Morgunblaðið - 13.07.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994 11
VIÐSKIPTI
Atvinnuleysi í apríl, maí og júní
Hlutfall atvinnulausra af heildarvinnuafli.
Á höfuðborgarsvæðinu standa 3,7%
3.446 atvinnulausir á bak við
töluna 4,4% í júní og fækk-
aði um 301 frá því í maí.
Alls voru 5.586 atvinnu-
lausir á landinu öllu
júní og hefur
fækkaðum710 a A M J
frá því í maí. vestfirðir
ff
75%
1994
IANDSBYGGÐIN
5,7%
b A M J
AUSTUR-
3,9% LAND
4,6%
4,2%
I I
' _
5,6%
A M j LANDIÐ ALLT
M 5,6%
4,8%
4,2%
A M J
Heldur dregur úr atvinnuleysi eftir því sem líður á árið
Um 5.600 manns voru
atvinnulausir íjúnímánuði
UM 5.600 manns voru að meðal-
tali atvinnulausir í júní sem er um
600 fleiri en í júní á síðasta ári.
Atvinnulausum hefur þó fækkað
um 710 frá fyrra mánuði og er þar
að mestu leyti um að ræða karl-
menn.
Vinnumálaskrifstofa félagsmála-
ráðuneytisins sendi frá sér tölur um
áætlað atvinnuleysi í júní, en vegna
sumarleyfa hefur gengið erfiðlega
að fá atvinnuleysistölur frá nokkr-
um stöðum, og því gætu endanlegar
tölur breyst. Samkvæmt tölunum
var atvinnuleysi 4,2% af mannafla
í júní en var 4,8% í maí og 5,6% í
apríl. Á síðasta ári var atvinnuleysi
3,7% í júní, 4% í maí og 4,6% í apríl.
Dregur úr atvinnuleysi
Dregið hefur úr atvinnuleysi í
öllum landshlutum nema Vestfjörð-
um, en þar er atvinnuleysi hlutfalls-
lega einna minnst á landinu eða
2,4%. Atvinnuleysi er minnst á
Austurlandi, 2,2% en mest á
Norðurlandi eystra eða 5,7%
Fyrstu sex mánuði ársins hafa
tæplega 7.300 manns að meðaltali
verið atvinnulausir í hveijum mán-
uði, þar af 3.828 konur og 3.464
karlar. Minna atvinnuleysi eftir því
sem liðið hefur á árið hefur því eink-
um komið körlum til góða. Átvinnu-
leysi hefur að meðaltali verið 5,6%
það sem af er. Mest var atvinnuleys-
ið í janúar eða 7,7% en hefur síðan
minnkað jafnt og þétt.
Heimsmarkaður
Verkföll valda olíuverðshækkun
London. Reuter.
OLÍUVERÐ hækkaði í rúmlega 18
dollara tunnan í fyrsta sinn í 13
mánuði í gær vegna harðnandi
verkfalls olíuverkamanna í Nígeríu,
sem hefur í för með sér hættu á
því að mikilvægar hráolíubirgðir
hætti að berast.
Verð á Norðursjávarolíu, sem
yfirleitt er lagt til grundvallar
heimsmarkaðsverði, komst í allt að
18,32 dollara, sem var 36 senta
hækkun. Eftirlitsmenn og skrif-
Húsnæðisbréf
Avöxtun-
arkrafa
hækkar
ÁVÖXTUNARKRAFA húsnæðis-
bréfa hefur hækkað nokkuð í sumar.
í útboði Húsnæðisstofnunar ríkisins,
sem lauk í gær, fór meðalávöxtunar-
krafa bréfa til 15 og 20 ára í 5,18%
en í vor var hún komin niður fyrir
5%. Samtals var tekið 22 tilboðum
frá 5 aðilum, að nafnvirði 362 millj-
ónir króna.
Leitað var tilboða í þijá flokka
húsnæðisbréfa. í 1. flokki 1994 voru
bréf til 20 ára og var lægsta ávöxtun-
arkrafa 5,15% en hæsta 5,20% og
meðalávöxtun 5,18%. í 2. flokki 1994
voru bréf til 15 ára og var lægsta
ávöxtun 5,18% en hæsta 5,19% og
var meðalávöxtun 5,18%. í 3. flokki
1994 voru boðin bréf til 10 ára og
var lægsta ávöxtun 5,05%, sú hæsta
5,20%, en meðalávöxtun 5,11%.
stofumenn hafa gengið í lið með
verkfallsmönnum í Nígeríu og það
varð til þess að að Norðursjávarolíu-
verðið fór yfir 18 dollara.
Brezkur sérfræðingur sagði að
þótt verkfallið hefði ekki enn haft
áhrif á útskipun á 1,5 milljónum
tunna af hráolíu sem Nígeríumenn
framleiða á dag gerði ríkjandi
markaðsjafnvægi að verkum að
verðið væri viðkvæmt fyrir öllum
hugsanlegum truflunum, sem gætu
orðið á birgðasendingum.
Olíuverð í upphafi annars árs-
fjórðungs 1994 var tæplega fjórum
dollurum hærra en í febrúarlok, en
þá hafði það ekki verið eins lágt í
fimm ár. Verð á Norðursjávarolíu
hefur hins vegar ekki náð sér aftur
á strik síðan 1993 þegar það var
yfirleitt um 20 dollarar.
Olíuverð hefur hækkað á undan-
förnum mánuðum vegna aukinnar
eftirspurnar í Bandaríkjunum og
minna framboðs frá aðildarríkjum
OPEC.
Nígería er fyrrverandi aðili að
OPEC og selur olíu sína aðallega
til Bandaríkjanna og Vestur-Evr-
ópu. Verkfallsmenn i Nigeríu reyna
fá herforingjastjórn landsins til þess
að sleppa stjórnarandstæðingnum
Moshood Abiola úr haldi og stjórna
olíuiðnaði landsins betur.
SÉRHÆÐ SÝIMD í DAG
ÁLFHEIMAR 27
( dag höfum við til sýnis ca 150 fm sérhæð í fjórbýli ásamt
bilskúr. Á hæðinni eru 4 svefnherbergi, stofa og forstofuher-
bergi ásamt geymslu en í kjallara er sameiginlegt þvottahús
og sér geymsla. Ibúðin er nýmáluð og laus nú þegar.
Sölumaður okkar verður á staðnum kl. 18.00 í dag.
Ibúð í Hafnarfirði
Nýkomin til sölu snyrtileg 3ja herb. íbúð 74 fm á mið-
hæð við Köldukinn. Sérinng. Suðursvalir. Möguleg skipti
á 2ja herb. íbúð. Verð 5,7 millj.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.
Sjávarútvegur
Sölusamdráttur
hjá Sæplasti
TAP sem nam 8,2 milljónum króna
varð á rekstri Sæplasts hf. fyrstu
fjóra mánuði ársins. Ástæður taps-
ins má fyrst og fremst rekja til
samdráttar í sölu, en heildartekjur
Sæplasts á þessu tímabili voru 92,3
milljónir króna sem er rúmlega 14%
minni velta en fyrstu fjóra mánuð-
ina 1993.
Samdráttur í fjárfestingum
Sala Sæplasts á fyrsta ársfjórð-
ungi hefur undanfarin ár byggst á
góðri sölu innanlands eins og segir
í frétt frá fyrirtækinu. Ennfremur
segir að nú horfi svo við að með
minnkandi kvóta hafí dregið saman
í fjárfestingum í sjávarútvegi auk
þess sem verkfall sjómanna í janúar
sl. hafí seinkað fjárfestingum veru-
lega.
Bókfært verð heildareigna Sæ-
plasts 30. apríl sl. var 366 milljónir
króna samkvæmt milliuppgjöri fé-
lagsins. Þar af voru veltufjármunir
136.5 milljónir og aðrar eignir
229.5 milljónir. Heildarskuldir fé-
lagsins voru á sama tíma 137,8
milljónir og eigið fé því 228,2 millj-
ónir. Eiginfjárhlutfal! var skv. þessu
63% en var 66% um síðustu ára-
mót. Veltufjárhlutfall Sæplasts var
2,0 30. apríl sl. en 2,75 um síðustu
áramót.
Aukin sala á trollkúlum
í frétt Sæplasts segir að sölusam-
drátturinn fyrstu fjóra mánuði árs-
ins hafí komið fram bæði á innlend-
um og erlendum mörkuðum. Þó
hafí sala á trollkúlum erlendis auk-
ist um 23% á milli ára.
DOLLARI EKKI LÆGRI FRA STRIÐSLOKUM
Dollarinn styrkti sig á þriðjudag eftir að gengi hans hafði fallið meira en nokkru
sinnl frá striöslokum gagnvart yeni og hélt áfram að siga gagnvart öðrum gjaldmiölum.
DM ______ ¥
1,8
1,7
1,6
1,5
110
100
90
DM 1,5305
Þriðjud.
Kl. 13.00
j fmamjj8°j
Genqi i lok hverrar viku
»!* - "4 "J'• ■ 1- ■ «is ..
F M A M J J
Gengi í lok hverrar viku
Fer dollari í 95jen?
Tókýó. Reuter.
GENGI dollarans lækkar enn og
búist er við að sú þróun haldi áfram,
einkum gagnvart evrópsku gjaldm-
iðlunum. Það ýtir svo aftur dollar-
anum niður gagnvart japanska jen-
inu. Er því spáð, að hann fari niður
í 95 jen og 1,50 þýsk mörk.
„Eins og nú er komið virðist ekk-
ert geta stöðvað fall dollarans,“
sagði framkvæmdastjóri rafeinda-
fyrirtækis í Japan. „Við útflytjendur
erurn í alvarlegum vandræðum og
neyðumst til að selja dollara til að
geta staðið við samninga, sem
skráðir eru í jenum.“ Japanskir út-
flytjendur reyna að draga úr áhrif-
um gengisbreytinganna með fyrir-
framsamningum þar sem miðað er
við ákveðið gengi á jeninu og yfir-
leitt draga þeir fram á síðustu stund
að selja dollara. Það eykur hins
vegar bara þrýstinginn og sérfræð-
ingar segja, að rétti dollarinn við,
fari í um 100 jen, muni menn selja
hver um annan þveran og þar með
lækka gengið aftur.
í Tókýó fór dollarinn í 96,95 jen
en var í 97,07 þegar viðskiptum
lauk í gær. Þá fengust 1,5266
mörk fyrir hann. Yfirlýsingar Bills
Clinton Bandaríkjaforseta á leið-
togafundinum í Napólí hafa ýtt
undir gengislækkun dollarans en
þá kvaðst hann ekki mundu biðja
seðlabankann að hækka vexti og
hann sagði dollarann ekki í neinu
sögulegu lágmarki gagnvart evr-
ópskum gjaldmiðlum.
21150-21370
LARUS Þ. VALDIMARSSON. framkvæmdástjori
KRISTJAN KRISTJAIMSSON, loggiltur fasteignasau
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Glæsileg endaíbúð - gott verð
4ra herb. á 1. hæð við Hraunbæ 108,6 fm. Nýtt glæsilegt eldh. Sér-
hiti. Tvennar svalir. 3 svefnherb. á hæð og eitt í kj. með snyrtingu.
Ágæt sameign. Verð aðeins kr. 7,8 millj.
Bankastræti - úrvalsstaður
Verslunarhæð rúmir 110 fm. Kj. fylgir ásamt fleiru.
Teikningar og nánari uppl. aðeins á skrifst.
í nágrenni Vesturbæjarskóla
Mjög góðar 5 herb. hæðir í reisul. steinhúsum. Eignask. mögul. Vinsam-
legast leitið nánari upplýsinga.
Á úrvalsstað í Þingholtunum
Fyrsta hæð í reisul. þríbýlish. tæpir 100 fm. Mikið endurn. í „gömlum
stíl“. Tiiboð óskast.
í fremstu röð við Barðaströnd
Vel byggt og vel með farið raðh. á tveimur hæðum með innb. bílsk.
221,2 fm. Frábært útsýni yfir sundin til Esjunnar og Akrafjallsins.
Fyrir smið eða laghentan
Á úrvalsstað við Safamýri 6 herb. sér efri hæð 144,5 fm nettó. Rúmg.
suðursv. Þarfnast nokkurra endurbóta. Bilsk. 27,6 fm. Tilboð óskast.
• •
Höfum starfað í 50 ár.
Almenna fasteignasalan sf
var stof nuð 12. júlf 1944
AIMENNA
..._______.... FASTEIGNASAl AN
Elsta fasteignasalan flandinu. LAUGAvÉGn?S?MARlvÍ5Ö^2Í37Ö