Morgunblaðið - 08.07.1994, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
PLO og ísraelar halda viðræðum áfram
Sátt muni nást
um Jerúsalem
Jerúsalem, París. Reuter.
LEIÐTOGAR Frelsissamtaka Palestínu (PLO) og ísraels, þeir Yasser
Arafat og Yitzhak Rabin, hafa sæst á að halda áfram fundum, um
hvernig næstu skrefum sjálfsstjórnar Palsestínumanna verði háttað,
í Kaíró á mánudag. Þótt þessir aðilar séu íjarri því að vera sáttir
um framtíð Jerúsalemborgar, segir Yossi Beilin, aðstoðarforsætisráð-
herra ísraels, að sá vandi sé yfirstíganlegur og að sátt muni nást í
því efni á lokastigi friðarviðræðnanna.
Lausn hljóti að finnast
„Ég er ekki að halda því fram
að ísraelar séu reiðubúnir til þess
að gefa eftir núna hvað Jerúsalem
varðar,“ sagði Beilin við frétta-
menn í gær. „En ég held að þar
eð við erum tilbúnir til þess að
fylgja Palestínumönnum eftir í
mörgum öðrum málum, þá hljóti
einnig að finnast lausn á deilunum
um Jerúsalem." Sagði Beilin að
samningur um borgina helgu
myndi nást þegar báðir aðilar
hefðu öðlast „skilning á rauðu
strikum hvors annars.“
Israelar hertóku og innlimuðu
austurhluta borgarinnar í stríðinu
árið 1967. Þeir segja að öll borgin
hljóti að vera hin eilífa höfuðborg
ríkisins. Palestínumenn vilja að
austurhluti borgarinnar verði höf-
uðborg sjálfstæðs, palestínsks ríkis.
Frekari fundir í Kaíró
í sameiginlegri yfirlýsingu Ara-
fats og Rabins í gær sagði meðal
annars að Arafat myndi kalla sam-
an Þjóðarráð Palestínu í Gaza til
þess að ræða breytingar á Þjóðar-
sáttmála Palestínumanna^ en í
honum er kveðið á um að Israels-
ríki skuli eytt.
Simpson-málið
Sönnunar-
gögn leyfð
Los Angeles. Reuter.
DÓMARI í yfirheyrslum yfir
leikaranum og fyrrum ruðn-
ingshetjunni O.J. Simpson
ákvað í gær að leyfa að
sönnunargögn, sem lögregla
tók á heimili Simpsons án
húsleitarheimildar, verði lögð
fram. Er það veijendum hans
mikið áfall en þeir höfðu kraf-
ist þess að sönnunargögnin
yrðu ekki leyfð, þar sem lög-
regla hefði brotið á rétti um-
bjóðanda þeirra með því að
fara inn á heimili hans í leyfis-
leysi.
Simpson er sakaður um að
hafa orðið fyrrum eiginkonu
sinni og vini hennar að bana
í síðasta mánuði. Sagði dóm-
arinn, að lögregla hefði haft
viðunandi ástæðu til að óttast
að fleiri fórnarlömb væru inni
í húsinu.
Reuter
NATO mun stækka í austur
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, sagði í gær, að það væri
aðeins spurning um tíma hvenær
ungu lýðræðisríkin í Mið- og
Austur-Evrópu fengju aðild að
Atlantshafsbandalaginu, NATO,
og lagði áherslu á, að við því
væri ekkert neitunarvald til.
Kom þetta fram í ræðu, sem
hann flutti í pólska þinginu, en
þar sagði hann einnig, að aldrei
framar ættu önnur ríki að ráða
öriögum Póllands. í dag fer
Clinton til Napólí á Ítalíu á leið-
togafund iðnrikjanna sjö. Hér er
hann, með gyðingakollu á höfði,
að leggja blómsveig að minnis-
merki um gettóið í Varsjá.
Flugmennirmr neita
að fara í
Charlotte. Reuter.
FLUGMAÐUR og aðstoðarflugmaður
DC-9 vélar USAir flugfélagsins, sem
brotlenti í Charlotte um helgina, hafa
neitað að láta taka úr sér blóðsýni,
að sögn Bandaríska flugmálaeftirlits-
ins. Þijátíu og sjö fórust í slysinu.
Talsmaður eftirlitsins sagði að
aðeins hefðu fengist þvagprufur
mannanna, sem Ieitt gætu í ljós
hvort þeir hefðu neytt eiturlyfja.
Hins vegar væri ekki hægt að mæla
áfengismagn í þvagi og því þyrfti
blóðpróf
blóðprufu. Samkvæmt bandarískum
lögum er mönnum fijálst að neita
að hún verði tekin.
Brotlendingin varð í aðflugi í
miklu þrumuveðri. Segjast flug-
mennirnir hafa hætt við lendingu
vegna veðursins en ekki hafi tekist
að taka vélina á loft að nýju. Högg-
vindur, eða vindaskil, hafi valdið
slysinu, en þeir voru varaðir við því
að slíkt gæti gerst, fáeinum mínút-
um áður en slysið varð.
Skóg’areldar og flóð verða
30 manns að fjörtjóni
Atlanta, Glenwood Springs. Reuter.
AÐ minnsta kosti 30 hafa látið lífið
í skógareldum og flóðum í Banda-
ríkjunum síðan á þriðjudaginn. Tólf
slökkviliðsmenn létust þegar þeir
lentu í hraðfara skógareldum í
Klettafjöllum, og 13 hafa látist í
flóðum í suð-austurríkjunum.
Hægfara hitabeltisstormur hefur
valdið gifurlegu úrfelli í Alabama
og Georgíu síðan snemma á þriðju-
dag, og hafa 17 manns drukknað
í miklum flóðum af þeim sökum.
Drykkjarvatn um 250 þúsunda
manna er í hættu vegna flóðanna,
og tíu þúsund hafa orðið af raf-
magni.
Króuðust af
Einhveijir verstu skógareldar
sem orðið hafa í Bandaríkjunum
kviknuðu af völdum eldingar um
síðustu helgi, nærri ferðamanna-
staðnum Glenwood Springs, í Col-
orado. Slökkviliðsmennirnir höfðu
náð tökum á eldunum í fýrradag,
þegar skyndilega hvessti og eldur-
inn tók að breiðast út með um 30
km hraða á mínútu. Að sögn frétta-
manns sjónvarpsstöðvar í Glenwood
Springs króuðust slökkviliðsmenn-
irnir af milli tveggja elda. Tveggja
er enn saknað. Rúmlega 240
slökkviliðsmenn, búnir þyrlum og
flugvélum, voru sendir á staðinn í
fyrradag, en ekki hefur tekist að
ná tökum á eldunum aftur.
Reuter
Guðsþjónusta
í Rúanda
UNGUR Hútúmaður í flótta-
mannabúðum nærri Gikongoro
í Rúanda grípur í kjól móður
sinnar, sem á er mynd af Jó-
hannesi Páli H páfa. Þarna fór
fram guðsþjónusta, en rúmlega
600 flóttamenn eru í búðunum.
í höfuðborginni Kigali varð sá
atburður í gær að flugvél með
hjálpargögn og liðsauka á veg-
um Sameinuðu þjóðanna lenti á
flugvellinum, sem hefur verið
lokaður síðan í byijun júní. Þetta
er því fyrsta vélin sem kemur
til vallarins í margar vikur.
Izetbegovic
hlynntur
skiptingu
ALIJA Izet-
begovic, for-
seti Bosníu,
sagði í gær að
múslimar
ættu að sam-
þykkja nýja
friðaráætlun
Vesturveld-
anna og
Rússa um skiptingu Bosníu,
jafnvel þó hún væri að sumu
leyti slæm. Það væri í þágu
Bosníu-Serba, höfnuðu músl-
imar áætluninni. Radovan
Karadzic, leiðtogi Bosníu-
Serba, sagði að áætlunin gæti
orðið grundvöllur að fram-
tíðarsamkomulagi um skipt-
ingu landsins.
Stöðvið
snákaát
KÍNVERSK yfirvöld hvöttu
landsmenn í gær til að eta
ekki upp til agna alla snáka í
landinu. Hafa Kínveijar orðið
æ meðvitaðri um það sem þeir
láta ofan í sig og eru sjaldgæf-
ar dýrategundir, sem taldar
eru hafa lækningamátt, ofar-
lega á vinsældalistanum. Efst
tróna snákar ýmiskonar, þó
ólöglegt sé að veiða þá, og eru
margar tegundir í útrýmingar-
hættu.
Gorbatsjov
ber vitni
MÍKHAÍL
Gorbatsjov,
fyrrum leið-
togi Sovétríkj-
anna, kom í
gær fyrir rétt
í Rússlandi
þar sem hann
bar vitni fyrir
herforingja,
sem þátt átti í valdaránstil-
rauninni 1991, þegar steypa
átti Gorbatsjov af stóli. Var
þetta fyrsti fundur hans og
herforingingjans, Valentíns
Varenníjkovs, frá valda-
ránstilrauninni. Talið er að
Gorbatsjov vilji í stjórnmál að
nýju og þóttu orð hans í yfir-
heyrslunum benda til þess, en
hann hvatti til einhvers konar
endurreisnar Sovétríkjanna.
Sagði hann lífið sjálft krefjast
þess að fólk móðurlandsins
yrði sameinað að nýju, undir
nýjum formerkjum, með þolin-
mæði og þrautsegju.
Rannsókn á
meyfæðingu
BRESK heilbrigðisyfirvöld
hyggjast kanna mál konu sem
eignaðist barn fyrir fjórum
árum en hefur aldrei haft
kynmök, að sögn Virginiu
Bottomley heilbrigðisráð-
herra. Málið snýst um hjúkr-
unarkonuna Marilyn Wright,
sem fæddi soninn Jonas eftir
að hafa reynt í átta ár að verða
með barni með gervifijóvgun.
Segir ráðherra að samkvæmt
lögum um gervifijóvganir
verði að hafa velferð barnsins
í huga, þar á meðal þörf þess
fyrir föður.
Izetbegovic