir pappírstætarar
• Margar stærðir - þýsk tækni
• Vönduð vara - gott verö
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavík
Símar624631 • 624699
ist góða og trausta vini, tók þátt í
félagslífinu og setti svip sinn á
mannlífið og féll hvarvetna vel inn
í, en óyndi sótti á hana og lífið hér
og það sem hér var á boðstólum
svaraði ekki draumum hennar. Ef
til vill réð einhveiju einnig að hún
var borin og barnfædd í Reykjavík
og sá fyrir sér hvers hún gæti notið
þar, meira frelsis, foreldra sinna og
fjölskyldu, möguleika til að mennta
sig og vinna úti. Sjálfsagt hefur hún
verið margbúin að velta stöðunni
fyrir sér, togast hefur á í henni að
fara eða vera en loks afréð hún að
flyta ein suður, leigði íbúð og fékk
vinnu í Búnaðarbankanum í Austur-
stræti í hjarta Reykjavíkur. Þessi
ákvörðun kostaði mikið. Áræði og
kjark þurfti til að yfírgefa heimilið,
það sem hún hafði skapað og unnið
að árum saman, fara frá vinum og
þekktu umhverfi, sem var þó barna-
leikur miðað við það að skilja þijú
yngri börnin eftir en vegna þess
þjáðist hún sífellt af samviskubiti
sem óþarft er að fjöiyrða um. Vegur-
inn sem hún gekk var erfiður, en
hann var vafalaust hinn eini færi frá
þeim krossgötum sem hún stóð á.
Smám saman tókst henni að búa
betur um sig, hún leigði góða íbúð
af vinum sínum og síðasta vetur
bjuggu báðar dætur hennar hjá
henni.
Þessi tími var dýrmætur en skuggi
veikindanna vofði yfir. Hingað norð-
ur kom hún í fríum og til að halda
upp á afmæli barnanna og reyndum
við vinkonurnar í saumaklúbbnum
að sæta lagi til að hittast. Það var
alltaf gaman að hitta Kötu, hún flutti
með sér hressandi andblæ, tók sjálfa
sig ekki of alvarlega, var hlýleg í
viðmóti. Þaðan á ég margar um
Kötu, um léttan hláturinn, um hana
káta, stormandi inn úr dyrunum,
fulla af lífi.
Við hér á Miklabæ minnumst
hennar með gleði og biðjum Guð að
gefa ykkur styrk, Kári, Axel, Maja,
Kristín og Arnar.
Dalla Þórðardóttir, Miklabæ.
Við kynntumst Kötu og íj'öl-
skyldu hennar í gegnum íþróttina
sem við allar stunduðum. Allt frá
því við byijuðum í körfubolta hefur
Kata verið með okkkur sem félagi,
vinur og stuðningsmaður. En körfu-
boltaíþróttin á stóran þátt í lífi fjöl-
skyldunnar. Þrátt fyrir að leiðir
skildi fyrir nokkrum árum þegar
Kata flutti suður voru alltaf bönd
sem tengdu okkur saman. Ef Kata
átti þess nokkurn kost var hún
mætt þar sem við vorum að keppa.
Okkur þótti alltaf svo gaman að
Viðgerðir
á öllum tegundum
af töskum.
Fljót og góð þjónusta.
TÖSKU-
VIÐGERÐIN
VINNUSTOFA SlBS
Ármúla 34, bakhús
Sími814303
hitta Kötu. Hún var alltaf svo kát,
bjartsýn og tók svo vel á móti okk-
ur. Nú þegar leiðir okkar skiljast
að lokum er erfitt að ímynda sér
að Kata verði ekki til staðar í haust
þegar körfuboltinn fer aftur af stað.
Það skarð sem eftir verður mun
enginn fylla, en góðar minningar
lifa.
Elsku Kári, Kristín, Arnar, Mar-
ía, Axel og aðrir ættingjar, við send-
um ykkur okkar innilegustu samúð-
arkveðjur og biðjum guð að gefa
ykkur styrk í þessar miklu sorg.
Þótt vindar blási veröld í,
og vofi yfir kólgnský,
þá mundu hann, er böl þitt ber,
sem bróðir þinn og Drottinn er.
Og náð hans nægir þér.
Og hví skal þá ei hjartans þökk
sig hefja yfír skýin dökk?
Þú veist, að þína byrði ber
sá bróðir, sem þinn Drottinn er.
Og ná hans nægir þér.
(Siguij. Guðjónsson)
Kristín Elfa Magnúsdóttir,
Selma Barðdal, Sauðárkróki.
Og ég man að þú brostir við litlu bami
sem beið eftir strætisvagninum.
Og mér fannst þá, sem öll fegurð og mildi
lífsins
væri falin í þessu töfrandi brosi þínu.
(Steinn Steinarr)
Ég minnist dagsins í apríl fyrir
tveimur árum þegar Kata byijaði
að vinna hjá okkur. Hávaxin, falleg
og með síða svarta hárið heilsaði
hún mér og ég laðaðist samstundis
að henni. Seinna þegar við fórum
að spjalla saman var eins og ég
hefði þekkt hana í mörg ár og með
okkur hófst náin vinátta.
Ég man hversu stutt var alltaf í
brosið sem endurspeglaðist í augun-
um, hláturinn sem hreif alla með,
húmorinn og hæfileikann til að sjá
alltaf björtu hliðamar á málunum.
Vinur þinn er þér allt. Hann er
akur sálarinnar, þar sem samúð
þinni er sáð og gleði þín uppskorin.
Þannig var Kata. Hún átti til
meiri styrk en flestir aðrir sem ég
þekki og hún var óspör á þennan
styrk. Þrátt fyrir efiðleika undan-
farna mánuði gat hún hughreyst
mig og sent mig sterkari út í lífið.
Ég minnist hennar sem móður.
Hversu mikil barnagæla hún var
og hvað börnin hennar fjögur veittu
henni mikla gleði. Hversu stolt hún
var af þeim og hvað umhyggjan
fyrir þeim var ávallt í fyrirrúmi.
Þeim og öðrum aðstandendum
votta ég mína dýpstu samúð og
vona að þeim auðnist að lifa lífinu
í hennar anda, af þreki, þrótti og
trú á lífið.
Soffía Gísladóttir.
„Þegar þú ert sorgmæddur skoð-
aðu þá hug þinn og þú munt sjá að
þú grætur vegna þess sem var gleði
þín.“
Þessi ómetanlega speki er frá
spámanninum Kahlil Gibran komin
og finnst mér hún hafa veitt mér
ómetanlegan styrk í minni óyfirstíg-
anlegu sorg sem mér fannst þá á
þeim tíma að missa dóttur mína frá
manni og þremur börnum árið 1991.
Hún var á sama aldri og Kata þegar
hún dó. Ég vona að það megi nú
hjálpa nánasta fólki Kötu, sem eru
í þeim sporum sem ég var í þá, við
þennan mikla missi:
Já, elsku Kata mín, það er erfitt
fyrir alla að missa þig á besta aldri,
sjá þig aldrei aftur káta og hressa
eins og þú varst alltaf, þegar þú
hittir fólk og skipti aldur þar engu
máli.
Kata þurfti að komast yfir mikið
og koma miklu í verk. Það kom nú
fljótt í ljós eftir að hún kom hingað
í sveitina ásamt manni sínum Kára
Maríssyni, sem einnig er harðdug-
legur. Þau skildu eftir sig fallega
uppbyggða jörð og skógrækt, þetta
var mikil og erfið vinna.
Kata var verslunarskólagengin og
vann í banka eftir að hún lauk prófi
og var það henni hugleikið starf.
Hún vann hér í útibúinu í Varma-
hlíð annað slagið.
Hún hafði mörg áhugamál, t.d.
íþróttir, hún æfði körfubolta o.fl.
Állar ungu konurnar hér í sveitinni
voru í saumaklúbb og var þá glatt
á hjalla hjá þeim.
Nokkrar úr saumaklúbbnum voru
með hestaklúbb þ. á m. Kata. Fóru
þær alltaf einu sinni á sumri ríðandi
fram í Gilsbakka að hitta Hjörleif
Kristinsson sem var þá orðinn einn
þar á bæ. Hann var alsæll að fá
þessar blómarósir í heimsókn til sín,
þær fóru svo í Merkigil að heim-
sækja annan einbúa, Helga Jónsson
og tók hann þeim opnum örmum og
fengu þær fínar veitingar á báðum
stöðum.
Við Kata og fyrrverandi formaður
barnaverndarnefndar, Hjörleifur
fórum saman í ferðalag sumar hvert
að heimsækja heimili sem höfðu
sumardvalarbörn, á meðan hún var
með mér í barnaverndarnefnd. Þær
voru eftirminnilegar ferðirnar okkar
og skemmtilegar. Nú hafa bæði
Hjörleifur og Kata kvatt þennan
jarðneska heim með svo stuttu milli-
bili og bæði börðust við krabbamein
sem er alltof tíður sjúkdómur og
erfiður viðureignar.
Við Kata fórum saman á bárna-
verndarþing árið 1988. Það var gam-
an að fara með Kötu á þetta þing.
Ferðast með henni, vinna með henni
og gleðjast með henni. Minningin
um brosið þitt bjarta mun ylja okkur
sem eftir lifum um ókomna tíð.
Kata ól af sér fjögur börn; Krist-
ínu, Arnar, Maríu og Axel. Eiga þau
nú um sárt að binda en með tíman-
um gróa sárin og fallegu minning-
arnar verða yfirsterkari sorginni.
Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að
vera með fjölskyldu Kötu á hátíðar-
stundum og mannfögnuði í Sólheim-
um. Þar var gestrisni og myndar-
bragur í hávegum hafður.
Að lokum langar mig að láta þetta
fallega ljóð fara um leið og ég sam-
hryggist ykkur öllum, Kára, börnun-
um, foreldrum og elskulegri systur
hennar og íjölskyldu.
En minning þín er mjúk og hlý
og mun oss standa nærri.
Með hveiju vori hún vex á ný
og verður ávallt kærri.
Ef lífsins gáta á lausnir til,
þær ljóma bak við dauðans þil.
Og því er gröfín þeim í vil,
sem þráðu útsýn stærri.
(Magnús Ásgeirsson)
Unnur á Víðivöllum, formaður
barnaverndarnefndar.
SIEMENS
Rafmagnsofnar!
Eigum hina vönduðu
rafmagnsþilofna frá
Siemens í miklu úrvali.
200 - 2000 W.
Áratuga frábær reynsla
á fslandi.
Veldu vel, veldu Siemens.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300
n
»H
Vfl/fr þú endlngu og gæði<
velur þú SIEMENS
+
Maðurinn minn, faðir okkar og sonur,
BJÖRN EINAR ÞORLÁKSSON,
Eyjarhólum,
Mýrdal,
lést 5. júlí. Útförin fer fram frá Skeiðflat-
arkirkju laugardaginn 9. júlí kl. 14.00.
Rósa Haraldsdóttir,
Agla Sigríður Björnsdóttir,
Þorlákur Sindri Björnsson,
Solveig Björnsdóttir,
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir,
Haraldur Björnsson,
Ingibjörg Indriðadóttir.