Morgunblaðið - 13.07.1994, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
I
-
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jón Karl Snorrason
Á MYNDINNI sést flugvél Landgræðslunnar, Páll Sveinsson, yfir nýjum flugvelli Landsvirkjunar.
Utanríkisráðherra til Brussei
Viðræður við for-
svarsmenn ESB
JÓN Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra ræðir við forustumenn
Evrópusambandsins næstu daga, en
utanríkisráðherra er nú formaður
EFTA. George Reisch aðalfram-
kvæmdastjóri EFTA verður í för
með Jóni Baldvin, en Reisch hefur
dvalið hér á landi síðustu daga.
Jón Baldvin fer til Brussel í dag
og hittir þá Robert Urbain utan-
n'kisviðskiptaráðherra Belga að máli.
Á fimmtudagsmorgun ræðir hann við
Sir Leon Brittan, einn af varaforset-
um Evrópusambandsins. Síðar um
daginn fer Jón Baldvin til Bonn í
Þýskalandi og hittir þar Klaus Kinkel
utanríkisráðherra Þýskalands, sem
nú fer með formennsku í Evrópusam-
bandinu. Þar mun Jón Baldvin jafn-
franit halda opinberan fyrirlestur.
Á föstudagsmorgun hittir Jón
Baldvin að máli Hans van der Broek
sem fer með utanríkismál hjá Evr-
ópusambandinu.
Samkvæmt upplýsingum úr ut-
anríkisráðuneytinu munu viðræður
utanríkisráðherra við áðurnefnda
menn aðallega íjalla um málefni
EFTA og Evrópusambandsins. Ut-
anríkisráðherra mun einnig ræða
tvíhliða málefni íslands og Evrópu-
sambandsins.
Sljórn Neytendasamtakanna mótmælir nýjum færslugjöldum
Bankastofnanir færi rök
fyrir gjaldskrárliðum
Aðstoðarbankastjóri Landsbankans
segir tafir á svörum vegna sumarleyfa
Nýr olíuborinn
flugvöllur
á hálendinu
LANDGRÆÐSLA ríkisins notaði
í byijun júlí í fyrsta sinn nýjan
olíuborinn flugvöll við Blöndu-
lón.
Landgræðslan sáir árlega með
flugvélinni Páli Sveinssyni um
400 tonnum á Auðkúluheiði og
fleiri svæðum nærri uppistöðu-
lóni Blönduvirkjunar, samkvæmt
samningi við Landsvirkjun. Flug-
völlurinn heitir Sandárflugvöll-
ur, er 1200 m á lengd og í um
500 metra hæð að sögn Stefáns
Sigfússonar fulltrúa lyá Land-
græðslunni. Völlurinn er með 9
metra breitt slitlag en í heild er
hann 18 metra breiður. Það var
flugvöllur á þessu svæði, sem fór
undir lónið.
Stefán sagði að áður hafi
þurft að fljúga Páli Sveinssyni
frá Sauðárkróki og mikið hag-
ræði sé því af nýja flugvellinum.
Núna sé allt efni keyrt upp á
Sandárflugvöll og aðeins taki
um tíu til fimmtán mínútur að
fljúga með það yfir landgræðslu-
svæðin. Flugvöllurinn var gerð-
ur fyrir verkefni Landgræðsl-
unnar og að sögn Stefáns hefur
hann reynst ágætlega.
STJÓRN Neytendasamtakanna
hefur sent bönkum og sparisjóðum
bréf þar sem nýrri gjaldskrá vegna
notkunar ávísana og debetkorta er
mótmælt. í því er farið fram á rök-
stuðning á nokkrum liðum í gjald-
skrá bankanna. Brynjólfur Helga-
son aðstoðarbankastjóri Lands-
bankans segir að til standi að
rökstyðja gjaldtökuna en bréfínu
hafi ekki enn verið svarað vegna
sumarleyfa.
Vilja Neytendasamtökin að bank-
inn rökstyðji hvers vegna kosti 350
krónur að greiða af skuldabréfi hjá
gjaldkera í bankanum en 120 krón-
ur að láta skuldfæra greiðsluna.
Einnig er spurt hvers vegna sama
gjald sé tekið fyrir reikningsyfirlit
sent í pósti og yfírlit sem afhent sé
í afgreiðslu. Beðið er um rökstuðn-
ing á færslugjöldum vegna debet-
korta og ávísana og óskað eftir
upplýsingum um hvers vegna
Landsbankinn innheimti sérstakt
vanskilagjald vegna skuldabréfa
sem ekki séu greidd á gjalddaga.
Einnig er spurt hvort rétt sé að
einungis hluti færslna með debet-
kortum sé athugaður með tilliti til
innstæðu.
Verður rökstutt
Brynjólfur Helgason aðstoðar-
bankastjóri segir að ekki sé hægt
að gefa endanlegt svar við þessum
spumingum að svo stöddu. En hann
segir að meiri vinna sé falin í því
að fá viðskiptavininn í bankann til
að greiða af skuldabréfí en að
skuldfæra af reikningi. Nákvæmur
kostnaður sé hins vegar ekki ljós
að svo stöddu en munurinn verði
rökstuddur. Reikningsyfirlit sé sent
í pósti frá Reiknistofu bankanna
og gjaldtaka vegna þess feli í sér
tæknikostnað og burðargjald. „I
hinu tilvikinu er þetta vinna starfs-
manns í afgreiðslunni. Hún kostar
ekki minna og er jafnvel dýrari
þótt það virki ekki þannig,“ segir
Brynjólfur um sama gjald fyrir
reikningsyfirlit sem sent er heim
og fengið í banka.
Kostnaður 50 krónur
Hvað færslugjöld varðar segir
Brynjólfur að kostnaður vegna ávís-
ana sé 50 krónur en fólk borgi hins
vegar um 30 krónur með nýju
færslugjaldi ef verð hvers eyðublaðs
er meðtalið. Debetkortafærslan sé
tæknifærsla og sé sú aðferð ódýr-
ari. „Mannshöndin kemur miklu
minna nálægt því en ávísunum. Oft
þarf að senda þær milli banka og
milli staða og mikil vinna kringum
hverja ávísun," segir hann.
Brynjólfur segir að vanskilagjald
komi til af aukakostnaði vegna inn-
heimtuaðgerða, til dæmis að senda
ítrekanir, auk annarra aðgerða sem
fylgi lengri vanskilum. Einnig eigi
það að virka sem hvati á fólk svo
það leiti til bankans áður en í vand-
ræði sé komið ef á þurfí að halda.
Hvað varðar þær upplýsingar að
bankinn athugi einungis hluta
færslna með debetkortum með til-
liti til innstæðu segist Brynjólfur
ekki vilja tjá sig um það á þessu
stigi.
I
>
i
i
i
t
i
I
I
I
Morgunblaðið/Golli
Hundadagar heflast
Æðarbændur kvarta I
yfir ágangi grá- 1
sleppuveiðimanna
Landhelgisgæslan mælir landamörk
Lýst er
eftir ung-
ummanni
LÖGREGLAN í Reykjavík og fjöldi
manna úr hjálpar- og björgunar-
sveitum á höfuðborgarsvæðinu
hafa leitað að þrítugum Reykvík-
ingi, Valgeiri
Viðarssyni,
síðan 30. júní
síðast liðinn, en
án árangurs.
Valgeir fór frá
heimili sínu við
Laugaveg að-
faranótt 19.
júní. Talið er
að hann hafí
verið á dök-
kleitu reiðhjóli.
Valgeir er
lágvaxinn maður, grannur með
skollitað, stutt hár. Þegar síðast
sást til hans var hann klæddur í
ljósbláar gallabuxur, brúnan leður-
jakka, köflótta skyrtu og í brúnum
reimuðum leðurstígvélum.
Þeir sem gefíð geta upplýsingar
um ferðir Valgeirs Viðarssonar í
sambandi við hvarf hans eru beðn-
ir að hafa samband við lögregluna
í Reykjavík.
HUNDADAGAR hefjast í dag,
13. júlí. í bókinni Saga daganna
kemur fram að um hásumar
skíni Síríus skært, oft nefnd
hundasfjarnan, og kenndu
Forn-Grikkir heitustu sumar-
dagana við þá stjörnu. íslensk
skýring á nafninu er að um
þetta leyti bíti hundar gras.
Hundadagar tengdust veðri
talsvert, enda heyskapur í full-
um gangi. Töldu flestir að von
væri á veðrabrigðum í upphafi
hundadaga og mundi það veður
haldast til enda þeirra og þá
skipta um aftur. Samkvæmt því
verður því rigning suðvestan-
lands en hlýtt og bjart Norð-
austanlands til loka hundadaga,
þann 23. ágúst næstkomandi.
EIGENDUR jarða sem liggja að sjó
og eyja við Breiðafjörð hafa á síð-
ustu vikum kvartað yfír ágangi
grásleppuveiðimanna, einkum við
æðarvörp, og talið þá leggja net
innan sinna netlaga og innan marka
sem varp nýtur friðunar skv. lögum.
Ólafur Stefán Sigurðsson sýslu-
maður í Búðardal staðfestir þetta
og segir hann að aðstoðar Land-
helgisgæslunnar hafí verið leitað til
að mæla fjarlægð frá landi að dufl-
um í veiðinetum veiðimanna en
búast megi við að þeir verði kærðir
sem séu innan lögboðinna marka.
Sýslumaðurinn sagði í samtali
við Morgunblaðið að konungleg til-
skipun frá 1849 um veiði við ísland
kveði á um að eigendur jarða við
sjó eigi veiði 60 faðma frá stór-
straumsfjöruborði en nýrri lög kveði
á um að fjarlægðin sé 115 metrar.
Hið sama gildi um eigendur eyja
og hólma. Ný lög um verndun og
veiðar á villtum fuglum og dýrum
gera aftur á móti ráð fyrir að net
megi ekki leggja nær friðlýstu
æðarvarpi en 250 metra á tímabil-
inu frá 15. apríl og 15. júlí án leyf-
is varpeigenda.
„Þetta mál á sér nokkra for-
sögu,“ sagði Ólafur Stefán. „Fyrir
um tveimur árum var fundur hald-
inn að tilstuðlan sýslumannanna á
Patreksfírði og í Búðardal með full-
trúum deiluaðila. Þar lýstu sýslu-
menn skilningi sínum á lögum um
veiðar og landamerki og útskýrðu
þau. Að lokum náðist sátt með full-
trúum beggja hópa sem lýstu því
yfir að þeir myndu hafa þessi lög
og reglur í heiðri. Nú virðist þessi
sátt vera brostin og landeigendur
hafa kvartað yfir ágangi sjó-
manna,“ sagði hann.
Sýslumaðurinn segir að hugsan-
lega þurfi dómstólar að skera úr um
tulkun a lagaákvæðum sem við eigi.
„Við fengum Landhelgisgæsluna í
lið með okkur og tveir stýrimenn frá
gæslunni hafa nú í tvígang komið
til að mæla fjarlægð að netaduflum
grásleppuveiðimanna. Það verður
byijunin á því að fá skýrar línur í
þetta mál,“ sagði Olafur Stefán Sig-
urðsson sýslumaður.