Morgunblaðið - 08.07.1994, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 08.07.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ1994 31 Sjónarhorn Ánægja af neyslu góðs matar er nátengd kaloríuinnihaldinu Er offita Vesturlanda- þjóða áunnin eða með- fædd eða er skýringu að finna „í genunum“. Margrét Þorvalds- dóttir kannaði málið. Nýlega kom fram skýring á því hversvegna sjálfsag- inn vill leita út og suður þegar girnilegur en oft kaloríuauðugur matur er annars vegar. Ástæðan er sögð vera sú að ánægja af neyslu kaloríuauðugs matar stjórnist ekki aðeins af bragði heldur einnig af „kalorískri örvun“ matarins. Þessi skýring kom fram á þingi næringarfræð- inga sem haldið var í San Diego í apríl sl. Sérfræðingar telja að þar sé m.a. að leita skýringa á vaxandi offitu Bandaríkjamanna, en meðalþyngd þeirra jókst um 1,5 pound (700 g) á síðasta ári, þrátt fyrir að á markaði hafi kom- ið 10.000 nýjar fituskertar fæðu- tegundir. Sérfræðingar segja að „kalorísk örvun“ og sú vellíðunartilfinning, sem fylgir neyslu matar, orsakist af því að meltingarvegurinn efna- greini fæðuna um leið og henni hefur verið kyngt til að ákveða kaloríu og fituinnihaldið. Ein af- leiðingin af því er sögð sú, að heilinn þarf mjög fá „boð“ frá maga til að muna kaloríuauðuga fæðu, ilm og bragð og getur hann þá kallað fram minninguna þegar viðkomandi einstaklingur finnur til svengdar. Steve A. Witherly, sem setur þessa kenningu fram, segir að oft þurfi aðeins að neyta kaloríuauðugrar fæðu einu sinni í svengdarástandi til að festa hana í minni ævilangt. Líkaminn hefur tilhneigingu til að hafna fituskertum mat Líkaminn virðist ekki vera auð- veldlega blekktur. Jafnvel þó að fólk neyti þessara nýju fituskertu fæðutegunda sem komnar eru á markað, og þær bragðist eins og hinar upprunalega (ekta) þ.e. hafi sama bragð og ilm, þá getur heil- inn hafnað þeim vegna „boða“ frá maganum. Þessi höfnum getur valdið því að viðkomandi mun smám saman missa lyst á viðkom- andi fæðutegund. Witherly segir að e.t.v. þurfi þessar nýju fitu- skertu fæðutegundir, sem nú eru á markaði, að bragðast betur en hinar upprunalegu eða að þróa þurfi nýjar vegna þess að minnið um hinar ekta er til staðar i heila. Hann bendir þó á að bragðtilfinn- ing fyrir söltu og sætu sé fast stimpluð inn í þann hluta heilans sem geymir vellíðunartilfinningu, sem þýðir að fólk þarf ekki að læra að njóta slíkrar fæðu, hún er því eðlislæg. Truflanir á neysluvenjum tengdar efnum í heila Ofneysla og hömlulaust át hefur lengi verið rannsóknarefni. Margir hafa einnig velt því fyrir sér hvers vegna svo erfitt reynist að snið- ganga fituauðugar freistingar þegar þær eru á boðstólum. Ef til vill er lausn að finna í frétt sem barst frá ársþingi Félags um taugavísindi (Society for Neurosci- ence) í Washington í nóvember sl. Á þinginu sagði dr. Sarah Liebow- itz, frá Rockefeller-háskóla, að ákveðin efni í heila sem örva löng- un í feitmeti eða kolvetni geti hjálpað til að skýra óeðlilegar neysluvenjur hjá einstaklingum sem þjást af offitu, lystarstoli og bulimíu. Hún telur að efni í heila, sem nefnd hafa verið taugapeptíÖT ar Y og galanin, muni geta haft áhrif á þróun lyfja sem sett geti hömlur á matarlyst og ofát. Liebowitz byggir álit sitt á dýra- tilraunum. Með því að sprauta taugapeptíðum í heila tilraunadýra jókst lyst þeirra á kolvetnum, en galanín orsakaði ofneyslu á fitu. Þegar þessar tilraunir höfðu verið endurteknar í nokkra daga orsök- uðu þessi efni ofát og jók á fitu- majgn og líkamsþyngd. 1 ljós að hefur komið að þessi efni í heila, taugapeptíðar og gal- anín, hafa bein áhrif á eðlilega matarlyst. Dýr sem eðli sínu sam- kvæmt sækja í fitu hafa mikið magn af galanini og erfðavísirinn sem stjórnar myndun galanins er ofvirkur hjá þessum einstakling- um. Aftur á móti kom í ljós að hjá dýrum sem sækja í kolvetni er offramleiðsla á taugapeptíðinu í heila, en galaninmagnið er eðli- legt. Fram kemur að magnið af þrúgusykri sem fruman notar gef- ur merki um framleiðslu á taugap- eptíðunum sem örva neyslu á kol- vetnaríkri fæðu. Einnig virðast ákveðnar frumur í heila hafa hæfi- leika til að yfirfæra þörfina fyrir ákveðin næringarefni, eins og þrúgusykur, yfir í sterka löngun í fæðutegundir sem innihalda mik- ið af þessum næringarefnum. Þau lyf sem nú eru í þróun miða að því að hindra virkni þessara efna og breyta þannig starfsemi þeirra erfðavísa sem stjórna þeim í heila. Löngun í fituríkar fæðutegundir mótast snemma á ævinni Tilraunir sem gerðar hafa verið á tilraunadýrum hafa sýnt fram á að hægt er að breyta matarlyst- inni með því að breyta starfsemi þessara erfðavísa í heila. Hjá dýr- um kemur fram að magn fitu- neyslu fer eftir aldri. Löngun í fitu mótast snemma á ævinni, um það leyti sem þau hætta að fá móður- mjólkina eða jafnvel fyrr. Sú fita sem neytt er eftir þann tíma virð- ist gefa eindregna vísbendingu um fituneyslu á kynþroskaaldri, einnig virðist mikil fituneysla geta haft áhrif á hvenær þau komast á kyn- þroskaaldur, þ.e. að þau dýr sem sækja í fitu komast fyrr á kyn- þroskaaldur. Hvað áhrif á manninn varðar þá segir Liebowitz að mikil aukn- ing á fituneyslu, fitulag og líkams- þyngd á kynþroskaaldri sé talin vera aðalorsök fýriri truflunum á neysluvenjum kvenna. Hún segir að á kynþroskaaldrinum, þegar löngun í feitmeti ér hvað mest, geti konur verið sérstaklega við- kvæmar fyrir áhrifum streitu og sterku aðhaldi í mat eins og stífum matarkúrum, en vitað er að slík áhrif valda ofneyslu fituríkrar fæðu. Varðarferðin farin eftir viku HIN ÁRLEGA sumarferð Varðar verður farin laugardaginn 16. júlí nk. og er ferðinni heitið í Veiði- vötn. Lagt verður af stað frá Val- höll kl. 8 stundvíslega. Áð verður um morguninn í Þjórsárdal og drukkið morgunkaffi en síðan verður ekið um aðalvirkj- anasvæði landsins, Búrfell, Hrau- neyjarfoss og Sigöldu. Aðaláning ferðarinnar verður í fögru um- hverfi í Veiðivötnum, væntanlega við Tjaldvatn en síðan verður farið í hringferð á Veiðivatnasvæðinu. Þar mun Davíð Oddsson, forsætis- ráðherra, ávarpa ferðalanga. Síð- degis mun verða áð við Galtarlæk. Stefnt er að því að koma til Reykja- víkur um kl. 19. Vanir fararstjórar verða með í för í hverri rútu en Kristján Sæ- mundsson, jarðfræðingur, verður aðalfararstjóri. Einnig skal bent á að fólk taki með sér nesti og heppi- leg ferðaföt. Miðapantanir og sala verður í Valhöll milli kl. 8 og 16, mánudag- inn 11. júlí til miðvikudagsins 13. júlí en til kl. 18 fimmtudaginn 14. og föstudaginn 15. júlí. Verð miða er 2.500 kr. fyrir fullorðna og 1.500 kr. fyrir börn 12 ára og yngri. AFMÆLI RANNVEIG BÖÐVARSSON KYNNI okkar Rann- veigar Böðvarsson hófust um þær mund- ir, er sorgin stóra sótti hana heim. Eiginmað- ur hennar, Sturlaugar H. Böðvarsson, út- gerðarmaður, varð bráðkvaddur á heimili sínu hinn 14. mái árið 1976. Þá hafði ég ný- lega tekið við prests- starfi á Akranesi. Frá þeim dögum verður Rannveig mér ógleym- anleg. Sína þungu byrði bar hún á þann veg að hverjum mátti ljóst vera, að þar fór kona, sem hafði til að bera hetjulund kærleikans. Það er mér bæði ávinningur og sístætt þakkarefni að hafa eignast vináttu slíkrar konu sem Rannveig Böðvarsson er og hafa átt samleið með henni, ekki aðeins í sorginni, heldur einnig á mörgum og stórum gleðistundum. Rannveig er fædd í Reykjavík að Vesturgötu 32 þar í borg, svo einkennilega sem það kann að hljóma, af því að alla sína búskap- artíð á Akranesi hefir hún einnig átt heima að Vesturgötu 32. For- eldrar hennar voru Pálmi Hannes- son rektor Menntaskólans í Reykjavík og Matthea Kristín Páls- dóttir. Hún giftist seinna Christian Evlad Torp, veitingamanni og ætt- leiddi hann Rannveigu. Rannveig ólst upp hjá þeim, bæði í Reykja- vík og eitthvað í Danmörku. Hún stundaði barnaskólanám fyrst í Landakotsskóla og síðar þijá vetur í Esbjerg. Eftir það var hún við nám í Verslunarskóla íslands. Að námi loknu fór Rannveig að stunda verslunar- og skrifstofu- störf hjá útgerð Tryggva Ófeigs- sonar í Aðalstræti 4 í Reykjavík og vann þar um nokkurt skeið. Eins og fram hefir komið var Rannveig gift Sturlaugi H. Böð- varssyni á Akrensi. Þau gengu í hjónaband 14. apríl árið 1945, sett- ust þá þegar að á Akranesi og bjuggu þar alla sína samleiðartíð. Þau hjónin eignuðut sex börn, sem öll eru á lífi og öll búsett á Akranesi nema yngsta dóttirin. Þau eru: Matthea Kristín, skrif- stofumaður, gift Benedikt Jón- mundssyni, Hraldur, fram- kvæmdastjóri, kvæntur Ingibjörgu Pálmadóttur, Sveinn, útgerðar- stjóri, kvæntur Halldóru Friðriks- dóttur, Rannveig, verslunarmaður, gift Gunnari Ólafssyni, Sturlaugur, aðstoðarframkæmdarstjóri, kvæntur Jóhönnu H. Hallsdóttur og yngst er Helga Ingunn, hjúkr- unarfræðingur, gift Haraldi Jóns- syni. Þau búa á Egilsstöðum. Sturlaugur átti eina dóttur frá fyrra hjónabandi. Hún heitir Helga Ingunn og er læknir, búsett í Bandaríkjun- um. Maður hennar er Haukur Þorgeirsson. Alls eru afkomendur þeirra Rannveigar og Sturlaugs 33 talsins. Heimilið var stórt og umsvifin mikil að Vesturgötu 32. Rann- veig stóð við hlið manns síns í hans yfir- gripsmikla starfi, en Sturlaugur var þjóð- kunnur dugnaðarmað- ur. Skarpskyggni hans og hagsýni í út- gerð og sjávarútvegi yfirleitt var við brugið. Drengskapur hans í öllum samskiptum var með ein- dæmum. Og þar stóð Rannveig manni sínum síst að baki. Hún hefir alltaf verið hlédræg og hóg- vær og lítt fyrir það gefin að láta á sér bera. En heimilið hennar hefir jafnan talað sínu máli, vitnað um störf hennar og sýnt, svo eigi varð um villst, að þar réð ríkjum mikilhæf kona, bæði sem eigin- kona, móðir og húsmóðir. Þannig var það jafnan. Og enn í dag ríkir hinn sanni, listræni andi tryggðar, hlýju og kærleika sem ávallt fyrr á heimili hennar. Um nokkurt skeið var Rannveig stjórnarformaður í fyrirtæki fjöl- skyldunnar, Haraldi Böðvarssyni og Co. hf. og fórst það vel úr hendi. Á Akranesi hefír hún tekið þátt í ýmsum félagsstörfum. M.a. hefir hún verið mjög virk í starfi Kirju- nefndar kvenna. Þar hefir hún átt sæti í stjórn og gegnt formennsku. Og ómetanlegur hefir hlýhugur hennar í kirkjunnar garð ávallt verið. Fleiri góð málefni hefir Rannveig stutt með ráðum og dáð og blessun hefir löngum fylgt þeim málum sem hún hefir lagt lið, því hjá henni hafa jafnan hugur og hjarta verið með í verki. Árið 1993 var hún sæmd Fálkaorðunni og var það mjög að verðleikum. Árin sín sjötíu ber Rannveig með reisn og yndisþokka ungrar konu. Það er ósk mín og bæn henni til handa, að svo megi enn verða um langa hríð, að raörg góð, björt og hamingjurík ár séu framundan á lífsbraut hennar og þeirra megi hún í ríkum mæli njóta. Innilegar þakkir, kæra Rann- veig mín, fyrir framúrskarandi góð kynni, óbrigðula tiyggð og vináttu í minn garð og fjölskyldu minnar. Á þessum tímamótum í lífi þínu biðjum við þér, börnum þínum og ástvinum blessunar og farsældar á ókomnum dögum og árum. Þess skal að lokum getið að Rannveig tekur á móti gestum á heimili sínu að Vesturgötu 32 frá kl. 16 í dag. Björn Jónsson. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi í númer 691181. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd grein- anna fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úi-vinnslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.