Morgunblaðið - 08.07.1994, Page 28

Morgunblaðið - 08.07.1994, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ MIININIIMGAR t Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, VALGERÐUR SÓLVEIG KRISTJÁNSDÓTTIR, Garðvfk 11, Borgarnesi, andaðist í Sjúkrahúsi Akraness þann 5. júlí sl. Traustí Jónsson, Gyða Margrét Traustadóttir, Eyþór I. Jónsson, Sigrún íris Traustadóttir, Kristjana Ósk Traustadóttir, Rakel Ýr Eyþórsdóttir. Eiginmaður minn, t faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANN J. JAKOBSSON, efnaverkfræðingur, Stekkjarhvammi 74, Hafnarfirði, varð bráðkvaddur á heimili sínu aðfaranótt 6. júlí sl. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Lára K. Ólafson. t Móðir okkar, SVAVA SIGURÐARDÓTTIR lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 7. júlí 1994. Ásgeir Samúelsson, Sigurður Samúelsson, Kristin Samúelsdóttir, Guðrún Marfa Samúelsdóttir, Pálmi Viðar Samúelsson, Kristján Björn Samúelsson. t Hjartkœr eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og bróðir, JÓN KRISTINN KRISTJÁNSSON vélstjóri, Hjallavegi 16, ísafirði, verður jarðsunginn frá ísafjarðarkapellu laugardaginn 9. júlí kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Landssamtök hjartasjúklínga. Ingibjörg Steinunn Einarsdóttir, Björg Aðalheiður Jónsdóttir, Einar Snorri Magnússon, Kristján Jónsson og systkini hins látna. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGURBJÖRG ÖGMUNDSDÓTTIR, Víðigrund 22, Sauðárkróki, sem lést þann 29. júní sl., verður jarð- sett frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 9. júlí kl. 16.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir, en þeim, sem vilja minnast henn- ar, er bent á Sjúkrahús Skagfirðinga og Sauðárkrókskirkju. Ögmundur Svavarsson, María Pétursdóttir, Guðrún Svavarsdóttir, Þorsteinn Vigfússon, Kristín Svavarsdóttir, Hjalti Guðmundsson, Sverrir Svavarsson, Sigrún Halldórsdóttir, Sigrföur Svavarsdóttir, Birgir Þórðarsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, UNNUR PÉTURSDÓTTIR frá Rannveigarstöðum, til heimilis að Uppsölum Fáskrúðsfirði, andaðist miðvikudaginn 6. júlí á Heilsu- gæslustöðinni, Egilsstöðum. Utförin fer fram fré Fáskrúðsfjarðar- kirkju miðvikudaginn 13. júlí kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna. Sigríður Þorbjarnardóttir, Ragnheiður Þorbjarnardóttir, Eirfkur Þorbjarnarson, Svanhildur Þorbjarnardóttir. GUÐRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR + Guðríður Guð- mundsdóttir var fædd 22. nóv- ember 1931 í Reykjavík. Hún lést af slysförum föstu- daginn 1. júlí 1994. Guðríður var dóttir hjónanna Guð- mundar Helgason- ar húsgagnasmíða- meistara og síðar starfsmanns Seðia- banka Islands, en hann er fæddur 6. nóvember 1911 og lifir dóttur sína, og fyrri konu hans, Hansínu Ingi- bjargar Kristjánsdóttur Bernd- sen, sem var fædd 22. apríl 1904 og andaðist 2. júlí 1968. Síðari kona Guðmundar er Elsa Guðmundsdóttir. Bróðir Guð- ríðar er Arnar Guðmundsson verslunarmaður, fæddur 10. desember 1944. Kona hans er Sigríður Guðmundsdóttir og börn þeirra þijú, Guðmundur, Hanna Ingibjörg og Arnar. Börn Guðríðar, sem ætíð var kölluð Gúa, eru fjögur, allt syn- ir. Elstur er Ásgeir Guðmunds- son bókbindari, fæddur 17. febrúar 1954, kvæntur Erlu Hallbjörnsdóttur og eiga þau tvö börn, Dagnýju Osk og Pét- ur. Næstur kemur Hannes Ein- arsson dúklagningamaður, fæddur 25. apríl 1957. Hann var kvæntur Guðrúnu Þóru Sigurð- ardóttur og eiga þau einn son, Emil Þór. Hannes er nú í sam- búð með Guðrúnu Þuríði Ólafs- dóttur. Þá kemur Örn Einars- son dúklagningamaður, fæddur 29. nóvember 1960, kvæntur Nínu Stefánsdóttur og eiga þau þrjá syni, Þóri, Einar Gunnar og Reyni. Yngstur er Ómar Einarsson hljómlistarmaður og sölumaður, fæddur 6. april 1961, en hann er í sambúð með Höllu Magnúsdóttur og eiga þau eina dóttur, Hildi. Guðríður giftist árið 1953 Louis Pal- umbo. Þau skildu. Hún giftist árið 1957 Einari Gunnari Ás- geirssyni, en þau skildu. Á ár- inu 1981 hóf Guðríður sambúð með Sverri Einarssyni, þá saka- dómara, nú héraðsdómara, en hann var ekkjumaður með tvo unga syni, sem hún tók að sér, Gunnlaug, sem er í sambúð með Guðnýju Björgu Hauksdóttur, og Einar Þór, sem enn er í for- eldrahúsum. Guðríður vann lengst af við verslunarstörf með heimilisstörfum og rak m.a. verslun sjálf i nokkur ár í félagi við aðra konu. Eftir að hún giftist Sverri Einarssyni, 31. desember 1983, hætti hún að vinna utan heimilis að öðru leyti en því, að hún vann um árabil sem sjálfboðaliði hjá kvennadeiid Rauða krossins og hjá kven- félaginu Hvítaband- inu og var hún í stjórn beggja sam- takanna. Um tíma var Guðríður í stjórn málfreyjudeildarinnar Yrar. VIÐ BRÆÐURNIR vorum 8 og 11 ára, þegar Gúa kom inn í líf okkar. Með persónutöfrum sínum heillaði hún okkur litlu snáðana, þannig að á undra skömmum tíma höfðum við náð góðum tenglsum við konuna, sem átti eftir að ganga okkur í móðurstað. Þessi tengsl héldust það sem eftir lifði og urðu síst minni með árunum. Það er ekki allra að setja sig inn í og gera að sínum aðstæður, sem viðkomandi hefur ekki sjálfur átt þátt í að skapa. Það gætu ekki all- ir tekið að sér uppeldi tveggja barna eftir að hafa komið fjórum á legg. Þetta gat þó og þetta gerði Gúa. Það fáum við henni seint fullþakk- að. Að sjálfsögðu fylgja lífinu alltaf einhveijir hnökrar og það er ekki einn rósadans. Við gátum deilt og við gátum rifist, en þegar upp er staðið og þessi stutti tími sem við áttum samleið er lagður á vogar- skál lífsins eru slíkar uppákomur hjóm eitt, sem fjarar út og verður að engu, þegar allar góðu stundirn- ar líða um hugann. Á ferð sinni um óravíddir hins óþekkta óskum við bræðumir henni af öllu hjarta alls hins besta og alls þess stuðnings og styrks, sem hún þarf á að halda á leið sinni. Gunnlaugur og Einar Þór. Hún Gúa amma er dáin. Þó mun hún ávallt vera meðal okkar. Hvergi leið henni betur en í sumarbústaðn- um og dvöldust hún og Sverrir þar eins oft og þau gátu. Þar naut hún sín úti í náttúrunni við gróðursetn- ingu en inni við undi hún sér við að teikna, vatnslita og búa til hluti. Hún gaf mér mynd í afmælisgjöf t Móðir mín og dóttir, VALGERÐUR ARADÓTTIR frá Skuld, sem lést í sjúkrahúsinu á Blönduósi 3. júlí, verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 9. júlí kl. 16.00. Fyrir hönd aðstandenda, Unnur Brynja Guðmundsdóttir, Guðlaug Nikodemusdóttir. t Af alhug þökkum við ykkur öllum, sem auðsýnt hafa okkur samúð og kærleik við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GARÐARS JENSSONAR veggfóðrara og dúklagningarmeistara, Fornastekk 14, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við Sigurði Björnssyni, lækni, starfsfólki rekstrar- og þjónustudeildar íslandsbanka og sr. Kjartani Erni Sigurbjörnssyni. Anna Klara Guðlaugsdóttir, Margrét Garðarsdóttir, Hilmar Garðarsson, Sigurður Garðarsson, Sigurlaug Finnbogadóttir, Anna Rós og Þóra Lind Sigurðardætur. sem hún málaði og fleira hefur hún búið til handa mér sem ég mun eiga sem minningu um hana. Vertu sæl amma mín, ég mun ávallt sakna þín. Dagný Ósk. Sú harmafregn barst okkur síð- astliðið föstudagskvöld, að vinkona okkar Gúa hefði látist þá um morg- uninn af slysförum. Leiðir okkar lágu fyrst saman er ég kynntist henni í gegnum sam- eiginlegt áhugamál eiginmanna okkar. Varð það til þess að við störf- uðum saman að ýmsum félagsmál- um. Má þar nefna starf okkar í þágu frímerkjasafnara, en þegar húsnæði þeirra í Síðumúla 17 var tekið í notkun átti hún ásamt Sverri stóran þátt í uppbyggingu þess og skipulagningu. Þar áttum við líka saman ánægjustundir er við sóttum fundi í málfreyjudeildinni Ýr. Hin síðari ár störfuðum við saman í Hvíta- bandinu. í gegnum það samstarf okkar kynntist ég hversu atorku- söm og hvetjandi hún var í öllu því, sem hún tók sér fyrir hendur. Gúa átti stóran hóp vina, sem hún ræktaði af alúð, og naut ég góðs þar af. Eigum við Sigtryggur góðar endurminningar frá heim- sóknum okkar á heimili þeirra Sverris og í sumarbústaðinn í Ár- nesi. Ég minnist hennar, eins og hún var, hress og glöð í vinahópi. Sú minning verður aldrei frá okkur tekin. Um leið og ég vil heiðra minn- ingu Gúu og þakka henni samfylgd- ina bið ég góðan Guð að styrkja þig, Sverrir minn. Börnum ykkar og fjölskyldum þeirra vottum við Sigtryggur okkar dýpstu samúð. Þorbjörg Guðmundsdóttir. Kveðja frá Hvítabandskonum Við ótímabært fráfall Guðríðar viljum við færa henni sérstakar þakkir fyrir góða viðkynningu og óeigingjarnt starf er hún innti af hendi í þágu Hvítabandsins. Þegar Hvítabandið réðst af stór- hug í að láta rita 100 ára sögu félagsins var Guðríður bæði hug- myndarík og ein af driffjöðrunum í fjáröflun verksins. Guðríður var perla að manni og var sannarlega ánægjulegt fyrir okkur Hvítabandskonur að fá að kynnast slíkri konu. Megi blessun fylgja henni í nýjum heimi. Eiginmanni og fjölskyldu færum við innilegar samúðarkveðjur. Með einkunnarorðum Hvítabandsins kveðjum við Guðríði: Fyrir Guð-heimilið-þjóðina. Frágangur afmælis- og minning- argreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit afmælis- og minningar- greina séu vel frá gengin, vélrit- uð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS- textaskrár. Þá eru ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.