Morgunblaðið - 08.07.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.07.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994 9 FRÉTTIR Atvinnuleys- isbætur eru Morgunblaðið/Þórir Hersveinsson Fánakerra EKKERT er ólöglegt við þessa notkun á íslenska fánanum, sem sjá má á myndinni, að mati Guð- mundar Benediktssonar en hann sat í nefnd sem endurskoðaði ís- lensku fánalögin. Fáninn má þó ekki sjást eftir sólarlag þannig að óvíst er að þessi fáni falli undir það lagaákvæði. Myndin er tekin að Garðsenda. skattskyldar ATVINNULEYSISBÆTUR eru skattskyldar enda þótt þær séu undir skattleysismörkum. Þess vegna er varasamt fyrir atvinnu- iausa að láta maka njóta skatt- korts síns, því það getur þýtt skatta eftir á sem oft koma fólki í opna skjöldu, segir í frétt frá ASÍ. Alþýðusambandi íslands þykir rétt að minna á reglur um skatt- greiðslur atvinnulausra en sam- kvæmt þeim greiða atvinnulausir tekjuskatt og útsvar eftir á, með svipuðum hætti og var fyrir stað- greiðslukerfi skatta. Það sé tals- vert algengt að maki hins atvinnu- lausa nýti sér skattkort hans eða hennar á meðan atvinnuleysið var- ir. Það getur orðið til þess að við- komandi lendi í skatti eftir á. Verðlaunafyrirlestur fluttur á lyflæknaþingi Lakkrísát þáttur í háum blóðþrýstingi FÉLAG íslenskra lyflækna hélt sitt 11. þing að Kirkjubæjarklaustri dagana 1.-12. júní sl. Þingið var hið ijölmennasta og viðamesta sem félagið hefur staðið fyrir til þessa. Flutt voru 89 erindi úr hinum ýmsu greinum lyflæknisfræðinnar og átta erindi voru kynnt á veggspjöldum. Auk þess sóttu þrír gestafyrirles- arar þingið heim: Prófessor Peter Sleight frá Oxford ræddi um nýj- ustu viðhorf í meðferð kransæða- stíflu, Bogi Andersen, læknir, sem starfar við Kaliforníuháskóla, San Diego, greindi frá rannsóknum sín- um sem m.a. varpa nýju ljósi á myndun heiladingulshormóna og Ólafur M. Hákonsson, kvensjúk- dómalæknir flutti fyrirlestur um ný viðhorf í hormónameðferð kvenna. Mikil gróska í rannsóknum Berlega kom í ljós á þinginu að mikillar grósku gætir í rannsóknum á sviði lyflæknisfræða hér á landi, sérlega hvað varðar rannsóknir er beinast að sjúklingum og sjúkdóm- um sem læknar fást við. Grunn- rannsóknir þyrftu hinsvegar að vera meiri og öflugri. Á þinginu voru veitt verðlaun Vísindasjóðs lyflækningadeilda Landspítalans fyrir besta erindi unglækna. Verðlaunin hlaut að þessu sinni Helga Ágústa Sigur- jónsdóttir fyrir erindi sitt: Er venju- leg lakkrísneysla meiriháttar áhættuþáttur fyrir háþrýsting? í rannsókn sinni sýndi Helga fram á skaðvænleg áhrif venjulegrar lakkrísneyslu vegna blóðþrýstings- hækkunar og bjúgs. Aukaverðlaun hlutu Arna Guðmundsdóttir, Magn- ús Karl Magnússon og Ýr Sigurðar- dóttir. Ágrip erinda þingsins hafa verið gefín út í Fylgiriti Læknablaðsins í júní 1994. Forsætisráðherra á fundi í Finnlandi Norðurlöndin ræða Evrópumál FUNDI forsætisráðherra á Norðurlöndunum undir stjóm Davíðs Oddssonar, forsætisráð- herra, lýkur í dag en hann er hald- inn í nágrenni við Nyslott í Finn- landi. Fundurinn hófst í gær. Þá gaf Davíð Oddsson yfírlit yfír stöðu þeirra mála sem sérstök áhersla er lögð á á. yfirstandandi for- mennskuári íslands í norrænu samstarfi, en á dagskrá fundarins eru m.a. Evrópumál og hugsanleg- ar breytingar á norrænu samstarfí vegna væntanlegrar aðildar Finn- lands, Svíþjóðar og Noregs að Evrópusambandinu. Jafnframt verður fjallað um norrænt sam- starf við Eystrasaltsríkin, Sankti Pétursborgarsvæðið og Barents- svæðið, en samstarf við þessi svæði fer stöðugt vaxandi. T.a.m. hafa norrænar upplýsingaskrif- stofur verið starfræktar í Eystra- saltsríkjunum þremur í nokkur ár. í för með forsætisráðherra eru eiginkona hans frú Ástríður Thorarensen, Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri, Snjólaug Ólafs- dóttir, skrifstofustjóri, Eyjólfur Sveinsson, aðstoðarmaður forsæt- isráðherra og Albert Jónsson, deildarstjóri. LOKAUTKALL Aðeins 12 sætí Upplýsingar elcki gefnar í síma! Portúgal 13. júlí EA'IXAjSi* mÚRVAL-ÚTSÝN trygging lyrir gæoum Lágmúla 4, { Hafnarfirði, ( Keflavík, á Akureyri, á Selfossi - og hjá umboðsmönnum um land alli. Bílamarkaöurrnn'™ ^irspum efir Smiðjuvegi^C^n nýlegum, góðum bflum. Kopavogi, sími Vantar slíka bfla a skra ~ rt^^og £ sýningarsvæðið. Opið: Laugardaga kl. 10-17, sunnudaga kl. 13-18. Útsalan er hafin 40% afsláttur TESS ytx. 622230 Opi5 virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14 UTSALA - UTSALA GERUM GÓÐ KAUP 20-40% afsláttur af öllum vörum Verðdæmi: Sumarkjólar frá kr. 2.790 Gallabuxur kr. 2.490 Bolir frá kr. 690 Nýjar og nýlegar * Lindon vörur 1 bestu kaupin TISKUVERSLUN XX BORGARKRINGLUNNI NIÐJAMOT ÓLAFS JÓNSSONAR OG ODDNÝJAR ÓLAFSDÓTTUR SVEINSSTÖÐUM sem hefst á Hótel Blönduósi, föstudagskvöldið 5. ágúst, verður fram haldið á Sveinsstöðum, laugardaginn 6. ágúst og lýkur með kvöldverði á Blönduósi um kvöldið. Þátttaka tilkynnist í síma 95-24126 eða 95-24495. Fólk er alltaf að vinna í Gullnámunni: 52 milljónir Dagana 30. júní til 6. júlí voru samtals 52.663.640 kr. greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þetta voru bæði veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öðrum vinningum. Silfurpottar í vikunni: Dags. Staöur: Upphæö kr.: 30. júní Lukkupotturinn, Lækjargötu, ... 93.355 1. júlí Háspenna, Laugavegi ... 186.805 2. júlí Mamma Rósa, Kópavogi ... 112.876 3. júlí Pizza 67, Hafnarfirði ... 112.371 4. júlí Ölver ... 176.352 5. júlí Háspenna, Laugavegi 82.739 6. júlí Lukkupotturinn, Lækjargötu ... 81.042 6. júlí Ölver ... 138.801 Staða Gullpottsins 7. júlí, kl. 12:00 var 8.767.908 krónur. S í**v Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir 12.000.000 kr. og hækka síöan jafnt og þétt þar til jjeir detta. t I l ■ I VJS/LS ESd VQQA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.