Morgunblaðið - 08.07.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.07.1994, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Ámi Sæberg ANN Wallström fíðluleikari og Ulf Söderberg orgelleikari leika á Sumartónleikum í Skálholtskirkju um helgina. Hús Guðs og helgur söngur Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir MEGAS á Drög að upprisu-tónleikunum í MH. ANN Wallström fíðluleikari, Ulf Söderberg orgelleikari og Anna Magnúsdóttir semballeikari leika ásamt Bachsveitinni á Sumartón- leikum í Skálholti um helgina. Ann Wallström útskrifaðist frá Kungliga Musikhögskolan í Stokk- hólmi og hefur mikið fengist við einleik og kammertónlist síðan. Auk þess að spila á nútímafíðlu spilar Ann á fyrri tíma hljóðfæri. Hún hefur mikið starfað sem konsert- meistari, leiðari og leiðbeinandi. Hún hefur verið konsertmeistari Bachsveitarinnar í Skálholti frá upphafi eða frá árinu 1986. Einnig hefur hún kennt flutning barokk- tónlistar. Frá árinu 1993 hefur Ann starfað við dómkirkjuna í Linköping þar sem hún er leiðari kammer- hljómsveitar og ábyrgðarmaður alls tónlistarflutnings. Orgelleikari 15 ára Ulf Söderberg orgel- og sembal- leikari útskrifaðist frá Kungliga Musikhögskolan í Stokkhólmi að- eins 15 ára gamall og varð þar með yngsti orgelleikari Svíþjóðar. Ulf fékk styrk frá Musikaliska Aka- demien og gat því stundað frekari nám í tónlist fyrri tíma við Schola Cantorum í Basel og Tónlistarhá- skólann í Stuttgart. Hann vinnur nú að doktorsritgerð við háskólann í Gautaborg og fjallar hún aðallega um túlkun barokktónlistar. Ulf hef- ur haldið marga tónleika bæði sem stjórnandi, organisti og semballeik- ari. Hann hefur starfað mikið við kórstjóm og hefur hlotið lof fyrir. Anna Magnúsdóttir hóf nám í píanóleik hjá Gísla Magnússyni en útskrifaðist úr tónmenntakennara- deild Tónlistarskólans í Reykjavík vorið 1978. Sjö árum síðar hlaut hún doktorsgráðu í tónlistaruppeldi frá háskólanum í Illinois í Banda- ríkjunum. Anna stundaði nám í semballeik jafnhliða doktorsnám- inu. Hún lauk einleikaraprófí frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vor- ið 1990 en kennari hennar var Helga Ingólfsdóttir. Anna hefur komið fram sem einleikari og tekið þátt í flutningi kammertónlistar. Hún kennir við Tónlistarskólann í Reykjavík og semballeik við Tónlist- arskóla Garðabæjar. Onnur tónleikahelgi Sr. Guðmundur Óli Ólafsson opn- ar þessa tónleikahelgi með erindi, sem nefnist Hús Guðs og helgur söngur, klukkan 14.00 á laugardag- inn í Skálholtsskóla. Á fyrri tónleik- um laugardagsins klukkan 15.00 munu Ann Wallström og Ulf Söder- berg flytja ítölsk verk frá 17. öld fyrir fiðlu og orgel. Klukkan 17.00 leikur Bachsveitin í Skálholti ásamt Önnu Magnúsdóttur semballeikara og Ulf Söderberg orgelkonsert ewftir G.F. Hándel, pars III og VI úr Mensa Sonora fyrir fjóra strengi og fylgirödd eftir H.I.F. Biber, sem- balkonsert og hljómsveitarsvítu eft- ir J.S. Bach. Á sunnudag klukkan 15.00 verður síðari efnisskrá laugardagsins endurflutt en í messu klukkan 17.00 flytja Ann Wallström og Ulf Söderbverg samleiksverk. Boðið verður upp á bamapössun á staðnum og hægt er að kaupa veitingar í Skálholtsskóla. Aðgang- ur er ókeypis. Drög að upp- risu TÖNLIST T ó n I c i k a p I a I a DRÖG AÐ UPPRISU Drög að upprisu, tónleikar Megasar og Nýdanskrar í hátíðarsal Mennta- skólans við Hamrahlið. Flytjendur Magnús Þór Jónsson, Björn Jörundur Friðbjömsson, Daníel Agúst Har- aldsson, Stefán Hjörleifsson, Ólafur Hókn Einarsson, Guðlaugur Kristinn Óttarsson, Kristbjörg K. Sólmunds- dóttir og Margrét Sigurðardóttir. Japís gefur út 77,36 mín. 1.990 kr. TÓNLEIKAR Megasar og Sjálfsmorðssveitarinnar í Mennta- skólanum við Hamrahlíð og gefnir voru út á plötu undir heitinu Drög að sjálfsmorði, eru mörgum Meg- asaraðdáendum í fersku minni fimmtán árum eftir tónleikana. í tilefni þeirra voru haldnir tónleikar á sama stað seint á síðasta ári undir heitinu Drög að upprisu og gefnir voru út fyrir skemmstu. Ekki verður hér fárast yfir heiti tónleikanna síðasta haust þó þeir gæfu í skyn að Megas væri að „snúa aftur“, en þeir sem á annað borð fylgjast með vita að hann hefur starfað af fullum þrótti síð- ustu ár og vonandi ekkert lát á. Á tónleikunum fengu áheyrendur reyndar að heyra sitthvað nýmeti sem ekki er á plötunni, en ekki er ástæða til að sýta það, því mörg laganna eru í-all nýstárlegri útgáfu og skemmtilegri. Tónleikamir hófust á að leikinn var kór úr óratóriunni Jósúa eftir Handel; bráðsnjöll hugmynd í tón- leikasamhengi, en ekki eins snjöll þegar verið er að hlusta á diskinn í tíunda sinn. Að því töldu má segja að hvergi sé snöggan blett að finna á disknum, sem er tví- mælalaust besta útgáfa ársins, a.m.k. hingað til. Lagalisti er nán- ast safn helstu laga Megasar gegnum tíðina, þó flestir geti talið upp einhver uppáhaldslög sem þeim finnst vanta því af nógu er að taka. Aðeins smekksatriði, fyrsta lag disksins á eftir Handelkórnum, gefur tóninn fyrir það sem á eftir kemur, því þar ná Nýdanskir og Megas undraverðri samstillingu og næsta lag á eftir, sagan af silfri Egils, sem þótti ægileg goðgá í upphafi áttunda áratugarins, er lítt síðra. Þannig fæst við hveija hlustun ný innsýn í lögin, sem menn hafa þó heyrt ótal sinnum áður; því útsetningamar gæða þau nýju lífi, án þess þó að þau glati ættarsvipnum. Gaman er og að heyra hvemig Megas breytir á stundum textum laganna, til að mynda í Þóttú gleymir guði. Hápunktur tónleikanna er lík- lega Litlir sætir strákar, geysilega skemmtilega flutt, en til greina í þann sess koma líka Ef þú smælar framan í heiminn í skemmtilega gamaldags útsetningu, Aðeins smekksatriði og Orfeus og Evri- dís. Krókódílamaðurinn er aftur á móti full fágaður, í það minnsta fyrir þá sem þekkja upprunalega ómstríða útgáfu, og er á köflum nánast skopstæling. Ógetið er lagsins Horfðu til himins eftir þá Nýdanska, sem er frábærlega flutt og sérdeilis skemmtilegt innlegg í frábæran og eigulegan disk. Árni Matthíasson Gítarhátíð á Akureyri Opið námskeið ogtónleikar 12. til 16. júlí Akureyri - Þriðja gítarhátíðin með tónleikum og opnu námskeiði fyrir langt komna nemendur og atvinnu- menn í gítarleik verður haldin á Akureyri dagana 12.-16. júlí. Að þessu sinni er kennari á hátíðinni einn af fremstu og eftirsóttustu gítarkennurum i heimi, Oscar Ghiglia, sem meðal annars hefur á ferli sínum verið aðstoðarkennari gítarsnillingsins André Segovia. Ghiglia er, auk þess að vera í röð fremstu kennara, mikill gítarleik- ari og hefur haldið tónleika víða um heim og gefið út hljómplötur með leik sínum. Liður í Gítarhátíð á Akureyri eru tónleikar, sem haldnir verða alla námskeiðsdag- ana. Oscar Ghiglia leikur á fyrstu tónleikunum en dagskráin í tón- leikaröðinni spannar allt frá klas- sík þekktustu gítarmeistara og yfir í blústónlist okkar daga. Gítarhátíð á Akureyri er haldin undir stjórn og að frumkvæði Am- ar Viðars Erlendssonar, forstöðu- manns gítardeildar Tónlistarskól- ans á Akureyri. Að sögn hans hef- ur hátíðin þróast á mjög vænlegan veg og dagskráin verið með hveiju ári vandaðri og eftirsóknarverðari. Á fyrstu tveimur hátíðunum var kennari Amaldur Amarson, sem starfar í Barcelona á Spáni. Að þessu sinni segist Öm hafa verið afar heppinn að ná sambandi við meistarann ítalska, Oscar Ghiglia, sem af einhveijum ólýsanlegum sökum hafi átt lausar stundir í vikutíma einmitt á þeim tíma sem gítarhátíð er að vanda haldin. Það sé hátíðinni og íslenskum gítarlei- kurum og unnendum gítartónlistar geysilegur fengur að fá Ghiglia hingað. Einkaframtak stutt af einstaklingum og fyrirtækjum Örn Viðar er upphafsmaður og stjómandi Gítarhátíðar á Akur- eyri. Hann segir að kostnaður við að halda svo viðamikla gítarhátíð sem þessa sé mikill og ekki væri mögulegt að halda úti þessu starfi ef ekki kæmi til verulegur fjár- hagslegur stuðningur foreldra og aðstandenda núverandi og fyrrver- andi nemenda gítardeildar tónlist- arskólans, margra áhugamanna um gítartónlist, fjölmargra fyrir- tækja að ógíeymdum stærstu styrktaraðilunum, menningar- málanefnd Akureyrarbæjar og Tónlistarskólanum á Akureyri. Öm Viðar telur að íslandsferð Ghiglia verði mikil tímamót og upplifun fyrir þá sem sækja Gítar- hátíð á Akureyri að þessu sinni, hann flytji með sér ferska strauma og fjölmargar nýjungar, bæði í kennslu sinni og tónleikahaldi. Fyrst klassík - svo blús Á Gítarhátíð á Akureyri verða tónleikar öll kvöld. Á fyrstu tón- leikunum í Akureyrarkirkju 12. júlí kl. 20.30 leikur Oscar Ghiglia fjölbreytt verk, allt frá meisturun- um Bach og Scarlatti til tónskálda þessarar aldar á borð við Darius Milhaud. Daginn eftir, 13. júlí, verða tón- leikar á sama stað og sama tíma og þar leika Einar Kristján Einars- son gítarleiakri og Martial Narde- au flautuleikari verk meðal annars eftir Giuliani, Villa-Lobos, Piazolla og Lárus Grímsson. Á tónlefikunum í Akureyrar- kirkju að kvöldi 14. júlí leikur Arn- aldur Arnarson og er dagskráin að meginhluta með verkum eftir Fernando Sor. Nemendatónleikar verða í Deigl- unni 15. júlí kl. 18. Þar leika nem- endur á opnu námskeiði gítarhátíð- ar verk sem þeir hafa unnið að þar undir leiðsögn Oscars Ghiglia. Lokatónleikar Gítarhátíðar á Akureyri verða í Deiglunni 16. júlí klukkan 20. Þar kveður við annan tón en dagana á undan. Þá kemur fram Kristján Kristjánsson, KK, sem jafnan leikur með hljómsveit sinni, KK bandi, en leikur hér ásamt öðrum blússnillingi íslenskum, Guð- mundi Péturssyni, sem helst hefur leikið hérlendis og erlendis I Vinum Dóra og Tregasveitinni. Guðmund- ur leggur auk þess stund á klassísk- an gítarleik og er einn nemenda á Gítarhátíð á Akureyri. Þeir félagar munu leika sígilda blústónlist auk verka eftir KK. Nám og skemmtun Öm Viðar segir að nemendur á opna námskeiðinu, sem fram fer í Tónlistarskólanum á Akureyri, verði á bilinu 10-15, en fleiri geti þeir ekki verið. Þetta sé áhugasam- ur hópur, mest langt komnir nem- endur, en helst sakni hann þátt- töku starfandi gítarleikara og -kennara, sem þarna ættu fullt erindi. Auk þess verði áheyrnar- nemendur allmargir, en þeim Q'ölgi með ári hverju. Tónleikadagskráin hafi aldrei verið eins fjölbreytt og nú og það sé von hans að bæði Norðlendingar og ferðamenn fjöl- menni á tónleikana og njóti sér- stæðrar listar framúrskarandi listamanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.