Morgunblaðið - 08.07.1994, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Borgarkringlan
Fjölþióðleg
list í bíla-
geymslunni
MYNDLISTARSÝNING í botn-
hluta bílageymslunnar undir
Borgarkringlunni opnar á morg-
un laugardag kl. 14. Hér er á
ferðinni samstarfshópur ungra
^^^^^^^istamanna ^ frá
landi.
Framkvæmd verkefnisins er í
höndum listamannanna sjálfra
sem njóta stuðnings nokkurra
fyrirtækja á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu, auk þess sem sendiráð
Svíþjóðar og Þýskalands styrkja
verkefnið.
Sýningarsvæðið er tæpir 4000
fermetrar og fjöldi iistamanna á
fjórða tug. Viðfangsefni og að-
gerðir eru af ólíkum toga. Þar
verða málverk, skúlptúrar, lág-
myndir, veggmyndir, ljósmyndir,
kvikmyndir, töívumyndir, video,
ísetningar, póst-list, ljóð og hljóð
og svo nokkrar uppákomur á
opnunardegi milli kl. 14.30 og
15.30.
Kristmundur í
Þrastarlundi
KRISTMUNDUR Þ. Gíslason list-
málari opnaði 4. júlí sl. sýningu
á 15 smámyndum í Þrastarlundi
í Grímsnesi.
Kristmundur sýnir þar verk
unnin með olíulitum og eru þau
flest unnin á þessu ári.
Sýningin verður opin á opnun-
artíma veitingaskálans til 17. júlí.
Að sýningunni lokinni mun hann
síðan heimsækja nokkur Eddu-
hótel norðan- og vestanlands og
halda þar sýningar í félagi við
konu sína, myndlistarkonuna
Kittu Pálmadóttur Malmquist.
Bjarni Þór með sýningu.
Bjarni Þór sýn-
ir í Gallerí
Góðverk
BJARNI Þór opnar sýningu í
Gallerí Góðverk, Skólabraut 2-4
Akranesi, dagana 9. júlí - 22.
júlí. Á sýningunni verða 30 vatns-
litamyndir.
Bjarni lauk námi frá Mynd-
lista- og handíðaskólanum ’78.
Hann hefur haldið nokkrar einka-
sýningar áður og tekið þátt í
nokkrum samsýningum.
Verk Signrðar
Kristjánssonar
í Gallerí Greip
í GALLERÍ Greip opnar sýning
á verkum Sigurðar Kristjánsson-
ar á morgun laugardag. Sigurður
er fæddur árið 1897 og mun
hann vera elsti núlifandi mynd-
listarmaður íslands.
Árið 1918 fór Sigurður til
Kaupmannahafnar í myndlist-
amám. í kjölfar þess bjó hann
og starfaði í Danmörku og Sví-
þjóð í 7 ár. Fyrsta einkasýning
Sigurðar var í Þjóðminjasafninu
1961, en síðan hefur hann sýnt
víða um landið og í Danmörku.
Myndimar á sýningunni eru allar
úr einkasafni.
Jafnframt verða nokkur verk
eftir Kristján Fr. Guðmundsson
listaverkasala á sýninguni.
Sýningunni lýkur miðvikudag-
inn 28. júlí og er opin alla daga
nema mánudaga frá kl. 14-18.
Hermína
Dóra sýnir
„Hjá þeim“
HERMÍNA Dóra Ólafsdóttir opnar
sína fyrstu einkasýningu í sýning-
arsalnum „Hjá þeim“, Skólavörðu-
stíg 6b, á morgun, laugardag, kl. 14.
Hermína sýnir myndir unnar með
blandaðri tækni, flestar á þessu ári.
Hún lauk námi frá málunardeild
Myndlista- og handíðaskóia íslands
1992 og hefur áður sýnt á skólasýn-
ingum og veitingahúsum.
Sýningin er opin frá kl. 12-18
virka daga og kl. 10-14 laugardaga.
Sýningunni lýkur 30. júlí.
HERMÍNA Dóra við eitt verka sinna.
Segðu það með myndbandi
KVIKMYNPIR
Bíóborgin
BLÁKALDUR VERULEIKI
„REALITY BITES“ ★ ★
Leikstjóri: Ben Stiller. Framleiðend-
ur: Danny DeVito og Michael Sham-
berg. Aðalhlutverk: Winona Ryder,
Ethan Hawke, Ben Stiller og
Swoosie Kurtz.
UNGA kynslóðin í Bandaríkjunum
er sögð í sérstakri tilvistarkreppu því
hún hefur ekkert til að lifa og beij-
ast fyrir, hefur engin einkenni og
er því kölluð X - kynslóðin og þótt
hún hefði markmið og einkenni
mundi hún ekki nenna að velta þeim
fyrir sér heldur miklu frekar hringja
í Dómínóspítsur og panta eina 18
tommu. Mynd Ben Stillers, Blákaldur
veruleiki, reynir að kafa í pítsakyn-
slóðina og komast að því hvaðan hún
er sprottin og hvað hún er að hugsa
og tilraun hans, Blákaldur veruleiki,
er góðra gjalda verð en einhvernveg-
inn alltaf mjög meðvituð um meint
ágæti sitt og þótt ýmislegt frumlegt
sé að finna í persónugerðinni reiðir
hún sig á endanum á gömlu góðu
ástarsöguna, sem maður hefur séð
fyrir endann á jafnvel áður en hún
byijar.
Atriði úr myndinni
Bláköldum veruleika.
Leikstjórinn Stiller, sem einnig fer
með hlutverk klisjukennds uppatet-
urs í myndinni, er umhugað um að
ná athygli pítsakynslóðarinnar og
þess vegna er áhorfandinn kominn
inn í tónlistarmyndband áður en hann
veit af. Nokkrum er plantað hér og
hvar um myndina því Stiller þykir
best að segja það með tónlistarmynd-
bandi sem honum fínnst skipta máli.
Einnig spila myndbandsupptökur
stóra rullu í frásöguhættinum því ein
persónan er að gera heimildarmynd
um félaga sína og líklega kynslóðina
alla, eins frumlegt og það nú er. Svo
myndin er sífelldum breytingum háð
í frásögninni og þrátt fyrir einlægan
leik kemur það út eins og heilmiklir
stælar í Stiller.
Winona Ryder er ein í fjögurra
vina hópi sem myndin fylgist með
eftir háskólanám. Fjölskylda hennar
er skrípamynd - engin fjölskylda
þessara vina virðist eðlileg - vinnan
er ömurleg og ástamálin í hnút. Win-
ona getur leikið og það fleytir henni
og myndinni mjög áfram en öðru
máli gegnir um Ethan Hawke. Hann
leikur fluggreindan vin hennar sem
á í mestu tilvistarkreppunni og þú
veist það af því hann er sóðalegur í
útliti alveg upp í vandlega klístrað
hárið; það er eins og hann hafí greitt
sér með einhveiju úr baðherbergi
Mickey Rourké. Hawke er svo góður
með sig og útreiknanlegur að hann
er óþolandi í hvert skipti sem hann
birtist. Aðrar persónur í vinahópnum
skipta minna máli en eru mun
skemmtilegri.
Það eru ágætir punktar í mynd-
inni ef maður lítur framhjá innan-
tómu stælunum í frásagnaraðferð-
inni og mörg samtölin eru fyndin og
virka vel. Þetta fólk skilur ekki af
hveiju lífið getur ekki verið eins og
einn af þessum fjölskylduþáttum
sjónvarpsins þar sem vandamálið er
alltaf leyst áður en þátturinn endar.
í lífinu endar þátturinn aldrei. Það
er blákaldur veruleiki pítsakynslóð-
arinnar.
Arnaldur Indriðason
Nýtt útbob spariskírteina
ríkissjóbs fer fram í dag,
föstudaginn 8. júlí
kostur á aö gera tilboð í spariskír-
teinin samkvæmt tiltekinni
ávöxtunarkröfu. Lágmarkstilboö er
kr. 5.000.000 að nafnverði.
Aörir sem óska eftir að gera tilboð í
spariskírteinin era hvattir til að hafa
samband við framangreinda aðila,
sem munu annast tilboðsgerð fyrir
þá og veita nánari upplýsingar.
Öll tilboð í spariskírteinin þurfa að
hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir
kl. 14:00 í dag, föstudaginn 8. júlí.
Tilboðsgögn og allar nánari
upplýsingar era veittar hjá
Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6,
í síma 62 40 70.
í dag kl. 14:00 fer fram nýtt útboð á.
spariskírteinum ríkissjóðs. Um er að
ræöa hefðbundin, verðtryggð
spariskírteini í eftirfarandi flokkum:
Þessir flokkar verða skráðir á Verðbréfa-
þingi íslands og verður Seðlabanki
Islands viðskiptavaki þeina.
Spariskírteinin verða seld með tilboðs-
fyrirkomulagi. Löggiltum verðbréfa-
fýrirtækjum, verðbréfamiðluram,
bönkum og sparisjóðum gefst einum
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 40 70.
Morgunblaðið/Golli
DR. PAOLO, dr. Antonio og Jón Karlsson útgefandi.
Fyrsta íslensk-ítalska
orðabókín komin út
ÚT ER komin hjá Iðunni íslensk-
ítölsk orðabók eftir dr. Paolo Maria
Turchi. í bókinni eru um þijátíu
þúsund uppflettiorð og annað eins
af orðasamböndum. Þar er einnig
að fmna yfir eitt hundrað þúsund
notkunardæmi. Gerð bókarinnar
tók í heild um fjögur ár en þar af
tók það dr. Paolo þrjú ár að vinna
handritið frá grunni. Þessi orðabók
er sú fyrsta sinnar tegundar. Höf-
undur hennar er nú hálfnaður við
gerð nýrrar orðabókar, ítalsk-
íslenskrar. í viðauka bókarinnar er
ítalskt málfræðiágrip, en slíkt hefur
ekki verið gefið út hér á landi síðan
á fimmta áratugnum, að sögn Jóns
Karlssonar útgefanda hjá Iðunni.
Höfundurinn afhenti ítalska
sendiherranum á íslandi fyrsta ein-
tak orðabókarinnar. Við það tilefni
sagði hann að við gerð bókarinnar
hefði hann haft það að leiðarljósi
að orðaforði hennar spannaði sem
flest svið. Hann hefði lagt áherslu
á daglegt nútímamál en jafnframt
haft í huga að lesendur bókmennta
og eldri texta fyndu þau orð, sem
líklegt er að þeir rækjust á. Þá
væru einnig tekin með orð úr fjöl-
miðlum og talmáli.
Dr. Paolo Maria Turchi lauk
doktorsprófí í klassískum málum
við háskólann í Macerata á Ítalíu
1988, þá 23 ára gamall. Hann hóf
síðan nám í íslensku fyrir erlenda
stúdenta við Háskóla íslands. Hann
er íslenskur ríkisborgari. Bókin
kostar 6.800 kr.