Morgunblaðið - 07.07.1994, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1994 37
Hjólreiða-
hátíð á
Hvolsvelli
Hvolsvelli. Morgunblaðið.
HJÓLREIÐAHÁTÍÐ VÍS verður
haidin á Hvolsvelli um næstu
helgi, dagana 9. og 10. júlí. Hátíð-
in hefst með íslandsmeistaramóti
í götuhjólreiðum „Tour de Hvol-
svöllur" en hjólað verður frá
Reykjavíktil Hvolsvallar, um 110
km langa leið. I fyrra tók það
hjólreiðakappana aðeins tæpa
þrjá tíma og verður spennandi
að fylgjast með því hvort ár-
angurinn verður bættur að þessu
sinni.
Boðið verður upp á fjölbreytta
skemmtun fyrir alla fjölskylduna
á Hvolsvelli báða dagana. Má þar
nefna ratleik, Þórsmerkurferð,
rúningskeppni, hjólatúra um ná-
grennið, kvöldvöku við varðeld
og margt fleira. Þá verður keppt
í ýmsum hjólaþrautum í ölium
aldursflokkum.
Heiðursgestur á hátíðinni verð-
ur Magnús Scheving, þolfimi-
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Einn sigurvegaranna úr
keppninni í fyrrasumar.
kappi, og mun hann reyna þolið
við hjólreiðar. Kiwanisklúbburinn
Dímon mun gleðja öll 6 ára börn
í Rangárvallasýslu með því að
gefa þeim hjólahjálma.
Það er Sælubúið hf., ferða-
þjónusta á Hvolsvelli, sem hefur
skipulagt hátíðina og leigir út
tjaldstæði og veitir allar upplýs-
ingar um hátíðina.
EIGENDUR verslunarinnar Noi, Claudio Romanelli og Valgerður
B. Ólafsdóttir.
Ný verslun
OPNUÐ hefur verið á Skólavörðu-
stíg 25 verslunin Noi. Verslunin
er með fatnað og fylgihluti fyrir
fólk á aldrinum 18-35 ára.
Meðal merkja má nefna Sub-
Couture, Wit and Wisdom, Hyst-
eric Glamour, The Dispensary og
merki fleiri ungra breskra hönnuða
sem ekki áður hafa fengist hér
heima.
Verslunin er opið mánudaga til
föstudaga kl. 10-18, föstudaga
kl. 10-19 og laugardaga kl.
10—16. Eigendur eru Valgerður
B. Ólafsdóttir og Claudio Roman-
elli.
eina
*#nn«i
ásamt Haukl Heiðari, Viila Ouðjóns oq Pétri Krietjáns
Fjölbreyttjparnai- oq fjölskylduskemmtun
með Fjörkálfum í gleði, sönq, leik og sprelli
ööngvamkeppni æakunnar
Valdir verða þátttakendur í söngvarakeppni og limbó úr hópi þeirra, sem fæddir eru 1980 eða síðar.
Allir geta komið til prófunar frá kl. 10 til f 2, á þann stað sem Fjörkálfarnir skemmta þann daginn.
Allir eigurvegarar á geisladisk!
Sigurvegari í söngvarakeppninni á hverjum stað fær ókeypis ferð fyrir sig og foreldri á
lokaskemmtun í Reykjavík með FLUGLElÐUM-innanlands og kemur einnig fram á geisladiski.
Islandsmeistari í limbó-dansi hlýtur glæsilegan vinning,
Með Flugleiðum tíl Kaupmannahafnar
Hver aðgöngumiði gildir einnig sem happdrættismiði og að loknum öllum skemmtunum verður dregið
og vinningshafi hlýtur ferð fyrir sig og fjölskyldu sína í Tívolí í Kaupmannahöfn með FLUGLEIÐUM.
Dagskrá Fjörkáffa í suman
9. júli Dalvík 10. júli Akureyri 16. júli Höfn Hornafirði
17. júlí Egilsstaðir 23. júlí Patreksfjörður 24. júli Hnífsdalur
6. ágúst Selfoss 7. ágúst Borgarnes 13. ágúst Sauðárkrókur
14. ágúst Húsavík 20. ágúst Vestmannaeyjar
21. ágúst Suðurnesjabær 27. ágúst Stykkishólmur
28. ágúst Reykjavik Lokaskemmtun í Reykjavik 4. september
1 í’js.síj sA\
Island
FLUGLEIDIR
'1 Tioriu:
Sækjum
þaöheim!
y Miðaverð aðeins kr. 300.-
Kókoebolla frá öælgætisgerðinnl Völu fylgir hverjum miðal
KHWWilBWBIflWBWiaMilWI
Stefnt er að árlegum hátíðahöldum í Stykkishólmi
Safnahúsið í Borgarnesi
Sýning á
þjóðhátíð-
armunum
í SAFNAHÚSI Borgarfjarðar hef-
ur verið sett upp sýning á raunum
sem tengjast þjóðhátíðum íslend-
inga.
Munirnir eru allir í eigu Bjarna
Valtýrs Guðjónssonar verslunar-
manns í Borgarnesi, en þetta mun
vera stræsta einkasfn sinnar teg-
undar sem til er á landinu. Bjarni
Valtýr hefur safnað þessum grip-
um í yfir 20 ár. Þeir þekja nú fjög-
ur stór borð í Safnahúsinu.
Á sýningunni gefur að líta minn-
ispeninga, barmmerki, skyldi,
veggplatta, kort, borðfána, blöð
og fleira. Bjarni Valtýr sagði að
mikið hefði bæst við safnið á þessu
ári, á 50 ára afmæli lýðveldisins.
Sýningin stendur yfir til 22. júlí.
FJÖLBREYTT dagskrá verður í
boði fyrir þá, sem taka þátt í fjöl-
skylduhátíð Stykkishólmsbæjar
helgina 8. til 10. júlí nk. Hátíðin
verður með dönsku yfirbragði og
segir Þórunn Inga Einarsdóttir
framkvæmdastjóri hátíðarinnar að
það sé til að minna á dönsk tengsl
bæjarins. Fyrr á árum hafi verið
þarna m.a. danskir kaupmenn og
danskt apótek. Hugmyndin er að
hennar sögn að gera þessa hátíð
að árlegum viðburði.
Komið verður upp 300 fermetra
tjaldi, þar sem heimamenn munu
selja ýmsan varning. Veitingahús
verða með danskan matseðil og
danskur bjór verður seldur á krán-
um. Farið verður í ratleik og einn-
ig gengið á Helgafell.
I Norska húsinu verður opnuð
myndlistarsýning, sýning verður á
gömlum ljósmyndum frá Stykkis-
hólmi, lifandi tónlist verður bæði
á veitingahúsinu Knudsen og Hót-
el Stykkishólmi, útidansleikur
verður á Hólmkjörsplaninu bæði
föstudags- og laugardagskvöld og
á miðnætti laugardagsins verður
varðeldur og flugeldasýning á
Motorcross
á Sandskeiði
ÖNNUR umferð íslandsmótsins í
motorcross fer fram sunnudaginn
10, júlí við Sandskeið kl. 14.
í ár er fyrsta skipti keppt í B-
flokki sem er ætlaður fyrir byijend-
ur og er þátttaka í honum mjög
góð. Reynir Jónsson sigraði í fyrstu
umferðinni.
íþróttavellinum. Er þá fátt eitt
nefnt.
Björgunarsveitin Berserkir mun
taka á móti öllum, sem koma inn
í bæinn. Þórunn Inga segir að all-
ir muni leggjast á eitt við að gera
þessa hátíð skemmtilega, ókeypis
verði inn á svæðið og hátíðin sé
opin öllum.
Hátíð með dönsku ívafi