Morgunblaðið - 13.07.1994, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.07.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ1994 31 NYJA BILAHOLUN FUNAHOFDA I S: BÍLATORG FUNAHOFDA T S: BRÉF TIL BLAÐSINS MARGAR fjölskyldur og einstaklingar í Reykjavík eiga um sárt að binda vegna ofbeldis af ýmsu tagi. Rangtúlkun 1 fréttaflutningi Frá Félagsmálastofnun Reykjavik- urborgar: FÉLAGSMÁLASTOFNUN Reykja- víkurborgar beinir þeim tilmælum til fréttastofu Ríkissjónvarpsins, RÚV, að hún varist oftúlkun/rangtúlkun í fréttaflutningi á borð við þann sem áhorfendur sjónvarpsfrétta urðu vitni að þann 29. júní sl. í umfjöllun um ofbeldi. Skoðannakönnun Gallups Fréttin byggði á „spurningavagni“ Gallups þar sem ein af fjölda spurn- inga var: „Getur þú ímyndað þér ein- hveijar réttlætanlegar ástæður þess að a). .. kona myndi slá mann sinn utan undir? b). .. maður myndi slá konu sína utan undir?“ Fréttastofa sjónvarpsins túlkaði niðurstöður Gallups á þann veg að „rúmlega 40 af hundraði íslenskra karla telji réttlætanlegt að eiginmað- ur berji konu sína, en 27 af hundr- aði íslenskra kvenna". Við þessa frétt er ýmislegt að at- huga. Spurningin sem lögð var fyrir svarendur gaf ekki ástæðu til þess- arar túlkunar. Spurt var hvort fólk gæti ímyndað sér réttlætanlegar að- stæður þess að eiginmaður slægi konu sína utanundir og hins vegar kona mann sinn. Sú túlkun að 40 af hundraði íslenskra karla telji rétt- lætanlegt að eiginmenn beiji konur sínar stenst því ekki. í fyrsta lagi ekki talað um að berja, heldur að slá utanundir. I öðru lagi var umfjöllunin á þann veg að skilja mátti að einstaklingnum sjálfum þætti í lagi að beija maka sinn, meðan spurningin beindist að því hvort maður gæti „ímyndað sér að- stæður...“, spuming sem beinist á engan hátt að athöfnum einstakl- ingsins sjálfs og má því ekki túlka á þann hátt. í þriðja lagi kom fram í umræddri frétt að 27 af hundraði íslenskra kvenna telji réttlætanlegt að eigin- menn beiji þær. Hið rétta er að 27 af hundraði íslenskra kvenna getur ímyndað sér réttlætanlegar aðstæður þess að eiginkona slái mann sinn utanundir. Fréttaflutningur af því tagi sem um ræðir hér ýtir undir fordóma og er skoðanamyndandi. Að staðhæfa og ýta undir þá skoðun að íslenskar konur telji í lagi að eiginmenn betji þær, þegar enginn fótur er fyrir slíkri fullyrðingu er óafsakanlegt. Margar íjölskyldur og einstakling- ar í Reykjavík eiga um sárt að binda vegna ofbeldis af ýmsu tagi. Hluti þessara aðila leita aðstoðar Félags- málastofnunar Reykjavíkurborgar, eða annarra stofnana. Enn aðrir bera harm sinn í hljóði. Fordómar og viðhorf í samfélaginu eru þolendum ofbeldis nógu mikill fjötur um fót, þá að fréttastofa Ríkis- útvarpsins — útvarp allra lands- manna — bæti þar ekki betur með vinnubrögðum af því tagi sem um ræðir hér. Ofbeldi í ýmsum myndum er vand- meðfarið efni og vissulega brýnt að um það sé fjallað. Nógu lengi hafa mál sem þessi iegið í þagnargildi. Eðli málanna gera hins vegar kröfu til vandaðrar og nærgætinnar um- fjöllunar. Á því varð því miður mis- brestur í þessu tilviki. LÁRA BJÖRNSDÓTTIR, félagsmálastjóri. Gagnasafn Morgimblaðsms Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Mazda MX3 V6 árg. '92, rauður, ek. 36 þ. km., rafm. í öllu, álflegur, sóllúga. Verð kr. 1.750.000 stgr., ath. skipti. Honda Civic ESI árg. ‘93, blár, ek. 27 þ. km., rafm. i öllu, sóllúga. Verð kr. 1.390.000 stgr., ath. skipti. Það er margt sem aðrir bílar eiga sameiginlegt með Peugeot 306. Eitt blab fyrir alla! 3Rto0itiilT(aMb - kjarni málsins! Toyota Landcruiser árg. ‘88, grár, ek. 97 þ. km. Verð kr. 1.250.000. MMC Pajero langur árg. ‘90, blásans, diesel, ek. 89 þ. km. Verðkr. 1.990.000. sk. áód. Spegill Þak Framrúða VW Golf GT árg. ‘93, rauður, ek. 16 þ. km., sóllúga, 5 g., 1800 vél. Verð kr.1.550.000 stgr., ath. skipti. Nissan Primera 2000 árg. ‘91, hvítur, ek. 75 þ. km. Verð kr. 1.250.000 sk. á dýrari. GMC Jimmy árg. ‘91, svartur. Einn með öllum hugsanlegum búnaði. Ek. aðeins 48 þ. km. Verð kr. 2.900.000. Toyota Carina E árg. ‘93, ek. 33 þ. km., rauður, sjálfsk. Verö kr. 1.650.000. MMC Colt GLXi EXE árg. ‘92, hvitur, ' ek. 57 þ. km., rafm. í öllu, álfelgur. Verð kr. 1.090.000 stgr., ath. skipti. Ford Econoline 350 diesel árg. ‘89, grá/blár, ek. 48 þ. km., 38“ dekk, álfelgur, loftlæs., hlutföll, hár topp., simi, sjónvarp, Captain stólar o.m.fl. Verð kr. 3.950.000. Felga Þér finnst kannski eins og allir bílar í dag séu eins. En ef þú lítur aðeins í kringum þig í stað þess að fljóta með straumnum sérðu að til er bíll sem er ekki eins og allir hinir. Bíll sem er öðruvísi. Bíll sem sem sker sig úr fyrir fágað yfirbragð sitt og góða hönnun. Bíll sem þú ert alltaf öruggur í. Bíll með eiginleika sem þú finnur hvergi annarsstaðar. Bíll sem þú nýtur að aka, hvert sem er, hvenær sem er. Þessi bíll er Peugeot. Peugeot á vissulega margt sameiginlegt með öðrum bílum, en hann skarar einnig framúr í mörgu. Þeir sem kynnst hafa Peugeot þekkja það vel. Peugeot er eins og sniðinn fyrir íslenska vegi. Mjúkur, stöðugur, sparneytinn og sætin em frábær. Hvað kostar þá að vera öðruvísi? Minna en ekki neitt. Hvernig líst þér t.d. á vel búinn, 5 dyra Peugeot 306 á kr. 1.088.000,- Bretti 4 dekk PEUGE0T 306. A SER ENGAN LIKA! PEUGEOT Nýbýlavegur 2, Kópavogur, sími 42600 BORGIN sími 11440 SUSHI MIÐVIKUDAGS - SUNNUDAGSKVÖLD - Borð fyrir þig - BORGIN sími 11440

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.