Morgunblaðið - 08.07.1994, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 08.07.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREIIMAR Foxtrott Þórarins Eldjáms ÞRIÐJUDAGINN 5. júlí birtist grein Þórarins Eldjáms um silfurrefi og silfur- skottur. í greininni er farið með staðlausa stafi og furðu sætir hvar Þórarinn hefur fengið upplýsingar sínar. Nokkrum aðil- um er stillt upp eins og í heilagra manna sögu væri, en það era alls ekki góðverk eða jarteikn sem höfundur imprar á. Um sérfræð- inginn dr. James Gra- ham-Campbell er fjall- að eins og hann sé falsspámaður. Að sögn Þórarins hitti Þór Magnússon aldrei dr. Graham- Campell. Þetta er fjarstæða. Þór Magnússon borðaði hádegisverð með undirrituðum, öðrum starfs- manni Þjóðminjasafns íslands, og Graham-Campbell á veitingahúsi í Reykavík 3. júní. Þar var talað lengi um niðurstöðu hans. I hófi daginn eftir var einnig rætt um málið. Þór var einnig á Þjóðminja- safninu þá daga sem Graham- Campell var þar. Það reyndist þó varla hægt að koma þessum fundi þeirra í kring, en ekki var það ég eða Graham-Campbell sem áttum í erfiðleikum með það. Guðmundur Magnússon, fráfarandi þjóðminja- vörður, ætlaði einnig að vera við hádegisverð þennan en gat ekki komið vegna fundar. Ég man ekki betur en að ég hafi séð Þórarin Eldjárn á hjóli er við ókum til veitingastaðarins. Þórarinn segir mig hafa gufað upp. Hvar Þórarinn fær slíkar upplýsingar veit ég ekki. Hann hefur náttúrulega ekki yfiramsjón með sumarleyfum starfsmanna Þjóðminjasafns ís- lands. Ég var í Suður- sveit og Skaftafelli í sumarleyfi með konu minni og tengdamóður minni danskri, sem ákveðið hafði að koma í þessari viku fyrir u.þ.b. hálfu ári síðan. Ég var fýrir löngu búinn að ákveða þetta frí. Ég var mjög efnis- kenndur í Suðursveit og gufaði aldrei upp. Þórarinn kvartar yfir að ég hafi ekki ritað neitt um sjóðinn, síðan mér datt í hug að ekki væri allt með felldu. Ég veit ekki hvaðan Þórarinn Eldjárn hefur það. Rétt er að ekki hef ég skrifað lærða grein um sjóðinn eins og gert var 1980. Að ósk Þórs Magnússonar hafði ég ekki hátt um þétta mál og ég viður- kenni fúslega að ég er enginn sér- fræðingur í silfri. Ég taldi eðli- legra að einn fremsti sérfræðingur í silfri víkingaaldar segði eitthvað um sjóðinn frekar en ég. Ég er nefnilega ekki kominn í hóp þeirra manna, hverrra skrif eru friðhelg. Þórarinn hefur heldur ekki gert sér grein fýrir því að Þór Magnús- syni var vel kunnugt um efasemd- ir um silfrið þegar árið 1988. Þá þegar vissi hann álit dr. James Graham-Cambells. Þar sem Þór skrifaði lærða grein um sjóðinn árið 1980 ætti að teljast eðlilegt að hann kynnti sér málið. Það var því þjóðminjavörður sem þagði í 6 ár en ekki ég. Þórarni Eldjárn er ekki kunnugt um flest atriði í þessu máli enda leitaði hann ekki í refabú silfurref- anna. Hann lagðist í rangt greni og hefur hugsanlega hitt fyrir tóf- Þórarni Eldjám er ekki kunnugt um flest atriði í þessu máli, segir Vilhjálmur Öm Vilhjálmsson, enda leitaði hann ekki í refabú silfurrefanna. ur og dratthala og jafnvel merði nokkra lausmálga. Ef Þórarinn hefði viljað fá upplýsingar hefði hann átt að hringja í mig eða Þór Magnússon þjóðminjavörð. Ég er t.d. í símaskránni. Þegar ég ætlaði að hringja í Þórarin og skýra út fyrir honum að hann hefði farið með rangt mál, þá uppgötvaði ég að það er Þórarinn sem hefur gufað upp. Þórarinn er nefnilega ekki í símaskránni. Ég er hjartanlega sammála Þór- arni um að yfirvöld rannsaki þetta mál. Enginn hefur farið fram á annað. Hingað til hefur hvorki þjóðminjavörður né menntamála- ráðuneytið beðið mig um gögn. Hins vegar hef ég látið núverandi þjóðminjaverði í té bréf frá hjónun- um á Miðhúsum. Það fólk hafa fjölmiðlar að vissu leyti tengt hugsanlegri fölsun sjóðsins, þótt að fjölmiðlar hefðu engin gögn um það. í því bréfi kemur í ljós, að bóndinn á Miðhúsum kann málm- smíðar. Þar kemur einnig í ljós að á sama stað og Kristján Eld- járn og Þór Magnússon grófu nið- ur á óhreyfð lög árið 1980, í eins dags rannsókn sinni, komu í ljós eldstæði og jafnvel smiðja haustið Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson Nýr félagshyggjuflokkur eða gamalt vín á nýjum belgjum? SAMTÖK um Kvennalista voru stofnuð 1983 í þeim tilgangi að bjóða fram í þingkosningunum sem þá stóðu fyrir dyrum og vinna þann- ig skipulega að hags- munamálum kvenna og barna á vettvangi stjómmálanna. Kvennaframboð í Reykjavík og á Akur- eyri ári fyrr hafði ratt brautina og komið konum af hreinum kvennalistum í borg- ar- og bæjarstjórnir þessara staða. íslenskar konur gripu til þess ráðs eftir áralanga baráttu við karlaflokkana fjóra sem í reynd hleyptu konum ekki innfyrir nema með annan fótinn og varla það. Allt tal um áhuga- leysi kvenna á stjórnmálum er ósatt, þegar þetta var höfðu marg- ar sterkar, hæfar og eldklárar konur komið fram á sjónarsviðið í öllum flokkunum fjórum og voru reiðubúnar til að starfa þar. Flest- ar þessar konur hafa sömu sögu að segja; þær gengu bónleiðar til búðar. Reynsla þessara kvenna sýndi að enginn munur var á fram- komu og vinnubrögðum hægri og vinstri flokka þegar um konur var að ræða. Hins vegar hafa vinstri flokkar (nú félaghyggjuflokkar) lengi eignað sér kvennabaráttuna eins og aðra mannréttindabaráttu. Þrír flokkar Nú tala margir póli- tískir „skríbentar" um að Kvennalistinn hafi ekkert hlutverk leng- ur, hann sé félags- hyggjuflokkur og því sé eðlilegt að hann verði hluti af öflugum félagshyggjuflokki framtíðarinnar. Þetta kemur m.a. fram í grein Ásgeirs Bald- urssonar í DV 22. júní sl. Hann sér fyrir sér þijá flokka hér á landi á næstu öld, félags- hyggjuflokk, íhaldsflokk og frjáls- hyggjuflokk. Tveir þeir síðast- nefndu verða til eftir að Sjálfstæð- isflokkurinn hefur liðið undir lok en Félagshyggjuflokkurinn nýi verður hins vegar myndaður úr Alþýðubandalagi, Alþýðuflokki, Framsóknarflokki og Kvennalista. Draumsýn Ásgeirs er sú að þessir fjórir flokkar bjóði fram sameigin- lega í síðustu alþingiskosningun- um á þessari öld. Þetta er undarleg spá a.m.k. í augum kvennalistakvenna. Þeim og fjölmörgum öðrum konum í landinu er ljóst að karlveldið á íslandi hefur lítið sem ekkert látið á sjá þessi 11 ár sem Kvennalist- inn hefur starfað enda hefur veldi karla verið að þróast í meira en 1100 ár. Kreppa sú sem vinstri menn á Islandi eiga í núna verður Kvennalistinn er eina pólitíska aflið, segir Helga Sigurjónsdótt- ir, sem komið hefur fram með nýjungar í íslenzkri pólitík undan- genginn áratug. ekki leyst með því að innbyrða Kvennalistann og tileinka sér hug- myndafræði hans og stefnu. Báðir A-flokkarnir og Framsóknarflokk- urinn (og auðvitað Sjálfstæðis- flokkurinn) hafa haft kappnógan tíma og óteljandi tækifæri til að koma á raunverulegum umbótum fyrir konur í anda mannúðar og jafnréttis. Það hafa þeir ekki gert og gamalt vín þeirra á nýjum belgjum verður að mínum dómi göróttur drykkur, óhollur konum. Talsmenn kvenfrelsis Kvennalistinn er eina pólitíska aflið sem hefur komið fram með nýjungar í íslenskri pólitík undan- genginn áratug. Stjórnmálastefna Kvennalistans er íslensk stefna, vaxin upp úr veruleika almennings í landinu og á sér djúpar rætur í mannréttinda- og sjálfstæðisbar- áttu kvenna og karla fyrr á öld- inni; mannúðarstefnu sem hefur Helga Sigurjónsdóttir 1980. Að sögn ábúenda á Miðhús- um tilkynntu þau ekki þennan fund. Á sama tíma var þeim greitt fyrir sjóðinn en ekki greindu þau heldur frá fundi eldstæðisins við það tækifæri. í þessu sama bréfi greina þau frá hve lítil fundarlaun þau hafi fengið og tala um fölsun, þó svo að ég hefði ekki minnst á það við þau. Ég bað þau aðeins um jarðvegssýni. Sýnið er ég enn ekki búinn að fá. Þessar upplýsingar hefði Þórar- inn getað fengið hjá mér og kannski margar aðrar ef hann hefði hringt í mig. Ég tel hins vegar að Þórarinn tengist þessu máli ekki neitt. Næst þegar Þórar- inn stekkur á pennastönginni yfir ritvöll dagblaðanna vona ég að hann blandi ekki saman vitleysu og rógburði. Enginn hefur talað um föður hans í sambandi við þetta mál nema þá helst hjónin á Miðhúsum, sem í raun hafa þegar rengt hæfileika Kristjáns Eldjárns og Þórs Magnússonar til að grafa niður á óhreyfð lög. Þau fundu fornminjar á nákvæmlega sama stað og silfrið fannst, en neðar. Að sögn Þórs Magnússonar, í grein hans í Árbók fornleifafélagsins, var grafið niður á óhreyfð lög. Það er mannlegt að skjátlast. Forleifafræðingum, fornmenja- vörðum, fréttamönnum og öðrum getur öllum skjátlast og Þórarni getur væntanlega einnig skjátlast — eða hvað? Eitt er víst að Þórarinn er ekki fær um að dæma um hæfileika dr. James Graham-Cambells, sem skilaði hlutlausri skýrslu um silfur- sjóðinn. Af hveiju breskur sér- fræðingur er ekki fær um að segja sitt álit á silfri í „íslenskri jörð“ fæ ég ekki skilið. Vonandi er Þór- arinn ekki að gefa í skyn að við verðum að kaupa íslenskt, að fá hreinan íslenskan sérfræðing (eða kannski norrænan) í þessu tilfelli. Ef til vill er grýlan vöknuð, sú sem kyijar sönginn um að allt sé vont sem útlendingar segja, sérstaklega ef þeir hafa nú hugsanlega rétt fyrir sér. Höfundur er fornleifafræðingur. frelsi, sjálfstæði og jafnrétti allra manna að leiðarljósi. Kjör kvenna núna vitna um vilja- eða getuleysi allra hinna fjögurra pólitísku flokka, og ann- arra valdamikilla karlahópa, til að vinna að jafnrétti kynjanna og frelsi kvenna. Á meðan svo er er þörf fyrir Kvennalistann og stefnu hans. Fullyrðingar um að samruni vinstri flokka og Kvennalistans samsvari meginstraumum í „hug- myndafræði og lífsviðhorfum al- mennings" eins og Ásgeir Baldurs- son segir eru órökstuddar stað- hæfingar byggðar á óskhyggju. Hins vegar hafa alltaf verið til fjöl- margir karlmenn sem raunveru- lega eru talsmenn kvenfrelsis og vilja veg kvenna mikinn. Þeir eru aftur á móti sjaldnast í flokki þeirra sem komast í fremstu röð í pólitíkinni. Höfundur er bæjarfulltrúi Kvennalistans í Kópavogi. FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994 21 Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraun Kopavogi, simi 571800 '&■ Opið sunnudaga kl. 13-18. Daihatsu Applause 4x4 '91, grár, 5 g., ek. aðeins 30 þ. km., dráttarkúla o.fl. V. 980 þ. Sk. á ód. Subaru Legacy station 1.8’90, 5 g., ek. 58 þ. V. 1280 þús. MMC L-300 4x4 Minibus ’88, 5 g, ek. 104 þ. V. 1090 þús. MMC Galant GLSi ’89, 5 g.. ek. 90 þ., álfelgur, rafm. í rúðum o.fl. Tilboðsverð 890 þús., sk. á ód. Renault Trafic 4x4 húsbfll ’85, góð inn- rétting, gott ástand. V. 700 þús. Toyota Corolla Touring 4x4 XL ’89, blár/grár, 5 g., ek. 82 þ., sóllúga o.fl. V. 890 þús. MMC Lancer GLXi hlaðbakur 4 x 4 '91, raður, 5 g., ek 60 þ. km., sportfelgur, low profile dekk o.fl. V. 1.090 þ. Toyota Double Cab SR5 ’92, hvítur, ek. 44 þ km. Gott eintak. V. 1.830 þús. GMC Jimmy S-10 ’88, blár, sjálfsk., sól- lúga, rafm. i rúðum o.fl. Gott eintak. V. 1290 þús., sk. á ód. Toyota Corolla XL ’88, 3ja dyra, stein- grár, 4 g., ek. 82 þ. Gott eintak. Ný skoð- aður. V. 490 þús., stgr. Toyota Corolla STD '89, 3ja dyra, 4 g., ek. 40 þ. km. V. 580 þús. Sk. á nýrri bfl. Nissan Sunny GTÍ '92, 5 g. með öllu, ek. 48 þ. km. V. 1.200 þús. MMC Lancer GLX ’89, silfurgrár, ek. 55 þ. km. V. 720 þús. Subaru Sedan Turbo 4x4 '91, sjálfsk., ek. 55 þ. km. V. 1.090 þús. Cherokee Laredo diesel Turbo '90, 5 g., ek. 65 þ. km. V. 1.790 þús. MMC Galant GLS 2000 ’87, sjálfsk., ek. 83 þ. km. Toppeintak. V. 620 þús. Subaru 1800 XT turbo sport '86, 2ja dyra, hvítur, sjálfsk., ek. 100 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 670 þús., sk. á ód. Topp eintak. Peugeot 205 Junior '91, 5 dyra, 4 g., ek. aðeins 37 þ. km. V. 550 þús. Tilboðsverð kr. 490 þús. Fjörug bflaviðskipti! Vantar góða bíla á skrá og á staðinn. Ekkert innigjald. TXE '91, rauöur, S g., ek. 51 þ. km., 5 dyra. V. 870 þús. nýuppt., rafm. í rúöum o.fl. Tilboðsverð þús., sk. á ód. Daihatsu Charade CS '92, 5 dyra, blé- grár, 4 g., ke. 21 þ., 2 dekkjag. o.fl. MMC Lancer 44 þ. km., samlitir stuöarar, spoiler, rafm. V. 1090 þús. Ford Explorer XL V-6 4x4 '91, græn- sans, 5 g., ek. 64 þ. milur. Vandaöur Reiðskólinn Hrauni, Grímsnesi Krakkar 10-15 ára! iReiðsltólinn Erum að bóka í 9 daga síðsumarsnámskeiðin. Upplýsingar í síma 98-64444. ° ' Reiðskólinn Hrauni þar sem hestamennskan hefst

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.