Morgunblaðið - 13.07.1994, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 13.07.1994, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Veldu verblaunatækin frá Blomberq BLOMBERG hlaut hin eftirsóttu, alþjóðlegu IF verðlaun fyrir framúrskarandi glæsilega og vandaða þvottavél á stærstu iðn- sýningu Evrópu í Hannover í Þýskalandi. 586 framleiðendur frá 25 löndum kepptu um þessa eftirsóttu viðurkenningu. Við bjóðum 7 gerðir þvottavéla með 800, 900, 1.200 eða 1.600 snúninga vinduhraða á verði frá aðeins kr. 62.600* stgr. 'Staögreiösluafsláttur er 5%. \ #/// Einar Mmi Fanestveit&Cohf Borgartúni 28 TT 622901 og 622900 ÞJÓNUSTA í ÞÍNA ÞÁGU y Veldu verðlaunatækin frá Blomberq Blomberg hlaut hin eftirsóttu, alþjóðlegu IF verðlaun fyrir framúrskarandi glæsilega og vandaða eldavél á stærstu iðn- sýningu Evrópu í Hannover í Þýskalandi. 586 framleiðendur frá 25 löndum kepptu um þessa eftirsóttu viðurkenningu. Við bjóðum 6 gerðir eldavéla á verði frá aðeins kr. 55.955* stgr. Að auki bjóðum við mikið úrval af helluborðum og innbyggingarofnum frá Blomberg *Staðgreiðsluafsláuur er 5% Eldavélunum fylgir námskeid í meðferð þeirra og matreiðslu í matreiðsluskóla Drafnar. V M"K Einar MmM Farestveit&Co.hf. Borgartúni 28 V 622901 og 622900 - Þjónusta i þína þágu - ✓ IDAG BRIDS II m s j ó n Guðm. P á 11 Arnarson „SPAÐI ÚT hnekkir slemmunni," sagði austur ásakandi. „Þú gast doblað fjóra spaða,“ svaraði vestur. Austur gefur; AV á hættu. Norður 6 Á V Á63 ♦ ÁD8652 ♦ 1085 Vestur ♦ KG1097632 y~ ♦ G1094 ♦ 6 Austur ♦ D94 y G1082 ♦ K3 ♦ G973 Suður ♦ 5 V KD9754 ♦ 7 ♦ ÁKD42 Vestar Norður Austar Suður - - Pass 1 hjarta 3 spaðar 4 spaðar Pass 4 grönd Pass 5 lauf Pass 7 hjörtu Pass Pass Pass Útspil: tígulgosi. Það er rétt að spaði út er banvænn, en ekki er þar með sagt að spilið sé borðleggj- andi með tígulgosa út. Þó er til rökréttur vinningur. Sagnhafi drepur á tígulás og trompar strax tígul. Spil- ar svo hjarta á ásinn og sér leguna. Aftur hjarta og aust- ur stingur tíunni á milli. Nú er spilið í höfn ef laufíð fell- ur 3-2, svo það er skynsam- legt að kanna þann mögu- leika, taka tvisvar lauf. En það kemur ekki á óvart þeg- ar vestur hendir spaða í lauf- kónginn. Næsta skref er að taka laufdrottningu og trompa fjórða laufíð. Blindur á þá út í þessari stöðu; Norður ♦ - y - ♦ D86 ♦ - Vestur Austur ♦ K * D y - llllll * 108 ♦ 109 llllll « _ ♦ - ♦ - Suður ♦ - y D9 ♦ - ♦ 4 Austur ræður ekki við tíg- uldrottninguna. VELVAKANDI Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags íris og John Hardy ALLIR íslendingar _ sem hafa notið gestrisni írisar og Johns Hardy í Englandi á liðnum árum gefst kostur á að hitta þau í Perlunni fimmtudaginn 14. júlí frá kl. 17. Börn eru auðvitað velkomin. Tilmæli til Mjólkursamsöl- unnar KONA hringdi til Velvak- anda og bað hann að koma á þeirri ábendingu til Mjólkursamsölunnar að hún seldi bæði fjörmjólk og undanrennu í 1/4 lítra umbúðum. Henni finnst mikil þörf á þessu og hefur heyrt þessar væntingar frá mörgum. Hestamanna- mótið TVÆR norskar stúlkur sem voru hér á ferðalagi höfðu ánuga á að líta inn á Landsmót hestamanna sem haldið var hér fyrir skömmu. Þær langaði rétt að líta þama innfyrir í nokkra klukkutíma því þær voru á hraðferð um landið. Þeim fannst því súrt í broti að þurfa að greiða fullan aðgangseyri fyrir 4-5 klukkutíma, eða 8.000 krónur. Þær tóku þó fram að þeim þætti það ekki mikið hefðu þær verið þarna allan tímann og nýtt sér alla þá aðstöðu sem í boði var. Undir bréfið skrifaði Tove Gjerde. Tapað/fundið Hattur tapaðist SVARTUR Cacharel-hatt- ur tapaðist sl. laugardags- kvöld við Túngötu eða Landakotskirku í Reykja- vík. Finnandi er vinsam- lega beðinn að hafa sam- band í síma 33753 eða 676366. Fundarlaun. Lykill fannst STAKUR húslykill fannst á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis sl. sunnu- dag. Upplýsingar í síma 812715. íþróttaskór töpuðust HVÍTIR NikeAir íþrótta- skór nr. 40 voru lagðir á bílhúdd í Bergstaðastræti og þaðan var ekið sem leið lá upp á Grensásveg. Ein- hvers staðar á leiðinni hafa skómir dottið ofan af bíln- um. Hafí einhver fundið þá er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 19239. Eyrnalokkur tapaðist ÞUNGUR útskorinn kopareyrnalokkur með stómm bláum steini fyrir miðju, öðrum þar fyrir of- an, grænum neðst og marglitum allt í kring tap- aðist 18. júní á hátíðar- svæðinu í Laugardal. Fest- ingin sat eftir í eyranu. Finnandi vinsamlega hringi í síma 15216. Barnaföt fundust DÖKKBLÁAR bama- sokkabuxur og útsaumaðir barnasokkar fundust í Borgarfirði í síðustu viku. Upplýsingar í síma 93-71116. íþróttatreyja fannst ÍÞRÓTTAJAKKI, svartur í gmnnlit með áletmn á baki, fannst við Flúðasel í síðustu viku. Upplýsingar í síma 879470. Guðríður. Svefnpoki og gashitari SVEFNPOKI og gashitari töpuðust úr bílskotti rétt utan við Seljavelli undir Eyjafjöllum. Finnandi vin- samlega hringi í síma 670641. Hjól tapaðist TREK 820 Analope fjalla- hjól, hvítt með bláum stöf- um, með brettum, böggla- bera og nýjum festingum fyrir bamastól hvarf frá Barmahlíð 12, 10. júlí sl. Það er mjög bagalegt fyrir okkur að missa þetta hjól þar sem það er eina farar- tækið okkar næstu 6 vik- ur. Hjólið er m.a. notað til að fara með þriggja ára dreng á leikskólann sinn fyrir utan alla ánægjuna sem það veitir okkur til annarra ferða. Þeir sem hafa orðið varir við hjólið vinsamlega láti Hafdísi vita í vinnusíma 20096 og heimasíma 20884. Gæludýr Kettlingar ÁTTA vikna kassavanir kettlingar, annar svartur og hinn bröndóttur, fást gefins á góð heimili. Upp- lýsingar í síma 667358. Týndur köttur GRÁBRÖNDÓTTUR högni týndist 6. júlí frá heimili sínu á Flateyri. Hann er eyrnamerktur, R-3107, en er ekki með hálsól. Hann er mjög mannelskur. Þeir sem hafa orðið hans varir era beðnir að láta vita í síma 94-7855. Kettlingar TVO fallega kassavana fresskettlinga vantar góð heimili. Upplýsingar í síma 653672. Víkveiji skrifar... tli Víkverji verði ekki að viðurkenna að hann getur verið ósköp þrjóskur, ef því er að skipta. Hann leggur þá á sig ómælt erfíði, til þess að fá að við- halda eigin sérvisku, en með misj- öfnum árangri. Þannig taldi Vík- veiji nú um daginn, að hann gæti einn síns liðs lagt til atlögu við debetkortafyrirtækin, en á daginn kom, að hann varð að láta í minni pokann fyrir þeim. Víkveiji heitir tveimur nöfnum, sem er ekki í frásögur færandi, nema vegna þess að Víkverji notar aðeins ann- að nafnið, hvort sem er við kynn- ingar eða undirskriftir. Víkveiji sótti því um debetkort, sem á væri skráð nafn hans eins og hann notar það, en ekki samkvæmt skráningu þjóðskrár. Víkverji hef- ur alla jafna komist upp með slík- ar óskir, svo sem varðandi nafn á kreditkorti og fleiru. xxx Ekki reyndist mögulegt að verða við óskum Víkveija í þessu tilviki og skýrði bankinn afstöðu kortafyrirtækjanna á þann veg, að það væri öryggisatriði að hafa skráninguna samkvæmt þjóðskrá. Slík skráning drægi úr möguleikum svindlara og skúrka á að misnota þetta greiðslukerfí. Víkveija var bent á að láta taka síðara nafn sitt úr þjóðskrá, ef þetta væri honum slíkt hjartans mál, en það fannst honum of dramatísk ákvörðun til þess eins að dekra við sérlund sína. Þar sem Víkveiji er einlægur stuðnings- maður aukins öryggis í bankavið- skiptum, ákvað hann að láta af frekara andófi. xxx á barst Víkveija til eyrna frá- sögn konu sem heitir tveimur löngum nöfnum, og er einungis annað þeirra skráð á debetkort hennar. Konan kannaði málið, og komst að þeirri niðurstöðu, að þar sem tölvuvæðing hefði verið á frumstigi og afar ófullkomin, þeg- ar nafn hennar var skráð, þá hefði ekki verið pláss fyrir bæði nöfn hennar 5 þjóðskrá. Því væri ein- ungis fyrra nafnið hennar á skrá og þess vegna hefði hún fengið debetkort með öðru nafninu. Hún var aftur á móti hæstánægð með þennan háttinn, þar sem hún notar einungis fyrra nafn sitt. xxx Alltaf hefur Víkveiji jafngaman af því að sýna erlendum blaðamönnum Reykjavík og ná- grenni. Nú á sunnudag skrapp hann austur á Þingvelli með bandarískan blaðamann, sem var í sinni fyrstu íslandsheimsókn. Sá var yfír sig hrifinn af Þingvöllum, en kvaðst þakklátur fyrir að fá að rölta um fyrir austan í róleg- heitunum og sagðist ekki fyrir nokkurn mun hafa vilja skipta á þessum sunnudegi fyrir austan og þjóðhátíðardegi okkar, 17. júní sl., sem hann hafði fengið einhveijar miður huggulegar fregnir af. Hót- el Valhöll er þessa dagana með sérstakt humartilboð í gangi fyrir gesti sína, og færðu Víkveiji og bandaríski blaðamaðurinn sér það í nyt. Humarinn var frómt frá sagt frábær - matreiðsla eins og best verður á kosið, hráefnið fyrsta flokks, skammturinn meira en rausnarlegur og þjónusta hin lipr- asta. Skemmtilegur máti að veija parti úr degi, ekki síst með erlend- um gestum. .iiir “'.mvui4i/aiaö\.w»,a am3,acfi5. so siáih^

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.