Morgunblaðið - 08.07.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.07.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994 17 LISTIR Þriðjudagstónleikar í Sigmjónssafni Hugleiðingar um tilveru manna og ástarsöngvar Á SÖNGTÓNLEIKUM í Listasafni Sigurjóns næstkomandi þriðjudag fara þær Hólmfríður Benediktsdóttir sópran og Helga Bryndís Magnús- dóttir píanóleikari úr kímni Steins Steinarrs og þönkum hans um lífið og tilveruna í hugleiðingar írskra einsetumanna á miðöldum. Ástkona Goethes orti ljóðin sem Hólmfríður syngur síðan og sænsk ljóðskáld eiga lokaorðin um ást og trega. Helga Bryndís Hólmfríður Magnúsdóttir Benediktsdóttir Hólmfríður lauk burt- fararprófi frá Tónlistar- skóla Kópavogs 1980 en þar kenndu henni Elísabet Erlingsdóttir og Guðrún A. Kristinsdóttir. Fram- haldsmenntun sótti hún svo vestur um haf í Blo- omingtonháskóla og lauk þaðan prófi 1990. Kenn- arar hennar jdra voru Roy Samuelsen og Klara Barlow. Hólmfríður kenn- ir nú við Tónlistarskólann á Akureyri og Borgarhóls- skóla á Húsavík auk þess sem hún stjómar barna- kór Akureyrarkirkju. Helga Bryndís lærði píanóleik hjá Jónasi Ingimundarsyni við Tónlistarskólann í Reykjavík og stundaði framhaldsnám við tónlist- arháskólann í Vín og Sibelíusar-aka- demíuna í Helsinki. Hún hefur haldið ijölda tónleika ein og með öðrum, er félagi í Caput-hópnum og kennir nú við Tónlistarskólann á Akureyri. Þar hófst fyrir tveim sumrum sam- starf þeirra Hólfríðar. „Vort líf, vort líf, Jón Pálsson" orti Steinn Steinarr og Jórunn Viðar samdi lag sem nokkuð hefur verið deilt um. Hólmfríður syngur þetta lag á tónleikunum og sömuleiðis annað eftir sömu höfunda sem heyr- ist mun sjaldnar. Það heitir „Hvítur hestur" og eflaust kannast ýmsir við ljóðið þótt það það sé ekki eins þekkt og „Bam“ og „Það vex eitt blóm fyrir vestan“. Guðrún J. Þorsteins- dóttir píanóleikari samdi lögin við tvö síðarnefndu ljóðin. Lagaflokkurinn Hermit Songs eða söngvar einsetumanns var frumflutt- ur í Bandaríkjunum 1953 af höfund- inum Samuel Barber og Leontyne Price. Ljóðin em talin ort af írskum munkum milli 8. og 13. aldar, en Hólmfríði finnst ýmislegt benda til að einhver þeirra séu eftir nunnur. „Suleika ljóðin" eftir Franz Schu- bert eru hárómantísk við ljóð eftir Marianne von Willemer. Hún er eink- um þekkt af sambandi sínu við Goet- he og lengi vel var ljóðaflokkurinn „Aus dem westöstlichen Divan“, sem þessi erindi eru úr, talinn eftir hann. Eftirvænting og söknuður elskenda eru hér yrkisefni en síðar kveður við tregafyllri tón. Jean Sibelius samdi lög við ljóð nokkurra sænskra skálda um þrá þess sem elskar án þess að ástin sé endurgoldin. Á þeim nótum lýkur tónleikum Hólmfríðar og Helgu Bryndísar í safninu á Laugarnesi. Fjórir listamenn á Hulduhólum ANNA Eyjólfsdóttir, Björn Birnir, Helga Magnúsdóttir og Steinunn Marteinsdóttir sýna saman á ár- vissri sumarsýningu á Hulduhólum í Mosfellsbæ sem opnuð verður á morgun, laugardag, klukkan 14. Anna sýnir skúlptúrverk unnin í lopa og verk þar sem viðfangsefn- VASI eftir Steinunni Marteinsdóttur. ið er upplifun hennar á æskunni. Hún tók seinast þátt í samsýningu í Seltjarnarneskirkju árið 1990. Björn sýnir málverk, einkum af söndunum á Suðurlandi og um- hverfi þeirra. Hann hélst síðast einkasýningu í FÍM salnum árið 1992. Helga sýnir einnig málverk. Hennar helsta við- fangsefni er ljósið, íslensk birta eða hið huglæga ljós eins og hún orðar það sjálf. Hún sýndi fyrr á þessu ári í AKÓGES- húsinu í Vest- mannaeyjum. Steinunn sýnir keramikverk, lág- myndir úr leir, en einnig skálar og ný form í vösum. Einn þeirra er sýndur hér til hlið- ar. Sumarsýningin á Hulduhólum stendur í sex vik- ur. Henni lýkur 21. ágúst og opið er frá klukkan tvö til sex síðdegis alla daga vikunn- ar nema mánu- daga. An sessu Norðurtanga 3 Akureyri Skeifunni 13 Reykjavík Auðbrekku 3 Kópavogi Reykjarvíkurvegi Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.