Morgunblaðið - 08.07.1994, Blaðsíða 34
'34 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
Ljóska
One of my greatest
thrills was being part
of a dogsled team.
Every winter the kid
nextdoor usedto pull
me on his sled.
Eitt af því skemmtilegasta sem
ég hef gert var að vera í sleða-
hundahópi.
Þú varst aldrei í sleðahunda- Krakkarnir í næsta húsi voru van-
hópi... ir að draga mig á sleða á hverjum
vetri.
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
ALLIR vita að malbiksframkvæmdir eru nauðsynlegar, en
með smá útsjónarsemi má minnka verulega óþægindi sem
ökumenn verða fyrir.
Afram veginn
Til vegaviðgerðahetjanna í Reykjavík
Frá Sverrí Sv. Sigurðarson:
ÞÁ ER nú sumarið loksins komið.
Sólin skín hátt á lofti, blómin spretta
í haganum, býflugurnar suða og hin-
ar sívinsælu malbiksframkvæmdir
gleðja hjörtu okkar bílstjóranna enn
á ný. Það var nú um daginn að ég
var á hraðferð um borgina okkar í
ýmsum erindagjörðum.
Klukkan tifaði, tímamörk nálg-
uðust óðfluga og ég þurfti verulega
á því að halda að komast bæjarhlut-
anna á milli án tafa. Þá var skyndi-
lega komið að ógnarlangri biðröð
sem varla lúsaðist áfram með hraða
snigilsins. Röðin sú teygði sig upp
yflr hæðina og handan við, svo hvorki
var hægt að sjá hvar hún endaði né
af hvaða völdum hún var, og ekki
var annað að gera en bíða þolinmóð-
ur því þarna komst maður hvorki
afturábak né áfram.
Brotalöm í umferðarstjórnun
Of mörgum kílómetrum og alltof
mörgum mínútum síðar (voru það
tuttugu mínútur eða hálftími; eða
meira?) kom maður svo loks að ykk-
ur, malbiksgreifunum, þar sem þið
voruð á öllum þessum flottu vélum
og völturum ykkar að púla við að
fræsa upp og endurmalbika götuna.
Enn þurfti ég að silast áfram tölu-
verðan spöl þangað til að leystist úr
flækjunni og ég varð fijáls máður á
ný-.
Á þessum mínútum sem ég beið
í röðinni keyrði ég framhjá lögreglu-
manni sem stóð þarna með prik sitt
og beindi þeim sem voru á hægri
akrein að beygja útaf til hægri.
Meirihluti ökumanna, og þar með ég,
voru á vir.stri akrein og héldu sig
þar enda voru þeir á leiðinni beint
áfram en ekki uppeftir til hægri. Það
voru semsagt fæstir sem fóru eftir
bendingum lögregluþjónsins enda
höfðu þeir ekki hugmynd um og átt-
uðu slg ekki fyrr en of seint hvers
vegna lögregluþjónninn var að reyna
að beina umferðinni til hægri.
Vantar upplýsingaskilti
Og það var þarna sem ég fékk
alveg ótrúlega snjalla hugmynd:
Væri það ekki þjóðráð ef þið mynduð
taka upp það sem kollegar ykkar í
öllum öðrum löndum hins vestræna
heims hafa tíðkað í áratugi, nefnilega
það að setja upp stór og greinileg
skilti okkur ökumönnum til upplýs-
ingar, svo við getum áttað okkur í
tíma og sveigt fyrir þessar annars
ágætu framkvæmdir ykkar. Ég hefði
a.m.k. þegið það þama um daginn.
Ég verð að segja að mér finnst
það skjóta skökku við þegar það er
malbikað og gert við götur fyrir
hundruð milljóna á hveiju ári og þið
eruð sportandi á græjum sem kosta
tugi milljóna, en það er ekki hægt
að henda nokkrum tugþúsundköllum
í upplýsingaskilti sem myndu minnka
þann kostnað (er hann ekki upp á
nokkra tugi milljóna?), sem þjóðfé-
lagið verður fyrir árlega vegna um-
ferðartafa sem hljótast af þessu
umstangi. (Hvað haldið þið til dæm-
is, mínir ágætu, að ég hefði þurft
að borga ef ég hefði verið í leigubíl?)
Fyrst ég er farinn að tala um
upplýsingaskilti verður að viður-
kenna að sumir verktakar virðast
vera að reyna að taka upp þennan
ágæta sið en þó oftar en ekki af
undarlegum vanmætti. Of oft hefur
maður séð einhveijar gular spóna-
plötur sem eru vafðar í skítugt plast
og svo hefur einhver sem augljóslega
kann vart að draga til stafs krotað
eitthvað torkennilegt á plastið með
hálfónýtum tússpenna. (Þeim sem
getur lesið slíkt þegar hann þýtur
framhjá á 70 kílómetra hraða er vin-
samlegast bent á að sækja um næst
þegar auglýst verður eftir geimförum
til Mars eða nýjum forstjóra hjá
SONY eða einhveiju álíka, enda er
viðkomandi augljóslega snillingur
með ofurmannlega athyglisgáfu!)
En án gríns þá vona ég af ein-
lægni að þið, malbikshöfðingjarnir
ásamt ykkar yflrmönnum, takið ykk-
ur i)ú saman í andlitinu og farið að
sýna ökumönnum þá sjálfsögðu kurt-
eisi að gefa okkur kost á því að kom-
ast sem tafaminnst áfram í umferð-
inni.
Ef þjð gerið það sómasamlega þá
mun ég (og alveg áreiðanlega fleiri)
verða ávallt ...
yðar einlægur aðdáandi.
SVERRIR SV. SIGURÐARSON,
Birkimel 10, Reykjavík.
Gagnasafn
Morgimblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.